Morgunblaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
AF KÚLTÚR
Guðmundur Egill Árnason
gea@mbl.is
Á Íslandi höfum við lengiverið menningarlega föst ífortíðinni. Sú félagslega
tregða sem ný orð og hugmyndir
hafa mætt á landinu er að vissu leyti
einkennandi fyrir íslenskt þjóðlíf og
menningareinkenni út af fyrir sig.
Þessi eilífa barátta við að vernda ís-
lenska tungu og íslenskan menning-
ararf virðist eiga að halda íslenskri
tungu í föstu formi. Við gerum
sumri menningu hærra undir höfði
en annarri og skellum algildum
mælistikum á allt það sem hverfult
er. Þessi hugsun fer vonandi að
breytast.
Tregðan er mjög frábrugðin þvísem gerist á flestum stöðum í
nærheimi okkar … nema nær-
heimur okkar væru Lönd-sem-enda-
á-stan og helstu menningarviðburð-
irnir væru búrku-böll í Kabúl! Það er
ótrúlegt að á landi sem trúir því að
fullorðið fólk skuli hafa vald yfir eig-
in lífi, skuli fólki ekki í sjálfvald sett
hvaða orð það notar á viðurkennd-
um vettvangi eins og á dagblaði eða
jafnvel hvaða nöfnum það nefnir
börnin sín.
Mannanafnanefnd er eiginleganefndargervingur þess sem
einkennir þennan kúltúr. Ég þekki
engan sem hefur ekki hent gaman
að tilvist mannanafnanefndar eða
hneykslast á henni að minnsta kosti
einu sinni á ævinni. Að vísu hefur
það í sumum tilfellum verið yfir sam-
þykktum nöfnum þegar foreldrar
kenna börnin við Satan eða það
fyrsta sem þeir sjá í kringum sig
þegar barnið fæðist, stundum hús-
gögn. Nefndin er einkennandi fyrir
stefnu íslenskra menningarstofn-
ana, meðal annars menntakerfisins,
sem miðar að því að halda aftur af
öllum breytingum og eðlilegri þróun
málsins. Svo er Lampi Jónsson ekki
slæmt nafn.
Mjög fáir Íslendingar gera sérgrein fyrir því að íslenska er
hvað skilning varðar (for all cogni-
tive purposes) jafnólík forn-íslensku
og sænska. Sama stafróf var ekki
notað og gjörsamlega allt annað
hljóðkerfi. Ördæmi: Í íslensku voru
tvö æ, sem voru löng sérhljóð í stað
tvíhljóðans sem við notum í dag, tvö
ö, sem að vísu voru önghljóð en
hljómuðu eins og o annars vegar og
danskt Ø hins vegar og svona mætti
lengi telja án þess að lesendur skildu
nokkuð. Né skildu lesendur nokkuð
ef þeir læsu alvöru-forníslensku eða
hlustuðu á forníslenska hljóðbók en
ekki námsbækur skólanna. Þær gefa
mjög blekkjandi mynd af fornri ís-
lensku.
Þegar ný orð koma úr enskueða mönnum dettur sjálfum
eitthvert orð í hug þurfa þeir að bíða
eftir næstu orðabók frá Merði Árna-
syni til þess að hann geti sagt okkur
hvort orðið sé nothæft eða ekki í
blöðum landsins. Það er eins gott að
maður stelist fyrir aftan hann í bíó
þá og hvísli því að honum, ef maður
vill fá leyfi til að nota það á opinber-
um vettvangi.
Unga kynslóðin er kynslóð ör-
samskipta við umheiminn. Mengi ís-
lenskrar menningar skerst við
mengi bandarískrar menningar og
því verður ekki breytt. Við ættum að
opna okkur fyrir nýjum orðum, en
ekki bara sætta okkur við ógrynni af
orðum sem urðu ekki íslensk fyrr en
á 15. öld eða 16. öld eða 17. öld -
t.a.m. eru öll orð sem byrja á p full-
Misskilningur í íslenskri menningu
»Mjög fáir Íslend-ingar gera sér grein
fyrir því að íslenska er
jafnólík forn-íslensku og
sænska. Annað stafróf
og hljóðkerfi.
Íslenska Málið er gjörólíkt því forna í hljóði og málnotkun. Enginn myndi tala né skrifa líkt fornmönnum.
Karate Kid kl. 5:10 - 8 - 10:50 LEYFÐ Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 3:30 LEYFÐ
Karate Kid kl. 5:10 - 8 - 10:50 LÚXUS Shrek 4 3D enskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ
Babies kl. 6 - 8 LEYFÐ Knight and Day kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Predators kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Grown Ups kl. 10 LEYFÐ
Shrek 4 3D íslenskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ
Sími 462 3500
Karate Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Predators kl. 10 B.i. 16 ára
Knight and Day kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
S.V., MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Jackie Chan kennir ungum lærling
sitthvað um Kung fu í vinsælustu
fjölskyldumynd ársins!
Missið ekki af myndinni
sem sló í gegn í
Bandaríkjunum og fór
beint á toppinn.
FRÁBÆR
GRÍNMYN
D
FYRIR ALL
A
FJÖLSKYL
DUNA!
SÝND Í
Þrívíddin er ótrúlega
mögnuð.
- New York Daily News
L.A Times
USA Today
T.V., Kvikmyndir.is
Börnin í einlægni sinni og
sakleysi eru bæði yndisleg
og sprenghlægileg
-H.G., MBL
Stórfín hugmynd sem
útfærð er á einfaldan og
áhrifaríkan máta
-Ó.H.T. Rás 2
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Með lokakaflanum af
Shrek tekst þeim að
finna töfrana aftur.
- Empire
Bráðfyndin og hjartnæm frá
byrjun til enda. Lang besta
Shrek myndin og það eru
engar ýkjur.
- Boxoffice Magazine
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng