Morgunblaðið - 15.12.2010, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Íbarnabókinni Þyngdarafliðeftir Önnu Ingólfsdóttur ogElísabetu Brynhildardótturer velt upp spurningunni
hvað myndi gerast ef þyngdaraflið
héldi okkur ekki niðri á jörðinni.
Samstarf Önnu og Elísabetar
hófst fyrir hálfgerða tilviljun.
„Ég var búin að vera með
þessa bók í maganum í mörg ár og
var hálfnuð með hana þegar ég
hitti Elísabetu fyrir tilviljun á
Eskifirði, hún er menntaður
myndskreytir frá Bretlandi, og ég
sagði henni frá sögunni minni. Þá
kom í ljós að eina sagan sem hún
hefur skrifað fjallaði um þyngdar-
aflið. Þannig að við smullum sam-
an,“ segir Anna um upphafið að
samstarfi þeirra.
„Svo leið eitt og hálft ár þang-
að til ég hafði samband við hana
og spurði hvort hún væri til í að
vinna þessa sögu með mér. Stuttu
síðar var auglýst hönnunar-
samkeppni um forsíðu Símaskrár-
innar, við sendum inn þrjár hug-
myndir í forsíðusamkeppninni og
fengum þrjú efstu sætin af 1530
innsendum tillögum sem var frá-
bært. Okkur þótti þetta góð
byrjun á samstarfinu. Við
höfum síðan verið að vinna
þessa sögu undanfarið
ár með þessari út-
komu.“
Sagan kom á
ástarsambandi
Spurð hvernig
hugmyndin að sög-
unni kom þarf
Anna aðeins að
hugsa sig um. „Ég
eiginlega man það
ekki,“ segir hún
hugsi. „Ég held að all-
ir spái í það hvað gerist
Vildu hvorki láta fálæti
né mótlæti stoppa sig
Mannabarnið Ísak og
jarðarbarnið Jara berjast
við þyngdaraflið í nýrri
barnabók eftir Önnu Ing-
ólfsdóttur og Elísabetu
Brynhildardóttur. Stöll-
urnar hófu samstarfið á
að vinna samkeppni um
forsíðu Símaskrárinnar
og hafa nú gefið út bók
saman.
Morgunblaðið/Golli
Höfundar Anna Ingólfsdóttir og Elísabet Brynhildardóttir unnu vel saman.
Þyngdaraflið Jara,
dóttir móður Jarðar,
gleymir sér í leik að
þyngdaraflinu.
Það eina sem kemst að hjá mjög
mörgum um þessar mundi eru jólin.
Vefsíðan Mymerrychristmas.com er
tilvalin fyrir slíkt fólk þar sem það
getur velt sér enn meira upp úr jól-
unum og öllu því sem þeim tengist.
Síðuhaldari býr í Salt Lake City í
Utah. Hann byrjaði að deila jólunum
með öðrum með aðstoð faxtækis árið
1991. Það hugsjónastarf hefur vaxið í
þessa glæsilegu síðu sem fékk yfir
átta milljónir heimsókna um síðustu
jól. Markmiðið með síðunni er að
óska veröldinni gleðilegra jóla og að
heimsókn á hana fylli fólk gleði og
hlýju.
Á síðunni má meðal annars hlusta
á Merry Christmas-netútvarp sem
spilar að sjálfsögðu bara jólatónlist.
Fréttum um jólin, sem birtast í öðrum
miðlum, er safnað saman á einn stað,
fjallað er um norðurpólinn þar sem
ameríski jólasveinninn býr, það eru
uppskriftir og jólasögur, jólatónlist,
jólaminningar og jólamenning þar
sem má lesa hátíðarhúmor, jólasögur
og skoða lista yfir jólakvikmyndir. Er
það góður listi til að fara yfir áður en
haldið er á myndbandaleiguna í des-
ember.
Það er nánast allt sem viðkemur
jólunum á Mymerrychristmas.com.
Vefsíðan www.mymerrychristmas.com
Reuters
Jól Vefsíðan hentar vel fyrir þá sem halda mikið upp á jólatímann.
Jól þetta og jólin hitt
Þessa dagana fer Sinfóníuhljómsveit
Íslands í jólaheimsóknir á sjúkrahús
og hjúkrunarheimili á höfuðborgar-
svæðinu. Hljómsveitin skiptir sér þá
upp í minni strengjasveitir og blásara-
hópa sem fara á milli staða og leika
létta og ljúfa jólatónlist. Farið hefur
verið í þessar jólaheimsóknir árlega
frá árinu 1985.
Í dag kl. 10 verður hljómsveitin á
Grund, kl. 10.30 á Grensásdeild og í
Sjálfsbjörg, Hátúni, kl. 11.30 í Seljahlíð
og kl. 14 á Landakoti.
Þessa dagana er hljómsveitin einnig
að æfa fyrir þrenna jólatónleika sem
haldnir verða 17. og 18. desember.
Endilega …
… hlýðið á
Sinfóníuna
Í jólaskapi Sinfóníuhljómsveitin.
Heyrnarhjálp og hópur erlendra
kvenna sem standa að veitingahús-
inu Veröldin okkar – Mömmu-
eldhús á Akranesi, sameinuðust í
að halda námskeið í tveimur hlut-
um þar sem fólk frá ólíkum menn-
ingarheimum fékk tækifæri til að
hittast og deila reynslu, skemmtun
og fræðslu sín á milli. „Þarna sam-
einast tveir hópar sem eiga það
sameiginlegt að þurfa að kljást við
ákveðna hindrun í samskiptum,“
segir Málfríður Gunnarsdóttir hjá
Heyrnarhjálp.
Hugmyndin að verkefninu spratt
af því að hópur frá Heyrnarhjálp
fór á opnun Mömmueldhússins og
samdi þeim afar vel.
„Það var svo gott andrúmsloft og
jákvæðni gagnvart því að tengjast
öðru fólki. Þá fórum við að velta því
fyrir okkur að í raun eiga heyrnar-
skertir og þeir sem flytja til ókunns
lands það sameiginlegt að eiga erf-
itt með að tjá sig og skilja aðra.
Báðir hóparnir hafa þó svo margt
áhugavert fram að færa og því er
sérlega gaman að leiða þá saman.“
Heyrnarhjálp og Mömmu-
eldhúsið hafa hlotið verefnastyrki
frá Evrópuári 2010 – gegn fátækt
og félagslegri einangrun.
Á námskeiðinu voru kynningar á
Palestínu, Póllandi og Íslandi, nám-
skeið í matargerð þeirra landa,
danskennsla í austurlenskum hóp-
dansi, magadans og ljóðaupplestur
á táknmáli.
Hafa margt áhuga-
vert fram að færa
Heyrnahjálp Flutt voru ljóð á táknmáli.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
52
23
6
11
/1
0
Gönguskór á jólatilboði
20% afsláttur
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS