Morgunblaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
Reuters
Með stjörnunum Sarah Palin og eiginmaður hennar, Todd (t.h.), horfa á
dóttur sína, Bristol, dansa í sjónvarpsþættinum „Dancing With The Stars“.
Sarah Palin, vonarstjarna teboðs-
hreyfingarinnar í Bandaríkjunum,
íhugar nú alvarlega þann möguleika
að sækjast eftir því að verða forseta-
efni repúblikana í kosningum eftir
tvö ár. Palin skýrði frá þessu í viðtali
sem birt verður í sunnudagsblaði
The New York Times. Hún sagði síð-
an í viðtali, sem ABC-sjónvarpið
sýnir 9. desember, að hún gæti sigr-
að Barack Obama forseta í kosning-
unum. Hún viðurkenndi þó að áhrifa-
miklir menn úr röðum repúblikana
legðust gegn framboði hennar.
Flestir veðja á Romney
Liðið gætu margir mánuðir áður
en Palin gerir upp hug sinn og
hugsanlegt er að hún ákveði að bjóða
sig ekki fram vegna vísbendinga um
að þótt margir repúblikanar hafi
miklar mætur á henni telji þeir ólík-
legt að hún geti sigrað Obama.
Skoðanakönnun, sem náði til 2.200
bandarískra íhaldsmanna, rennir
stoðum undir þetta. Þegar þátttak-
endurnir voru spurðir hvaða forseta-
efni úr röðum repúblikana þeir hefðu
mestar mætur á nefndu 23% Palin. Í
öðru sæti var Newt Gingrich, fyrr-
verandi forseti fulltrúadeildar þings-
ins, og 21% nefndi hann.
Þetta breyttist þó þegar þátttak-
endurnir voru spurðir hver væri lík-
legastur til að verða valinn forseta-
efni repúblikana. Flestir nefndu þá
kaupsýslumanninn Mitt Romney,
fyrrverandi ríkisstjóra Massachu-
setts. Um 35% nefndu Romney en
aðeins 17% Palin.
Sarah Palin var varaforsetaefni
repúblikana í síðustu kosningum.
Hún hefur verið mjög í sviðsljósinu
að undanförnu og hóf eigin raun-
veruleikaþátt í sjónvarpi á sunnu-
daginn var. bogi@mbl.is
Kveðst geta sigrað Obama
Palin íhugar alvarlega að sækjast eftir því að verða forsetaefni repúblikana
Þótt margir íhaldsmenn hafi mætur á Palin telja þeir að hún geti ekki náð kjöri
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Yfirvöld á Haítí óttast að 10.000
manns deyi af völdum kólerufarald-
urs sem hefur valdið óeirðum í
landinu síðustu daga. Embættis-
menn Sameinuðu þjóðanna segja að
óeirðirnar trufli hjálparstarfið og
magni enn glundroðann sem ríkt
hefur í landinu frá jarðskjálftanum
í janúar þegar 250.000 manns fór-
ust og 1,3 milljónir manna misstu
heimili sitt.
Heilbrigðisráðuneyti Haítí segir
að 1.100 manns hafi þegar dáið af
völdum kóleru frá því að sjúkdóms-
ins varð fyrst vart undir lok októ-
ber. Nær 18.400 manns hafa verið
flutt á sjúkrahús vegna kólerusýk-
ingar.
Ráðgjafi á vegum Heilbrigðis-
stofnunar Ameríkuríkja segir að
gert sé ráð fyrir því að um 200.000
sýkist af kóleru á næstu sex til tólf
mánuðum. Um það bil 4-5% þeirra
sem sýkjast hafi dáið og haldist
dánarhlutfallið óbreytt sé líklegt að
um 10.000 manns deyi.
Óttast er að dauðsföllunum fjölgi
til mikilla muna ef sjúkdómurinn
berst í flóttamannabúðir þar sem
hundruð þúsunda manna hafa dval-
ið við mjög slæmar aðstæður frá
jarðskjálftanum.
Kenna friðargæsluliðum um
Að minnsta kosti þrír Haítar hafa
beðið bana í óeirðum sem hófust á
mánudaginn var þegar mótmælend-
ur réðust á nepalska friðargæslu-
liða. Kólera hefur verið landlæg í
Nepal og mótmælendurnir sökuðu
friðargæsluliðana um að hafa komið
með sjúkdóminn til Haítí. Embætt-
ismenn Sameinuðu þjóðanna neita
þessu og telja að mótmælin séu af
pólitískum rótum runnin, markmið-
ið sé að trufla forsetakosningar sem
fara fram þarnæsta sunnudag.
Mótmælendur létu m.a. greipar
sópa um vöruhús, þar sem geymd
voru 500 tonn af matvælum, og
kveiktu síðan í því. Óeirðirnar urðu
einnig til þess að fresta þurfti flugi
með hjálpargögn og töfðu hreinsun
drykkjarvatns.
Kólera er bráð þarmasýking og
berst í menn með menguðu vatni og
matvælum.
