Morgunblaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
● Hömlur ehf., dótturfélag Landsbank-
ans, hafa selt iðnfyrirtækið Límtré Vír-
net ehf. til Uxahryggja ehf. Söluverð
hlutafjár Límtrés Vírnets er 120 millj-
ónir króna en þar að auki nema vaxta-
berandi skuldir um 600 milljónum
króna, samkvæmt fréttatilkynningu frá
Landsbankanum. Uxahryggir eru félag
stofnað af heimamönnum á Suður- og
Vesturlandi gagngert til að koma að
kaupum á Límtré Vírneti, segir í tilkynn-
ingu Landsbankans.
Hluthafar í Uxahryggjum eru átta,
þ. á m. Fjárfestingarfélagið Stekkur ehf.
sem er í eigu Kristins Aðalsteins-
sonar, sonar Aðalsteins Jónssonar á
Eskifirði, sem á 45% hlut, Bingó ehf.
sem er í eigu Hjörleifs Jakobssonar,
forstjóra Kjalars, sem er fjárfestinga-
félag Ólafs Ólafssonar, sem á 35%
hlut, en aðrir hluthafar, þ.e. Pétur Geirs-
son, Guðmundur Magnússon og Eignar-
haldsfélag Suðurlands eiga þar minni
hluti ásamt Bláskógabyggð, Borgar-
byggð, og Hrunamannahreppi.
Límtré Vírnet ehf. selt á
720 milljónir króna
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Lárus Welding var yfirheyrður af sérstökum
saksóknara í gær, að því er heimildir Morg-
unblaðsins herma, og eru þau því orðin tíu
sem komið hafa til yfirheyrslu vegna rann-
sóknar sérstaks saksóknara á málum tengd-
um Glitni.
Þeir sem hafa verið yfirheyrðir í kjölfar
umfangsmikilla húsleita lögreglunnar á
þriðjudag eru þau Bernhard Bogason, Bjarni
Jóhannsson, Guðmundur Hjaltason, Guðný
Sigurðardóttir, Jóhannes Baldursson, Magn-
ús Pálmi Örnólfsson, Rósant Már Torfason,
Þorvaldur Lúðvík Sigurðsson og Þórleifur
Stefán Björnsson auk Lárusar Welding. Allt
þetta fólk er núverandi eða fyrrverandi
starfsmenn Glitnis, FL Group og Saga Fjár-
festingarbanka.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa þeir Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi
Haraldsson ekki verið kallaðir til yfirheyrslu
að svo stöddu. Jón Ásgeir mun hafa haft sam-
band við saksóknara og boðist til að koma í
yfirheyrslu, en var sagt að það þyrfti ekki.
Jón mun svo hafa farið til London á miðviku-
dag.
Ekki allir handteknir
Rannsókn saksóknara snýr að lánveiting-
um Glitnis til Stíms hf., Stoða hf. og FS 38
ehf. til hlutabréfakaupa og kaupa Glitnis á
skuldabréfi útgefnu af Stím og kaupa á hluta-
bréfum í Tryggingamiðstöðinni. Seljandi
skuldabréfsins var Saga Fjárfestingarbanki.
Af þeim sem yfirheyrðir voru í kjölfar hús-
leitanna á þriðjudag voru sumir handteknir
en aðrir ekki. Ólafur Þór Hauksson, sérstak-
ur saksóknari, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið ekki geta gefið upp hverjir hefðu
verið handteknir og hverjir ekki og sagðist
heldur ekki geta gefið upp hver réttarstaða
einstakra manna væri í málinu.
Hann sagði hins vegar að handtökurnar
hefðu verið notaðar til að verja rannsókn-
arhagsmuni – til að koma í veg fyrir að við-
komendur gætu spillt rannsóknarhagsmun-
um, t.d. með því að hafa samband við aðra
sem rannsóknin beindist að. Ekki er því óvar-
legt að álykta sem svo að þeir, sem hand-
teknir voru liggi frekar undir grun um refsi-
verða háttsemi en þeir sem kallaðir voru til
yfirheyrslu en þurftu ekki að sæta handtöku.
Lárus í yfirheyrslu í gærmorgun
Morgunblaðið/Kristinn
Bankastjóri Lárus Welding var forstjóri Glitnis þegar lánveitingar þær, sem til rannsóknar
eru hjá sérstökum saksóknara, áttu sér stað. Lárus mun hafa mætt til yfirheyrslu í gærmorgun.
Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson ekki kallaðir til yfirheyrslu af sérstökum saksóknara
Handtökum beitt til að verja rannsóknarhagsmuni Ekki allir hinna yfirheyrðu voru handteknir
● Icelandair Group hagnaðist um 5,2
milljarða króna á þriðja fjórðungi þessa
árs og nemur því hagnaðurinn 3,6 millj-
örðum króna á fyrstu níu mánuðum
ársins.
