Morgunblaðið - 19.11.2010, Side 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG VAR Á KÍNVERSKUM
VEITINGASTAÐ ÞEGAR ÞAÐ VAR
HNERRAÐ Á MIG!
HVAÐ Á
SVOLEIÐIS AÐ ÞÝÐA!
BLOGGIÐ MITT
ER ORÐIÐ MEIRA
SPENNANDI!
ER ÞETTA
SNJÓR Á PEYSUNNI
ÞINNI?
ÞAÐ VERÐUR
SÓLMYRKVI
Á LAUGAR-
DAGINN
ÞAÐ ER VÍST
HÆTTULEGT
AÐ HORFA Á
SÓLMYRKVA
ÉG ÆTLAÐI
AÐ NOTA
SÓLGLERAUGU
EKKI
GERA ÞAÐ!
SÓLGLERAUGU GETA EKKI
VERNDAÐ AUGUN FYRIR
SÓLMYRKVA, EKKERT GETUR
VERNDAÐ AUGN FYRIR ÞVÍ!
HVAÐ EF ÉG DREG FYRIR
GLUGGANN, LEGGST UPP Í
RÚM OG DREG SÆNGINA UPP
FYRIR HAUS?
MUNDU SONUR, AÐ EIGUR ÞÍNAR ERU EKKI
ÞAÐ SEM SKIPTIR MESTU MÁLI Í LÍFINU...
...HELDUR ÞAÐ SEM ÞÚ ÁTT
EFTIR ÞEGAR RÍKIÐ ER BÚIÐ AÐ
TAKA SINN SKERF!
VIÐ
HEFÐUM
ALDREI
ÁTT AÐ
LEYFA
HONUM AÐ
KOMAST Á
FACEBOOK
FORELDRAR MÍNIR MISSTU
HELMINGINN AF SPARIFÉNU SÍNU VEGNA
ÞESS AÐ VERÐBRÉFAMIÐLARINN ÞEIRRA
SVINDLAÐI Á ÞEIM
ÞESSI SEM
HVARF? Ó NEI!
ÞAU
VORU HJÁ
HONUM Í
TUTTUGU ÁR
KANNSKI
ÆTTUM VIÐ AÐ
KOMA PENINGUNUM
OKKAR Á
ÖRUGGARI STAÐ
HVAR VÆRU
PENINGARNIR
OKKAR ÖRUGGIR?
Í
DJÚPRI HOLU Í
BAKGARÐINUM
OKKAR?
ÞEIR ERU Í
HERBERGI 754
ÞARNA ER
ANNAR ÞEIRRA!
FÆRÐU
ÞIG, ÉG ÞARF AÐ
TAKA ELECTRO
FASTAN!
ÞAÐ
LIGGUR
EKKERT Á!
HANN ER EKKI AÐ FARA NEITT
Hvar er Doddi?
Mig langar að taka
undir ábendingu sem
birtist í Velvakanda í
nýlega. Ég er ein af
fjölmörgum við-
skiptavinum Húsa-
smiðjunnar í Hafn-
arfirði sem sakna
Dodda. Alltaf var
hann boðinn og búinn
að aðstoða með bros
á vör. Í haust hóaði
hann í mig og sagði
mér að límið sem ég
hafði verið að leita að
viku fyrr væri komið
aftur og það var ekki
nóg að hann léti mig vita að fyrra
bragði, heldur fór hann að límrekk-
anum og rétti mér túpuna.
Doddi er indæll starfsmaður sem
alltaf heilsaði kankvíslega og lagði
sitt af mörkum til að versl-
unarferðin yrði
ánægjulegri.
Hvar er Doddi
núna? Ég myndi
leggja lykkju á leið
mína ef hann er í
sambærilegu starfi
annars staðar. Takk
fyrir góða þjónustu,
Doddi.
Gunnhildur Ó.
Enn Icesave
Ég skil aldrei hvers
vegna ríkið á að
borga. Ef maður
skiptir við banka
verður maður að taka
áhættu, hvað varðar verðbréf.
Sigríður Björnsdóttir.
Ást er…
… að vakna um miðja
nótt til að kveðja hann.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó
kl. 13.30. Leikhúsferð í Þjóðleikhúsið kl.
19.30.
Árskógar 4 | Smíðar kl. 9, jóga kl.
13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Jólafagnaður verður
fim. 2 des. kl. 18. Sr. Hans Markús flytur
jólahugleiðingu, jólahlaðborð frá Lárusi
Loftssyni. Gissur Páll Sigurðsson syngur
við undirleik Jónasar Þóris, jólasögur.
Uppl. í síma 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, botsía
kl. 10.45. Listamaður mánaðarins.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur á sunnudag kl. 20, Sighvatur
Sveinsson leikur fyrir dansi.
