Morgunblaðið - 19.11.2010, Page 9
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ekki verður sagt að tilhlökkunar
hafi gætt í röddum VG-félaga sem
rætt var við í gær um flokksráðsfund
þann sem hefst í dag og lýkur á
morgun. Búist er við að til harðra
átaka komi á fundinum milli tveggja
öndverðra fylkinga; þeirra sem vilja
stöðva aðlögunarferli að Evrópu-
sambandinu, að ferlinu verði fram
haldið eins og lagt var upp með, þ.e.
samningaviðræður, ekki aðlögunar-
viðræður; og hinna sem vilja að ferlið
haldi áfram í óbreyttri mynd.
Árni Þór Sigurðsson, formaður ut-
anríkismálanefndar Alþingis, segist
ósammála því mati flokksfélaga
sinna að um aðlögunarferli sé að
ræða. „Ég tel að það eigi að ljúka
þessu ferli og þjóðin kjósi svo um
heildarniðurstöðuna,“ sagði Árni
Þór.
Ásmundur Einar Daðason, þing-
maður VG af Vesturlandi, sagði á
hinn bóginn: „Það hefur komið á
daginn undanfarna daga, á þann hátt
að ekki verður í móti mælt, að það er
ekkert annað í boði af hálfu ESB en
hreint og klárt aðlögunarferli. Málið
er nú ekki flóknara en það.“
Viðmælendur Morgunblaðsins
telja að flokksráðið sé algjörlega
klofið í afstöðu sinni til málsins og
þeir telja einnig að mjög mjótt verði
á mununum hvor tillagan verði sam-
þykkt.
Um 70 flutningsmenn
Atli Gíslason, þingmaður VG, er
fyrsti flutningsmaður tillögunnar
um að ferlið verði stöðvað. Nálægt
70 manns munu vera meðflutnings-
menn Atla. Í tillögunni er einnig lagt
til að VG flýti næsta landsfundi, sem
verði haldinn eigi síðar en 15. apríl
nk., en hann hefði næst átt að halda
haustið 2011.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins mun Atli leggja fram sjálf-
stæða tillögu um að flýta landsfundi
fari leikar þannig að tillagan um að
stöðva aðlögunarferlið verði felld.
Þeir VG-félagar sem verið hafa
hvað gagnrýnastir á flokksforystuna
eru gjarnan nefndir „órólega
deildin í VG“. Þeim armi flokks-
ins tilheyra m.a. ráðherrarnir
Ögmundur Jónasson og Jón
Bjarnason og
þingmennirnir
Ásmundur Ein-
ar Daðason, Atli
Gíslason, Guðfríð-
ur Lilja Grétarsdótt-
ir og Lilja Mósesdótt-
ir. Ögmundur mun þó
ekki vera einn af flutn-
ingsmönnum tillögu Atla og
félaga, en margsinnis hefur
komið fram, m.a. hér í Morgun-
blaðinu og einnig á heimasíðu hans,
að hann er algjörlega andvígur því
sem hann nefnir aðlögunarferli. Það
er því talið öruggt að hann greiði til-
lögu Atla Gíslasonar og annarra
flutningsmanna atkvæði sitt.
Órólega deildin ósátt
Viðmælendur úr VG bentu meðal
annars á það í samtölum í gær að það
væru einfaldlega svo mörg mál sem
VG þyrfti að ræða – og ræða í botn –
á landsfundi, sem væri æðsta stofn-
un flokksins, ekki flokksráðsfundur.
Tiltekin voru mál, auk afstöðunnar
til ESB, eins og Magma Energy og
heilbrigðis- og velferðarmál, svo fátt
eitt sé nefnt.
„Vitanlega þurfa slík mál að ræð-
ast á landsfundi flokksins, sem er
æðsta stofnun hans. Það gengur ekki
að flokksráðið eigi endanlegt orð um
stefnumótun Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs, því sú stofnun fer
einungis með æðsta vald í öllum mál-
efnum á milli landsfunda. Hvergi
nema á landsfundi er hægt að taka
ákvarðanir um breytta stefnu í jafn-
stóru átakamáli og ESB-málið er,“
segir viðmælandi úr VG.
Í 17. grein laga VG segir m.a.:
„Landsfundur hefur æðsta vald í öll-
um málum VG.“
Rifjuð eru upp orð Steingríms J.
Sigfússonar frá því sumarið 2009,
þegar hann hafi í ræðu sagt að ef á
daginn kæmi að grundvallarskilyrði
um aðildarviðræður við Evrópusam-
bandið væru ekki uppfyllt, þá bæri
mönnum að staldra við.