Tekjur á fjórðungnum voru tveimur
og hálfum milljarði meiri en á sama
tímabili 2009, eða 31 milljarður króna.
Gjöld voru 22 milljarðar króna, borið
saman við 21,7 milljarða í fyrra. Hagn-
aður fyrir skatta og fjármagnsliði,
EBITDA, var því rúmir níu milljarðar
króna, borið saman við sjö milljarða í
fyrra.
Þá ákvað stjórn félagsins á dögunum
að hækka hlutafé félagsins um 500-
1.059 milljónir hluti með útboði. Verð
hvers hlutar verður 2,5 og mun því upp-
hæð nýs hlutafjár nema 1.250-2.648
milljónum króna.
Icelandair Group hagn-
ast um 5,2 ma. króna
● Í úttekt Viðskiptablaðs Morgun-
blaðsins í gær var sagt að eigið fé
Íbúðalánasjóðsins væri neikvætt.
Þetta er ekki rétt. Eigið féð er já-
kvætt um u.þ.b. 8,4 milljarða króna,
samkvæmt árshlutauppgjöri 2010.
Eiginfjárhlutfall sjóðsins er því 2,1%.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
ÍLS með jákvætt eigið fé
● Ónákvæmni gætti í frétt Viðskipta-
blaðsins á fimmtudag um sameiningu
Skýrr og EJS. Rekstrarlausnir Skýrr og
EJS mynda einingu sem bera mun nafn
EJS og starfa þar samtals um 190
manns. Í heildina verður þá starfs-
mannafjöldi hins sameinaða félags fyr-
irtækjanna tveggja um 470. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
470 hjá Skýrr
Í lögfræðiáliti,
sem lögmaður
slitastjórnar
Glitnis hefur lagt
fyrir rétt á Man-
hattan í New
York, segir að
stjórnstöð sam-
særisins um að
ná fé út úr Glitni
banka hafi verið í
New York vikuna sem hófst 5. sept-
ember 2007. Þá hafi bankinn til-
kynnt kaup á tæplega 40% hlut í
Tryggingamiðstöðinni og að ætl-
unin hafi verið selja hlutinn á ný til
hóps fjárfesta. Fram kemur í skjöl-
um sem slitastjórn Glitnis hefur
lagt fram að Lárus Welding, for-
stjóri Glitnis, hafi undirbúið frétta-
tilkynningar og annað vegna yf-
irtökunnar á
Tryggingamiðstöðinni meðan hann
var staddur í New York. Að sama
skapi hafi hann hitt bankamenn frá
Credit Suisse, þar sem hann er
sagður hafa staðfest að ekki væri
ætlun Glitnis að kaupa Trygginga-
miðstöðina fyrir sjálfan sig. Heldur
hafi ætlunin verið að „liðka fyrir
eigendaskiptum hlutabréfanna en
ekki að Glitnir ætti fyrirtækið til
langs tíma.“
thg@mbl.is
Liðkuðu fyr-
ir eigenda-
skiptum TM
Lárus Welding
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Margvísleg tengsl eru innan hóps
þeirra sem hafa verið yfirheyrðir af
sérstökum saksóknara vegna rann-
sóknar á lánveitingum Glitnis síð-
ustu mánuðina fyrir hrun bankans.
Fram hefur komið að húsleitir, yf-
irheyrslur og handtökur fyrr í vik-
unni hafi tengst fimm mismunandi
málum, þar af þremur þeirra vegna
Stím-málsins svokallaða. Einn
þeirra sem yfirheyrðir voru er
Bjarni Jóhannsson, fyrrverandi við-
skiptastjóri hjá Glitni. Bjarni var
samstarfsfélagi Lárusar Welding,
fyrrverandi forstjóra Glitnis og
Gunnars Sigurðssonar, fyrrverandi
forstjóra Baugs, hjá Fjárfestinga-
banka atvinnulífsins (FBA), sem síð-
ar átti eftir að renna inn í samein-
aðan banka sem að endingu var
nefndur Glitnir. Bjarni sá um við-
skipti Baugs fyrir FBA og síðar
Glitni, allt fram að bankahruni í októ-
ber 2008.
Bjarni skrifaði dómstjóra Héraðs-
dóms Reykjavíkur 13. október síð-
astliðinn þar sem hann lýsti óánægju
með starfsaðferðir slitastjórnar
Glitnis. Vísaði Bjarni þar til harka-
legrar framgöngu lögmanns Kroll.
