Morgunblaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SPARBÍÓ 3D 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
STÆRSTA
ÍSLENSKA 3D
MYNDIN
FYRR OG
SÍÐAR
SÝND Í ÁLFABAKKA
OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í KRINGLUNNI
OG SELFOSSI
7
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
HHHH
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- H.S. MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
14.000
gestir
SÝND Í ÁLFABAKKA
BESTA SKEMMTUNIN
HARRY POTTER kl.2 -5-6-6:30-8-10-11 10 ÓRÓI kl.10 10
HARRY POTTER kl.2 -5-8-11 VIP FURRYVENGEANCE kl.1:30-3:40 L
DUE DATE kl.3:40-5:50-8-10:20 10 ALGJÖRSVEPPIOG... kl.2 -4 L
RED kl.5:40-8-10:20 12 ÆVINTÝRISAMMA-3D ísl. tal kl.1:303D L
KONUNGSRÍKI UGLANNA - 3D ísl. tal kl.3:403D 7 HUNDAROGKETTIR2 ísl. tal kl.1:30 L
/ ÁLFABAKKA
HARRYPOTTER kl.12-2-3-5-6-8-9-11 10 GNARR kl. 3:40 - 5:50 - 8 L
DUEDATE kl. 5:50 - 8 - 10:10 10 ÆVINTÝRISAMMA-3D ísl. tal kl.123D-23D-43D L
DUEDATE Miðnætursýning 10 RED kl. 10:10 12
KONUNGSRÍKIUGLANNA-3D kl.123D-1:303D ísl. tal 7
/ EGILSHÖLL
Harry Potter,
Hermione
Granger, Ron
Weasley og
Voldemort eru
komin aftur
í magnaðasta
ævintýri
allra tíma
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
- BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
- Time Out New York
„IT’S THE BEST FILM IN
THE SERIES.“
- ORLANDO SENTINEL
HHHH
Það er ekki hægt að dottaundir samnefndri plötuhljómsveitarinnar OrphicOxtra því um leið og
fyrsta lagið byrjar að hljóma fer
maður af stað í ferðalag. Far-
arskjótinn er af eldri gerðinni, lík-
legast jeppi sem vantar eitt dekkið
undir. Ferðahraðinn tekur hins veg-
ar ekki mið af þessu og jeppinn
skröltir og fer ofan í holur trekk í
trekk. Eins og upp og niður tónskal-
ann á fullri ferð. Leiðin liggur um
dálítið framandi slóðir einhvers
staðar í Austur-Evrópu og um borð
í jeppanum er ein stór fjölskylda
sem bæði gleðst og rífst á leiðinni.
Svo það er brosað og grátið en að-
allega er gaman og jafnvel gert hlé
á ferðinni til að stíga dans við lagið
„Búm tja“ (annað lag plötunnar)
sem er einkar hressandi. Lagið
„Adrian“ sker sig
líka úr því þar má
greina áhrif rokks
í bland við sí-
gaunatónlist.
Svona kveikti
Orphic Oxtra í það minnsta á mínu
ímyndunarafli. Mér fannst ég vera
lent beint inn í bíómynd á borð við
Svartur köttur hvítur köttur. Ég
ímyndaði mér mig í þessu spenn-
andi ferðalagi sem þeytti mér um
allt í dunandi dansi. Ferðalagi sem
gat orðið hvort heldur sem er inni í
eldhúsi yfir pottunum eða í góðu
glensi á stofugólfinu.
Orphic Oxtra er stórt hljómsveit-
arband þar sem ótal hljóðfæri njóta
sín. Þeirra á meðal klarinett,
trommur, trompet og barítónhorn.
Nafn hljómsveitarinnar er sérstakt
enda hefur það orðið tungubrjótur
allra þeirra sem á vegi bandsins
hafa orðið. Hljómsveitin gefur sig út
fyrir að spila lífræna og dansvæna
tónlist undir sterkum balkönskum
áhrifum sem er þó heimabrugguð í
Reykjavík af stórum hópi samsær-
ismanna sem eiga það sameiginlegt
að stunda nám í hljóðfæraleik við
LHÍ eða FÍH. Lögin minna mjög á
mið- og austurevrópsk þjóðlög í
bland við klezmerstandarda og sí-
gaunatónlist. Undir þessum áhrifum
semja hljómsveitarmeðlimir Orphix
Oxtra lögin sín í hinu mesta bróð-
erni og tekst vel upp. Hljóðfæraleik-
urinn er kraftmikill og segir svo í
fréttatilkynningu um hljómsveitina:
„Orphic Oxtra semur og flytur tón-
list sem vekur líkamleg viðbrögð hjá
fólki. Hún hefur dáleiðandi dans-
áhrif á flesta þá sem á hana hlýða
nema þá sem þegar eru í dái en
jafnvel þeir grúva með í hljóði.“ Ég
er sammála því að tónlist Orphic
Oxtra geti vakið fólk úr dái hvers-
dagsdrómans og látið það hrista alla
sína skanka þar til búkur og sál eru
glaðvakandi. Tónlist plötunnar er
óreiðukennd og nokkur svipur með
einu lagi og því næsta en um leið er
tónlistin fagmannlega spiluð og ein-
faldlega of hressandi til að maður
gefist upp og slökkvi á græjunum.
Kveikt í hlustandanum
Orphic Oxtra - Orphic Oxtra
bbbnn
MARÍA
ÓLAFSDÓTTIR
TÓNLIST
Fjör „Um borð í jeppanum er ein stór fjölskylda sem bæði gleðst og rífst á
leiðinni,“ segir m.a. í gagnrýni um plötu hljómsveitarinnar Orphic Oxtra.
Kvikmyndafyrirtækið Warner
Bros. hyggst komast að því hvernig
hluti af nýjustu Harry Potter-
kvikmyndinni, Harry Potter and
the Deathly Hallows: Part 1, komst
ólöglega á netið þriðjudaginn síð-
astliðinn og þ.a.l. í dreifingu á
skráaskiptasíðum. Búturinn er 36
mínútna langur og segir í yfirlýs-
ingu frá fyrirtækinu að þetta sé al-
varlegt brot á höfundarrétti og
þjófnaður. Fyrirtækið vinni nú að
því að fjarlægja efnið af netinu og
muni lögsækja þann sem beri
ábyrgð á lekanum. Kvikmyndin
verður frumsýnd hér á landi á
morgun og er hún byggð á lokabók-
inni um Potter.
Potter lekið
á netið
Leki Daniel Radcliffe sem Potter.