Morgunblaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Dýrahald
Labrador Retriever hvolpar.
Hreinræktaðir. Ættbókarfærðir HRFÍ.
Sprautaðir. Tilbúnir til afhendingar.
Verð kr. 160 þús. Upplýsingar í síma
695 9597 og í síma 482 4010.
Atvinnuhúsnæði
Fyrir heilbrigðisgeirann
Til leigu 11m² vinnuherbergi í miðbæ
Mosfellsbæjar, ásamt afnotum af:
Móttöku,steril, kaffiaðstöðu og snyrt-
ingu. Aðstaðan er vottuð af Heilb-
rigðiseftirliti. Verð pr. mán. kr. 40.000.
Uppl. Auður 893 8711.
Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið góð
ráð. Uppl. á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofan ehf. Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Vélar & tæki
Bílalyftur - rafsuðutæki
Vatnsdælur, rafstöðvar - varaafl-
stöðvar - frábært verð - stærðir 2.5-
150 KW - Shine rafsuðuhjálmar -
MIG-TIG MMA rafsuðutæki - 2, 3, 4
tommu vatnsdælur - Parsun utan-
borðsvélar. www.holt1.is.
BílaþjónustaHúsviðhald
Parket er okkar fag í 26 ár
Verið í góðum höndum
Notum eingöngu hágæða efni
Förum hvert á land sem er
FALLEG GÓLF ehf - Sími 898 1107
www.falleggolf.is - golfslipun@simnet.is
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Hafðu fréttatímann
þegar þér hentar
Íslandsmótið í Butler
Stefán Jóhannsson og Steinar
Jónsson rótburstuðu andstæðingana
í Íslandsmótinu í Butlertvímenningi
sem fram fór um sl. helgi. Fengu 116
stig sem var 49 stigum meira en
næsta par. Lokastaðan:
Stefán Jóhannss. – Steinar Jónss. 116
Hrólfur Hjaltas. – Oddur Hjaltason 67
Hlynur Angantýss. – Jón Ingþórss. 62
Steinberg Ríkarðss. – Tryggvi Bjarnas. 46
Birkir Jón Jónss. – Jón Sigurbjörnss. 45
Guðbrandur og Friðþjófur Ís-
landsmeistarar í sagnkeppni
Íslandsmótið í sagnkeppni fór
fram föstudaginn 10. des. Alls tóku
átta pör þátt. Melduð voru 30 spil í
tveimur lotum, 3½ mín. á spil. Loka-
staða:
Friðþj. Einars – Guðbr. Sigurbergs 202
Hrund Einarsd. – Ásgeir Ásbjörnss. 198 3.
Björn Friðrikss. – Sverrir Þórisson 195,5
Pétur Gíslas. – Páll Þórsson 194,5
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 13.
desember. Spilað var á 13 borðum.
Meðalskor: 312 stig.
Árangur N/S:
Ólafur Gíslas. – Guðm. Sigurjónsson 376
Björn Péturss. – Valdimar Ásmundss. 349
Örn Ingólfsson – Örn Ísebarn 349
Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánss. 340
Árangur A/V:
Ragnar Björnss. – Ægir Ferdinandss. 385
Höskuldur Jónss. – Elías Einarsson 358
Hulda Mogensen – Óskar Ólafsson 351
Bergur Ingimundars. – Axel Láruss. 344
Eldri borgarar Akureyri
Spilaður var tvímenningur á sex
borðum hjá bridsklúbbi Félags eldri
borgara á Akureyri 9. desember.
Efstu pör í N/S:
Sigurður Marteinss. – Helgi Buck 90
Gunnar Jóhannss. – Jóhannes Sigvs. 88
Andri Páll Sveinss. – Ólína Sigurjónsd. 79
Austur/vestur:
Bragi Jóhannss. – Stefán Jónsson 104
Ósk Óskarsd. – Svanhildur Gunnarsd. 89
Guðrún Sigurðard. – Vera Sigurðard. 78
Meðalskor 80 stig.
Jólamót Bridsfélags Reykjavík-
ur verður minningarmót um
Gylfa Baldursson
Fimmtudaginn 30. desember
verður haldið minningarmót um
Gylfa Baldursson í Síðumúla 37, og
hefst spilamennskan kl. 17. Spilaður
verður Monrad-barómeter – 44 spil.
