Morgunblaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 323. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. „Logi ætlaði að drepa mig …“
2. Ragna Árnadóttir hætti við
3. Nauðungarsala í Hafnarfirði
4. Nani eyðilagði glæsimark …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hinn eini sanni Karl Berndsen held-
ur útgáfuhóf á Beauty Bar, Turninum,
á morgun vegna bókar sinnar VAXI-n,
hvar meistarinn leggur dömunum lín-
urnar í orðsins fyllstu. Búast má við
umræðum um konsílera.
Morgunblaðið/Golli
Meistari Berndsen
með útgáfuteiti
Hendrikka Waage, höfundur Rikku
og töfrahringsins, sat kvöldverð með
Ted Turner, stofnanda CNN, á dög-
unum. Boðið var
haldið til að
heiðra sameig-
inlegan vin
þeirra, Amir
Dossal hjá SÞ,
og bar Alþingi
barna eða Kids
Parliament,
sem Hend-
rikka er í for-
svari fyrir,
m.a. á góma.
Hendrikka Waage
hitti Ted Turner
Leikkonan góð-
kunna Sigrún
Edda Björnsdóttir
á annríkt nú um
stundir, en hún er
á fjölum Borg-
arleikhússins í
fjórum mismun-
andi verkum, þ.e. Fjölskyldunni, Fólk-
inu í kjallaranum, Gauragangi og svo
æfir hún af kappi fyrir Ofviðrið sem
er jólasýning leikhússins.
Sigrún Edda leikur
og leikur og leikur
Á laugardag Austan 8-13 m/s og rigning um landið suðaustanvert, skýjað að mestu en
úrkomulítið norðan- og vestanlands. Hiti víða 2 til 7 stig.
Á sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag Útlit fyrir hæga austlæga eða
breytilega átt, með þurru og víða björtu veðri. Hiti kringum frostmark.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-10 m/s og rigning sunnan- og austantil, en úrkomulítið
norðan- og vestanlands. Gengur í austan 13-20 m/s með suðurströndinni í nótt og í
fyrramálið. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast suðaustantil á landinu.
VEÐUR
Valsmenn unnu langþráðan
sigur í N1-deild karla í hand-
knattleik í gærkvöldi þegar
þeir sóttu nýliða Aftureld-
ingar heim í Mosfellsbæ.
Lokamínúturnar voru æsi-
spennandi en það fór svo að
lokum að Valur fagnaði
sigri, 23:22, og þar með
vann liðið sinn fyrsta sigur í
deildinni. »3
Valsmenn komust
loksins á blað
Einar Hólmgeirsson hefur verið
einstaklega óheppinn með meiðsli
síðustu ár. Síðast meiddist hann
snemma í september. Hann er á
batavegi og hefur fengið grænt ljós
frá læknum að mega spila með
Ahlen-Hamm í þýsku 1. deildinni í
handknattleik annað
kvöld. »1
Einar að komast í gang
á nýjan leik eftir meiðsli
Hamarsmenn unnu sinn fjórða
sigur í Iceland Express-deildinni
í körfuknattleik karla í gærkvöld
þegar þeir lögðu KFÍ með 14
stiga mun á heimavelli sínum í
Hveragerði. Þetta var frestaður
leikur sem fram átti að fara í síð-
ustu viku. Hamar er í 4.-6. sæti
deildarinnar en Ísfirðingar eru í
9.-11. sætinu. »2
Góður sigur Hamars-
manna á Ísfirðingum
ÍÞRÓTTIR
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Dularfullu bækurnar eftir breska
barnabókahöfundinn Enid Blyton
koma upp í hugann, þegar Guðlaug
Hallbjörnsdóttir segir frá tveimur
leyndardómsfullum málum. Fyrir
um 26 árum leysti hún gátu um
skilirí sem enginn hafði kannast
við í 20 ár og nú leitar hún eiganda
kápu sem á óskiljanlegan hátt var
komið fyrir í íbúð hennar.
