Morgunblaðið - 19.11.2010, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 271. tölublað 98. árgangur
BERSÖGUL OG
GRÓTESK
ÁSTARSAGA
BÚIST VIÐ
ÁTAKAFUNDI
GLAMÚR OG LITA-
GLEÐI Á NÆR-
FATASÝNINGU
TEKIST Á UM ESB 9 VICTORIA’S SECRET 11MEGAS OG ÞÓRUNN SKRIFA 38
Fréttaskýring eftir
Agnesi Bragadóttur
„Við getum
ekki hækkað
verðið hjá okkur
því við berum
okkur saman við
erlenda flug-
velli,“ segir Ásta
Dís Óladóttir,
framkvæmda-
stjóri Fríhafn-
arinnar, en lagt verður vörugjald á
bjór og annað áfengi í Fríhöfninni
um næstu áramót.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir að til greina
komi að gera breytingar á skatt-
lagningu áfengis, einkum bjórs,
þannig að miðað verði meira við
styrkleika. »4
Áfengi í Fríhöfninni
hækkar ekki þrátt
fyrir vörugjald
Leiðarvísir sambandsins
» Könnun Eurobarometer var
gerð af Capacent Gallup í maí
og tóku 526 Íslendingar þátt í
henni.
» Kannanir Eurobarometer
hafa í hartnær fjóra áratugi ver-
ið notaðar við stefnumótun
framkvæmdastjórnar ESB.
» Einnig er fjallað um könnun
Hagstofu ESB (Eurostat) í
Morgunblaðinu í dag en þar
kemur fram að Íslendingar flytj-
ast fyrr úr foreldrahúsum en
jafnaldrar þeirra víðast í ESB.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Svipað hlutfall Íslendinga og Kýp-
verja, eða 52% annars vegar og 53%
hins vegar, telur að ástandið á vinnu-
markaði heima fyrir sé betra en að
meðaltali í ríkjum Evrópusambands-
ins.
Þetta má lesa úr könnun Euro-
barometer sem gerð var vegna aðild-
arumsóknar Íslands að sambandinu
en í henni kemur fram að íbúar að-
eins átta ríkja, að Kýpverjum með-
töldum, telja að ástandið á eigin
vinnumarkaði sé betra en meðaltalið í
ESB.
Fram kemur í könnuninni að 41%
Íslendinga telji ástandið í vinnumál-
um að meðaltali betra í ESB en á Ís-
landi en 7% taka ekki afstöðu. Til
samanburðar telja 97% Grikkja að
ástandið sé betra í ESB en í Grikk-
landi. Hlutfallið er nánast það sama í
Lettlandi og Litháen, eða 96%.
Tekið skal fram að könnunin var
gerð í maí eða um það leyti sem
kreppan skall af öllu afli á Grikklandi.
Spurningarmerki við evruna
Þau tíðindi hafa síðan gerst að Ír-
land er talið þurfa neyðaraðstoð frá
Evrópusambandinu, auk þess sem
spurningar hafa vaknað um framtíð
evrunnar sem gjaldmiðils.
Aðildarríki ESB eru nú 27 talsins
en eins og fram kemur í Morgun-
blaðinu í dag er atvinnuleysið meira í
17 af 27 aðildarríkjum sambandsins.
Mælist það mest á Spáni, Lett-
landi, Eistlandi og Litháen en þar er
það á bilinu frá 18,2 til 20,8%.
Vítahringur á evrusvæðinu
Fjallað er um dökkt útlit á vinnu-
markaðnum í mörgum ríkjum
Evrópusambandsins í Morgun-
blaðinu í dag en þar kemur fram í
máli Matthews Lynns, dálkahöfund-
ar hjá fréttaveitunni Bloomberg, að
vegna djúpstæðs vanda á evrusvæð-
inu sé útlit fyrir viðvarandi atvinnu-
leysi. Írar og líklega Portúgalar þurfi
á neyðaraðstoð frá ESB að halda sem
aftur kalli á seðlaprentun og niður-
skurð.
Þá hafi væntingar um samruna
evruríkja ekki ræst.
Meiri bjartsýni en í ESB
Íslendingar hafa meiri tiltrú á eigin vinnumarkaði en íbúar flestra ESB-ríkja
Atvinnuleysi er minna hér en víðast hvar í ESB Evrusvæðið í tilvistarkreppu
MDræmar atvinnuhorfur »16
Pósthússtræti var lokað í gær, ekki þó vegna
veðurblíðu eins og gjarnan gerist að sumarlagi.
Götunni var lokað vegna töku stuttmyndarinnar
Bona petit, sem er í leikstjórn Helenu Stefáns-
dóttur. Ekki var annað að sjá en leikurunum lík-
aði lífið hið besta er þeir stigu glaðlegan dans á
götum úti. Engum fipaðist dansinn, þrátt fyrir
að hann væri stiginn á ósléttu og steinilögðu
strætinu.
Götudans stiginn í Pósthússtræti
Morgunblaðið/Eggert
Lárus Welding var yfirheyrður af
sérstökum saksóknara í gær í
tengslum við húsleitir, sem emb-
ættið lét fara fram á þriðjudag.
Hafa því tíu manns verið yfirheyrð-
ir í tengslum við rannsóknina, enn
sem komið er.
Jón Ásgeir Jóhannesson og
Pálmi Haraldsson hafa ekki verið
kallaðir til yfirheyrslu, en rann-
sóknin snýst um lánveitingar Glitn-
is til félaga tengdra þeim, svo sem
dótturfélags Fons. Þá eru lán til
Baugs og 101 Capital til rann-
sóknar, en 101 var í eigu eiginkonu
Jóns Ásgeirs, Ingibjargar Pálma-
dóttur. »20
Lárus Welding
yfirheyrður í gær
Búist er við
að margir eigi
eftir að leggja
leið sína til
sýslumanna á
næstunni til
þess að ganga
frá fyrirfram-
greiddum arfi
til erfingja
sinna, en erfðafjárskattur verður
hækkaður um næstu áramót, að
sögn Eyrúnar Guðmundsdóttur,
deildarstjóra sifja- og skipta-
deildar sýslumannsembættisins í
Reykjavík.
Dánarbú þeirra sem látast fyrir
áramótin munu þannig bera 5%
skatt eins og áður en skatturinn
verður síðan hækkaður í 10% eft-
ir þau. »6
Skattur á arf hækk-
ar um áramótin
Íslensk gjöf fyrir sælkera
SÆLKERAOSTAKÖRFUR
Kynnið ykkur úrvalið á ms.isms.is