Vegleg verðlaun ásamt flugeldum!
Keppnisgjald 3.500 kr. á mann og
eru væntanlegir þátttakendur hvatt-
ir til að skrá sig tímanlega því þátt-
taka er takmörkuð við 56 pör. Skrán-
ing hjá BSÍ í síma 587-9360 og á
bridge@bridge.is.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Elsku afi minn,
Ég á eftir að sakna
þín mjög mikið, og
hefði svo sannarlega
viljað eyða fleiri stund-
um með þér áður en þú kvaddir. En
nú ert þú hjá elsku kæru ömmu og ég
veit að hún er ánægð að fá þig til sín.
Ég hef margar minningar um þig
frá barnæsku en sá lítið af þér síð-
ustu 10 árin eftir að ég flutti úr landi.
En þegar við hittumst síðustu jól
gerðist eitthvað sem ég mun aldrei
gleyma svo lengi sem ég lifi. Við sát-
um þarna í eldhúsinu þínu og þú
sagðir mér söguna þegar þú byrjaðir
að fljúga, tókst einkaflugmannspróf
og keyptir flugvél að utan sem þú
settir saman sjálfur hér heima og
flaugst um allt landið. Þú varst æv-
intýramaður.
Saman fengum við okkur nokkur
viskístaup og töluðum um allt milli
himins og jarðar og svo minntumst
við ömmu og þú sagðir mér hversu
mikið þú saknaðir hennar.
Mér fannst mjög sérstakt það sem
þú sagðir við mig, um það hvenær þú
og ég munum hittast næst. Því mun
ég aldrei gleyma. Og síðan blikkaðir
þú til mín, gafst mér olnbogaskot og
brostir út að eyrum. Þetta samtal
okkar fannst mér mjög merkilegt og
jafnframt minnisstæðasta heimsókn
sem ég hef átt í langan tíma.
Carl J. Brand
✝ Carl J. Brandfæddist í Regina,
Saskatchewan í Kan-
ada 25. ágúst 1918.
Hann lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 20. nóv-
ember 2010.
Útför Carls fór fram
frá Fossvogskapellu
30. nóvember 2010.
Við töluðum um að
hittast aftur og ræða
meira um gamla daga
og um stríðsárin á Ís-
landi en þú tókst þær
sögur með þér í gröf-
ina. Kannski sjáumst
við aftur einn daginn
og þá getum við tekið
þráðinn upp á ný.
Afi minn var algjör
nagli. Einn hraustasti
maður sem ég hef
nokkurn tímann
kynnst. Ég leit upp til
hans að mörgu leyti,
annað var ekki hægt. Það voru svo
margir hlutir sem voru sérstakir við
hann. Mörg leyndarmál leyndust
bak við grænu augun.
Ég sakna þín, afi minn, þú og ég
áttum mjög sérstaka stund saman.
Ég kveð þig með kossi og elsku
ömmu líka.
Amanda Brand.
Elsku afi minn.
Afi var mjög sérstakur persónu-
leiki á margan hátt. Hann var mjög
ákveðinn maður og skipulagður í öllu
sem hann gerði. Hann var með hlut-
ina á hreinu og var mjög duglegur og
farsæll í því sem hann tók sér fyrir
hendur hvort sem um var að ræða
áhugamál eða vinnu. Hann hafði
mikinn áhuga á bílum og garðyrkju
og svo var hann mikill lestrarhestur
og því mjög fróður enda mundi hann
allt sem hann las og lærði.
Ég þakka fyrir allar minningar
sem við deildum saman, bæði góðum
og slæmum. Ég kveð þig, afi minn,
og vona að þú sért kominn á góðan
stað þar sem þú hefur fundið frið.
Alex Carl Davíðsson.
✝ Guðrún KatrínJónína Ólafs-
dóttir fæddist í
Keflavík 9. október
1926. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Hlévangi í Reykja-
nesbæ 25. nóvember
2010. Foreldrar
hennar voru hjónin
Guðrún F. Hann-
esdóttir, f. 14. maí
1907, d. 28. ágúst
2000, og Ólafur S.
Lárusson, útgerð-
armaður, f. 28. des-
ember 1903, d. 28. júlí 1974. Systk-
ini Guðrúnar eru Arnbjörn Hans,
f. 1928, d. 1931, Jane Maria, f.
