Morgunblaðið - 19.11.2010, Page 34
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
34 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
8 2 3
9 5 8 2
7 5 9
8 7 1 4
5
8 9 1 2
7 4 3 8 5
8 3 1
6 1 9 8
3 1 5
9 6 3
8 9 4
8 2
3 2 6
1 4 5
9 3
2 1
1
6 2
2 4 8 6
3 9
2 5 3
7
6 8 5
9 4 1
1 3 6 8
5 1 3 6 9 4 2 8 7
6 2 9 3 8 7 4 5 1
7 8 4 5 1 2 9 3 6
3 6 5 1 7 9 8 2 4
8 9 2 4 3 6 7 1 5
1 4 7 2 5 8 3 6 9
4 5 6 9 2 3 1 7 8
2 7 1 8 4 5 6 9 3
9 3 8 7 6 1 5 4 2
1 5 8 4 7 6 2 9 3
9 2 3 5 8 1 7 6 4
4 6 7 9 2 3 1 5 8
5 9 1 8 6 7 4 3 2
8 7 4 3 5 2 6 1 9
6 3 2 1 9 4 5 8 7
7 4 9 6 3 5 8 2 1
2 8 5 7 1 9 3 4 6
3 1 6 2 4 8 9 7 5
6 7 4 2 5 9 8 1 3
5 9 3 1 7 8 4 2 6
8 2 1 6 4 3 9 5 7
9 6 2 8 3 7 5 4 1
3 1 7 4 2 5 6 9 8
4 8 5 9 6 1 3 7 2
2 4 8 7 9 6 1 3 5
7 5 6 3 1 4 2 8 9
1 3 9 5 8 2 7 6 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 19. nóvember,
323. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í saman-
burði við þá dýrð, sem oss mun opin-
berast. (Rm. 8, 18.)
Ádegi íslenskrar tungu sl. þriðju-dag kom víða fram að öllum Ís-
lendingum bæri skylda til að stuðla
að vexti og viðgangi íslenskunnar.
Dr. Guðrún Theódórsdóttir bætti um
betur í erindi sínu á hátíð Mímis, fé-
lags stúdenta í íslenskum fræðum við
Háskóla Íslands, og benti á að út-
lendingar hérlendis og ekki síst nem-
ar í íslensku fyrir erlenda stúdenta
bæru líka ábyrgð í þessu efni.
x x x
Guðrún skýrði mál sitt út frákönnun á viðskiptum í pylsu-
vagni. Þegar Íslendingur (Í) keypti
sér pylsu væru samskiptin einföld.
Eftir að hafa boðið góðan daginn
segði hann frá því hvað hann vildi og
pylsusalinn (P) færi þegar að taka til
pöntunina. P: Góðan daginn. Í: Góðan
daginn. Ég ætla að fá eina með öllu.
Skömmu síðar væri afgreiðslu lokið
og komið að næsta viðskiptavini.
x x x
Samskiptin við erlenda stúdentinn(E) væru með öðrum hætti. P:
Góðan daginn. E: Hæ. P: Hæ. Stíl-
brot frá venjulegum pylsu-
viðskiptum. Síðan þögn sem Guðrún
sagði annars óalgenga í samskiptum
pylsukaupanda og pylsusala. E: Má
ég tala lítil íslenska. P: Já. E: Við þig.
P: Já. Löngu síðar. E: Ég ætla að fá
einn pylsa. P: Eina pylsu, er rétt að
segja. Pylsusalinn er þar með orðinn
íslenskukennari. P: Með öllu? E: Já,
með öllu. Og svo hrósar pylsusalinn
erlenda nemandanum. P: Gott hjá
þér að tala íslensku svona vel. E: Já,
ég er að læra íslensku. Og eftir lang-
ar samræður og góða æfingu í ís-
lensku fær hann pylsuna sína.
x x x
Guðrún var skemmtileg í flutningisínum og salurinn veltist um af
hlátri meðan hún greindi frá pylsu-
kaupum erlenda nemandans. En
boðskapurinn var einfaldur: Þó flest-
ir Íslendingar vilji helst tala ensku
við erlenda stúdenta hérlendis er það
á valdi gestanna að tala íslensku eins
og þeir helst vilja, en það er Íslend-
inga allra að viðhalda tungumálinu
og stuðla að vexti þess og viðgangi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 útilega, 8
gægsni, 9 hvetja, 10
kvendýr, 11 draga við
sig, 13 rýja, 15 vals, 18
hræðir, 21 rödd, 22 væta
í rót, 23 auða bilið, 24
drápsmanns.
