Morgunblaðið - 19.11.2010, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Áætla má að útflutningsverðmæti
afurða af þeim 200 þúsund tonnum
af loðnu sem Hafrannsóknastofnun-
in leggur til að leyft verði að veiða í
vetur geti numið um 17 milljörðum
króna. Ætla má að útgerðir muni
skipuleggja veiðarnar með tilliti til
verðmætis afurða, en loðnuhrogn
og fryst loðna eru mun verðmætari
en mjöl og lýsi, sem þó hafa hækkað
í verði undanfarið.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
nytjastofnasviðs hjá Hafrann-
sóknastofnun, segir að loðnumæl-
ingar í haust hafi gengið vel og mun
betur en undanfarin ár þegar þær
voru seinna á ferðinni og ís hafi
meðal annars hamlað mælingum.
Vel hafi náðst utan um hrygning-
arstofninn og niðurstaðan sé ráð-
gjöf um veiðar á 200 þúsund tonn-
um í vetur. Vitað hafi verið að
árgangurinn frá 2008 væri lítill, en
hann, ásamt sterkum 2009-árgangi,
skili sér í þessari ráðgjöf. Hafrann-
sóknastofnunin telur að mælingar á
stærð stofnsins nú séu að líkum
marktækari en mælingar undanfar-
inna ára.
Á vertíðinni 2011-12 kemur ár-
gangurinn sem nú er eins árs af enn
meiri krafti inn í veiðina, en hann er
sterkari en aðrir árgangar síðustu
ára. Vænta má þess að ráðgjöf um
upphafskvóta í loðnu á þeirri vertíð
verði gefin út með ráðgjöf um aðra
fiskstofna næsta sumar. Í þeim efn-
um hefur Hafrannsóknastofnun
samráð við Alþjóðahafrannsókna-
ráðið þar sem um deilistofn er að
ræða.
Meiri fjöldi en í mörg ár
Fram kemur í frétt stofnunarinn-
ar að í mælingunum í haust mæld-
ust um 100 milljarðar af eins árs
loðnu og er það meiri fjöldi en
mælst hefur frá því um aldamót.
Mjög lítið hefur fundist af eins árs
loðnu á undanförnum árum.
Ástand eins árs loðnu var mjög
gott, bæði meðallengd og meðal-
þyngd voru yfir meðallagi. Sýni
sem tekin voru í leiðangrinum
benda til þess að tæp 10% eins árs
gömlu loðnunnar muni hrygna
næsta vor. Það er hærra hlutfall en
sést hefur í fyrri mælingum sem
gerðar hafa verið á þessum árstíma.
Alls mældust um 36 milljarðar af
loðnu sem gert er ráð fyrir að
hrygni á komandi vertíð. Þar af var
fjöldi tveggja ára loðnu um 26 millj-
arðar, sem samsvarar um 490 þús-
und tonnum. Einungis mældust
tæp 20 þúsund tonn af þriggja ára
og eldri loðnu. Samkvæmt mæling-
unum er því stærð hrygningar-
stofnsins rúm 630 þúsund tonn. Þar
af er ársgamla loðnan 120 þúsund
tonn og tveggja ára og eldri loðna
um 510 þúsund tonn.
Loðnan gæti
gefið 17 millj-
arða króna
Lagt til að kvótinn verði 200 þús. tonn
Ekki er fyrirhugað að hækka verð á
bjór eða öðru áfengi í Fríhöfninni
þrátt fyrir að lagt verði vörugjald á
áfengi í versluninni um áramót.
Ástæðan er sú að stjórnendur Frí-
hafnarinnar óttast að hærra verð
leiði til þess að fólk kaupi áfengi á
flugvöllum erlendis í stað þess að
kaupa það hér heima.
„Við getum ekki hækkað verðið
hjá okkur því við berum okkur sam-
an við erlenda flugvelli. Við höfum
nýverið gert verðsamanburð á
stærstu flugvöllum sem við berum
okkur saman við. Við erum ennþá
undir en við megum ekki hækka því
þá erum við búin að tapa í sam-
keppninni. Það er alveg ljóst í okkar
huga að ef við hækkum þá mun fólk
flytja þetta inn með sér,“ sagði Ásta
Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri
Fríhafnarinnar.
Upphaflega var áformað að breyt-
ingar á skattheimtu í fríhafnarversl-
unum skiluðu einum milljarði í aukn-
ar tekjur til ríkissjóðs, en nú hafa
þessi áform verið endurskoðuð og
verður Fríhöfninni gert að skila 300
milljónum króna í nýjar tekjur í
ríkissjóð.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði á Alþingi að til
skoðunar væri að gera breytingar á
skattlagningu áfengis, einkum bjórs,
þannig að meira tillit verði tekið til
styrkleika. Þeirri athugun sé ekki
lokið. egol@mbl.is
Engin verðhækkun á bjór
í Fríhöfninni á nýju ári
Morgunblaðið/Heiddi
Vínflöskur Ekki er fyrirhugað að
hækka verð á áfengi í Fríhöfninni.
Vörugjöld lögð
á áfengi í Fríhöfn
Lagabreyting
» Samkvæmt frumvarpi fjár-
málaráðherra verður tóbaks-
gjald í Fríhöfninni 20% af al-
mennu vörugjaldi tóbaks.
» Frumvarpið gerir ráð fyrir að
áfengisgjaldið í Fríhöfninni
verði 10% af almennu vöru-
gjaldi áfengis.