Guðlaug segir að þegar hún hafi
verið að taka til fyrir 84 ára afmæli
sitt sl. vor hafi hún tekið eftir flík í
plasti í fataskápnum í forstofunni.
Hún hafi ekki leitt hugann að
henni frekar en öðru heldur komið
fatabunkanum fyrir í öðru her-
bergi.
Engin skýring
„Ég hafði öðrum hnöppum að
hneppa, kom dótinu frá mér í þessu
draslherbergi og hugsaði ekki
meira um það. Þegar ég fór að
koma þessum fötum aftur fyrir leit
ég nánar á plastið og sá að það var
frá efnalauginni Kjól og hvítu og
umlukti líka þessa fallegu kápu frá
Kello, kápu sem ég kannaðist ekk-
ert við,“ rifjar hún upp. „Hvaða
kápa er þetta, hugsaði ég með mér
og var engu nær. Það eina sem ég
vissi var að ég átti ekki þessa
kápu.“
Guðlaug bætir við að hún hafi
aldrei komið í viðkomandi efnalaug
og því hafi undrunin verið enn
meiri. Við plastið hafi verið heftur
afgreiðslumiði með númeri. Hún
hafi hringt í Kjól og hvítt en þá
höfðu orðið eigendaskipti á fyr-
irtækinu og ekkert til á skrá um
þessa kápu, öllum pappírum fyrri
eigenda hafði verið hent. Í kjölfarið
hafi hún spurt nágrannana hvort
þeir könnuðust við kápuna, alla
gesti sína frá því í vor og alla sem
hún þekki, en svörin hafi öll verið á
sömu lund. Enginn þekki kápuna,
enginn hafi séð hana og enginn vilji
neitt með hana hafa að gera.
„„Ekki átt þú þessa kápu,“ hef
ég spurt mann og annan og allir
hafa horft á mig eins og viðundur.
„Nei,“ hefur svarið einfaldlega ver-
ið. Þetta er stórundarlegt. Það
kannast enginn við kápuna og hún
er því enn inni í skáp hjá mér.“
Kápan er vatteruð að hluta og
virkilega vönduð. Guðlaug segir að
fólk hafi bent sér á að nota bara
kápuna en það detti sér ekki í hug.
Hún hafi reyndar mátað hana, en
alls ekki til þess að nota hana auk
þess sem hún passi ekki, sé of stór.
„Ég fer heldur ekki að nota kápu
sem einhver á og heyra síðan kall-
að á mig: „Heyrðu, þú ert í kápunni
minni.““
Guðlaug og dularfulla kápan
Enginn kannast
við fínu kápuna í
fataskápnum
Morgunblaðið/Kristinn
Ráðgáta Guðlaug Hallbjörnsdóttir með kápuna góðu sem enginn kannast við og enginn vill vita af.
Guðlaug Hallbjörnsdóttir var mat-
ráðskona hjá Skeljungi í Skerja-
firði í 20 ár. Skömmu eftir að hún
byrjaði að vinna þar 1974 segir
hún að við tiltekt í skemmu hafi
fundist mynd sem enginn hafi
kannast við.
„Ég pældi ekkert í því enda ný-
komin til starfa, en 20 árum
seinna var aftur verið að taka til í
skemmunni og þá fóru menn á ný
að velta þessu skiliríi fyrir sér. Ég
stakk upp á að fá söguna birta í
Velvakanda Morgunblaðsins og
daginn eftir birtinguna hringdi
eldri kona og eftir að hafa boðið
góðan daginn sagðist hún vera að
hringja út af skiliríinu sem hún
taldi vera til minningar um móður
sína. Svo reyndist vera og vonandi
ratar kápan til eiganda síns. Ann-
ars endar hún hjá Rauða kross-
inum eða einhvers staðar. Vantar
þig annars nokkuð kápu?“
Af gömlu skiliríi í Skerjafirði
MÁLIÐ LEYST