Morgunblaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Heilsa & hreyfing
Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um
Heilsu og hreyfingumánudaginn 3. janúar.
–– Meira fyrir lesendur
S
ÉR
B
LA
Ð
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, þriðjudaginn 21. desember.
Í þessu blaði verða kynntir fullt af þeimmöguleikum sem í boði eru fyrir
þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífstíl í byrjun ársins 2011.
Meðal efnis verður:
• Hreyfing og líkamsrækt
• Vinsælar æfingar
• Bætt mataræði
• Heilsusamlegar uppskriftir
• Andleg vellíðan
• Bætt heilsa
• Ráð næringarráðgjafa
• Hugmyndir að hreyfingu
• Jurtir og heilsa
• Hollir safar
• Ný og spennandi námskeið
• Bækur um heilsurækt
• Skaðsemi reykinga
• Ásamt fullt af fróðleiksmolum
og spennandi viðtölum
Sagafilm gefur út tvær sjón-
varpsþáttaraðir á mynddiskum nú
fyrir jól í samvinnu við Senu, gam-
anþættina Martein og réttar-
dramað Rétt II. Í Marteini segir frá
veitingahússeiganda og sam-
skiptum hans við eiginkonu sína og
besta vin. Réttur II er framhald
þáttanna Réttur en í þáttunum
glíma lögmenn við erfið mál.
Marteinn og Réttur II
gefnir út á DVD
Fólk
Í gær hófust sýningar í Bíó Paradís á útskriftar-
verkefnum nemenda í Kvikmyndaskóla Íslands.
Þar verða sýnd samtals 95 kvikmyndaverk af öll-
um toga, stuttmyndir, sjónvarpsþættir og upp-
tökur. Auglýst hafði verið að verkin yrðu sýnd í
beinni útsendingu á vef skólans en af því verður
ekki. „Ekki náðist að ganga frá einstaka rétt-
indamálum vegna sýninga á myndunum í Bíó
Paradís á netinu og því var ákveðið að láta eitt
yfir alla ganga og sýna myndirnar „off-line“ í
bíóinu eingöngu,“ segir Hilmar Oddsson, skóla-
stjóri Kvikmyndaskóla Íslands. „En þótt verkin
verði ekki sýnd í beinni á netinu verður bein út-
sending á netinu með viðtölum, fréttum og
fleira.“
Í Kvikmyndaskóla Íslands eru um 150 nem-
endur á fjórum námsbrautum. Meðal útskriftar-
nema í ár eru nemendur sem þegar hafa unnið til
verðlauna í innlendum og alþjóðlegum sam-
keppnum. „Já, það eru mikil efni í þessum skóla
og ég vil hvetja fólk til að sjá myndirnar í Bíó
Paradís en útskriftin sjálf fer fram á laugardag-
inn,“ segir Hilmar. Áætlað er að við næstu út-
skrift verði búið að ganga frá öllum réttinda-
málum vegna sýninga myndanna þannig að hægt
verði að sýna frá þeim við hverja útskrift í fram-
tíðinni. „Það er í samræmi við þá stefnu skólans
að vera sýnilegri. Þess vegna höfum við til dæm-
is undirritað samstarfssamning við RÚV um að
taka myndir úr skólanum til sýninga, en sjón-
varpsstöðin mun bæði taka til sýninga mynd um
skólann og myndir nemenda.“ borkur@mbl.is
Útskrift úr Kvikmyndaskóla Íslands
Morgunblaðið/Jim Smart
Skólastjórinn Hilmar Oddsson. Tónlistarmaðurinn Nico Muhly
gaf nýverið út tvær plötur, I Drink
the Air Before Me og A Good Und-
erstanding. Sú fyrri er gefin út af
Bedroom Community í samvinnu
við útgáfurisann Decca Classics og
er nú komin í verslanir hér á landi.
I Drink the Air Before Me hefur
að geyma tónlist við samnefnt dans-
verk dansflokks Stephens Petron-
ios og kom upphaflega út þann 6.
september á heimasíðu Bedroom
Community.
I Drink the Air Before
Me komin til landsins
Gylfi Ægisson heldur tónleika á
Faktorý annað kvöld og hefjast
þeir kl. 22. Gylfi ætlar að flytja
mörg af sínum vinsælustu lögum og
ekki er ólíklegt að „Sjúddírarírei“
verði þar á meðal. Húsið verður
opnað kl. 21.
Próflokadjamm með
Gylfa Ægissyni
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Harðkjarnasveitin Cave In var eitt
af leiðarljósum stefnunnar um og
eftir miðjan tíunda áratuginn;
óhrædd ævintýrasveit og ákveðin í
því að binda sig ekki við nein höft
sem stefnan bauð svo sannarlega
upp á. Það er því mikill hvalreki að
hugmyndasmiður sveitarinnar,
Steve Brodsky, skuli heiðra landann
með nærveru sinni, en hann ætlar að
spila sólósett á skemmtistaðnum Só-
dómu annað kvöld. Blaðamaður
heyrði í kauða.
Sigur Rós var það
-Hví ertu að koma til Íslands?
„Ég hef bara séð flugvöllinn í
milliflugstoppum fram að þessu. Fal-
lega hönnuð flugstöð og allt það en
það telst vart vera alvöru heimsókn.
Eftir að hafa séð Sigur Rósar-
myndina (Heima) heillaðist ég af
landslaginu og arkitektúrnum líka.
Það verður síðan gaman að drekka í
sig tónlistina hjá ykkur en ég hef
litla innsýn í hana verð ég að við-
urkenna.“
-Nú er Cave In talin ein af áhrifa-
mestu harðkjarnasveitum allra tíma.
Hvernig líður þér með það?
„Tja …við vorum a.m.k. ekki
hræddir við að leggja effekta-tæki
við tærnar á okkur og nota þau eins
og við gátum til að ná fram nýjum og
öðruvísi tónum og hljómi. En sveitir
eins og Neurosis voru samt að prófa
eitthvað svipað á undan okkur. En
ég veit það ekki …mér hefur alltaf
fundist að fólk ætti aldrei að van-
meta mátt hins óvænta.“
Áskorun
-En af hverju ertu að spila einn
með kassagítarinn?
„Það er eitthvað við það að ná full-
um sal af fólki á sitt band, vopnaður
kassagítar og rödd, sem heillar mig.
Ted Leo, Elliott Smith, Neil Young;
allt er þetta fólk sem ég lít upp til.
Ég er alls ekki að bera mig saman
við þessa snillinga, ég er samt sem
áður mjög hrifinn af þeirri nálgun
sem þeir beita.“
-Einhverjir myndu segja að tón-
listin sem þú flytur einn sé æði langt
frá því sem Cave In er að gera. Ertu
sammála því?
„Reyndar spila ég nokkur Cave
In-lög í þessum sólósettum. Sum
lögin virðast virka vel þannig. En í
guðanna bænum, ekki koma á tón-
leikana og búast við „unplugged“ út-
gáfu af Cave In. Þá eiga menn eftir
að verða fyrir gríðarlegum von-
brigðum!“
Tónleikar Steve Brodsky fara
fram á Sódómu Reykjavík annað
kvöld kl. 21.
Sóló Steve Brodsky, leiðtogi Cave In og söngvaskáld, heiðrar Íslendinga með nærveru sinni.
Maður, gítar, rödd
Steve Brodsky, leiðtogi hinnar goðsagnakenndu Cave In, heldur sólótónleika
á Sódómu Heillaðist af landslagi og arkitektúr Íslands þegar hann sá Heima
myspace.com/stevebrodsky