Lóðrétt | 2 greftra, 3 reyna
að finna, 4 ágengt, 5 úr-
komu, 6 kvenkynfrumu, 7
skotts, 12 stormur, 14 ótta,
15 gaffal, 16 ginna, 17 ern-
ina, 18 grískur bókstafur, 19
miskunnin, 20 meðvitund.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 byggt, 4 hasar, 7 tætir, 8 undið, 9 gín, 11 rænt, 13
bana, 14 ýsuna, 15 bjór, 17 koll, 20 áði, 22 krans, 23 legil, 24
ritar, 25 torfa.
Lóðrétt: 1 bútur, 2 gotan, 3 torg, 4 hrun, 5 sadda, 6 riðla, 10
íburð, 12 Týr, 13 bak, 15 búkur, 16 ósatt, 18 orgar, 19 lalla,
20 ásar, 21 illt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. O-O-O
Bd7 9. f4 b5 10. Bxf6 gxf6 11. Kb1 Db6
12. Rce2 Ra5 13. b3 Rb7 14. g3 Rc5 15.
Bg2 Hc8 16. De3 Dc7 17. Hd2 Be7 18.
Hc1 O-O 19. g4 Kh8 20. Rg3 Hg8 21.
Bf3 Be8 22. Rh5 Rd7 23. h4 Dc5 24.
Hd3 Rb6 25. c3 a5 26. Hc2 a4 27. b4
Dc7 28. g5 Rc4 29. Dc1 fxg5 30. hxg5 e5
Staðan kom upp á heimsbikarmóti í
Moskvu sem fram fór árið 1990. Ís-
lenski stórmeistarinn Jón L. Árnason
hafði hvítt gegn kollega sínum Vladim-
ir Tukmakov frá Úkraínu sem var þá
hluti af Sovétríkjunum. 31. Hh2! glæsi-
leg mannsfórn. 31. … exd4 32. Rf6!
Kg7 svartur hefði orðið mát eftir 32. …
Bxf6 33. Hxh7! Kxh7 34. Dh1+. 33.
Hxh7+ Kf8 34. Dh1! Bxf6 35. gxf6 Bc6
36. Hh8 Ra3+ 37. Kb2 Rc4+ 38. Ka1
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Uppvaxið undrabarn.
Norður
♠ÁKG9
♥K976
♦82
♣K108
Vestur Austur
♠106 ♠752
♥ÁG5 ♥D103
♦G1065 ♦KD973
♣D954 ♣G7
Suður
♠D843
♥842
♦Á4
♣Á632
Suður spilar 4♠.
Agustine Madala, undrabarnið frá
Argentínu, er orðinn að Ítala og farinn
að spila fyrir hönd nýja landsins með
Norberto Bocchi sem makker. Þeir eru
líkir spilarar, Bocchi og Madala: sækja
geimin fast og spila best þegar útlitið
er dökkt. Í nýliðnu boðsmóti í Kaup-
mannahöfn vann Madala 4♠ glæsilega
gegn Zia og Welland. Útspilið var tíg-
ull.
Madala drap á ♦Á, tók þrisvar
tromp og gaf svo slag á tígul. Vörnin
kom sér út á ♥Á og hjarta, en Welland
í vestur lenti strax aftur inni á ♥G.
Welland gerði sitt besta með því að
spila ♣D, en Madala lét ekki blekkjast
og felldi gosann annan hjá Zia. Hann
taldi víst að vestur hefði komið út með
lauf í upphafi frá ♣DG9, eða þá spilað
litlu laufi í endastöðunni frá ♣DG án
níunnar. Skarplega athugað.
19. nóvember 1919
Átta konur stofnuðu Félag ís-
lenskra hjúkrunarkvenna.
Fjórum áratugum síðar var
nafninu breytt í Hjúkrunar-
félag Íslands og árið 1994 var
það sameinað Félagi háskóla-
menntaðra hjúkrunarfræð-
inga og myndað Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga.
19. nóvember 1925
Finnur Jónsson listmálari opn-
aði sýningu á verkum sínum „í
litla salnum hjá Rosenberg“ í
Reykjavík, nýkominn heim frá
námi og starfi erlendis, m.a.
með Der Sturm. Þetta er talin
fyrsta abstraktsýningin hér-
lendis. Alþýðublaðið sagði
Finn einn af bestu listamönn-
um heimsins en önnur blöð
skrifuðu ekki vel um sýn-
inguna.
19. nóvember 1974
Geirfinnur Einarsson hvarf í
Keflavík. Þar með hófst rann-
sókn eins umfangsmesta saka-
máls síðari ára. Í febrúar 1977
lágu fyrir játningar þriggja
manna um að þeir hefðu orðið
Geirfinni að bana. Dómur yfir
þeim og þremur öðrum var
kveðinn upp rúmum fimm ár-
um síðar.