Helgi I. Jónsson, dómstjóri, hefur þó
úrskurðað að ekki sé efni til aðgerða,
að teknu tilliti til rökstuðnings slita-
stjórnar Glitnis fyrir sínu máli.
Skólafélagar að norðan
Fram hefur komið að fagfjárfesta-
sjóður á vegum Glitnis, GLB FX,
keypti skuldabréf á Stím af Saga
Capital í ágúst 2008 á einn milljarð
króna. Sjóðstjóri GLB FX var
Magnús Pálmi Örnólfsson, en heim-
ildir Morgunblaðsins herma að hann
hafi verið einn þeirra sem sérstakur
saksóknari yfirheyrði vegna rann-
sóknarinnar á Glitni. Magnús Pálmi
var bekkjarbróðir þeirra Rósants
Más Torfasonar og Jóhannesar
Baldurssonar í Menntaskólanum á
Akureyri, en tveir þeir síðastnefndu
hafa einnig verið yfirheyrðir af sér-
stökum saksóknara. Magnús Pálmi
er hins vegar ættaður frá Bolungar-
vík. Í dag deilir Magnús Pálmi skrif-
stofu með hinum bolvíska Jakobi
Valgeiri Flosasyni, útgerðarmanni.
Jakob Valgeir var stjórnarformaður
Stíms, en hefur ekki verið yfirheyrð-
ur af sérstökum saksóknara.
Guðný Sigurðardóttir, sem var
viðskiptastjóri hjá Glitni, var einnig
yfirheyrð í vikunni. Bæði hún og áð-
urnefndur Rósant Már tengjast Aur-
um-málinu, sem er eitt þeirra atriða
sem bæði sérstakur saksóknari og
slitastjórn Glitnis hafa rannsakað.
Guðný hafði hins vegar líka umsjón
með lánveitingum til fasteigna-
félagsins Landic Property, en hluti
rannsóknar sérstaks saksóknara
snýr að viðskiptum tengdum Landic.
Guðmundur Hjaltason, fyrrver-
andi forstöðumaður fyrirtækjasviðs
Glitnis, var yfirheyrður í vikunni.
Hann starfar í dag hjá Saga fjárfest-
ingabanka, en tveir aðrir starfsmenn
Saga voru yfirheyrðir í vikunni.
Innbyrðis tengsl
frá fornu fari
Hinir yfirheyrðu
þekktust á ýmsa
vegu utan bankans
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glitnir Þeir sem voru yfirheyrðir
tengjast innbyrðis á ýmsa vegu.
Sigurmar K. Albertsson, fyrrver-
andi formaður Lögmannafélags Ís-
lands og aðallögfræðingur Lýs-
ingar, skrifaði slitastjórn Glitnis
fyrir skömmu og óskaði þess að
málaferli á hendur Ingibjörgu S.
Pálmadóttur yrðu felld niður. Seg-
ist Sigurmar í vitnisburði fyrir
dómstólnum í New York hafa þekkt
Ingibjörgu lengi og hafa skrifað
slitastjórninni áðurgreint erindi
meðal annars af þeim sökum.
Vill mál Ingi-
bjargar burt
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+01-.,
++2-.3
,2-4.,
+/-005
+5-.5
++.-5
+-.314
+03-04
+4.-2/
++,-54
+01-05
++2-55
,2-41,
+/-/.+
+5-32/
++.-1,
+-.4.3
+04-,0
+4.-4+
,24-21./
++,-1,
+/2-,
++2-1/
,2-54,
+/-//5
+5-345
++3-,3
+-.40.
+04-01
+4.-13
Þegar fólk er kallað til yfirheyrslu hjá lög-
reglu fær það annaðhvort réttarstöðu
vitnis eða réttarstöðu sakbornings. Sá
sem hefur réttarstöðu sakbornings hefur
ríkari réttarvernd en vitni. Vitni þarf al-
mennt að svara öllum spurningum, sem
ekki snerta hagsmuni þess sjálfs eða ná-
kominna. Sakborningur getur hins vegar
neitað að svara öllum spurningum.
Það getur hins vegar komið ákæruvald-
inu illa ef það kemur í ljós að maður, sem
upphaflega var vitni, sé hugsanlega sekur.
Áhöld eru um hvað má nota í dómsmáli af
því sem hann sagði við lögreglu sem vitni.
Af þessum sökum getur það þjónað
rannsóknarhagsmunum að láta sem flesta
hafa réttarstöðu sakbornings, því það
kemur ekki í veg fyrir málshöfðun síðar
meir. Saksóknari hefur hins vegar ekki
frjálsar hendur með þetta, því sá á aðeins
að hafa slíka réttarstöðu sem grunaður er
um afbrot.
Til varnar
rannsókninni
RÉTTARSTAÐAN