Morgunblaðið - 15.12.2010, Page 5
Fyrir miðjum firði
Myndbrot frá liðinni öld
Eftir Jón Hjartarson
Jón Hjartarson, fyrrum
skólastjóri og fræðslu-
stjóri, var alinn upp á
Undralandi í Kollafirði í
Fellshreppi (nú Brodda-
neshreppi) í Strandasýslu.
Jón á tvær afastúlkur,
Snædísi Rán og Áslaugu
Ýri sem eru með samsetta
sjón- og heyrnarskerðingu
auk þess að vera bundnar
við hjólastól. Til að halda
tengslum fór hann að
skrifa frásagnir af því hvernig hann hafði það þegar hann var
að alast upp fyrir vestan, og smám saman varð til lítil bók sem
hér birtist. Jón segir frá aðstæðum í sveitinni, viðhorfum sveita-
mannsins til hlutanna, hugsunarhætti og ýmsum atburðum sem
áttu sér stað.
Nýjar bækur að vestan
Hjartað slær til
vinstri
Úr minningaheimi
Kalla í Nesbæ
Eftir Rúnar Kristjánsson
á Skagaströnd
Hjartað slær til vinstri
fjallar um hrifnæman ung-
ling sem er að vaxa upp
í landsbyggðarþorpi um
og eftir 1960. Það er sama
hvort fjallað er um pólitík,
verkalýðsmál, þjóðmál
eða heimsmál, á öllu hefur
unglingurinn í Nesbæ brenn-
andi áhuga. Þetta er ósvikin
íslensk saga sem segir frá
veröld sem var og margir muna enn. Hún gæti hafa gerst hvar
sem er á Íslandi til sjávar og sveita. Margir munu kannast við
Kalla í Nesbæ í sjálfum sér. Rúnar Kristjansson er húsasmiður
og er þetta sjöunda bók hans.
Sagan af Lillalalla
og vatninu góða
Eftir Eyvind P. Eiríksson
Það er margt sem snýst
í höfðinu á Lillalalla:
Af hverju flytur fólk úr
þorpinu? Af hverju má
pabbi ekki veiða meiri
fisk? Heldur mamma
vinnunni? Og hvað með
Badda hrekkjusvín? Bók
fyrir unglinga á öllum
aldri. Eyvindur er fjöl-
menntaður maður og
hefur stundað kennslu við
gagnfræðaskóla, mennta-
skóla og háskóla, var m. a.
lektor í sjö ár í Helsingfors og Kaupmannahöfn. Frá honum hafa
komið yfir þrjátíu skáldverk, þar á meðal fjórar barna-og ung-
lingabækur og hann hefur unnið sem skáld með listamönnum á
Íslandi, Ítalíu og í Kanada.
Hanna María
öskureið
Eftir Magneu frá Kleifum
Þetta er sjöunda og síð-
asta bókin um hina heil-
brigðu og fjörugu stúlku
Hönnu Maríu. Í bókinni
er mikið af góðum boð-
skap sem á erindi við
börn og unglinga og líka
þá fullorðnu.
Magnea, sem er frá
Kleifum í Kaldbaksvík í
Strandasýslu, má teljast í
hópi hinna sjálfmenntuðu
höfunda úr alþýðustétt,
líkt og til dæmis Guðrún
frá Lundi. Hún hefur skrifað og gefið út fjölda bóka fyrir
alla aldurshópa og margir hafa haldið upp á bækur hennar í
gegnum tíðina.
Fást í bókaverslunum um land allt
kr. 1.980-
kr. 2.400-kr. 1.980-
kr. 2.400-