Morgunblaðið - 15.12.2010, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
með framleiðendum og MAST, sem
er eftirlitsaðilinn, við að uppfylla kröf-
ur markaðarins um hvítan fisk á við-
urkenndan hátt. Fundir eru fyrirhug-
aðir með MAST til að fara yfir þessi
mál í heild og við viljum uppfylla kröf-
ur varðandi neytendamál og vöru-
gæði.“
Í salti eru efni eins og kopar og járn
og þau eru hvati til súrefnisupptöku í
fiskfitunni, sem aftur leiðir til þrán-
unar og þess að fiskurinn gulnar. Fos-
fatið bindur hins vegar þessi efni og
fiskurinn helst hvítur eins og kaup-
endur á Spáni og víðar vilja hafa hann.
Þeir Sveinn og Sigurjón nefna að á
síðasta ári hafi margir íslenskir fram-
leiðendur orðið fyrir áfalli vegna að-
skotaefna í salti, að líkindum kopars.
Saltfiskurinn gulnaði og tjón fram-
leiðenda varð umtalsvert. Ef fosfat
hefði ekki verið notað við framleiðsl-
una hefði tjónið orðið enn meira en
ella, en járn og kopar bindast í fosfat-
inu. Þeir áætla að einni til tveimur
evrum meira fáist fyrir kíló af hvítum
saltfiski, eins og Spánverjar vilja
hann, heldur en fyrir gulari fiski eins
og fer gjarnan á aðra markaði, s.s.
Portúgal.
Sigurjón segir að fosfatið sé fyrst
og síðast notað til að tryggja uppruna-
leg gæði fisksins, en ekki til að binda
vatn. „Við þekkjum ekki til rannsókna
sem benda til þess að fosfat sé hættu-
legt í því magni sem notað er í salt-
fisk,“ segir Sigurjón.
„Sem dæmi má nefna að ef ný-
veiddur þorskur er borðaður ferskur
eru í honum u.þ.b. 0,45% af fosfati. Við
verkun og útvötnun á þessum fiski fer
fosfatinnihaldið niður í um 0,2%. Við
framleiðslu á saltfiski fer fosfatmagn-
ið hæst í um 0,7-0,8%, en eftir að fisk-
urinn hefur verið útvatnaður er þetta
hlutfall komið niður í um 0,2%, sem er
vart mælanlegt og talsvert minna en
þegar fiskurinn kom úr sjónum. Slíkt
fer þó að sjálfsögðu eftir aðferðum.
Markmiðið með notkun fosfats í salt-
fiski er ekki að binda vatn, heldur að
tryggja sem upprunalegust gæði, með
lágmörkun á gulnun samfara þrán-
un.“
Fari á jákvæða listann
Færeyingar hafa notað þessi efni í
15-20 ár og hér á landi hafa þau verið
notuð við verkun á saltfiski í um ára-
tug og þá litið á þau sem tæknileg
hjálparefni, en ekki þarf sérstakt
leyfi ef sú skilgreining er viðurkennd.
Fáist slík viðurkenning ekki vilja
framleiðendur að efnið verði leyft
sem aukefni og liggur erindi þar að
lútandi fyrir Eftirlitsstofnun EFTA,
ESA. Fáist það samþykkt, fer fosfat
á sérstakan aukefnalista eða já-
kvæða listann eins og þeir Matís-
menn nefna hann einnig. Verði fos-
fötin samþykkt sem aukefni verði
tekið fram á umbúðum að þau hafi
verið notuð við framleiðsluna.
Á vegum Matís hefur starfsfólk í
fjölda ára unnið að rannsóknum og
þróun á saltfiski sem og öðrum mat-
vælum. Náið er unnið með framleið-
endum og situr Sigurjón í stjórn Ís-
lenskra saltfiskframleiðenda sem
hlutlaus aðili og ráðgjafi í sambandi
við þróun á vinnsluferlum og vöru-
vöndun á hráefni.
Íslendingar hafa náð langt í
vöruþróun á saltfiski og stöðugt er
unnið að nýjum leiðum. Um aðrar að-
ferðir til að varðveita upprunalegan
lit fisksins og uppfylla kröfur neyt-
enda segir Sigurjón að það snúi þá að
meðferð hráefnisins og í hvernig
ástandi fiskurinn er þegar komið er
með hann að landi og hvernig hann
nýtist. Einnig hafi menn verið að
skoða ýmsar aðrar lausnir og aðferð-
ir.
Notkunin svar við kröfu kaupenda
Áfram verður reynt að fá fosföt viðurkennd við verkun á saltfiski Aðrar aðferðir til að varðveita
upprunaleg gæði einnig skoðaðar Fosfatið vart mælanlegt þegar saltfiskur hefur verið útvatnaður
Morgunblaðið/Eggert
Bacalao Spánverjar kunna að meta vel verkaðan hvítan, íslenskan saltfisk.