19. nóvember 2003
Kaupþing Búnaðarbanki gerði
kaupréttarsamninga við 62
lykilstarfsmenn. Tveimur dög-
um síðar féllu forstjórinn og
stjórnarformaðurinn frá
kauprétti sínum, eftir að
margir fluttu viðskipti sín frá
bankanum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Mér hefur alltaf þótt afmælisdagurinn minn vera
mikilvægur. Þegar ég var yngri, þá var ég alltaf
svolítið hrædd um að enginn myndi muna eftir
honum. En það gerðist sem betur fer aldrei,“ segir
afmælisbarnið Guðrún Ásmundsdóttir, sem er 75
ára í dag.
Guðrún á að baki langan og farsælan feril sem
leikkona og leikskáld. Hún lét af störfum hjá
Borgarleikhúsinu þegar hún varð sjötug, en hefur
síður en svo setið með hendur í skauti síðan þá.
„Ég hef verið að fást við svo margt skemmtilegt
undanfarin ár, nú vinn ég að dagskrá sem verður
sýnd í Þjóðmenningarhúsinu og heitir „Ekki skamma mig séra Tumi.
Þar er fjallað um vináttu Fjölnismannanna Jónasar Hallgrímssonar
og Tómasar Sæmundssonar.“
Guðrún á von á lágstemmdum veisluhöldum í ár, „Ég hélt stórveislu
lífs míns þegar ég varð sjötug. Svo átti ég dásamlegan dag í fyrra.
Börnin mín buðu mér í hádegismat, þegar ég kom heim stóð Ólöf Arn-
alds í anddyrinu og söng við píanóundirleik. Ekkert átti ég píanóið og
fór að grennslast fyrir um hvaðan undirleikurinn kæmi. Þá kom í ljós
að börnin höfðu gefið mér píanó í afmælisgjöf.“ annalilja@mbl.is
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona er 75 ára í dag
Söngkona í anddyrinu
Flóðogfjara
19. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.49 3,6 11.03 1,0 17.04 3,5 23.12 0,8 10.10 16.18
Ísafjörður 0.32 0,5 6.40 2,0 12.58 0,6 18.53 1,9 10.36 16.01
Siglufjörður 2.36 0,3 8.49 1,2 15.07 0,3 21.16 1,2 10.20 15.43
Djúpivogur 1.52 2,0 8.12 0,7 14.09 1,9 20.10 0,6 9.45 15.42
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Eyddu ekki orku þinni í óþarfa því þú
hefur í mörgu að snúast í dag sem krefst
óskiptrar athygli þinnar. Afleiðingarnar eru
minniháttar, en samt fyrir hendi ef þú dregur
lappirnar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú vilt standa upp úr og falla í hópinn á
sama tíma. Slökktu á gemsanum, þá hefurðu
meiri tíma. Reyndu að skilja aðra betur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það sem fólk segir ekki segir manni
oft meira en það sem það segir. Fæst er eins
og virðist í fljótu bragði svo það skiptir sköp-
um að þú gefir þér nægan tíma.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Því meira sem þú krefst þess að fá
þínu framgengt því erfiðara verður það. Láttu
lítið á þér bera og ekki búast við miklu í stöðu
þar sem þú þarft að treysta á aðra.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér stendur margt til boða þessa dag-
ana og veist ekki enn hvað þér er fyrir bestu.
Bjartsýni og eldmóður eru rétta umhverfið
fyrir þá sem þora að vera til.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú vilt velta öllum möguleikum fyrir
þér og spyrð þig því hvort hann/hún sé sá/sú
rétti/rétta. Lestu meira, þú hefur gott af því.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú lætur um of reka á reiðanum. Gerðu
ekkert sem getur varpað skugga á samband
þitt og þeirra sem þér eru kærir. Ferðalag er í
kortunum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Reyndu að láta fara lítið fyrir þér
í dag og láttu ekki freistast þótt forvitnileg
umræðuefni séu í gangi. Þú þarft að takast á
við gamla drauga.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Samskiptaörðugleikar halda
áfram að valda þér gremju í dag. Sýndu sann-
an liðsanda og fórnaðu þér fyrir liðið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þið þurfið ekki að láta hugfallast
þótt á móti blási um stund. Hugsið fyrst og
fremst um eigin hag.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Láttu ekki hugleiðingar um fram-
tíðina skemma fyrir þér nútíðina. Reyndu að
blanda þér ekki í deilur ættingja.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Taktu frá tíma fyrir vini þína sem þú
hefur ekki haft aðstæður til að sinna um hríð.
Kapp er best með forsjá.
Stjörnuspá