Óttast að 10.000 manns deyi
af völdum kólerufaraldurs
Óeirðir tefja hjálparstarfið á Haítí
Yfir 1.100 manns hafa þegar dáið
Reuters
Neyð Sjúklingar í sjúkraskýli sem samtökin Læknar án landamæra hafa komið upp í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, vegna kólerufaraldursins.
Estudio R. Carrera fyrir
50 km
Heimildir: Heilbrigðisstofnun Ameríkuríkja, MINUSTAH
KÓLERUFARALDUR Á HAÍTÍ
HAITI
Karíbahaf
ARTIBONITE
CENTRO
NORTE
NOROESTE
OESTE DÓMINÍSKA
LÝÐVELDIÐ
Port-au-Prince
SUR
Svæði þar sem
kólera hefur
breiðst út
Bækistöðvar
friðargæsluliðs SÞ
Sérsveitir
nepalskra
friðargæsluliða
Árásir á
friðargæsluliða
Her- og lögreglumenn
14.930
Aðrir starfsmenn
1.716
Sjálfboðaliða
204
FRIÐARGÆSLULIÐ SÞ*
Fjöldi starfsmanna 30. ágúst
Erlendir
481
Innlendir
1,235
Hermenn
11.848
Lögreglu-
menn
3.082
* MINUSTAH, friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna á Haítí
Nepal hefur sent 1.000
friðargæsluliða til Haítí
Hinche Mánudag
Nokkrir friðargæslu-
liðar og mót-
mælendur særðust
Cap-Haitien
Mánudag
Tveir Haítar biðu
bana í óeirðum þegar
mótmælendur réðust
á friðargæsluliða
Artibonite-fljót
Héraðsdómur í
Stokkhólmi féllst
í gær á beiðni
saksóknara um
að gefin yrði út
handtökuskipun
á hendur Julian
Assange, stofn-
anda uppljóstr-
unarvefjarins
WikiLeaks, í
tengslum við
ákæru á hendur honum fyrir
nauðgun og önnur kynferðisbrot.
Lögmaður hans, Mark Stephens,
sagði síðdegis að Assange hefði
verið í London í gærmorgun en
kvaðst ekki vita hvar hann dveldi
nú. Hann sagði að Assange hefði
ítrekað boðist til að mæta til yfir-
heyrslu í Svíþjóð eða Bretlandi.
„Þetta er ekki saksókn, heldur of-
sókn,“ bætti lögmaðurinn við.
Á heimasíðu ríkissaksóknara Sví-
þjóðar segir Marianne Ny saksókn-
ari að ástæðan fyrir handtökuskip-
uninni sé að ekki hafi tekist að fá
Assange til að mæta til yfirheyrslu
vegna ákæru sem gefin hefur verið
út á hendur honum í Svíþjóð. Ass-
ange sé grunaður um nauðgun í En-
köping, og um önnur kynferðisbrot
í Enköping og Stokkhólmi. Eru
brotin talin hafa verið framin á
tímabilinu frá 13.-18. ágúst.
Gefin út handtöku-
tilskipun á hendur
Julian Assange
Julian
Assange
SVÍÞJÓÐ
Róm. AFP. | Róm-
versk stytta af
guðinum Mars,
sem prýðir skrif-
stofu Silvios Ber-
lusconis, for-
sætisráðherra
Ítalíu, hefur ver-
ið gerð upp.
Styttan skartar
m.a. glænýju
typpi og var það
sett á samkvæmt sérstökum fyrir-
mælum forsætisráðherrans.
Marmarastyttan af Mars, stríðs-
guði Rómverja, og ástargyðjunni
Venusi var gerð á annarri öld eftir
Krist. Viðgerðin kostaði 70.000 evr-
ur (10,8 milljónir kr.) og voru hefð-
bundnar aðferðir við viðgerð slíkra
forngripa ekki í heiðri hafðar, að
sögn dagblaðsins La Repubblica.
Arkitekt Berlusconis sagði að
breytingin hefði verið heimiluð og
hægt væri að fjarlægja liminn.
Mars fékk nýjan lim
í boði Berlusconis
Venus og Mars.
ÍTALÍA
Sarah Palin lýsti yfir stuðningi
við marga frambjóðendur úr
röðum teboðsmanna í þing-
kosningunum í Bandaríkjunum
fyrr í mánuðinum. Nokkrir
þeirra höfðu þó ekki erindi sem
erfiði, þeirra á meðal Joe Miller,
sem virðist hafa beðið ósigur
fyrir Lisu Murkowski í öldunga-
deildarkosningum í Alaska,
heimaríki Palin.
Murkowski er repúblikani og
átti sæti í öldungadeildinni en
þurfti að bjóði sig fram utan
flokka eftir að Miller var valinn
frambjóðandi repúblikana með
stuðningi Palin, fyrrv. ríkis-
stjóra Alaska. Kjósendur þurftu
að rita nafn Millers á kjörseðil-
inn og hafi hann sigrað eins og
flest benti til í gær er þetta í
fyrsta skipti frá árinu 1954 sem
frambjóðandi nær kjöri í þing-
deildina með þessum hætti.
Teboðsmað-
urinn tapaði
ÓVÆNT ÚRSLIT Í ALASKA