Morgunblaðið - 19.11.2010, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Við sem stöndum að þessari tillögu
lítum svo á að það þurfi einfaldlega
að leita réttlætis fyrir Íslands hönd
vegna ófyrirleitni Breta,“ segir
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður
Framsóknarflokksins.
Gunnar hefur ásamt þrettán öðr-
um þingmönnum úr Framsóknar-
flokknum, Sjálfstæðisflokknum og
Hreyfingunni lagt fram þingsálykt-
unartillögu þess efnis að undirbúin
verði málshöfðun gegn breska ríkinu
fyrir alþjóðlegum dómstól vegna
beitingar hryðjuverkalöggjafar gegn
íslenska ríkinu og íslenskum fyrir-
tækjum haustið 2008, skömmu eftir
bankahrunið.
Vilja krefjast skaðabóta
Í tillögunni segir að málsóknin
verði byggð á því „að beiting hryðju-
verkalaganna hafi verið tilefnislaus,
ekki lögum samkvæmt og hafi skað-
að íslenskt orðspor og fjárhagslega
hagsmuni þjóðarinnar“. Sett verði
fram krafa um „skaðabætur fyrir
það tjón sem ákvörðun breskra
stjórnvalda olli íslenska ríkinu og ís-
lenskum fyrirtækjum“.
Gunnar segir að ekki hafi verið að
fullu kannað hvort það væri mögu-
legt að leita réttar Íslands fyrir al-
þjóðlegum dómstólum bæði vegna
beitingar hryðjuverkalaganna sem
slíkra og að landið skyldi vera sett á
lista yfir hryðjuverkasamtök.
„Þetta er mál sem við teljum að
stærstur hluti þjóðarinnar sé sam-
mála okkur um að við eigum að leita
réttar okkar í og láta reyna á þetta.
Ég vona að hægt verði að sameinast
um þessa tillögu í þinginu.“
Afsökunarbeiðni?
Fyrir skömmu lýsti Liam Fox,
varnarmálaráðherra Breta, því yfir í
samtali við norska dagblaðið Aften-
posten að beiting breskra stjórn-
valda á hryðjuverkalögum gegn Ís-
landi hafi verið grimmdarleg og að
hún hefði aldrei átt að eiga sér stað.
Nokkuð sem margir kusu að túlka
sem óformlega afsökunarbeiðni ráð-
herrans til Íslendinga.
Vilja höfða mál gegn Bretum
Tillaga til þingsályktunar lögð fram af 14 þingmönnum í stjórnarandstöðunni
Eigum að leita réttar okkar fyrir dómstólum segir flutningsmaður tillögunnar
Tillagan gengur út
á að undirbúið
verði skaðabóta-
mál gegn breska
ríkinu.
„Við höfum frá upphafi lagt áherslu á skákstarf.
Þegar Rimaskóli fagnaði tíu ára afmæli sínu þá
unnum við fyrsta Íslandsmeistaratitilinn og síð-
an hefur ekki orðið neitt lát á þessu,“ segir Helgi
Árnason, skólastjóri Rimaskóla.
Skáksveit skólans varð í byrjun september
Norðurlandameistari barnaskólasveita í skák og
af því tilefni bauð Katrín Jakobsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra sveitinni til kaffi-
samsætis í ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu
seinnipartinn í gær.
Þá var skáksveit Menntaskólans í Reykjavík
að sama skapi boðið, en hún varð Norður-
landameistari framhaldsskóla í skák um miðjan
september síðastliðinn, annað árið í röð, og
skáksveit Salaskóla í Kópavogi, sem hlaut silf-
urverðlaun á Norðurlandameistaramóti grunn-
skóla um sama leyti, en sú sveit hefur áður ítrek-
að unnið til verðlauna á skákmótum.
Á myndinni heilsar Katrín upp á unga skák-
meistara í Ráðherrabústaðnum.
Ungir skákmeistarar í kaffi
Morgunblaðið/Eggert
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Lögreglumaður var sakfelldur í
Hæstarétti í gær fyrir að „hafa farið
offari við framkvæmd lögreglustarfa“
og að hafa ekki gætt lögmætra aðferða
er hann fyrirskipaði öðrum lögreglu-
manni að aka með handtekinn mann út
á Granda og skilja hann þar eftir. Lög-
reglumaðurinn var sýknaður í héraðs-
dómi.
