Morgunblaðið - 15.12.2010, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Áformuð innheimta vegtolla til að
fjármagna vegaframkvæmdir á
stofnbrautunum að höfuðborgar-
svæðinu mælist illa fyrir. Ekki síst
þar sem vegfarendur hafi ekki val
um aðrar leiðir og ekkert liggi fyrir
um að álögur á eldsneyti verði lækk-
aðar á móti.
Áætlanir um veggjöldin byggjast
m.a. á umferðarspá sem stuðst var
við í viðræðunum við lífeyrissjóði um
fjármögnun framkvæmdanna. Þrátt
fyrir að umferðin hafi minnkað um
7% eftir hrunið, þá er út frá því
gengið að hún muni aukast á nýjan
leik um 1% á ári fram að verklokum
framkvæmdanna 2015. Því er svo
spáð að umferðin aukist um 2% á ári
eftir það, þ.e.a.s. eftir að innheimtan
hefst og út lánstímann. Síðustu um-
ferðartölur Vegagerðarinnar benda
á hinn bóginn til að dregið hafi meira
úr umferð að undanförnu en búist
var við.
Upphæð vegtollanna er ekki
ákveðin en sett hafa verið upp dæmi
og í umfjöllun FÍB er því haldið fram
að fólk í grannbyggðum höfuðborg-
arsvæðisins sem sækir daglega
vinnu eða skóla til höfuðborgarinnar
sjái nú fram á að þurfa að greiða allt
að 700 kr. veggjald fyrir hverja ferð
til og frá höfuðborginni sem þýði
minnst 170 þúsund krónur árlega.
Miklir vöruflutningar eru dag
hvern yfir Hellisheiði, ekki síst með
mjólkurvörur og önnur matvæli.
„Við erum með ríflega 30 ferðir á
viku,“ segir Guðmundur Geir Gunn-
arsson, mjólkurbússtjóri MS á Sel-
fossi. Sléttir 50 kílómetrar eru á milli
mjólkurbúsins á Selfossi og Mjólk-
ursamsölunnar á Bitruhálsi í
Reykjavík.
„Eins og þetta snýr að okkur þá
yrðu þetta auknar álögur og tví-
sköttun eins og rætt hefur verið.
Maður spyr sig líka hvort ekki eigi
jafnt yfir alla að ganga þegar um
svona framkvæmdir er að ræða,“
segir Guðmundur.
Spurður hvort innheimta
veggjalda muni koma fram í hærra
vöruverði segir hann að auknir
skattar hljóti alltaf að koma einhvers
staðar fram.
Afurðastöðvar Sláturfélags Suð-
urlands eru á Suðurlandi og er mjög
umfangsmikil vörudreifing dag
hvern um Suðurlandsveg og yfir
Hellisheiðina inn á höfuðborgar-
svæðið.
Að mati Steinþórs Skúlasonar,
forstjóra SS, eru ferðirnar að lág-
marki 10 til 15 á hverjum degi. Hann
segir vegtollana ekki síður koma nið-
ur á ferðum starfsfólks sem fer á
milli starfsstöðvanna í Reykjavík,
Selfossi og Hvolsvelli dag hvern.
Steinþór hefur miklar efasemdir
um arðsemi þessara framkvæmda
sem gangi út á að skattleggja íbúana.
Þessu sé öfugt farið við gjaldheimt-
una í Hvalfjarðargöngum þar
sem ökumenn sjái sparnaðinn
sem næst með því að þurfa
ekki að aka fyrir Hvalfjörð.
omfr@mbl.is
Spá 1-2% aukn-
ingu umferðar
Óttast að auknar álögur vegna vegtolla hafi mikil áhrif
Morgunblaðið/RAX
Gjaldsvæði Áform um innheimtu veggjalda á stofnbrautum út frá höfuðborgarsvæðinu mælast misjafnlega fyrir.
Rætt hefur verið um 4 innheimtustöðvar eða eða tollhlið á Suðurlandsvegi og tvö til fjögur á Reykjanesbraut.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Reykjavíkurborg hyggst draga úr
framlögum til tónlistarskóla. Lækk-
unin tekur gildi um áramótin, á
miðju starfsári skólanna.
Borgin er með þjónustusamn-
inga við 18 tónlistarskóla og greiðir
með um 2.500 nemendum í
tónlistarnámi. Skólunum er
gert að skera niður um 40 milljónir á
komandi ári.
„Ég hef áhyggjur af framtíð-
arfyrirkomulagi tónlistarkennslu í
Reykjavík,“ segir Þórunn Guð-
mundsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Tónlistarskólans í Reykjavík.
„Mesta hættan er
sennilega sú að
skammtíma
sparnaðar-
sjónarmið verði
ofan á.“ Þórunn
segir að líklega
verði framlög til
skólans skert um
10% um áramót-
in. „Á miðju
skólaári er ekki
hægt að bregðast við þessu. Kenn-
arar eru ráðnir út allt skólaárið og
nemendur eru búnir að ganga frá
sínum málum,“ segir Þórunn. „Við
höfum nú þegar lent í töluverðum
niðurskurði og höfum hagrætt eins
og hægt er. Það næsta í stöðunni eru
uppsagnir kennara.“
Hún segir að framlag Reykja-
víkurborgar til tónlistarskólanna fel-
ist í greiðslu fyrir stöðugildi kenn-
ara. Niðurskurðurinn hafi því í för
með sér færri kennara, sem leiði
óhjákvæmilega til fækkunar nem-
enda.
Þórunn segir ekki koma til
greina að hækka æfingagjöld nem-
enda til að mæta þessari skerðingu.
„Við erum komin að hámarkinu.“
Skólinn fagnar 80 ára afmæli
sínu í ár og haldið hefur verið upp á
það með margvíslegum hætti. „Það
er hart að fá endalausan niðurskurð
í afmælisgjöf,“ segir Þórunn
Tónlistarskóli fær niður-
skurð í 80 ára afmælisgjöf
Tónlistarkennari uggandi um framtíð tónlistarkennslu
Þórunn
Guðmundsdóttir
Vegfarendur sem staldra við í
Litlu kaffistofunni í Svínahrauni
ræða fátt meira þessa dagana
en áformin um vegtolla, „og
menn fara alveg heljarstökk í
skoðunum á þessu,“ segir Stef-
án Þormar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Litlu kaffistof-
unnar, sem er vinsæll
áningarstaður vegfarenda.
„Bílstjórar og aðrir sem koma
við hjá okkur eru þverskurður af
þjóðfélaginu og mönnum ber
saman um að þetta sé alveg það
síðasta sem koma skyldi.“
Stefán segir greinilegt að
umferð yfir Hellisheiði hafi
minnkað umtalsvert frá 2008.
Ótrúlega stór hópur fari
daglega á milli til
vinnu. „Það er alveg
klárt mál eftir þetta
síðasta útspil að
þessir ráðamenn
þjóðarinnar fá ekki
mörg jólakort
frá vegfar-
endum.“
Fá jólakort til
ráðamanna
LITLA KAFFISTOFAN
Stefán Þormar
Guðmundsson
®
Gildir í desember
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bí laapótek Hæðarsmára
Mjódd • Ál f tamýr i
Nýju skipi útgerðarfélagsins Óss í
Vestmannaeyjum var gefið nafn í
Skagen í Danmörku á laugardag-
inn. Þórunn Sigurjónsdóttir, móð-
ir Sigurjóns Óskarssonar
útgerðarmanns, gaf skipinu nafn
föðurömmu hans. Þórunn Sveins-
dóttir heitir nýja skipið og er það
þriðja skip útgerðarinnar með
þessu nafni. Nýja skipið er 39,95
metra langt, 11,2 metrar á breidd
og hið fullkomnasta á allan hátt.
Nú standa yfir prófanir á bún-
aði og veiðarfærum, en Sigurjón
sagðist reikna með að lagt yrði af
stað heimleiðis í lok vikunnar. Ef
allt gengi vel ætti skipið að koma
til Eyja upp úr miðri næstu viku.
„Ég var búinn að segja að þetta
yrði stærsti jólapakkinn í ár og
það ætti að geta staðist,“ sagði
Sigurjón í gær. „Mér líst ljómandi
vel á skipið og það er ekki laust
við að mig langi á sjóinn aftur. Ég
ætla að sigla með skipinu heim og
vonandi náum við skötunni á Þor-
láksmessu, alla vega jólasteik-
inni.“
Sigurjón lauk miklu lofsorði á
samstarfið við dönsku skipa-
smíðastöðina Kaspersen. Allt hafi
staðið eins og stafur á bók í sam-
skiptum við Danina. Tafir á smíð-
inni mætti rekja til erfiðleika hjá
pólska fyrirtækinu sem smíðaði
skrokk skipsins. Um 20 manns
voru í Skagen á vegum Óss um
helgina, fjölskylda Sigurjóns,
hluti af áhöfn skipsins og eig-
inkonur skipverja. aij@mbl.is
Ljósmynd/Laufey Konný
Með fríðu föruneyti Sigurjón Óskarsson, útgerðarmaður, til vinstri, ásamt
fjölskyldu og samstarfsfólki í Skagen á laugardag er skipinu var gefið nafn-
ið Þórunn Sveinsdóttir. Skip með þessu nafni hafa verið farsæl og fengsæl.
„Ekki laust við að mig
langi á sjóinn aftur“
„Ég mun fyrst og fremst leggja til
og mæla með því að við leysum mál-
ið á þessum hagstæða grundvelli
sem nú er í boði og vonast eftir því
að breið samstaða takist um það,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra, í samtali við fréttavef
Morgunblaðsins um það hvort hann
muni leggja til að nýtt samkomulag
um Icesave verði lagt í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Segir hann ótímabært að velta
fyrir sér hvort málið eigi að koma
fyrir þjóðina. Fyrst eigi Alþingi að
fjalla um málið og afgreiða fyrir sitt
leyti. „Enda er það ekki okkar að
svara því. Það er ákvörðun sem tek-
in er annars staðar ef til slíks kem-
ur.“
Nú sé mögu-
leiki á að klára
málið á kjörum
sem hann telji
mjög hagstæð og
ólíklegt sé að þau
bjóðist betri,
hvorki fyrr né síð-
ar.
Steingrímur
segir að ágætlega
horfi með sam-
komulag um málsmeðferðina. Málið
verði lagt fyrir fjárlaganefnd fyrir
jólahlé og hún muni vinna í því fyrri
hluta janúarmánaðar. Málið geti þá
komist á dagskrá þingsins um leið og
það komi saman aftur upp úr miðjum
janúar ef samkomulag haldist.
Leggur ekki til
þjóðaratkvæði
Steingrímur J.
Sigfússon