Morgunblaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Nú er tími til að gefa
...og líka þiggja.
Skráðu þig á americanexpress.is og fáðu tvöfalda
Vildarpunkta Icelandair af allri veltu fram að jólum!
Jólabónus
American Express
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hollensk stjórnvöld höfðu svigrúm til
meiri eftirgjafar í Icesave-deilunni í
síðustu samningalotu en þau kusu að
nýta sér, enda sú skoðun útbreidd í
Hollandi að bjóða þyrfti Íslendingum
betri samning en þann sem felldur
var með afgerandi hætti í þjóðar-
atkvæðagreiðslu í mars.
Andvígur síðasta samningi
Þetta er mat Arnouts Boots, pró-
fessors í fjármálum fyrirtækja við
Amsterdam-háskóla, sem rifjar upp
að hann hafi verið andsnúinn fyrri
samningi, á þeim grundvelli að hann
væri ósanngjarn gagnvart Íslandi.
„Samningurinn sem nú hefur verið
lagður fram er uppbyggilegri en sá
síðasti, en telst engu að síður ekki
rausnarlegur samningur. Í honum er
greiðslunni frestað um tiltekinn tíma
[…] Samningurinn hefði getað verið
rausnarlegri, að teknu tilliti til smæð-
ar Íslands og þess gríðarlega efna-
hagsvanda sem landið stóð frammi
fyrir,“ segir Boot og bætir því við að
hollensk stjórnvöld hafi haft svigrúm
til að bjóða lægri vexti og höfuðstóls-
lækkun af kröfunni.
Hann kveðst aðspurður ekki telja
að hollensk stjórnvöld hafi verið undir
þrýstingi í samningunum við íslensk
stjórnvöld eftir að síðasta samningi
var hafnað í mars.
Ábyrgð Hollendinga
Boot bendir á að hollensk stjórn-
völd beri einnig ábyrgð með því að
koma ekki í veg fyrir að vandinn
vegna Icesave-reikninganna yrði eins
mikill og raunin varð.
Spurður hvort hann telji að meiri-
hluti hollenskra hagfræðinga sé á
sama máli kveðst Boot ekki hafa for-
sendur til að leggja mat á það. Hann
telji þó óhætt að fullyrða að meirihluti
Hollendinga hafi „talsverða samúð“
með málstað Íslands.
Þessi greining vekur þá spurningu
hversu stórt mál Icesave-deilan og
nýi samningurinn sé í Hollandi.
Yvonne Hofs, viðskiptablaðamaður
á hollenska dagblaðinu Volkskrant,
svarar spurningunni afdráttarlaust á
þann veg að málið sé smámál (e. pea-
nuts) í Hollandi.
Athyglin á stóru fjárhæðunum
Hollenska ríkið hafi sett um 30
milljarða evra til viðreisnar banka-
kerfinu og því beinist athyglin ekki að
þeim 1,3 milljörðum evra sem stjórn-
in varði til að bæta sparifjáreigendum
tjónið af völdum Icesave í Hollandi.
Nýi samningurinn sé til vitnis um
að hollensk stjórnvöld líti svo á að Ís-
lendingar muni eiga erfitt með að
standa undir kröfunni. Því sé nú boðið
upp á betri kjör en síðast.
Holland gat boðið betur
Hollenskur prófessor telur hollensk stjórnvöld hefðu getað gefið meira eftir í
Icesave-deilunni Hollensk blaðakona segir Icesave-deiluna smámál í Hollandi
Arnout Boot Yvonne Hofs
Meirihluti fjár-
laganefndar af-
greiddi fjárlaga-
frumvarp ársins
2011 til þriðju
umræðu í gær-
kvöldi. Ásmundur
Einar Daðason,
þingmaður
Vinstri grænna,
mætti ekki til
fundarins „þann-
ig að þetta voru aðallega heimilis-
kettir en engir villikettir“, sagði
Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæð-
isflokki, að fundi loknum.