Arinbjörn Snorrason, formaður
Lögreglufélags Reykjavíkur, segir
niðurstöðu Hæstaréttar koma sér á
óvart. „Okkur þótti niðurstaða héraðs-
dóms sanngjörn og rökrétt,“ sagði Ar-
inbjörn í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Lögregla var að störfum í miðbæ
Reykjavíkur í janúar 2009 er maður
kom aðvífandi og jós fúkyrðum yfir
lögreglumennina og truflaði störf
þeirra. Hann var handtekinn, en í stað
þess að aka með hann á lögreglustöð
var farið með hann út á Granda, þar
sem honum var hleypt út úr bílnum.
Færum menn til hliðar
Í dómi Hæstaréttar segir að í lög-
reglulögum sé svo mælt fyrir að hand-
tekinn maður sé færður á lögreglu-
stöð. Því eigi ákvörðun lögreglu-
mannsins sér ekki stoð í lögum. „Oft
beitum við ekki íþyngjandi aðgerðum
eins og að færa menn á lögreglustöð í
tilvikum þegar fólk er til vandræða. Þá
færum við það til hliðar,“ segir Arin-
björn.
Aðspurður hvað hann telur íþyngj-
andi aðgerð segir Arinbjörn: „Til dæm-
is að færa mann á lögreglustöð eða fyr-
ir varðstjóra. Lengi hefur verið brýnt
fyrir lögreglumönnum að beita ekki
íþyngjandi aðgerðum.“
Refsingu lögreglumannsins var
frestað og hún mun falla niður eftir tvö
ár haldi hann almennt skilorð. Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgar-
svæðisins, vildi ekki tjá sig um málið
enda ekki gefist tími til að lesa dóminn.
Niðurstaða héraðsdóms
þótti sanngjörn og rökrétt
Lögreglumaður sakfelldur í Hæstarétti fyrir að fara offari
Einhver brögð
eru að því að
kynningarblað
um stjórnlaga-
þing hafi ekki
borist inn á
heimili, eins og
til stóð, en dreif-
ingu á að vera
lokið um allt
land. Ágústa Hrund Steinarsdóttir,
forstöðumaður markaðsdeildar Ís-
landspósts, segir að dreifing kynn-
ingarblaðsins hafi gengið vel, en
hún biður þá sem ekki hafa fengið
blaðið að hringja í þjónustuver Ís-
landspósts í síma 580 1200 og blað-
ið verði í framhaldinu sent heim til
fólks.
Í tilkynningu á vef stjórnlaga-
þings segir að flestar kvartanir hafi
borist úr Vesturbæ og Grafarvogi í
Reykjavík en nokkrar annars stað-
ar frá. Margir höfðu samband við
dómsmálaráðuneytið í gær og í
fyrradag og reyndi það að koma
blaðinu til fólks strax, en ráðu-
neytið mælist til þess að fólk snúi
sér til Íslandspósts. egol@mbl.is
Ekki hafa
allir feng-
ið blaðið
Kynningarblað um
stjórnlagaþing
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
Héraðsdóms þess efnis að Hagar
hefðu brotið samkeppnislög og mis-
notað markaðsráðandi stöðu sína
„með aðgerðum sem beindust gegn
keppinautum félagsins á mat-
vörumarkaði og með því brotið gegn
samkeppnislögum“. Högum er gert
að greiða 315 milljónir króna í
stjórnvaldssekt vegna brotanna.
Sektin er sú hæsta sem lögð hefur
verið á hér á landi vegna slíks brots.
Brotið mun hafa falist í svonefndri
undirverðlagningu, sem felur í sér
að markaðsráðandi fyrirtæki selur
vörur undir kostnaðarverði. Slík
verðlagning getur m.a. leitt til þess
að minni keppinautar hrökklist út af
markaðnum. Þetta átti sér stað í
verðstríði lágverðsverslana árið
2005, en þá seldu Hagar mjólk og
mjólkurvörur undir kostnaðarverði í
verslunum Bónuss í langan tíma.
Vörurnar voru seldar með stórfelldu
tapi og leiddi þetta til þess að versl-
anirnar voru í heild reknar með tapi.
annalilja@mbl.is
Hæsta sektin
lögð á Haga
Gegn umfangsmiklum breytingum
á stjórnarskránni.
Auðkennistala: 7759
Óráðlegt er að ráðast í umfangsmiklar
breytingar á stjórnarskránni. Það er til
marks um ágæti hennar að hún hefur
staðist tímans tönn stóráfallalaust.
Bankahrunið gefur ekkert tilefni til að
breyta henni. Orsakir þess er ekki að
finna í henni. Þvert á móti er óráðlegt
að ráðast í breytingar á stjórnarskránni
á þessum umbrotatímum.
Elías Blöndal Guðjónsson,
lögfræðingur.
elias@elias.is
elias.is
FRAMBOÐTIL STJÓRNLAGAÞINGS