„Þetta eru gleðitíðindi,“ sagði
Gunnþór Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar
í Neskaupstað, í gær. Hann
sagði að ráðgjöfin í loðnunni
væri fyrr á ferðinni nú en und-
anfarin ár og loðnustofninn
væri að ná sér á strik. Ekki væri
útséð um að meira fyndist og
kvótinn yrði aukinn. Auk þess
væri árgangur á leiðinni sem
gæfi vonir um að gæti gefið af
sér afla í samræmi við það sem
var undir síðustu aldamót. Þá
var afli á vertíð iðulega sjö
hundruð þúsund til milljón
tonn.
Gleðitíðindi
FAGNAR STERKARI STOFNI
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Meirihluti heimila hérlendis sinnir
eldvörnum ekki nægilega vel. Eng-
inn eða aðeins einn reykskynjari er á
um þriðjungi heimila og innan við
helmingur heimila hefur allan nauð-
synlegan eldvarnabúnað. Leigjendur
búa við miklu verri eldvarnir en þeir
sem búa í eigin húsnæði og á þremur
af hverjum fjórum heimilum hefur
ekki verið rætt um hvernig bregðast
eigi við eldsvoða.
Þetta kemur fram í könnun sem
Capacent Gallup gerði fyrir Eld-
varnabandalagið og Landssamband
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna (LSS). Björn Karlsson bruna-
málastjóri segir að á þessum málum
þurfi að taka og það verði gert með
margvíslegum hætti enda vilji Eld-
varnabandalagið og LSS stuðla að
auknum eldvörnum á heimilum.
Útgáfa og fræðsla
Eldvarnir – handbók heimilisins
er nýr bæklingur sem Eldvarna-
bandalagið hefur gefið út og látið
prenta í 30.000 eintökum. Bækling-
urinn fjallar um nánast allt sem við-
kemur eldvörnum og segir Garðar
H. Guðjónsson, verkefnisstjóri
bandalagsins, að ítarlegra rit um eld-
varnir heimilanna hafi ekki verið gef-
ið út hérlendis.
Eldvarnabandalagið er sam-
starfsvettvangur um auknar eld-
varnir heimilanna en að því standa
Brunamálastofnun, Eignarhalds-
félagið Brunabótafélag Íslands, Fé-
lag slökkviliðsstjóra, Landssamband
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna, Sjóvá-Almennar tryggingar
hf., Slysavarnafélagið Landsbjörg,
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins,
TM hf., VÍS hf. og Vörður trygg-
ingar hf. Bæklingurinn liggur
frammi hjá þessum fyrirtækjum,
samtökum og stofnunum auk þess
sem hann verður aðgengilegur á vef-
síðum þeirra.
Dagana 19.-30. nóvember ætla
talsmenn LSS og slökkviliða lands-
ins að heimsækja börn í 3. bekk
grunnskóla um allt land og fræða
þau um eldvarnir. Slökkviliðsmenn-
irnir koma færandi hendi sem fyrr
því þeir gefa börnunum bókina
Brennuvarg eftir Garðar H. Guð-
jónsson, Höllu Sólveigu Þorgeirs-
dóttur og Þrúði Óskarsdóttur auk
þess sem krakkarnir fá bókamerki,
merki til að hafa á ísskápnum og
vasaljós.
Í næstu viku sendir Eldvarna-
bandalagið síðan bréf um eldvarnir
til allra heimila í landinu.
Í hverju herbergi
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, seg-
ir að hörmulegir eldsvoðar á nýliðn-
um mánuðum og misserum hafi hrist
upp í þeim sem málið varðar og Eld-
varnabandalagið orðið að veruleika
1. júní sl., en hugsanlega hefði verið
hægt að koma í veg fyrir andlát í
þessum eldsvoðum ef nauðsynlegur
eldvarnabúnaður hefði verið fyrir
hendi. Hann leggur áherslu á að hin
heilaga þrenning – slökkvitæki,
reykskynjari og eldvarnarteppi –
eigi að vera á hverju heimili og árétt-
ar að vegna breyttra aðstæðna, fleiri
rafmagnstækja í herbergjum en áð-
ur, þurfi helst að vera reykskynjari í
hverju herbergi.
Eldvarnabandalagið og LSS
kynntu niðurstöður könnunarinnar
og væntanlegar aðgerðir á fundi í
gær. Við það tækifæri þakkaði Svan-
dís Svavarsdóttir brunamálaráð-
herra yfirvöldum brunamála áherslu
þeirra á fræðslumál og samskiptin
við heimili landsins, en samkvæmt
könnuninni bera 97,3% landsmanna
mikið traust til slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna.
Eldvarnir á heimilum
ekki nógu öflugar
Morgunblaðið/Júlíus
Eldvarnir Svandís Svavarsdóttir brunamálaráðherra slekkur eld.
Innan við 50%
heimila með næg-
an eldvarnabúnað
Könnun
» Slökkvitæki er á um 68%
heimila.
» Eldvarnateppi er aðeins á
um 57% heimila.
» Tæplega 45% heimila eru
með lágmarkseldvarnir, þ.e.
reykskynjara, slökkvitæki og
eldvarnateppi.
» Á 28% heimila er aðeins
einn reykskynjari en mælt er
með tveimur eða fleiri virkum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
30%
AF ÖLLUM KERTUM
HELGINA 19-21 NÓV.
ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30