Kristján Þór gagnrýndi meiri-
hluta nefndarinnar og sagði að
nefndin hefði þurft meiri tíma til að
fara yfir tillögur stjórnarflokkanna
að meiri útgjöldum ríkissjóðs. Alls
næmi útgjaldaaukinn milli annarrar
og þriðju umræðu um níu millj-
örðum króna. Stærsti hlutinn, sex
milljarðar, væri vegna aukinna
vaxtabóta í tengslum við aðgerðir
ríkisstjórnarinnar í þágu skuldugra
heimila. Þau útgjöld ætti að fjár-
magna með skatti á fjármálafyrir-
tæki og lífeyrissjóði en eftir væri að
útfæra með hvaða hætti það yrði
gert.
Þá væri óljóst hvort Íbúðalána-
sjóður yrði einnig skattlagður til að
standa undir vaxtabótunum. Um 1,9
milljarðar af auknum útgjöldum
væru vegna þess að ríkisstjórnin
hefði fallið frá því að lækka vaxta-
bætur.
Ekki náðist í Oddnýju G. Harðar-
dóttur, formann nefndarinnar,
Björn Val Gíslason varaformann eða
Ásmund Einar Daðason.
„Aðallega
heimilis-
kettir“
Kristján Þór
Júlíusson
Fjárlagafrumvarp
afgreitt úr nefnd
Í svartasta skammdeginu – og þegar líða fer að
hátíð ljóss og friðar – er nauðsynlegt að skreyta
sem mest með björtum ljósum, til að bægja frá
myrkri. Víðast hvar fá jólaljósin að njóta sín og
meira að segja bátar og skip sem liggja við
bryggju í Reykjavík eru fagurlega skreytt. Til-
valið er því að bregða sér í gönguferð um hafn-
arsvæðið og njóta aðeins óhefðbundnari jóla-
skreytinga en gengur og gerist.
Enginn bátur skilinn eftir óskreyttur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einn var fluttur á slysadeild Land-
spítala vegna reikeitrunar á tíunda
tímanum í gærkvöldi, en áður hafði
verið tilkynnt um eld í íbúð á Álfa-
skeiði í Hafnarfirði.
Allt tiltækt lið slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins var kallað út en
þegar fyrsti bíll kom á vettvang upp-
götvuðu slökkviliðsmenn að ekki var
um eld að ræða. Húsráðendur höfðu
gleymt potti á eldavél og fylgdi því
mikill reykur.
Einhverjar skemmdir urðu á íbúð-
inni og þurfti að reykræsta.
Á slysadeild
með reykeitrun
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Útlit er fyrir mikil og óvenjusnörp
veðrabrigði á landinu. Það snögg-
kólnar í dag og útlit fyrir frost
víðast hvar um landið síðdegis.
Þótt nokkuð snemmt sé að spá í
jólaveðrið er gert ráð fyrir snjó-
komu víða á landinu á Þorláks-
messu, í langtímaspá norsks veð-
urvefjar.
Miklar breytingar er að sjá í
veðurkortunum næstu daga.
Frosti er spáð út vikuna og að á
fimmtudag og föstudag gangi
hvasst norðanveður yfir landið
með snjókomu norðanlands.
Um helgina verður hiti ná-
lægt frostmarki, samkvæmt spá
Veðurstofu Íslands, en aftur fryst-
ir á mánudag. Í langtímaspá
norska veðurvefjarins yr.no er því
spáð að töluvert frost verði hér á
landi í næstu viku með snjókomu
á Norðurlandi. Þá er gert ráð fyr-
ir snjókomu á höfuðborgarsvæðinu
á Þorláksmessu. Er útlit fyrir hvít
jól á Akureyri. Jörð er nú marauð
á Suðurlandi og spurning hvort
spá um snjókomu á Þorláksmessu
rætist og breyti rauðum jólum í
hvít í Reykjavík.
Snörp veðrabrigði í nánd
Snöggkólnar í dag Útlit fyrir jólasnjó á Akureyri
Langtímaspá sýnir snjókomu í Reykjavík á Þorláksmessu
Morgunblaðið/Árni Sæberg