Morgunblaðið - 29.07.2010, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
komlega óíslensk ef íslenskuverðir
ættu að gæta samræmis í hug-
myndakerfi sínu því þau koma að
utan: pabbi, páfi, pappír, poki
o.s.frv.
Í fornöld sögðu menn ekki einusinni „Ég er“ heldur „Ek em“.
Þetta eru tvö grundvallarorð, „ek“
minnir á þýska „ich“og „em“ er eins
og „am“ í ensku. Af hverju notum
við þetta ekki í öllum blöðum til að
vernda íslensku?
Það versta er þegar þessi ar-
bitraríska vængstýfing við-
urkennds íslensks máls myndar gjá
milli eldri kynslóðarinnar (til dæm-
is í gegnum dagblöðin) sem fær
ekki tækifæri á að kynnast hug-
tökum sem þeir yngri nota oft og
tíðum í daglegu máli.
Orð eru farvegur hugmynd-anna og við eigum ekki að
eyða lífi okkar, skattpeningum né
orku í að eltast við orð og hugtök
sem mega ekki heyrast fyrr en þau
taka sér bókfestu. Já, bókfestu. Orð
hafa merkingu fyrir ákveðna hópa
og annað fólk fær aldrei að kynnast
þeirri fjölbreytni og vídd í hugsun
samfélagsins nema fólk hafi frelsi
til orða og frelsi til þess að lesa það
sem aðrir raunverulega hafa að
segja.
Netsíða MTV greinir frá því að
mögulega hafi söngvarinn nýlátni,
Michael Jackson, átt dóttur á laun en
kona hefur komið fram og sagst
vera dóttir hans. Mocienne Petit
Jackson heldur því fram að árið
1975 hafi hann barnað móður henn-
ar, Barböru, sem vill svo til að er
systir söngkonunnar Díönnu Ross.
Þá hefur Mocienne sótt um að skyld-
leiki hennar við Jackson verði lög-
festur fyrir dómi í Los Angeles og að
hún hafi verið flækt í samsæri um að
koma í veg fyrir að faðerni hennar
yrði ljóst og hún hafi m.a. verið
brottnumin. Hún býr um þessar
mundir í Hollandi og er dómari um
þessar mundir að reyna að ákvarða
hvort taka eigi DNA-sýni til að
reyna að hrekja eða staðfesta frá-
sögn konunnar. Þá er þetta í þriðja
sinn sem einhver segist vera lausa-
leikskrógi popp-kóngsins en ljóst er
að eftir miklum arfi er að slægjast.
Kóngurinn Systurdóttir Díönnu Ross segist vera dóttir söngvarans.
Segist vera dóttir
Michaels Jackson
Tónlistarkonan MIA hefur lagt til atlögu
gegn Lady Gaga enn á ný eftir að banda-
ríska sjónvarpskonan Oprah Winfrey hrósaði
hinni gífurlega vinsælu söngkonu. Maya
Arulpragasam eins og MIA nefnist réttu
nafni, fékk útrás fyrir reiði sína eftir að Op-
rah sýndi henni lítinn áhuga í Metropolitan
Ball-veislunni í New York. Þá hélt sjónvarps-
konan fræga mikla ræðu í veislunni þar sem
hún hrósaði Lady GaGa fyrir að hjálpa
Bandaríkjamönnum til að vera upp á sitt
besta. Þá lét MIA hafa eftir sér að það fyr-
irfyndust milljónir Bandaríkjamanna sem sönn-
uðu að það sama gilti um hana sjálfa. „Snýst
þetta um tölur? Snýst þetta um hve mikið þú
selur? Snýst þetta virkilega um þá vegferð?
Vegna þess að það sem hún [Lady GaGa] er að
gera er ekkert það erfitt. Að fara frá helvítis
austurströnd New York í einhvern kúkalista-
skóla og á svið í einhverju ömurlegu safni. Sú
vegferð er svona fjórar mílur,“ sagði söngkonan
ævareið en hún sagði líka að henni fyndist Oprah
hafa hundsað sig í veislunni. „Hún var með Iman,
konunni hans David Bowie og hún var alltaf að
knúsa mig og kyssa mig og dansa við mig en Oprah
virtist vera virkilega pirruð út í mig.“ Söngkonan og
rapparinn hefur áður sagt að Lady Gaga hermi eftir
listamönnum eins og Madonna og Grace Jones og
kallar hana góða eftirhermu.
MIA Kallar ekki allt ömmu sína
og á auðvelt með að verða reið.
MIA
gegn Gaga
Karate Kid kl. 6 - 8 - 9 - 10:45 LEYFÐ Killers kl. 8 - 10:15 B.i. 12 ára
Babies kl. 6 LEYFÐ Grown Ups kl. 5:45 LEYFÐ
Predators kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára The A-Team kl. 5:30 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 10:40 Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
Sýnd kl. 4 og 6 Íslenska 3D
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 4 Íslenska 2D
Sýnd kl. 8 Enska 3D
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Óttinn rís á ný...
Í þessum svakalega spennutrylli
Þau eru hættulegustu morðingjar jarðar
En þetta er ekki plánetan okkar...
Predators er hin
líflegasta og kemur
með ferskt blóð í
bálkinn
-S.V., MBL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
OG HÁSKÓLABÍÓI
Sýnd kl. 5, 8 og 10
Hér er á
ferðinni fínasta
spennuafþreying sem
er trú uppruna sínum,
harðhausa myndum
9. áratugarins.
-J.I.S., DV
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
FRÁBÆR G
RÍNMYND
FYRIR ALL
A
FJÖLSKYL
DUNA!
SÝND Í
Missið ekki af myndinni sem sló
í gegn í Bandaríkjunum og fór
beint á toppinn.
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
gdu Aukakrónum!