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Notkun fosfata við framleiðslu á salt-
fiski var svar við kröfu kaupenda á
Spáni, Ítalíu og Grikklandi um að
upprunaleg gæði og litur fisksins
væru varðveitt. Í framhaldi af banni á
notkun fosfata við framleiðslu á salt-
fiski til neyslu í löndum Evrópusam-
bandsins eru tvö verkefni brýnust að
mati forsvarsmanna Matís. Annars
vegar að þróa lausnir við framleiðslu á
saltfiski sem gætu komið í staðinn fyr-
ir fosfat, til varðveislu á gæðum og lit
og hins vegar að skoða með framleið-
endum og eftirlitsaðilum hvort fosfat
eigi heima á lista yfir aukefni eða
verði viðurkennt sem tæknilegt hjálp-
arefni við framleiðslu á saltfiski.
Þeir Sveinn Margeirsson, forstjóri
Matís, og Sigurjón Arason, yfirverk-
fræðingur, segja Íslendinga ekki vera
einu þjóðina sem velti fosfatnotkun í
saltfiski fyrir sér. Framleiðendur frá
Noregi, Danmörku, Færeyjum og
Þýskalandi telji rétt að fosfat verði
leyft sem aukefni í saltfiski, en þar
hafa efnin verið notuð á sambæri-
legan hátt og á Íslandi.
Bannið sé gengið í gildi á Íslandi og
í Noregi, en t.d. í Danmörku hafi verið
veittur frestur fram í apríl á næsta ári
og staðan sé óljós á þessum tíma-
punkti í Færeyjum. Ekki megi
gleyma því að viðskiptavinir í
fyrrnefndum löndum við Mið-
jarðarhafið vilji hafa fiskinn
hvítan og hafi ekki gert athuga-
semdir við fosfat í fiskinum.
Ekki hættuleg út frá
manneldissjónarmiðum
Þeir Sigurjón og Sveinn telja
ekki að notkun fosfata við verkun á
saltfiski í þeim mæli sem þau eru
notuð hér á landi sé hættuleg út frá
manneldissjónarmiðum. Efnin séu í
notkun víða í matvælaiðnaði.
„Við lítum að sjálfsögðu svo á að
framfylgja eigi þeim reglum, sem nú
hafa verið settar,“ segir Sveinn.
„Næstu skref hljóta að vera að vinna
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Skyrtur í úrvali
hvítar, svartar, bláar, munstraðar...
Stærðir 36-52
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Góð jólagjöf
Treflar, slæður, sjöl og hanskar
Skoðið
úrvalið
á
laxdal.
is
GLÆSILEG JÓLAGJÖF
FLOTTIR SPARIJAKKAR
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Tekið er á móti framlögum á reikningi
Fjölskylduhjálpar:
Bnr. 101-26-66090 – Kt. 660903-2590.
Tökum á móti matvælum og fatnaði að
Eskihlíð. Upplýsingar í síma 551-3360
og 892-9603.
Jólaúthlutun verður dagana 14, 15,
21. og 22. desember í Eskihlíð 2-4.
Skráning í síma 892 9603.
Jólasöfnun Fjölskylduhjálpar
Íslands er hafin fyrir
starfsstöðvar okkar í Reykjavík,
á Akureyri og í Reykjanesbæ.
Þúsundir einstaklinga eru nú án atvinnu, auk
þeirra fjölmörgu sem minna mega sín í þjóð-
félaginu og eiga um sárt að binda. Leggjum okkar
af mörkum til að allir geti haldið gleðileg jól.
Fjölskylduhjálp Íslands | Eskihlíð 2-4 | Sími 551 3360 og 892 9603
fjolskylduhjalpin.net | fjolskylduhjalp@simnet.is
Athugið að við erum einu óháðu og sjálfstætt starfandi
hjálparsamtökin, áttunda árið í röð.
Smáfræsarar
Smáfræsarar í úrvali,
margar gerðir
og mikið úrval
af aukahlutum
Hlutafélagið Matís ohf. tók til starfa 1. janúar 2007 og heyrir undir sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Í hlutafélaginu sameinuðust þrjár rík-
isstofnanir sem unnið höfðu að matvælarannsóknum og þróun í mat-
vælaiðnaði; Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir
Keldnaholti og Rannsóknastofa Umhverfisstofnunar.
Matís ohf. sinnir fjölbreyttu rannsókna-, þjónustu- og ný-
sköpunarstarfi í matvælaiðnaði, en er ekki eftirlitsaðili. Matís
er með þjónustusamning við ráðuneytið er lýtur að öryggi,
þróun og nýsköpun. Þá sækir fyrirtækið fjármagn til þróunar-
verkefna innanlands og utan.
Matís á gömlum grunni
RANNSÓKNIR OG ÞRÓUN