Morgunblaðið - 15.12.2010, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Undanfarið hefur verið greint frá
refum sem hafa lagt leið sína í þétt-
býlið og dýrbítum í Borgarfirði og
víðar. Dr. Páll Hersteinsson, pró-
fessor við Háskóla Íslands, sem mik-
ið hefur rannsakað íslenska refi, var
spurður hvort fjölgun dýrbíta hefði
verið skoðuð og hvort refir sæktu
meira í sauðfé ef þeir hefðu ekki nóg
æti í hinni villtu náttúru?
„Nei, það hefur ekki verið skoðað
sérstaklega. En á meðan bæði eru
refir og sauðfé í landinu munu koma
dýrbítir öðru hverju og sennilega ár-
lega. Þessar fréttir hafa verið fleiri í
blöðunum nú en undanfarið. Það get-
ur vel verið að dýrbítir hafi verið
fleiri í haust en áður,“ sagði Páll.
„Við höfum fylgst með refastofn-
inum sem var mjög stór á árunum
milli 1950 og 1960. Síðan hrundi
rjúpan og í kjölfarið hrundi refurinn.
Refastofninn náði lágmarki 1973-
1975,“ sagði Páll. Hann telur að
haustið 1978 hafi stofninn talið færri
en 1.300 dýr. Þau gætu því hafa verið
u.þ.b. 1.000 í lágmarkinu 1973-1975.
Miðað er við hauststofn, þ.e. þegar
yrðlingar eru orðnir sjálfstæðir og
þekkjast illa frá fullorðnum dýrum.
Páll segir að forsvarsmenn Bjarma-
lands, félags refaveiðimanna, haldi
því fram að allt hafi farið á verri veg
þegar hann tók við veiðistjórn af
Sveini heitnum Einarssyni. Þeir
nefni sig þó ekki alltaf á nafn.
„Ég tek við starfi veiðistjóra 1985.
Refastofninn náði lágmarki tíu árum
áður og fór stækkandi eftir það,“
sagði Páll. „Það er óskiljanleg sögu-
fölsun að fullyrða að ref hafi tekið að
fjölga þegar ég tók við sem veiði-
stjóri.“ Hann sagði það enga furðu
að refum skuli hafa fjölgað.
„Við sjáum mjög stækkandi gæsa-
stofna og eins að fýlnum fjölgar. Eft-
ir 1990 eru mikil hlýindi og heiðlóu-
stofninn, sem er um það bil
helmingur vaðfugla sem refurinn ét-
ur, fjórfaldast að stærð miðað við
vetrartalningar.“ Páll bendir einnig
á breytingu sem varð þegar hætt var
að borga sérstaklega fyrir grenjaleit
með reglugerðarbreytingu 1997. Í
staðinn voru verðlaun fyrir hlaupa-
dýr og grendýr hækkuð.
Reglur vantar um útburð ætis
„Þá fóru menn um allt land að
bera út æti í stórum stíl fyrir ref og
fóðra hann að vetrinum. Þau dýr
sem ekki veiddust höfðu það mjög
gott og frjósemin var mjög mikil.
Refurinn náði aldrei að bregðast við
því að fæðan minnkaði að vetrarlagi.
Hann er í veislu yfir veturinn þegar
mestu máli skiptir fyrir hann upp á
frjósemi,“ sagði Páll. „Með þessu er-
um við að halda við sterkum stofni
sem við ættum að forðast. Auðvitað
eigum við ekki að hafa stofninn
stærri en náttúran getur borið.“
Páll vill ekki að vetrarveiði á ref-
um verði hætt. „En ég vil að það
verði mun strangari reglur um
hverjir fá að bera út. Aðeins þeir
sem hafa sýnt og sannað að þeir
stundi þetta af einhverri alvöru fái
að gera það.“ Páll telur að það
hljóti að vera í verkahring sveit-
arfélaganna, sem borgi fyrir
refaveiðar, að hafa slíkt eftirlit.
Hann segist hafa bent á
það fyrir 5-6 árum að
óheftur útburður að
vetrarlagi gæti verið
varasamur og fékk þá
yfir sig „holskeflu af
skömmum“ frá mönnum
sem töldu hann vera á
móti refaveiðum.
Engin furða að
refunum fjölgi
Fuglastofnar sem refir lifa m.a. á hafa stækkað mikið
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Refur Villtum refum hefur fjölgað mikið hér á landi á undanförnum árum. Þeir hafa haft nóg æti enda hefur orðið
gríðarmikil fjölgun í mörgum íslenskum fuglastofnum, t.d. gæs, fýl og lóu, sem refirnir lifa meðal annars á.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Meðaleinkunn nema úr Mennaskól-
anum Hraðbraut, sem þreyttu próf í
grunnámi við Háskóla Íslands (HÍ)
frá 2007 og þar til í ár, var alltaf undir
meðaleinkunn hóps sem samanstóð af
nemum úr fimm framhaldsskólum.
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið sendi HÍ fyrirspurn um gengi
nemenda Hraðbrautar. HÍ kannaði
þá námsgengi nemenda úr fram-
haldsskólunum fimm en Menntaskól-
inn Hraðbraut var þeirra á meðal.
Þórður Kristinsson, kennslustjóri HÍ,
sagði að námsgengi stúdenta úr fleiri
skólum, væntanlega öllum framhalds-
skólum, yrði skoðað á vormisseri. Sú
skoðun verður gerð í samvinnu við
skólameistara framhaldsskólanna.
Þórður sagði að árangur nemenda
úr hinum ýmsu framhaldsskólum
hefði verið skoðaður af og til í gegnum
árin. Nokkuð langt er um liðið síðan
slík samantekt var gerð. Hann sagði
erfitt að túlka niðurstöðurnar, sér-
staklega vegna þess að nemendur
koma úr ólíkum deildum og brautum
framhaldsskólanna. Þeir skrá sig ekki
endilega til háskólanáms í samræmi
við námsleiðina sem þeir völdu til
stúdentsprófs. Þá eru mjög fáir nem-
endur úr sumum skólanna og því
verður að fara gætilega í að álykta á
grundvelli niðurstaðna.
Munur á einkunnakvarða
Í skýrslu menntamálanefndar Al-
þingis um skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar um framkvæmd þjónustusamnings
við Menntaskólann Hraðbraut kemur
fram að menntamálanefnd hafi borist
svar HÍ um árangur nemenda frá
Hraðbraut þann 7. desember síðast-
liðinn. „Þar kemur m.a. fram að heild-
armeðaleinkunn nemenda í Háskóla
Íslands skólaárið 2007-2008 sé 6,55 en
heildarmeðaleinkunn nemenda sem
útskrifast hafa úr Menntaskólanum
Hraðbraut er 6,10. Skólaárið 2008-
2009 er heildarmeðaleinkunn nem-
enda 6,76 en nemenda frá Mennta-
skólanum Hraðbraut 6,15. Skólaárið
2009-2010 er heildarmeðaleinkunn
nemenda 6,71 en nemenda frá
Menntaskólanum Hraðbraut 6,35,“
segir m.a. í skýrslunni.
Í könnun HÍ að þessu sinni var ein-
ungis borinn saman árangur nem-
enda í grunnnámi við HÍ. Skilyrði var
að stúdentspróf þeirra væri frá árinu
2005 eða nýrra. Könnunin var gerð á
grundvelli þeirra prófa sem voru tek-
in en ekki einstaklinga. Háskólanem-
arnir gangast undir misjafnlega mörg
próf hver og einn.
Þórður benti á að kennarar gæfu
einkunnir og að almennt talað gætti
smávegis munar á notkun einkunna-
kvarða eftir námsgreinum. Í evrópsk-
um háskólum eru t.d. almennt gefnar
lægri einkunnir í raungreinum en í fé-
lags- og hugvísindagreinum.
Hraðbrautar-
stúdentar undir
meðaleinkunn
Meðaleinkunnir nema í HÍ kannaðar
Hraðbraut
» Menntaskólinn Hraðbraut
tók til starfa haustið 2003.
Fyrstu stúdentarnir voru
brautskráðir 2005.
» Nemendur Hraðbrautar lesa
til stúdentsprófs á tveimur ár-
um í stað fjögurra.
» Skólinn býður upp á tvær
námsbrautir, náttúrufræði-
braut og málabraut.
» Menntaskólinn Hraðbraut er
einkarekinn framhaldsskóli.
Próftökur stúdenta úr fimm framhaldsskólum
Skólaár Próftökur alls
Meðal-
einkunn alls
Nemar úr
Hraðbraut
Meðal-
einkunn
Hraðbraut
2007-2008 tæplega 4.900 6,55 212 próftökur 6,10
2008-2009 tæplega 7.900 6,76 440 próftökur 6,15
2009-2010 rúmlega 10.000 6,71 692 próftökur 6,35
Morgunblaðið/Jim Smart
Íslenski refastofninn var áætl-
aður vera um 10.000 dýr haust-
ið 2007 og hafði þá tífaldast að
stærð frá því 30 árum áður. Mat
á stofnstærð refa hefur ekki
verið endurskoðað síðan, að
sögn dr. Páls Hersteinssonar.
Sérsvið hans er vistfræði og at-
ferlisfræði og hefur Páll rann-
sakað íslenska refastofninn
manna mest. Hann var veiði-
stjóri á árunum 1985-1995 og
þekkir því vel til refaveiða og
fyrirkomulags þeirra.
Nýlegar erfðafræðirann-
sóknir benda til þess að íslenski
refurinn hafi verið meira og
minna einangraður og óbland-
aður í 10.000 ár. Hann var eina
villta landspendýrið þegar
menn námu hér land. Íslenska
tófan er af hundaætt eins og
meira en 20 aðrar refategundir
sem greinast í fjórar ættkvíslir.
Tófan er eina tegund sinnar
ættkvíslar.
Frjósemi íslenskra refa
hefur lítið breyst undanfarin
ár. Meðalfjöldi legöra, sem
sýnir fjölda fóstra sem tæf-
urnar ganga með, sveiflast
á milli 5 og 6. Árið 2000
fór hann upp í 6,1 en í ár
hefur fjöldinn verið að
meðaltali 5 legör sem er
það minnsta sem mælst
hefur.
Frjósemi er
nú í lágmarki
REFIR HÉR Í 10.000 ÁR
Páll Hersteinsson
Samningur sjálfstætt starfandi heim-
ilislækna og heilbrigðisyfirvalda fell-
ur úr gildi um áramótin. Endurskoða
á samninginn og viðræður hafa ekki
leitt til neinnar niðurstöðu.
„Þetta er svolítið viðkvæmt mál. Á
næsta fundi munum við ræða kaup og
kjör og hvort við störfum áfram. Ég
held að það sé vilji fyrir því að svo
verði,“ segir Björgvin Á. Bjarnason,
formaður Heimilislækna utan heilsu-
gæslu.
Sjálfstætt starfandi heimilislæknar
á höfuðborgarsvæðinu eru tólf og
þeir sinna um 22.000 sjúklingum.
Björgvin segir að fáir hafi áhuga á
stöðum heimilislækna sem auglýstar
séu lausar til umsóknar. „Það sár-
vantar heimilislækna í borginni,“ seg-
ir hann.
Guðbjartur
Hannesson, heil-
brigðisráðherra,
segir að vanga-
veltur hafi verið
um hvernig
tengja megi starf-
semi sjálfstætt
starfandi heim-
ilislækna við
heilsugæsluna.
Engar ákvarðanir
hafi þó verið teknar í þeim efnum.
„Það er hægt að útvista verkefni á
vegum heilsugæslunnar,“ segir Guð-
bjartur.
Fundur sjálfstætt starfandi lækna
og heilbrigðisyfirvalda er fyrirhug-
aður á morgun.
annalilja@mbl.is
Samningur lækna
er að renna út
Guðbjartur
Hannesson
Sinna 22 þúsund sjúklingum
–einfalt og ódýrt
TILBOÐ MÁNAÐARINS
PANODIL HOT
926 KR.
TILBOÐ GILDIR ÚT DESEMBER
Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri • www.apotekid.is