Morgunblaðið - 15.12.2010, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Frægt varð þegar flogið hafði víttog breitt að Mark Twain væri
allur og svo barst tilkynning frá höf-
undinum um að fréttir af andláti
hans væru orðum auknar.
Oft hafa boristfréttir af póli-
tísku andláti Silvios
Berlusconis, for-
sætisráðherra Ítalíu.
Helstu fjölmiðlar í
norðanverðri Evr-
ópu höfðu spáð að
fall hans yrði mikið í
síðustu kosningum,
enda höfðu marg-
víslegar fréttir bor-
ist af honum sem
dugað hefðu til að
sálga tugum póli-
tískra mannslífa í
hinu siðprúða norðri.
En forsætisráðherrann vannmyndarlegan sigur og er nú sá
forsætisráðherra ítalskur sem lengst
hefur gegnt því embætti. Það er að
vísu ekki jafn langt til jafnað og ann-
ars staðar því að oft er minnt á að
nærri fimm tugir ríkisstjórna hafa
verið þar við völd frá lokum síðari
heimsstyrjaldar. Og nú var því spáð
að vantraust á forsætisráðherrann
yrði loksins samþykkt. En hann stóð
það af sér, þótt tæpt væri.
Því var eitt sinn haldið fram að álöngum fundi í ítalska þinginu
hefði einn helsti stjórnmálaforinginn
þar verið orðinn svo langþreyttur að
hann hefði sofnað í tvo tíma í þing-
salnum og þegar hann vaknaði aftur
kom í ljós að hann hefði tvisvar orðið
forsætisráðherra á tímabilinu.
Á Íslandi er forsætisráðherra semer bara í embætti en ekki við
völd og getur því ekki gert samninga
við erlend ríki né séð til þess að fjár-
lög séu afgreidd öðruvísi en sem
skrípamynd af skilvirku þingræði.
Þetta þætti meira að segja Silvio
skrítið ástand.
Jóhanna Sig.
Í embætti án valda
STAKSTEINAR
Silvio
Berlusconi
Veður víða um heim 14.12., kl. 18.00
Reykjavík 7 súld
Bolungarvík 10 rigning
Akureyri 10 alskýjað
Egilsstaðir 7 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 4 alskýjað
Nuuk 0 snjókoma
Þórshöfn 5 heiðskírt
Ósló -12 skýjað
Kaupmannahöfn -2 skýjað
Stokkhólmur -2 skýjað
Helsinki -7 heiðskírt
Lúxemborg -2 heiðskírt
Brussel -2 skýjað
Dublin 3 skýjað
Glasgow 1 skýjað
London 3 léttskýjað
París -1 léttskýjað
Amsterdam 0 léttskýjað
Hamborg -2 skýjað
Berlín -2 snjókoma
Vín -3 snjókoma
Moskva -11 þoka
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 11 léttskýjað
Róm 7 léttskýjað
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -12 skýjað
Montreal -11 snjókoma
New York -6 alskýjað
Chicago -12 léttskýjað
Orlando 1 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:17 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:02 14:55
SIGLUFJÖRÐUR 11:47 14:36
DJÚPIVOGUR 10:55 14:51
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hættumat bendir ekki til þess að
auknar líkur séu á að hryðjuverk
verði framin á Íslandi og ekki er haf-
in rannsókn nema lögreglu berist
upplýsingar um vísbendingar sem
réttlæti slíka aðgerð, að sögn Jóns
F. Bjartmarz, yfirmanns greining-
ardeildar Ríkislögreglustjóra. Lög-
regluyfirvöld í Svíþjóð hafa ekki
haft sérstaklega samband við ís-
lensk yfirvöld vegna hryðjuverka-
árásarinnar í Stokkhólmi en bæði
ríkin taka þátt í alþjóðlegu sam-
starfi um varnir gegn hryðjuverk-
um.
„Þeir [Svíar] hafa sent út almenn
erindi en ekki spurt sérstaklega um
eitthvað sem geti tengst þessu máli
hérlendis,“ segir Jón. „En hryðju-
verkaógnin á Íslandi hefur almennt
talist lítil. Engin bein vitneskja er
eða hefur verið um að hryðjuverk
séu í undirbúningi hér en eins og
kemur fram í hættumatinu höfum
við takmörkuð úrræði til að vinna að
rannsókn slíkra mála.“
Íslenska lögreglan hefur ekki
heimild til að stunda svonefndar for-
virkar rannsóknir sem margir álíta
að séu nauðsynlegar í baráttunni
gegn alþjóðlegum hryðjuverkum,
hún getur ekki safnað upplýsingum
um einstaklinga eða lögaðila nema
rökstuddur grunur um ákveðið af-
brot liggi fyrir, t.d. undirbúning og
skipulagningu tilræða eða fjár-
mögnun slíkra afbrota.
Sænska lögreglan með víð-
tækar rannsóknaheimildir
Svíar velta nú fyrir sér hvort
hægt hefði verið að afstýra tilræð-
inu ef lögreglan hefði getað aflað
meiri upplýsinga. Þess má geta að
heimildir sænsku lögreglunnar til
að stunda forvirkar rannsóknir eru
mun víðtækari en hér, hún hefur
m.a. aðgang að símahlerunum á veg-
um sérstakrar stofnunar hersins.
Jón Bjartmarz vill ekki svara því
beint hvort hingað hafi með vissu
komið meintir hryðjuverkamenn eða
stuðningsmenn þeirra og heldur
ekki því hvort við séum betur á varð-
bergi en Svíar. En Íslendingar ráði
ekki yfir sérstakri öryggisþjónustu-
deild lögreglu eins og og hin Norð-
urlöndin. Hann er spurður hvort
aðrar aðildarþjóðir Europol og Int-
erpol hafi gagnrýnt viðbúnað og
stefnuna hér í hryðjuverkavörnum.
Svo sé ekki, svarar Jón, þjóðrétt-
arlega beri hver þjóð ábyrgð á sínum
málum og það tíðkist ekki í alþjóð-
legu samstarfi að menn segi annarri
þjóð fyrir verkum.
Ögmundur Jónasson dómsmála-
ráðherra var spurður hvort atburð-
irnir í Stokkhólmi breyttu einhverju
um efasemdir hans vegna tillagna
um að íslenska lögreglan fái auknar
heimildir til forvirkra rannsókna.
„Nei, ekki þetta mál út af fyrir
sig,“ segir ráðherra. „Það sem ég hef
horft meira á er skipulögð glæpa-
starfsemi sem margt bendir til að sé
stunduð hér á landi, að hluta til inn-
flutt. Þá erum við að horfa til vímu-
efnasölu og mansals, verulega ljótra
glæpa.
„Vandfarin braut“
Auðvitað vill maður að það sé tekið
á slíku af einurð og staðfestu. Spurn-
ingin er hvernig þetta skuli gert og
ég hef sagt ríkislögreglustjóra að ég
vilji gjarnan fá upplýsingar um það
hvaða úrræði menn hafi. Það er mitt
hlutverk að gera tvennt í senn: að
stuðla að því að það sé tekið hér á al-
varlegum glæpum á markvissan
hátt, hins vegar að standa vörð um
mannréttindi. Þetta er vand-
farin braut en það þýðir
ekki að menn eigi að sitja
aðgerðalausir.“
Aðspurður segir ráð-
herra að menn verði að
hafa í huga að þeir megi
ekki verða óttanum
að bráð; óskin um
öryggi megi ekki
taka öll völd.
Tilræðið í Stokkhólmi kom flatt
upp á menn. Það hefði getað
orðið tugum manns að bana en
sprengjumaðurinn var sá eini
sem lét lífið. Magnus Ranstorp,
prófessor við háskóla sænska
hersins og einn af þekktustu
sérfræðingum heims í baráttu
gegn hryðjuverkum, segir að
Svíar hafi ekki enn mótað neina
stefnu eða lagt verulega vinnu
og fé í að hindra ofstækis-
öfl úr röðum íslam-
ista í að ná fótfestu
og vinna ódæði í
landinu.
Svíar ekki á
varðbergi
SPRENGJUTILRÆÐIÐ
Magnus Ranstorp
Lítil hryðjuverkaógn hér
Dómsmálaráðherra segir sprengjutilræðið í Stokkhólmi ekki breyta afstöðu
sinni til óska íslensku lögreglunnar um forvirkar rannsóknaheimildir
Reuters
Vilja frið Svíar af íröskum ættum efndu til útifundar í Stokkhólmi í vikunni til að mótmæla ofbeldi og hryðjuverk-
um. Tilræðismaðurinn, Taymor Abdel Wahab, var fæddur í Írak, bjó lengi í Svíþjóð en síðustu árin í Bretlandi.