Morgunblaðið - 19.11.2010, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
Í morgun, sunnu-
daginn 3.11. 2010,
hringdi til mín Guðjón
Bjarnason frændi
minn og sagði mér lát föður síns.
Bjarni var móðurbróðir minn.
Hann var um það bil ellefu árum
eldri en ég. Ég man þennan frænda
minn frá árinu 1938. Þá kom ég til
Ystabæjar að Látrum í Aðalvík. Þar
bjuggu þá móðurforeldrar mínir,
Bjarni Sigurður
Friðriksson
✝ Bjarni SigurðurFriðriksson fædd-
ist í Aðalvík á Vest-
fjörðum 28. desember
1920. Hann lést á
Garðvangi í Garði 30.
október 2010.
Útför Bjarna var
gerð frá Keflavík-
urkirkju 9. nóvember
2010.
ásamt yngstu systkin-
um mömmu.
Þegar þetta var,
hafði Bjarni verið að
renna sér á skíðum,
ásamt félögum sínum.
Hann meiddi sig með
einhverjum hætti og
þurfti að hvíla sig í
rúminu um stund.
Meiðslin voru ekki
svo slæm, að það
kæmi í veg fyrir að
hann gerði að gamni
sínu. Það var Bjarna
tamt meirihluta æv-
innar.
Bjarni fór nokkrar ferðir með
mér til átthaga okkur að Látrum.
M.a. tók hann fyrstu skóflustungu
að húsi sem fjölskyldan byggið að
Látrum 1972.
Í gegnum tíðina var Bjarni ágæt-
ur kunningi minn og vinur. Um
tíma dvaldi ég í Keflavík og borðaði
hjá, Bjarna og Anneyju. Fyrir þann
tíma færi ég þeim mínar bestu
þakkir. Þar var mér ekki í kot vísað.
Bjarni var alla tíð, meðan bæði
lifðu, í miklu uppáhaldi hjá móður
minni, Sigurlaugu. Hún kallaði
bróður sinn oftast „hann Bjarni
minn“ Af þessum orðum má ætla að
mamma hafi litið til með bróður sín-
um þegar hann var lítið barn. Hún
ellefu árum eldri.
Með þessum orðum votta ég An-
ney og ásvinum Bjarna Friðriks-
sonar samúð mína.
Friðrik Hermanns.
Nú er látinn Bjarni Friðriksson
föðurbróðir minn á nítugasta ald-
ursári. Bjarni frændi var prúð-
menni, húmoristi, harmonikkuleik-
ari og drengur góður.
Ég naut þeirra forréttinda að
kynnast Bjarna frænda frá fæð-
ingu, þegar fjölskyldan bjó á Tún-
götu 17 í Keflavík. Afi og amma
ásamt Dedda frænda voru í kjall-
aranum, Bjarni, Anney, Elsa og
Gaui voru á hæðinni, pabbi,
mamma, ég og Frikki bróðir vorum
í risinu. Þetta er alltaf í huga mín-
um heimili stórfjölskyldunnar. Afi,
Friðrik Finnbogason, og amma,
Þórunn María Þorbergsdóttir, voru
með svefnherbergi á hæðinni, en
eldhúsið þeirra var í kjallaranum og
þar hittist stórfjölskyldan.
Gömlu hjónin eignuðust 17 börn á
Látrum í Aðalvík, og 13 komust til
manns. Þau fluttu úr víkinni 1942
og settust að ásamt helmingi barna
sinna í Keflavík. Hinn helmingur
barna þeirra bjó enn fyrir vestan.
Samheldnin var mikil og ef frænkur
mínar eða frændur að vestan fóru
suður að fá sér ný gleraugu hjá Úlf-
ari eða hitta aðra sérfræðinga, eins
og t.d. Hafstein miðil, var alltaf
komið við í eldhúsinu hjá ömmu og
afa á Túngötunni. Þar var því oft
„glatt á hjalla“ og yfir kaffi, kan-
ilsnúðum og randaköku voru sagðar
fréttir að vestan, eða að handan eft-
ir því sem við átti. Á slíkri stundu
heyrði ég Bjarna frænda spila á
harmonikkuna af sinni alkunnu
snilld og hef verið unnandi þeirrar
tónlistar ætíð síðan.
