Morgunblaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 39
AF LÍFSSTÍL
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Lífið á Íslandi væri áreið-anlega betra ef IKEAstjórnaði landinu. Þessari
verslun (get varla talað um IKEA
sem verslun því þetta er lífsstíll)
hefur tekist hið ótrúlega, að láta Ís-
lendinga fara eftir reglum. Þarna
kemur fólk af ýmsu tagi og gengur
fyrirfram ákveðna leið, skrifar nið-
ur númer, fer í röð við kassann og
síðast en ekki síst passar að strika-
merkin snúi rétt.
Ég þekki mann (Breta) semkunni ekkert sérstaklega vel
við sig í Kaupmannahöfn. Honum
fannst allt svo öruggt þar. Til dæm-
is fannst honum það jaðra við að
vera óþægilegt þegar honum var
boðið teppi á útikaffihúsi þegar
kólnaði. Í hans huga var öryggi ein-
hvers konar samnefnari yfir leið-
indi. Þessum manni líður vænt-
anlega ekki vel í IKEA (hef ekki
spurt). IKEA hugsar fyrir öllu. Þeg-
ar maður er orðinn þyrstur birtist
vatnsdunkur. Þegar maður er orð-
inn þreyttur blasir við veitinga-
staður sem hlýtur að vera einhver
allra ódýrasti á landinu (súkku-
laðifrauðið er ómissandi) og núna
er meira að segja selt vín þarna.
Á staðnum er gjafaherbergi
fyrir konur með barn á brjósti (og
ókeypis bleyjur!) og lítið borð og
stóll fyrir eldra systkini sem þarf að
bíða eftir mömmu. Þetta er já-
kvætt. Mun dýrari verslanir hafa
ekki fyrir því að sjá fyrir þörfum
viðskiptavina sinna með þessum
hætti. Meira að segja vönustu gest-
gjöfum tekst ekki endilega jafn vel
upp.
Til viðbótar er líka langur listium í hvaða röð áleggið á að
fara á pizzuna. Þetta fellur undir
„öryggi“, leiðbeiningarnar eru til
þess að árangur verði góður. Sumir
kalla þetta forræðishyggju, aðrir
(eins og ég) hugulsemi. Þetta eru
aðeins ábendingar, hver og einn
getur gert það við pizzuna sem
hann vill.
Alltaf eru einhverjir sem gant-
ast með það að flatar pakkingar séu
einhvers konar táknmynd fyrir
hugmyndaleysi eða gerilsneydda
fjöldaframleiðslu. Það má minna
hina sömu á það að flatar pakkn-
ingar spara peninga. Pakkning-
arnar eru flatar, ekki hugsunin á
bak við þær.
Rétt eins og með pizzurnar,
getur maður gert það sem maður
vill við vörurnar, eins og til dæmis
vefsíðan ikeahacker.blogspot.com
ber vitni um en á henni má sjá
hvernig fólk hefur föndrað við
IKEA-vörur þannig að þær verði
einstakar.
Eins og verslunarfélagi minn(karl faðir minn) sagði í síð-
ustu IKEA-ferð eftir að ég varpaði
þeirri hugmynd fram að lífið yrði
betra ef IKEA stjórnaði landinu
(eða jafnvel heiminum): „Þá fá allir
tíu kjötbollur. Sumir fá kannski 15
en þeir borga þá meira fyrir það.“
Ein skilaboð að lokum til
þeirra sem lesa auglýsingar: Maður
segir ekki I-KEA, heldur Í-KEA.
Ef IKEA stjórnaði landinu
Morgunblaðið/Eyþór
Sænskt Það fer ekki á milli mála að heimaland IKEA er Svíþjóð en þaðan er Lína langsokkur líka ættuð.
Ekki má gleyma boltalandinu.Ég man ennþá hversu lífs-
reynd mér fannst ég vera eftir að
hafa farið í boltaland IKEA í Kaup-
mannahöfn áður en verslunin var
opnuð hérlendis, löngu fyrir tíma
hoppukastala og „krakkageymslu“.
Núna hefur IKEA fært út kví-arnar og er í sókn í matvör-
unni, það er ekki aðeins hægt að
borða á staðnum heldur líka taka
með heim. Ein nýjasta viðbótin er
pizzadeigið HEIMA (annar kostur
við verslunina, það heitir allt svo
skemmtilegum nöfnum). Eitt sinn
var ég stödd í versluninni þegar
verið var að kynna þetta nýja deig.
Meðfylgjandi var lítið blað, fullt af
upplýsingum annars vegar um
deigið sjálft, framleiðslu og
geymsluaðferðir og hins vegar um
hvernig best væri að gera pizzu
heima. Undir liðnum „til að pizzan
þín heppnist sem best er mikilvægt
að hafa eftirfarandi í huga“ stend-
ur meðal annars: „Það er mjög mik-
ilvægt að dreifa öllu áleggi vel og
passa sérstaklega upp á að það fari
ekki allt á miðjuna. Allir bitar á öll-
um sneiðum eiga að vera jafn góðir
og innihalda svipað magn af góm-
sætum áleggstegundum.“ Þetta er
snilld. Svona á ekki aðeins pizza að
vera heldur lífið sjálft.
» Sumir kallaþetta forræðis-
hyggju, aðrir (eins og
ég) hugulsemi.
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
SÍMI 564 0000 FULLKOMIN GÆÐI
12
12
12
L
L
L
L
L
SÍMI 462 3500
12
12
L
L
SKYLINE kl.8-10
JACKASS3D ÓTEXTUÐ kl.8-10
EASYA kl.6
ARTHÚR3 kl.6
SÍMI 530 1919
12
L
L
L
L
16
12
SKYLINE kl.5.50-8-10.10
UNSTOPPABLE kl.8-10.10
EASY A kl.8-10.10
ARTHÚR3 kl.5.50
YOU WILLMEET ATALLDARKSTRANGER kl.8-10.15
INHALE kl.6
BRIM kl.6
SKYLINE kl.5.50-8-10.10
JACKASS 3D ÓTEXTUÐ kl.3.40-5.50-8-10.10
JACKASS3DLÚXUS ÓTEXTUÐ kl.3.40-5.50-8-10.10
UNSTOPPABLE kl.8-10.10
EASYA kl.5.50-8-10.10
ARTHÚR 3 kl.3.40
ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 kl.3.40
AULINN ÉG 3D kl.3.40
.com/smarabio
NÝTT Í BÍÓ!
Sjáðu Jackass eins og þú hefur aldrei séð áður!Missið ekki af þessum magnaða
vísindaskáldsögutrylli í bíó!
Mynd í anda Independenc Day!
Sýnd kl. 4Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:15
Sýnd kl. 4
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15 - Ótextuð
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
FYNDNARI OG FÁRÁNLEGRI EN NOKKURN TÍMANN ÁÐUR,
TEKIN Í FLOTTUSTU ÞRÍVÍDDARTÆKNI SEM VÖL ER Á!
SJÁÐU JACKASS EINS OG ÞÚ
HEFUR ALDREI SÉÐ ÁÐUR!
80% Fresh
-Rotten Tomatoes
HHH
„This is a superb film”
-Roger Ebert
HHHH
„...Fyrsta flokks afþreying“
-S.V., MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA
VÍSINDASKÁLDSÖGUTRYLLI Í BÍÓ!
MYND Í ANDA INDEPENDENCE DAY!
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum