Morgunblaðið - 15.12.2010, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Menningarsjóður
útvarpsstöðva auglýsir
Hlutverk Menningarsjóðs útvarpsstöðva er að veita styrki til eflingar innlendri dagskrárgerð
fyrir hljóðvarp og sjónvarp, þeirri er verða má til menningarauka og fræðslu, sbr. reglugerð um
Menningarsjóð útvarpsstöðva dags. 11. febrúar 1986 með síðari breytingum.
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Þetta er lokaúthlutun
sjóðsins og verður hann lagður niður að henni lokinni.
Stjórn sjóðsins er skipuð af mennta- og menningarmálaráðuneytinu og annast úthlutun. Í henni
sitja Laufey Guðjónsdóttir, formaður, Lovísa Óladóttir og Þorbjörn Broddason en starfsmaður er
Reynir Berg Þorvaldsson. Stefnt er á að ákvarðanir um styrki liggi fyrir í lok febrúar 2011.
Í umsóknum skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala og heimilisfang, ásamt upplýsingum um
aðstandendur verkefnis og samstarfsaðila og skriflegum staðfestingum allra
aðila um þátttöku í verkefninu.
2. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis og greinargerð umsækjanda um verkefnið.
3. Fjárhæð styrks sem sótt er um.
4. Kostnaðar- og fjárstreymisáætlun.
5. Skriflegir samningar eða önnur staðfesting um fjármögnun eða fjármögnunar-
áætlun auk tæmandi upplýsinga um aðra styrki sem sótt hefur verið um og/eða
verkefnið hefur fengið.
6. Nákvæm áætlun um framvindu verkefnis og greinargerð um það til hvaða
verkþátta sótt er um styrk til.
7. Upplýsingar um alla gerða eða fyrirhugaða framleiðslusamninga og áætlun um
tekjuskiptingu eftir því sem við á.
8. Markaðs- og kynningaráætlun.
9. Upplýsingar um framleiðslufyrirtæki.
10. Yfirlýsing sjónvarps- eða útvarpsstöðvar um að fyrirhugað sé að taka
dagskrárefni, sem sótt er um styrk til, á dagskrá.
Upplýsingar um úthlutunarreglur, skilyrði og umsóknargögn má nálgast í gegnum netfangið
menningarsjodur@internet.is eða í síma 663 6245.
Frestur til að skila inn umsóknum í sjóðinn hefur verið framlengdur til 7. janúar nk. Umsóknum
og öllum fylgigögnum ber að skila í þríriti til Menningarsjóðs útvarpsstöðva, Hverfisgötu 54,
101 Reykjavík. Með umsókn skal skila þar til gerðum eyðublöðum sem fást afhent á sama stað
eða í gegnum netfangið menningarsjodur@internet.is.
Morgunblaðið/Ernir
Bifröst Háskóli verður áfram í Bifröst.
„Þetta er í anda þess sem við lögð-
um upp með og fleiri aðilar. Ég er
því alsæll,“ segir Óli H. Þórðarson,
formaður Hollvinasamtaka Bifrast-
ar.
Háskólastjórn ákvað í gær, eftir
samráð við ýmis samtök, að halda
áfram rekstri Háskólans á Bifröst í
stað þess að halda áfram viðræðum
um sameiningu við Háskólann í
Reykjavík. „Menn ætla að renna
sterkari stoðum undir starfsemina
og halda síðan ótrauðir áfram,“
segir Hrafnhildur Stefánsdóttir,
formaður háskólastjórnar.
Ákvörðun háskólastjórnar var
tekin í framhaldi af löngum og
ströngum fundi háskólanefndar
með ýmsum hagsmunaaðilum á Bif-
röst í fyrradag. Þar voru kostir og
gallar sameiningar og sjálfstæðs
skóla vegnir og metnir. Óli segir að
fulltrúar Hollvinasamtaka Bifrast-
ar, Borgarbyggðar og Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga hafi lagt
mikla áherslu á að starfinu verði
haldið áfram. „Við höfum lagt
áherslu á sérstöðu skólans sem hef-
ur gefið góða raun, nánd nemenda
við kennara og hópvinna með kenn-
urum á staðnum,“ segir Óli.
Komið hefur fram að Háskólinn í
Bifröst á í lausafjárerfiðleikum,
meðal annars vegna þess að nem-
endur hafa lent í erfiðleikum með
að greiða skólagjöld. Hrafnhildur
segir að áfram verði unnið að fjár-
málum skólans. Halda þurfi áfram
að hagræða. „Við teljum okkur vera
með mjög góðan skóla og viljum
styrkja hann með því að höfða til
nemenda og halda áfram að mennta
fólk fyrir atvinnulífið,“ segir hún.
helgi@mbl.is
Háskólastarfi haldið áfram á Bifröst
Í anda þess sem við lögðum upp með, segir formaður Hollvinasamtakanna
Háskólastjórn hyggst renna styrkari stoðum undir rekstur háskólans
Lögreglu höfuð-
borgarsvæðisins
hefur verið til-
kynnt um ellefu
innbrot í heima-
hús í Hafnarfirði
og Garðabæ á
undanförnum
fjórum vikum.
Samkvæmt upp-
lýsingum frá lög-
reglunni hafa
langflest innbrotin átt sér stað að
degi til en fáein að kvöldlagi. Málin
eru talin tengjast.
Rannsókn lögreglu stendur sem
hæst en eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst hefur enginn verið
handtekinn. Því er biðlað til al-
mennings en lögregla telur ekki
ósennilegt að einhver hafi séð til
þjófanna. Þá er fólk hvatt til að
hafa augun hjá sér og láta lögreglu
vita verði það vart við grunsam-
legar mannaferðir, jafnvel skrá
niður bílnúmer eða lýsingar á fólki.
Innbrotahrina
stendur yfir í Hafn-
arfirði og Garðabæ
Þjófarnir brjótast
inn á daginn.
Klukkunni á Íslandi kann að verða
seinkað um eina klukkustund ef
þingsályktunartillaga sem fjórtán
þingmenn úr öllum flokkum hafa
lagt fram á Alþingi nær fram að
ganga. Gert er ráð fyrir að valin
verði hentug tímasetning til þess að
ráðast í aðgerðina, innan árs frá
samþykkt tillögunnar, að lokinni
kynningu í þjóðfélaginu.
Í þingsályktunartillögunni segir
að miðað við gang sólar sé klukkan
á Íslandi rangt skráð. Í stað þess að
sól sé hæst á lofti um hádegisbil sé
sól hæst á lofti í Reykjavík að með-
altali kl. 13.28 og á Egilsstöðum
hálftíma fyrr.
Verði klukkunni varanlega
seinkað um eina klukkustund, eins
og þingsályktunartillagan gerir ráð
fyrir, yrði sól hæst á lofti í Reykja-
vík að jafnaði klukkan hálf eitt og á
Egilsstöðum í kringum tólf.
kjartan@mbl.is
Seinkar klukkunni
um klukkustund?
Tveir karlmenn
voru fluttir á
slysadeild Land-
spítala síðdegis í
gærdag eftir að
ekið var á þá.
Annar mannanna
fótbrotnaði en
ekki fengust
upplýsingar um
líðan hins í gær-
kvöldi.
Sá síðarnefndi varð á milli
tveggja bifreiða á Sléttuvegi í
Reykjavík. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu höfuðborgar-
svæðisins var bifreið bakkað á
manninn með þeim afleiðingum að
hann klemmdist milli hennar og
annarrar bifreiðar.
Sá sem fótbrotnaði varð fyrir bíl
á Höfðabakka, við Gullinbrú. Til-
drög slyssins eru óljós.
Ekið á tvo karlmenn
síðdegis í gærdag
Lögreglumenn við
störf á Gullinbrú.