En Bjarna var fleira til lista lagt,
hann var ekki aðeins frábær hljóð-
færaleikari heldur líka svo góð eft-
irherma að persónurnar, sem komu
fram í fréttum, að handan urðu ljós-
lifandi fyrir augum mínum þarna í
eldhúsinu hjá ömmu í uppfærslu
Bjarna, og alla tíð síðan finnst mér
ég þekkja þetta ágæta fólk ef ein-
hver nefnir það þó það væri látið
áður en ég fæddist.
Ég votta þér Anney mín og fjöl-
skyldunni innilega samúð við fráfall
Bjarna og mun alltaf geyma í hjart-
anu seiðandi tóna harmonikkunnar,
þegar Bjarni spilaði lagið Dagný á
balli í Skipbrotsmannaskýlinu í Að-
alvík á seinni helmingi síðustu ald-
ar.
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fira;
drottinn minn
gefi dauðum ró,
hinum líkn, er lifa.
(Úr Sólarljóðum)
Lifið heil,
Jón Páll Þorbergsson
flugvélstjóri, Kópavogi.
V i n n i n g a s k r á
29. útdráttur 18. nóvember 2010
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
3 0 5 0 7
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 2 5 9 0 1 7 0 1 5 6 4 7 1 0 7 0 9 2 9
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
18013 45530 48092 59221 66872 76005
33172 46677 50241 64741 69102 76256
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
3 4 1 6 9 2 7 1 5 0 4 3 3 0 5 8 2 3 7 2 1 4 4 6 6 6 8 5 6 7 2 5 6 6 3 0 2
3 5 3 9 3 2 3 1 7 2 1 7 3 0 5 9 4 3 9 1 8 9 4 6 7 4 2 5 6 8 2 5 7 0 0 2 8
1 1 6 6 9 3 3 6 1 9 1 0 6 3 0 6 4 1 3 9 5 7 0 4 6 8 6 8 5 8 4 6 6 7 0 2 3 6
1 3 2 0 9 3 5 6 2 0 5 4 4 3 0 8 4 2 4 3 7 2 1 4 8 2 9 3 5 9 2 2 2 7 4 3 4 1
1 9 6 6 9 4 6 8 2 2 2 2 2 3 0 9 9 1 4 3 9 7 7 4 8 3 7 2 6 0 0 6 6 7 5 9 0 9
2 5 1 7 9 7 0 8 2 2 5 9 2 3 1 5 4 0 4 4 1 3 9 4 9 4 1 3 6 0 6 7 2 7 6 2 0 1
2 8 9 7 9 7 6 3 2 2 8 2 6 3 2 2 5 1 4 4 9 0 3 5 1 3 1 9 6 0 8 4 7 7 7 4 5 9
2 9 5 3 1 1 4 2 7 2 8 0 1 4 3 3 3 9 7 4 5 3 9 2 5 3 6 1 2 6 1 4 0 4 7 7 6 3 2
5 8 5 9 1 2 8 3 7 2 9 4 9 4 3 3 7 4 0 4 5 7 8 3 5 3 8 9 0 6 4 2 1 7 7 9 2 7 4
6 7 0 2 1 3 3 5 0 3 0 1 1 8 3 6 1 7 9 4 6 5 5 7 5 4 9 4 2 6 4 8 8 2 7 9 3 4 7
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
5 9 3 9 1 8 7 1 9 0 0 9 3 3 5 8 5 4 0 7 8 2 4 9 5 9 9 5 7 1 6 1 7 1 1 0 4
6 8 7 9 2 5 1 1 9 3 2 4 3 3 7 2 7 4 1 6 0 7 4 9 6 8 1 5 7 2 8 0 7 1 9 2 6