1929, Arnbjörn Hans, f. 1930, Lára
Huld, f. 1932, d. 1934, Guðjón
Gunnar, f. 1935, Lárus Hörður, f.
1935, d. 1983, Ólafur Hafsteinn, f.
1937, d. 1995, Bára Erna, f. 1939,
Sigríður Karólína, 1943, Særún, f.
1946, og Reynir, f. 1948.
Guðrún giftist 16. júní 1945 eft-
irlifandi manni sínum Ásgeiri H.
Einarssyni frá Ísafirði, f. 4.5. 1923.
Foreldrar Ásgeirs voru Helga
Margrét Jónsdóttir, f. 1894, d.
1973, og Einar Eyjólfsson, f. 1880,
d. 1975. Börn Guðrúnar og Ásgeirs
eru Guðrún, f. 1945, gift Vilhjálmi
Jónssyni og eiga þau
4 börn, 8 barnabörn
og 4 barnabarnabörn.
Ólöf Birgitta, f. 1947,
á hún 3 börn, 2
barnabörn og 1
barnabarnabarn. Ása
Margrét, f. 1948, gift
Gísla Halldórssyni,
eiga þau 2 börn, 6
barnabörn og 1
barnabarnabarn.
Auður, f. 1949, gift
Jerry Yallaly og eiga
þau 1 barn og 2
barnabörn, Hulda
Sjöfn, f. 1951, gift Finnboga
Eserasyni og eiga þau 3 börn og 5
barnabörn. Ólafur Sólimann, f.
1953, á hann 5 börn og 5 barna-
börn Ásgeir, f. 1955, á hann 3
börn og 2 barnabörn. Svafa Hild-
ur, f. 1956, á hún 2 börn og 2
barnabörn.
Guðrún var fædd og uppalin í
Keflavík þar sem hún gekk í
Barnaskóla Keflavíkur og fór síð-
an í Héraðsskólann á Laugarvatni.
Guðrún og Ásgeir byrjuðu búskap
sinn í Reykjavík en fluttu síðar til
Keflavíkur þar sem þau bjuggu
mestallan sinn búskap.
Útför Guðrúnar hefur farið
fram í kyrrþey.
Hún Gunna Jóna systir er farin.
Hún var elst okkar 12 systkina og
það fimmta sem yfirgefur þessa
jarðvist. Hún er komin til mömmu
en þær voru alveg einstakar vin-
konur. Þar sem Gunna var elst
mæddi mest á henni að hjálpa til
með yngri systkinin og hefur oft
verið mikið að gera á stóru heimili.
Mamma sagði alltaf að Gunna
hefði verið einstaklega hjálpsöm,
dugleg og hlýðin heima.
Gunna Jóna var aðeins 19 ára
þegar hún hitti stóru ástina í lífinu
sínu, Ásgeir Einarsson, og þar
fengum við einn bróður í viðbót en
hann var sérstaklega góður við
okkur systkinin. Þau eignuðust
þau 8 börn, öll áður en Gunna varð
þrítug.
Gunna var afar myndarleg hús-
móðir og vildi hafa allt slétt og
strokið og börnin hennar nutu
þess. Mamma launaði Gunnu alla
hjálpina og voru elstu börn hennar
alin upp eins og yngri systkini
okkar.
Eftir að Gunna og Ásgeir fóru á
dvalarheimilið Hlévang fórum við
systurnar til þeirra á laugardögum
og rifjaði þá Gunna gjarnan upp
sögur frá gamalli tíð eins og þegar
mamma frétti af fataefni rétt eftir
stríð, en þá var allt skammtað og
sendi Gunnu til að bíða í röð og
kaupa efni í föt á börnin, Gunna
keypti efnið ekki bara fyrir sig
heldur líka í skyrtur á strákana og
pabba og kjóla á okkur stelpurnar.
Var til þess tekið hvað hún var
myndarleg og með glæsilegan
barnahóp.
Jana systir og hún hafa verið
samferða í gegnum allt lífið, ef
þær bjuggu ekki hlið við hlið þá
var það á sitthvorri hæðinni. Eftir
að þær fóru á sitthvort dvalar-
heimilið var oft hringt og farið í
heimsóknir þá sjaldan er aðstæður
leyfðu og er missir Jönu því mikill.