Félagsheimilið Boðinn | Leikfimi kl. 12.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía,
málm- og silfursmíði kl. 9.30 og 13, jóga
kl. 10.50, félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8.15 og 9.15, málun kl.
10, félagsvist og leðursaumur kl. 13,
skráning á jólahátíð stendur yfir.
Fræðslufundur um alzheimer 22. nóv. kl.
14 í Jónshúsi.
Félagsstarf Gerðubergi | Pottakaffi í
Breiðholtslaug kl. 7.30, gestur er Lárus
Haraldsson, formaður hverfisráðs.
Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, prjóna-
kaffi kl. 10, gestur Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri, stafganga kl. 10.30. Frá há-
degi er spilasalur opinn. Hátíðardagskrá
verður í Mjódd kl. 16, m.a. syngur
Gerðubergskórinn.
Furugerði 1, félagsstarf | Messa kl. 14.
Prestur er Ólafur Jóhannsson og Furu-
gerðiskórinn leiðir söng. Ívar Sím-
onarson gítarleikari spilar kl. 15.
Háteigskirkja | Bridsaðstoð kl. 13.
Hraunbær 105 | Handavinna, bingó kl.
13.30.
Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30,
brids kl. 12,30, dansleikur, Þorvaldur
Halldórsson leikur og syngur, verð 1.000
kr. Biljardstofa og pílukast í kjallara.
Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl.
8.30, 9.30 og 10.30, opin vinnustofa frá
kl. 9, námskeið í myndlist kl. 13, bingó
kl. 13.30, vinningar og kaffisala í hléi.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið/
kaffitár 8.50, gönuhlaup, Thachi og
listasmiðjan kl. 9; myndlist. Gáfumanna-
kaffi kl. 15, Hæðargarðsbíó kl. 16, búta-
saums- og myndlistarsýning listasmiðju.
„Hlustum á tónlist“ 23. nóv. Trausti
Ólafsson verður með tónlistarkvöld kl.
20.
Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka
kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaðakl.
kl. 10.10, leikfimi kl. 11, bingó kl. 13.30.
Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður,
opin vinnustofa kl. 9-12.
Vesturgata 7 | Skartgripa/kortagerð kl.
9, enska kl. 11.30, tölvukennsla kl. 13.30,
sungið v/flygilinn kl. 14.30, dansað í að-
alsal kl. 14.30-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir-
mótun kl. 9, handavinnustofa opin,
morgunstund kl. 9.30, bingó kl. 13.30.
Bjarni Stefán Konráðsson fór tilsjúkraþjálfara sem sagði að höf-
uðið á honum sæti skakkt á efsta háls-
lið. „Það er pent orðalag á þessari
staðreynd,“ sagði Bjarni og bætti við:
Þetta sjúkraþjálfarinn
þurfti mér að tjá:
„Vitgrannt höfuð, vinur minn,
er vitlaust skrúfað á.“
Spurður að því, hvort ekki væri
bara hægt að herða skrúfurnar,
svaraði Bjarni:
Nei, því hængur einn er á;
þær eru forskrúfaðar,
eitthvað bognar, eða þá
ekki neitt til staðar.
Ármann Þorgrímsson heyrði tal-
að um sjálfbærar veiðar, sjálfbæra
orku og velti því fyrir sér hvort
hugtakið næði ekki einnig yfir
mannfjölgun á jörðinni:
Svo það verði sjálfbært þá
setja ætti kvóta
á unaðsstundir öllum hjá
sem elska milli fóta.
Friðrik Steingrímsson sá þegar
að Ármann hafði lög að mæla:
Innan tíðar eflaust má
alla skjóta þrjóta,
er mælast yfir mörkum á
milli fóta kvóta.
Jón Gissurarson orti þegar fór að
hausta:
Dagar styttast alveg er
orðið dimmt á kvöldin.
Yfirtökin eiga hér
árans myrkravöldin.
Ármann bætti við:
Skuggabaldur skemmtir sér
skarta faldi hvítum tindar
norðankaldinn napur er
næstum aldrei sunnanvindar.
Höskuldur Búi Jónsson orti í
orðastað sona sinna, sem þótti held-
ur dimmt til að það væri dagur og
tunglið elti þá alla leið í leikskól-
ann:
Dökkur skugginn daginn heftir
dimm er aftur komin nótt.
Nú fylgir tunglið okkur eftir
eltir bíl og trítlar hljótt.
Davíð Hjálmar Haraldsson mælti
huggunarrík orð:
Kemur senn úr suðri vor
með sólarkoss um dranga
og þýðan blæ sem þerrar hor
og þrútinn, rakan vanga.
Engilráð Sigurðardóttir orti eitt
sinn í sama dúr:
Þó að fjúki fölnað blað
og fjari lífsins kraftur
vita skuluð, vinir, að
vorið kemur aftur.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af höfði og skrúfgangi