Morgunblaðið - 15.12.2010, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
ódýrt og gott
Floridana Jólasafi, 1 l
289kr.stk.
Vottunarstofan Tún hefur staðfest
að fyrirtækið Bústólpi ehf. uppfylli
kröfur um lífrænar aðferðir við
framleiðslu á kjarnfóðri. Vottorð
þess efnis var formlega afhent í
vinnslustöð fyrirtækisins á Akur-
eyri. „Þessi vottun hefur mikla þýð-
ingu fyrir Bústólpa þar sem hún
gerir fyrirtækinu kleift að þjónusta
einnig þá vaxandi sprotagrein sem
lífrænn landbúnaður er,“ segir
Hólmgeir Karlsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Bústólpi ehf. er fyrsta sérhæfða
kjarnfóðurfyrirtækið hér á landi
sem hlýtur vottun til lífrænnar
framleiðslu á kjarnfóðri, segir í til-
kynningu.
Með vottun Túns sé staðfest að
Bústólpi ehf. noti viðurkennd hrá-
efni við framleiðslu á hinu vottaða
kjarnfóðri, að lífræn hráefni séu á
öllum stigum vinnslu aðgreind frá
öðrum efnum og afurðum, að að-
ferðir við úrvinnslu og blöndun
samræmist reglum um lífræna
framleiðslu og að gæðastjórnun,
skráningar og merkingar uppfylli
settar kröfur.
Bústólpi ehf. hefur stundað fram-
leiðslu á fóðri fyrir nautgripi,
sauðfé, svín, hross og alifugla og
hefur nú hafið nýtingu á íslensku
lífrænu byggi til framleiðslu á
kjarnfóðri.
Bústólpi ehf. fær vottun til lífrænnar
framleiðslu á fóðri til búfjárræktar
Vottun Hólmgeir Karlsson og Gunnar Á.
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Túns.
Krossgátubók
ársins 2011 er
komin í versl-
anir.
Bókin hefur
komið út árlega í
29 ár og ætíð
notið mikilla vin-
sælda hjá áhuga-
fólki um kross-
gátur. Krossgátubókin er mikil að
vöxtum og eru gáturnar bæði fyrir
nýliða í fræðunum og þá sem lengra
eru komnir. Lausnir annarrar
hverrar gátu eru einnig aftast í
bókinni.
Forsíðumyndin er að venju eftir
Brian Pilkington teiknara. Hún er
af vel þekktri persónu í sögulegum
atburðum ársins sem er að líða,
Jóni Gnarr borgarstjóra.
Krossgátubók ársins 2011 fæst í
bókaverslunum og öllum helstu
blaðsölustöðum landsins.
Útgefandi sem fyrr er Ó.P.-
útgáfan, Grandagarði 13, Reykja-
vík.
Krossgátubók árs-
ins 2011 komin út
Í tilefni af 25 ára afmæli Kynfræð-
ingafélag Íslands þann 9. desember
sl. ákvað stjórn félagsins að heiðra
einn aðila sem hefur með einum eða
öðrum hætti eflt framgöngu kyn-
fræða á Íslandi. Verða þessar viður-
kenningar árviss viðburður.
Ástráður, forvarnarstarf lækna-
nema verður fyrst til að hljóta verð-
laun félagsins. Ástráður hefur und-
anfarin 10 ár unnið að forvörnum á
sviði kynfræði með áherslu á kyn-
sjúkdóma og ótímabærar þunganir.
Læknarnir sem starfa í Ástráði
sinna starfi sínu í sjálfboðavinnu.
Heiðursverðlaun
Jólaaðstoð 2010 fékk í fyrradag af-
hent 5 milljóna króna framlag frá
Bónus. Framlagið er í formi svo-
kallaðra gjafakorta Bónuss.
Fulltrúar Bónuss komu í húsakynni
Jólaaðstoðarinnar að Skútuvogi 3
og afhentu gjöfina.
Að Jólaaðstoð 2010 standa
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur,
Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði
krossinn í Reykjavík og Hjálpræð-
isherinn. Byrjað verður að senda út
matarpakka um næstu helgi
Gjöf frá Bónus
STUTT
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Framkvæmdir í Noregi eru veigamikill þáttur í
starfsemi verktakafyrirtækisins Ístaks þessa mán-
uðina. Síðustu 18 mánuðina hefur verið samið um
verkefni fyrir um 12 milljarða króna í Noregi og af
þeirri upphæð er eftir að framkvæma fyrir um átta
milljarða.
Um 200 manns, flestir Íslendingar, starfa nú á
vegum fyrirtækisins í Noregi og er útlit fyrir að sá
fjöldi verði nokkuð stöðugur út næsta ár, að sögn
Ásgeirs Loftssonar, yfirverkfræðings hjá Ístaki
Hann segir að margir sýni áhuga á að komast í
störf hjá fyrirtækinu í Noregi.