Engar utanstefnur vil ek
Flutningsmenn tillögunnar um að
stöðva beri aðlögunarferlið segja að
það sé einmitt það sem þeir séu að
leggja til, að staldrað verði við, þar
sem verið sé að brjóta þau grundvall-
arskilyrði sem lagt hafi verið upp
með. Það hafi verið lagt upp með
samningaviðræður um aðild og ef
samningur næðist tæki þjóðin af-
stöðu til hans, ekkert annað. Alþingi
hafi aldrei samþykkt að hefja aðlög-
unarferli að Evrópusambandinu, en
það ferli sem nú sé hafið sé ekkert
annað en aðlögunarferli.
„Í gamla daga var hér sagt: „Eng-
ar utanstefnur vil ek hafa til Nor-
egskonungs.“ Ég segi hið sama nú.
Engar utanstefnur vil ég hafa til
Brussel. Við eigum að ráða þessu
sjálf og afþakka boðsferðir til Bruss-
el og afþakka áróðursfjármuni úr
sjóðum ESB. Við eigum ekki að láta
ESB komast upp með að kaupa hér
skoðanir og fylgi,“ segir Atli Gísla-
son, sem telur að með því að halda
ferlinu áfram sé VG að svíkja kjós-
endur sína um land allt.
Búist við miklum
átakafundi hjá VG
Tvær fylkingar takast á um afstöðuna til aðildar að ESB
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
2006 Flokksráðstefna VG hefst í dag. Vart er víst að sama kátína ríki og árið 2006, þegar myndin var tekin.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
NÝIR KJÓLAR
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Str. s-xxl
Snyrtisetrið húðfegrunarstofa
Sími 533 3100, Barónstígur 47, Heilsuverndarstöðin, norðurendi, 101 Rvk
Tækni fyrir andlit
Vinnur gegn öldrun
Árangur strax
FRÍR PRUFUTÍMI
Á FÖSTUDÖGUM
Eitthvað á annað hundrað manns skipa flokksráð Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs. Fundurinn er haldinn í Hagaskóla í dag og á morgun
og verður hann settur kl. fimm síðdegis. Fundurinn er opinn öllum fé-
lögum, en einungis þeir sem eru í flokksráði hafa atkvæðisrétt á fund-
inum. Í gær höfðu á milli 80 og 90 manns skráð þátttöku sína, samkvæmt
upplýsingum frá flokksskrifstofu VG.
Sjöundi kafli laga VG fjallar um flokksráð. Hann er svohljóðandi:
„Flokksráð mynda aðal- og varamenn í flokksstjórn, þingmenn og vara-
þingmenn og sveitarstjórnarfulltrúar flokksins, formenn kjördæmisráða,
formenn svæðisfélaga, formaður ungliðahreyfingar flokksins og 30
fulltrúar sem kosnir eru sérstaklega af landsfundi. Varaformaður flokks-
stjórnar er jafnframt formaður flokksráðs.
Fundir flokksráðs skulu vera opnir félagsmönnum Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs. Almennir félagar skulu
hafa málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt.
Flokksráð hefur æðsta vald í öllum málefnum VG á milli
landsfunda.
Fundir flokksráðs og flokksstjórnar eru lögmætir þegar
meirihluti fulltrúa er viðstaddur. Flokksráðsfundi skal
halda eigi sjaldnar en tvisvar á ári og ef helmingur for-
manna kjördæmisráða óskar eftir fundi skal hann boð-
aður svo fljótt sem verða má.
Óski fjórðungur fulltrúa í flokksráði eftir fundi skal hann
boðaður svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan þriggja
vikna frá því að skrifleg beiðni þar um er send formanni flokks-
ráðs.“
Á annað hundrað manns
sitja í flokksráði VG
ÞAÐ HRIKTIR Í EN NÁ ÞAU AÐ BERJA Í BRESTINA?
Borgarráð Reykjavíkur biður alla þá
einstaklinga sem vistaðir voru á
stofnunum á vegum barnaverndaryf-
irvalda í Reykjavík á árum áður og
urðu fyrir ofbeldi eða illri meðferð af-
sökunar. Þetta kemur fram í sér-
stakri bókun, sem samþykkt var á
fundi borgarráðs í gær.
Í bókuninni segir einnig, að starfs-
menn Reykjavíkurborgar muni gera
allt sem í þeirra valdi stendur til að
aðstoða og styðja þá einstaklinga sem
um ræðir og þess óska, t.d. með við-
tölum við ráðgjafa og sálfræðinga.
Vísað er til niðurstaðna vistheim-
ilanefndar, sem skipuð var til að
kanna starfsemi vist- og meðferðar-
heimila fyrir börn. Nefndin hefur
skilað af sér þremur skýrslum þar
sem meðal annars kemur fram að
meiri líkur en minni séu taldar á því
að vistmenn hafi á vissum starfstíma
heimilanna orðið fyrir kynferðislegri
áreitni af hálfu starfsfólks eða utanað-
komandi aðila.
Borgaryfirvöld segjast harma þá
sorg og þungbæru reynslu sem börn
sem vistuð voru á þessum heimilum
urðu fyrir.
Biðja vist-
menn af-
sökunar