1 9 6 5 1 0 0 1 4 2 1 0 9 6 3 3 9 1 9 4 1 8 2 8 5 0 3 2 7 5 8 1 7 9 7 1 9 7 9
2 0 9 9 1 0 2 3 0 2 1 1 4 8 3 4 0 6 6 4 2 0 6 9 5 0 6 4 3 5 8 2 5 2 7 1 9 9 8
2 3 7 4 1 0 4 4 1 2 1 6 5 8 3 4 0 7 7 4 2 1 2 3 5 0 9 5 1 5 8 7 6 4 7 2 4 6 2
2 3 7 8 1 0 4 8 1 2 1 6 5 9 3 4 1 2 6 4 2 2 0 5 5 1 0 9 5 5 8 7 8 7 7 3 4 1 2
2 4 5 1 1 0 5 8 9 2 2 2 3 9 3 4 6 4 4 4 2 2 6 5 5 1 2 8 1 5 9 0 0 8 7 4 1 6 8
2 8 8 5 1 0 7 3 5 2 2 4 5 8 3 5 0 6 6 4 2 3 4 2 5 1 3 5 4 5 9 1 6 4 7 4 2 3 7
2 9 2 8 1 1 1 6 6 2 2 5 0 2 3 5 2 2 6 4 2 7 2 7 5 1 5 5 5 5 9 2 9 4 7 4 4 3 4
2 9 7 5 1 1 1 7 4 2 4 1 4 4 3 5 4 3 5 4 2 7 9 5 5 1 9 6 9 5 9 5 6 8 7 4 4 8 1
3 0 9 4 1 1 4 8 4 2 4 3 0 6 3 5 6 4 3 4 2 8 7 1 5 2 1 4 7 6 0 0 4 3 7 5 0 7 0
3 2 5 7 1 2 1 3 5 2 5 4 4 0 3 5 9 7 0 4 3 1 0 9 5 2 6 9 8 6 0 6 5 4 7 5 1 5 6
3 2 8 9 1 2 1 3 8 2 5 6 0 3 3 5 9 9 8 4 3 2 1 4 5 2 8 6 9 6 0 7 5 9 7 5 2 7 2
3 4 4 6 1 2 3 5 4 2 5 6 9 7 3 6 5 2 7 4 3 9 3 9 5 2 8 8 1 6 1 6 0 1 7 5 7 2 4
3 6 6 9 1 2 6 9 3 2 5 8 3 5 3 6 5 8 9 4 4 3 4 0 5 2 8 9 2 6 1 6 0 4 7 5 8 1 3
3 9 2 1 1 2 9 9 5 2 6 1 3 0 3 6 7 3 8 4 4 5 7 6 5 2 9 7 8 6 1 6 6 9 7 6 2 6 0
4 6 8 5 1 3 1 8 0 2 7 4 8 0 3 6 9 4 3 4 4 6 1 3 5 3 3 0 0 6 3 0 0 0 7 6 6 6 7
4 8 4 1 1 3 2 8 9 2 8 7 1 2 3 7 5 4 8 4 4 9 2 1 5 3 4 8 7 6 3 0 4 2 7 7 1 5 1
5 0 1 9 1 3 9 7 9 2 8 8 9 4 3 7 6 8 3 4 4 9 2 3 5 3 4 9 7 6 4 2 2 9 7 7 9 3 9
5 4 7 2 1 4 1 4 9 2 9 2 6 4 3 7 7 3 6 4 5 3 0 5 5 3 6 6 3 6 5 6 4 3 7 8 0 4 9
6 2 1 5 1 4 7 6 0 2 9 5 8 3 3 7 8 4 5 4 5 4 0 7 5 3 8 6 6 6 5 7 3 9 7 8 1 0 0
6 2 5 1 1 5 4 8 0 2 9 6 6 5 3 7 8 8 2 4 6 4 9 2 5 4 0 5 0 6 5 9 2 9 7 8 2 0 0
6 2 5 2 1 6 5 0 7 2 9 8 1 4 3 8 5 0 0 4 7 4 3 9 5 4 4 5 1 6 6 5 8 8 7 8 2 4 4
6 4 6 7 1 7 2 3 0 3 1 0 6 5 3 8 5 4 3 4 8 0 8 4 5 5 1 6 4 6 6 7 9 4 7 8 3 8 1
6 6 5 2 1 7 8 1 3 3 1 1 4 6 3 8 8 7 8 4 8 3 0 2 5 5 2 0 8 6 7 0 1 9 7 8 4 2 3
6 9 2 8 1 7 9 7 8 3 1 2 1 4 3 9 1 6 5 4 8 3 3 5 5 5 3 7 3 6 7 4 1 4 7 9 3 3 9
6 9 3 2 1 7 9 8 6 3 1 4 2 6 3 9 5 0 3 4 8 4 9 2 5 5 5 1 5 6 8 5 4 9
7 6 7 7 1 8 2 5 1 3 1 9 1 8 3 9 6 4 8 4 8 7 7 4 5 5 5 7 7 6 9 1 1 6
8 2 0 5 1 8 2 8 6 3 1 9 9 3 3 9 6 9 2 4 9 2 9 3 5 5 7 7 5 6 9 4 4 9
8 4 5 7 1 8 3 5 6 3 2 4 8 8 3 9 7 0 9 4 9 3 3 3 5 5 9 9 0 7 0 4 7 7
8 5 6 5 1 8 4 0 8 3 3 0 6 2 3 9 7 1 0 4 9 4 3 3 5 6 4 4 8 7 0 7 7 9
