Morgunblaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. D E S E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 293. tölublað 98. árgangur
dagar til jóla
9
Pottaskefill
kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
STÆRRI FUGLA-
STOFNAR OG
FLEIRI TÓFUR
ÁSDÍS
TIL SUÐUR-
AFRÍKU
BARIST VIÐ
ÞYNGDAR-
AFLIÐ
ÍÞRÓTTIR GERÐU SAMAN BÓK 10VIÐTAL VIÐ PÁL HERSTEINS 12
Morgunblaðið/Ómar
Frávísun Jón Ásgeir Jóhannesson íhugar
skaðabótamál á hendur slitastjórn Glitnis.
Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar Glitnis, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að næst á dagskrá, eftir að
dómstóll í New York vísaði frá
dómi máli á hendur Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni og sex öðrum, væri að
leggjast yfir málið og taka ákvörð-
un um næstu skref. Ekki hefur ver-
ið tekin ákvörðun um áfrýjun en
tvö dómstig eru fyrir ofan dómstól-
inn sem tók á málinu í gær.
Ekki náðist í Jón Ásgeir né
Pálma Haraldsson í gærkvöldi en í
samtali við aðra fjölmiðla sögðust
þeir íhuga skaðabótamál á hendur
slitastjórninni. »16
Skoðað hvort máli
gegn Jóni Ásgeiri
verður áfrýjað
en endurskoðun er hafin,“ segir kærandinn, Óð-
inn Sigþórsson bóndi í Einarsnesi í Borgarfirði.
Óðinn vekur athygli á því að ekki hafi verið séð
til þess að kjörklefar væru á kjörstað heldur
kjósendum gert að greiða atkvæði í opnu rými.
Útbúnaður hafi ekki verið fullnægjandi til að
tryggja kosningaleynd og að kjósandi skuli vera
einn og ótruflaður við kosningaathöfnina.
Telur að ógilda eigi kjörbréf allra
Þá nefnir hann að kjósendum hafi verið bannað
að brjóta saman kjörseðil og þeir sem það gerðu
hafi verið beðnir um að fletta seðlinum í sundur
og skila þannig.
Þá telur Óðinn að landskjörstjórn hafi verið
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kjósandi hefur kært til Hæstaréttar framkvæmd
kosninga til stjórnlagaþings. Telur hann að vikið
hafi verið með svo alvarlegum hætti frá fyr-
irmælum laga um kosningar, bæði um kosninga-
leynd og úthlutun sæta á þingið, að það varði
ógildingu.
„Ég er enginn sérstakur aðdáandi stjórnlaga-
þings, að farið skuli í endurskoðun stjórnarskrár-
innar með þessum hætti. Þá hafa verið gefnar
ýmsar yfirlýsingar sem orka mjög tvímælis. Ég
tel rétt að það liggi fyrir að öll skilyrði laga varð-
andi þetta ferli séu óumdeilanlega uppfyllt, áður
óheimilt að úthluta þeim frambjóðendum sæti á
stjórnlagaþingi sem ekki náðu tilskildum at-
kvæðafjölda, svokölluðum sætishlut. Því beri að
ógilda kjörbréf þeirra fjórtán sem ekki náðu
3.167 atkvæða markinu og raunar einnig þeirra
ellefu sem því náðu, því lög kveði á um að þingið
skuli skipað 25 fulltrúum hið minnsta.
Vigdís Hauksdóttir alþingismaður hefur viðrað
sömu sjónarmið varðandi úthlutun sæta en lands-
kjörstjórn hefur birt allsherjarnefnd Alþingis
rökstuðning fyrir túlkun sinni.
Kjósendur skulu afhenda Hæstarétti kærur
vegna kosninganna innan tveggja vikna frá því
nöfn kjörinna fulltrúa voru birt í Stjórnartíð-
indum. Fresturinn rennur því út á morgun.