Það var oft gaman í gamla daga
þegar elstu stelpurnar komu heim
til að hjálpa mömmu rétt fyrir jól
að baka og eins og flestir vita þá
heyrist vel í okkur. Oftar en ekki
kom pabbi fram á stigapallinn og
kallaði: „Guðrún, áttu ekki mann
og börn heima?“ var þá hlegið
meira en reynt að hvíslast á.
Gunna Jóna reyndist okkur systk-
inunum einstök systir og hafi hún
þakkir fyrir.
Við sendum börnum hennar og
eiginmanni og okkur öllum sam-
úðarkveðjur.
Hvíldu í friði, elsku systir, og
sjáumst síðar.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
feginn hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu’ og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Fyrir hönd Sólimanns systkin-
anna,
Særún.
Ef það er einhver sem fær mann
til að minnast sín með hlýhug út
yfir gröf og dauða, þá er það
manneskja sem var góð við mann
þegar maður var barn. Í mínum
huga fellur Guðrún Katrín Jónína
Ólafsdóttir eða Gunna Jóna undir
þá skilgreiningu. Ég kynntist
Gunnu Jónu fyrir rúmlega hálfri
öld þegar vinskapur hófst með
mér og Auði dóttur hennar. Þrátt
fyrir að Gunna Jóna hafi sjálf alið
af sér átta börn var alltaf pláss á
heimilinu fyrir vini barna hennar
og alltaf var til nóg af skúffutert-
um og bakkelsi sem manni var
boðið upp á. Ég minnist Gunnu
Jónu sem konu sem var létt í lund
og eilítið stríðin. Hún naut þess að
gera at í okkur, hégómlegum ung-
lingunum, meðal annars með því
að setja plötur á fóninn með lögum
sem okkur þótti á þeim tíma há-
mark hallærisleikans og söng há-
stöfum með. Eins hafði hún sínar
skoðanir á strákum sem snigluð-
ust, eins og hún orðaði það, í
kringum okkur stelpurnar og
fannst smekkur okkar í þeim efn-
um ekki alltaf skynsamlegur.
Gunna Jóna var röggsöm kona og
stundum hvein í þessari elsku svo
undir tók og þótti engum skrítið,
því mikið var að gera á stóru
heimili og skoðanir oft skiptar. Þar
var ekki lognmollunni fyrir að
fara.
Á þeim tíma sem Gunna Jóna ól
upp börnin sín var ekki mikið
vöruúrval á Íslandi og saumuðu
konur flest föt á börnin. Rétt er
hægt að ímynda sér hvílík vinna
það hefur verið á barnmörgum
heimilum. Því tók Gunna Jóna sig
til og skellti sér til Glaskó í versl-
unarleiðangur, trúlega ein af
fyrstu íslensku konunum sem það
gerðu. Þegar heim var komið dró
hún upp úr pússi sínu hin fínustu
föt. Meðal annars dró hún upp for-
láta hvíta golftreyju sem hún rétti
mér með þeim orðum að hún vildi
gefa mér veganesti í gegnum nám
mitt í Hjúkrunarskóla íslands, sem
henni þótti mikið til koma og
hvatti hún mig ávallt til dáða.
Svona var Gunna Jóna. Hún
gleymdi engum og kom peysan
góða að miklum notum á margri
næturvaktinni. Gunna Jóna átti
stórt hjarta og lét sig ekki muna
um einn kepp í sláturtíðinni þó að
hún hefði um nóg annað að hugsa.
Ég er þakklát fyrir það góða
fólk sem varð á vegi mínum í
Keflavík bernsku minnar. Ærlegt
fólk eins og Gunna Jóna, hennar
góði maður og þeirra góðu börn,
gaf mér veganesti út í lífið sem
reyndist vera dýrmætara en allt
heimsins gull.
Hvíl í friði.
Auður Guðjónsdóttir.
Guðrún Katrín Jónína
Ólafsdóttir
Að skrifa
minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu
minningagreina. Þær eru einnig birtar á
www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrir útfarardag, en á föstudegi
vegna greina til birtingar á mánu-
dag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfara-
rdag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að
birta allar greinar svo fljótt sem
auðið er. Hámarkslengd minn-
ingagreina er 3.000 tölvuslög
með bilum. Lengri greinar eru
vistaðar á vefnum, þar sem þær
eru öllum opnar.