Morgunblaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 11
Hin árlega nærfatasýning Victori-
a’s Secret fór fram á dögunum. Það
er aldrei nein ládeyða yfir sýn-
ingum Victoria’s Secret heldur er
allt gefið í botn og litagleðin og
glamúrinn keyrð upp í topp. Fræg-
ar fyrirsætur sjást iðulega á þess-
um sýningum og í ár sýndu meðal
annars Adriana Lima, Chanel Iman
og Karolina Kurkova. Poppstjörn-
urnar Katy Perry og Akon sáu svo
um að halda uppi stuðinu. Hér má
sjá brot af litagleðinni sem boðið
var upp á.
Litskrúðug Behati Prinsloo
var ekki daufleg.
Liu Wen Nærföt fyrir ökumenn.
Rokkað Magdalena Frackowiak
var svolítið eins og lifandi tattú.
Litríkt og
lokkandi
Mjalta-
stúlka Can-
dice Swa-
nepoel á
leið út í fjós.
Morgunblaðið/Ernir
Höfundar Auður og Embla hoppuðu af kæti þegar þær fengu bókina sína um Loðmar fyrst í hendur.
skila,“ og Auður grípur orðið aftur:
„Eða hingað og þangað, tvist og bast
og víð og dreif, tilgangurinn með
þessu er að lesandinn læri hvað orðið
þýðir án þess að fletta því upp í orð-
skýringunum.“
Blæbrigðaríkara
Embla og Auður eru þó vissar
um að börn og unglingar muni skilja
flest orðin í bókinni. „Við segjum ekki
að börn og unglingar skilji ekki þessi
orð en þau nota frekar montinn en
drjúgur með sig, við erum að reyna
að gera málið blæbrigðaríkara. Hver
og ein manneskja er með svo mis-
munandi orðaforða að það er alltaf
hægt að læra eitthvað af öðrum.
Að okkar mati er fjölbreytileiki
málsins ekki að minnka en málið er
að breytast, það er að koma svo mikið
af nýjum orðum inn í málið. Orðin
koma í sveiflum en svo verður ótrú-
lega glatað að nota eitthvert orð og
þá kemur annað í staðinn,“ segir
Auður og Embla bætir við: „Eins og
orðið teiti sem
er að koma aft-
ur, einu sinni
töluðu allir um partí, nú er talað um
teiti. Það eru allir að mæta í teiti út
um allt. Dansiball er annað sem er að
koma inn og diskótek fer út. Orð eru
eins og tískusveiflur í klæðaburði,
koma og fara.“
Þær stöllur munu lesa upp víða
fram að jólum en á þriðjudaginn lásu
þær fyrir börn í 4. bekk í Háteigs-
skóla. Þær segja krakkana yfirleitt
skilja alveg söguþráð bókarinnar.
„Þau skilja svo mikið út frá sam-
hengi og taka svo mikið inn. Börn eru
vön því að skilja ekki hvert orð og
bæta við orðaforða sinn á hverjum
einasta degi fyrirhafnarlaust. Við
höldum að krakkar komi oft for-
eldrum sínum á óvart með málfar-
skunnáttu sinni sem sýnir að það þarf
ekkert að einfalda hlutina fyrir börn-
unum,“ segir þær.
Hoppað af kæti
Loðmar er fyrsta bók þeirra
beggja og því var tilhlökkunin eðli-
lega mikil að fá bókina úr prentun.
„Þegar við gátum skoðað fyrstu
eintökin úr prentuninni þustum við
upp í Sölku með eftirvæntingarhnút í
maganum. Að sjá bókina og hand-
leika hana í fyrsta skipti var frábært
og við hreinlega hoppuðum af kæti
þegar við sáum hvað þetta heppn-
aðist vel,“ segja þær stöllur og getur
blaðamaður tekið undir það; bókin er
mjög eiguleg.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
Rich Santos ritar um líf einhleypa
karlmannsins á vefsíðu glanstímarits-
ins Marie Claire, MarieClaire.com. Ný-
lega gerði hann lista yfir átta hluti
sem fara í taugarnar á honum í hegð-
un para og er það eftirfarandi:
1. Þegar þau renna saman í eina per-
sónu. Eins og vinur minn sem fór að
halda með sama liði og kærasta
hans í ameríska fótboltanum þó að
hann hafi verið heitur aðdáandi ann-
ars liðs alla sína ævi.