9 1 5 8 1 8 8 8 2 3 3 2 9 3 4 0 3 3 1 4 9 5 1 7 5 6 6 0 3 7 0 9 3 3
Næstu útdrættir fara fram 25. nóv & 2. des 2010
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Haustið hefur ríkt,
vetur er genginn í
garð. Einn af vinum
og samferðarmönnum hefur kvatt
þetta jarðlíf, fyrir sjúkdómsbrandi.
Leifi Hallberts er horfinn inn á
æðra tilverustig. Minning um
mætan mann er ljós í myrkri vetr-
ar, eftir margslungin veikindi sem
sótt hafa að, en á móti þeim var
tekið af æðruleysi og dulúð. Vorið
hans þekkti ég ekki, en sumarið
Þorleifur
Hallbertsson
✝ Þorleifur Hall-bertsson, fyrrver-
andi verksmiðjustjóri,
fæddist á Veiðileysu í
Veiðileysufirði 27.
apríl 1931. Hann lést
á Landspítalanum 27.
október sl.
Útför Þorleifs var
gerð frá Fossvogs-
kirkju 5. nóvember
2010.
hans var allt mitt líf.
Það var mikill sam-
gangur á milli for-
eldra minna, Leifa og
Siggu konunnar
hans. Börnin þeirra,
ég og bróðir minn
vorum á líku reki
þótt systur mínar
væru eldri. Svona var
Suðureyri við Súg-
andafjörð, samfélagið
samtvinnað og sam-
hæft, mikil vináttu-
bönd.
Rúmlega tvítugur
flyt ég aftur heim með konu minni
og nýfæddu barni. Foreldrar mínir
þá fluttir til Akraness, en auðvitað
átti ég þá Leifa og Siggu að. Leifi
kunni allt. Viðhald stórra véla,
gera við bíla, laga saumavélar og
hvað sem var, allt lék í höndum
hans.
Ég þurfti oft á honum að halda,
það varð aldrei umtalsefni, ég
hringdi bara og hann kom, eins
og þá er konan mín var á kven-
félagsfundi og hvítvoðungur minn
illa lyktandi, svo illa að ég hafði
notað allar bleyjurnar, úr taui, yf-
ir tuttugu og ekkert gekk við
þrifin. Hann kom, skolaði strák-
inn þerraði og klæddi, þetta
kunni Leifi líka og málið var
leyst. Þessar línur lýsa honum
best. Vináttan var svo einlæg,
fyrir utan svo það hversu góður
félagi hann var. Bridge á vetrum,
silungs- og laxveiðar á sumrum
fékk ég að stunda í félagi með
Leifa. Það var dásamlegt. Allt
þetta ber að þakka að leiðarlok-
um, hvernig þú, ljúfi vinur, gast
leitt mann til betri manns með at-
höfnum þínum öllum. Svona er
minningin blíð og ævintýrarík
með góðum vini, Þorleifi Hall-
bertssyni.
Kæri vinur, hafðu þökk fyrir
allt og allt, hvíl í friði Guðs og
blessunar.
Við Bryndís sendum þér, elsku
Sigga, börnum og afkomendum,
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Guðmundur Óskar
Hermannsson.
Haukur vinur minn
er farinn. Við Haukur
höfum þekkst í rúma
hálfa öld og verið góð-
ir vinir í þrjá áratugi.
Haukur var lengst af togarasjómað-
ur, háseti, stýrimaður og skipstjóri.
Hann var hörkuduglegur og mikið
karlmenni. Mér er kunnugt t.d. að í
tvígang stakk hann sér í sjóinn til að
bjarga félaga sínum.
Hann var mikill eljumaður og gat
aldrei setið auðum höndum, sem
sést vel á því að fram á síðasta dag
vann hann við netaviðgerðir 79 ára
gamall. Þrátt fyrir að Haukur væri
svo mikið karlmenni eða ef til vill
vegna þess, var hann viðkvæmur og
mátti ekkert aumt sjá. Hann var
ætíð reiðbúinn til hjálpar þeim sem
hann taldi að þyrftu á hjálp að
halda. Við brottför hans kom mér
þessi vísa úr Hávamálum í hug:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
Þórarinn Haukur
Hallvarðsson
✝ Þórarinn HaukurHallvarðsson
fæddist í Reykjavík
20. júlí 1931. Hann
varð bráðkvaddur 31.
október 2010.
Útför Hauks fór
fram frá Grafar-
vogskirkju 10. nóv-
ember 2010.
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan
getur.
(Úr Hávamálum)
Við fjölskyldu hans
vil ég segja þetta:
Sorg og eftirsjá eftir
góða menn er mjög
eðlileg. En mikil sorg
og langvinn er hinum
brottkallaða erfið.
Þór.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
(V. Briem)
Við systkinabörn Hauks sátum
saman í árlegu síðdegisboði hjá Ár-
nýju systur hans sunnudaginn 31.
október og biðum eftir að Haukur
kæmi. Hans var að vænta á hverri
stundu, en biðin eftir honum varð
eilífðarbið. Hann varð bráðkvaddur
í bíl sínum rétt áður en hann komst
á leiðarenda.
Skyndilega var gripið fram í fyrir
honum og stýrt yfir á eilífðarbraut-
ina.
Minning okkar frændfólksins um
Hauk frænda er svo björt og
ánægjuleg en samt mjög trega-
blandin. Hann var alltaf svo hress í
bragði og hafði frá svo mörgu að
segja, sem vakti eftirtekt. Þessi eig-
inleiki hans og fas minnti svo mikið
á Hallvarð föður hans. Hallvarður
föðurbróðir minn var alltaf í sér-
stöku uppáhaldi hjá okkur systk-
inunum. Þau hughrif fluttust ósjálf-
rátt og sjálfkrafa yfir á Hauk og
systur hans.
Yfir 30 ár hafa afkomendur Krist-
ínar Hallvarðsdóttur og Árna Gunn-
laugssonar frá Kollabúðum í Reyk-
hólasveit haldið hópinn. Við héldum
ættarmót á fjögurra ára fresti. Þar
var rakinn fróðleikur um foreldra
okkar og framættir. Lífshlaup
þeirra og búskap. Það stóð einmitt
yfir ein þessara samverustunda
okkar, þegar Haukur var skyndi-
lega kvaddur til annara samveru.
Umbreyting á örskotsstundu hlýtur
að koma mönnum á óvart. Samt hef-
ur Haukur verið betur undir það
búinn en margur annar. Hjá for-
eldrum sínum hefur hann fylgst vel
með hugðarefnum þeirra. Þau voru
bæði virkir félagar og þátttakendur
í Guðspekifélaginu. Grétar Ó. Fells
orti eitt sinn til Hallvarðs, en þau
orð eiga ekki síður við Hauk son
hans.
Þótt örlög krefji hann um átök hörð
hann æðrast ei hót né kveinar
og heiðraður bæði á himni og jörð
mun Hallvarður Einar.
-
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem)
Við systkinabörnin sendum fjöl-
skyldu hans innilega samúðar-
kveðju.
Hjörtur Þórarinsson.