Kærir framkvæmd kosninga
Kjósandi telur að kosningaleynd hafi ekki verið tryggð í stjórnlagakosningum
Talið að ágallar við framkvæmd kosninganna og úthlutun sæta varði ógildingu
Morgunblaðið/Kristján
Saltfiskur Kaupendur á Spáni og víð-
ar við Miðjarðarhafið vilja hvítan fisk.
Í framhaldi af banni á notkun fosfata
við framleiðslu á saltfiski til neyslu í
löndum Evrópusambandsins eru tvö
verkefni brýnust að mati forsvars-
manna Matís. Annars vegar að þróa
lausnir við framleiðslu á saltfiski sem
gætu komið í staðinn fyrir fosfat, til
varðveislu á gæðum og lit. Hins vegar
að skoða með framleiðendum og eft-
irlitsaðilum hvort fosfat eigi heima á
lista yfir aukefni eða verði viðurkennt
sem tæknilegt hjálparefni við fram-
leiðsluna.
Notkun fosfata við framleiðslu á
saltfiski var á sínum tíma svar við
kröfu kaupenda á Spáni, Ítalíu og
Grikklandi um hvítan fisk og þegar
saltfiskur hefur verið útvatnaður eru
efnin vart mælanleg. Sigurjón Arason,
yfirverkfræðingur hjá Matís, segist
ekki þekkja til rannsókna sem bendi
til þess að fosfat sé hættulegt í því
magni sem notað er í saltfiski.
Bann við notkun efnanna við verkun
á saltfiski er gengið í gildi á Íslandi og
í Noregi, en t.d. í Danmörku hefur
verið veittur frestur fram í apríl og
óljóst er hvað verður í Færeyjum. »9
Hugsanlegt að þróa aðrar
leiðir við verkun á saltfiski
Jólasveinarnir hófu að streyma til byggða um
helgina, börnum landsins til ómældrar ánægju
og tilhlökkunar. Þá fá allir sem hafa verið
þægir eitthvað fallegt í skóinn sem skilinn er
samviskusamlega eftir úti í glugga á hverju
kvöldi til jóla. Það er aldrei að vita nema þessi
ungi maður við Reykjavíkurtjörn hafi fengið
þessa forláta jólasveinahúfu í skóinn í fyrri-
nótt.
Jólasveinn á tjarnarbakkanum
Morgunblaðið/Eggert
Ögmundur Jónasson dóms-
málaráðherra segir að sjálfsmorðs-
árás íslamista í Stokkhólmi á laug-
ardag hafi ekki breytt viðhorfi sínu
gagnvart óskum um að íslenska
lögreglan fái öflugri heimildir til
forvirkra rannsókna. Hann hafi
sem fyrr efasemdir um réttmæti
slíkra ráðstafana sem hann óttast
að muni grafa undan mannrétt-
indum.
„Það er mitt hlutverk að gera
tvennt í senn: að stuðla að því að
það sé tekið hér á alvarlegum glæp-
um á markvissan hátt, hins vegar
að standa vörð um mannréttindi,“
segir dómsmálaráðherra. »8
Sjálfsmorðsárás
breytir ekki viðhorfi
Vegfarendur sem staldra við í Litlu
kaffistofunni í Svínahrauni ræða fátt
meira þessa dagana en áformin um
vegtolla á Suðurlandsvegi, „og menn
fara alveg heljarstökk í skoðunum á
þessu,“ segir Stefán Þormar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Litlu
kaffistofunnar. „Það er alveg klárt
mál eftir þetta síðasta útspil að þessir
ráðamenn þjóðarinnar fá ekki mörg
jólakort frá vegfarendum.“ Áætlanir
um gjaldtöku vegna fjármögnunar
stórframkvæmda í vegagerð byggjast
á spá um 1% árlega aukningu umferð-
ar til 2015 og 2% aukningu á ári upp
frá því. »6
Fara heljarstökk í
skoðanaskiptum
um vegtollana