2. Þegar þau verða óaðskiljanleg. Það
er óþolandi þegar pör geta ekki gert
neitt sitt í hvoru lagi eða svara eða
tala hvort fyrir annað. Og þegar það
kemur fyrir að önnur persónan
mætir ein síns liðs er eins og hún sé
týnd án hins helmingsins.
3. Ganga mjög, mjög, mjög hægt á
gangstéttum. Þegar ég geng er ég
að reyna að komast frá A til B eins
hratt og mögulegt er. Hvers vegna
ganga pör svona hægt?
4. Reyna að búa til fleiri pör. Flestum
pörum finnst eitthvað að fólki sem
er einhleypt í of langan tíma svo
þau taka það upp hjá sjálfum sér að
reyna að fá alla til að flytja til sín í
paraland.
5. Virka eins og fyrirtæki. Það var eðli-
legt að spyrja foreldra sína hvort
maður mætti vera úti lengi með vin-
um sínum, en það hætti um 18 ára
aldur. En það er ótrúlegt að þegar
félagar mínir eru komnir á fast
þurfa þeir alltaf að athuga hjá kær-
ustum sínum hvort þeir geti gert
hitt eða þetta með vinum sínum.
6. Snerta hvort annað fyrir framan
mig. Fara í sleik og knúsa á al-
mannafæri.
7. Eru með einkahúmor. Það er ekki
fyndið að hlusta á pör segja einka-
brandara sín á milli fyrir framan
aðra, brandara sem enginn annar
skilur.
8. Hverfa. Það er örugglega erfitt að
finna jafnvægið þegar þú ert mjög
hrifin/n af einhverjum en það er
ekki bara hægt að gleyma vinum
sínum og fjölskyldu.
Sambönd
Reuters
Óþolandi? Þessi pör færu líklega í taugarnar á Rich Santos.
Óþolandi hegðun para
Auður og Embla myndskreyttu
Loðmar sjálfar. „Námið í vöru-
hönnun nýttist vel í þessu, það
eru margir sem tengja vöru-
hönnun við húsgögn og umbúð-
ir en hún er miklu víðtækari,“
segja þær og vilja líka þakka
Sölku fyrir að gefa þeim frjálsar
hendur. „Þau eru yndisleg hjá
Sölku og leyfðu okkur að
nostra mikið við bókina, kápan
er t.d. margþætt, hún er prent-
uð, útskorin, þrykkt og húðuð
til að verjast fingraförum,“ seg-
ir Embla.
Nostruðu
við bókina
LOÐMAR
Opna sjö
Loðmar hleypur
undan Gímald-
inu sem silast
slepjulega
áfram.
Þema náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
2011 er sjálfbær ferðaþjónusta. Verðlaunin verða veitt
í 17. sinn og nema 350.000 dönskum krónum. Þau verða
veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur
verið í fararbroddi og stuðlað að því að draga úr
umhverfisáhrifum ferðaþjónustu á Norðurlöndum.
Öllum er heimilt að senda inn tillögur um verðlaunahafa.
Í tillögunum þarf eftirfarandi að koma fram auk rökstuðnings:
• Kynning og lýsing á starfseminni.
• Hver hefur haft veg og vanda af starfseminni.
• Starfsemin skal vera faglega unnin og hafa þýðingu fyrir
almenning í einu eða fleiri norrænu ríkjanna.
• Tillagan má að hámarki vera tvær A4 síður og skal henta
til fjölföldunar.
Verðlaunahafinn verður valinn af nefnd sem skipuð er
fulltrúum norrænu ríkjanna fimm og sjálfstjórnarsvæðanna
Færeyja, Grænlands og Álandseyja.
Tillögurnar skulu sendar inn á sérstöku eyðublaði og þurfa
að berast skrifstofu sendinefndar Noregs í Norðurlandaráði,
í síðasta lagi föstudaginn 10. desember 2010 kl. 12.00.
Eyðublaðið er hægt að nálgast á vefsíðu Norðurlandaráðs,
norden.org, eða hjá skrifstofu norsku sendinefndarinnar.
Nordisk Råd
Den norske delegation
Stortinget, 0026 Oslo
Sími +47 2331 3568
nordpost@stortinget.no
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Náttúru- og
umhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs 2011