Nýjasta verkefnið er gerð 2,7 kílómetra ganga
og vegalagning í Tosbotn fyrir um fjóra milljarða
króna. Að auki er unnið að verkefnum í Måløy,
Stamsund, Hammerfest, Bergen og Gryllefjord.
Verkefnin eru við gerð hafna, vega og jarðganga
og hefur Ístak fengið þau öll eftir útboð opinberra
aðila.
Fjórða virkjunin
Í Grænlandi er starfsemi Ístaks í hægagangi yfir
vetrartímann en þar er fyrirtækið að byggja fjórðu
virkjunina sem það byggir fyrir Grænlendinga.
Byrjað var á þeim framkvæmdum síðasta sumar og
er samningurinn við grænlensk yfirvöld upp á um
tólf milljarða.
Ístak er með um 200
manns í vinnu í Noregi
Verkefni fyrir um 12 milljarða Nýlega samið um jarðgöng
Ljósmynd/Ístak
Framkvæmdir Meðal verkefna, sem Ístak hefur fengið eftir
útboð í Noregi, er dýpkun siglingaleiðar undir Måløybrú.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Almennt gengur Íslendingum
vel hér í Noregi og þeir eru eft-
irsóttur starfskraftur,“ segir
Arna Grétarsdóttir, prestur ís-
lenska safnaðar-
ins í Noregi.
Mikið er að
gera hjá prest-
inum þessa des-
emberdaga og
hún heimsækir
meðal annars
Þrándheim,
Bergen, Stav-
anger og Dram-
men fyrir utan
hefðbundið starf
í Osló. Hún nái á aðventunni að
heimsækja þá staði þar sem Ís-
lendingar séu flestir.
Arna hefur verið prestur í
Noregi síðan haustið 2007 og á
þessum tíma hefur fjölgað í söfn-
uðinum úr tæplega fjögur þúsund
manns í um sex þúsund. Hún seg-
ir að mest sé af iðnaðarmönnum í
hópi þeirra sem hafi flutt til Nor-
egs frá hruninu á Íslandi. Arna
nefnir einnig tæknimenntað fólk
og fólk með háskólamenntun.
Góð þátttaka
í starfi kirkjunnar
Í guðsþjónustum sé fólk á
öllum aldri, en í öðru starfi verði
hún mikið vör við yngra fólk.
Hún segir að góð þátttaka sé í
starfi kirkjunnar og vel mætt í
guðsþjónustur. Sóknartal kirkj-
unnar fylgi yfirleitt fólki þegar
það flytur til Noregs og fólk
verði þá hluti af íslenska söfn-
uðinum í Noregi. Þeir sem það
vilji geti hins vegar skráð sig í
önnur trúfélög við komuna til
Noregs.
Arna segir mörg dæmi um að
annar aðilinn hafi komið á undan,
en makinn komi síðan með börnin
nokkrum mánuðum síðar. Slíkir
flutningar séu helst þegar leyfi
eru í skólum og um áramótin séu
til dæmis nokkrar fjölskyldur
væntanlegar og eins í vor.
Íslendingar eftirsóttir
Um sex þúsund manns í íslenska söfnuðinum í Noregi
Iðnaðarmenn stór hluti þeirra sem flutt hafa til Noregs
Brottfluttir frá Íslandi okt. 2008 til sept. 2010
Fimm lönd sem flestir fluttu til
Land sem flutt er til Alls Karlar Konur
Pólland 5.773 4.600 1.173
Noregur 2.937 1.670 1.267
Danmörk 2.787 1.353 1.434
Svíþjóð 1.434 716 718
Bandaríkin 813 422 391
Tölur um aðflutta og
brottflutta á árinu
2010 eru byggðar á
bráðabirgðatölum
Hagstofunnar og
geta því breyst við
endanlegt uppgjör
búferlaflutninga.
Brottfluttir eftir aldri
4.000
3.000
2.000
1.000
0
00
-0
4
05
-0
9
10
-1
4
15
-1
9
20
-2
4
25
-2
9
30
-3
4
35
-3
9
40
-4
4
45
-4
9
50
-5
4
55
-5
9
60
-6
4
65
-6
9
70
-7
4
75
-7
9
80
-8
4
Aldur
1.
27
6
87
7
61
7
74
8
3.
23
9 3.
91
2
2.
85
2
2.
11
1
1.
60
2
1.
32
3
1.
10
2
51
3
21
4
81 30 18 4
Brottfluttir eftir upprunalandsvæði
Suðurnes
1.609
Vesturland
750
Vestfirðir
341
Norðurland
vestra
197
Norðurland
eystra
1.132
Austurland
1.696
Suðurland
1.262
Reykjavík
8.568
Höfuðborgarsvæðið
utan Reykjavíkur
4.964
Þegar rætt var við Örnu Grétarsdóttur var 18 stiga gaddur í Noregi.
„Það er svo kalt hérna að nefhárin næstum frjósa saman,“ segir
Arna. „En það er alltaf hlýtt í kirkjunni og vel tekið á móti fólki. Mér
finnst allir hjálpast að og mikill samtakamáttur vera meðal Íslending-
anna.“
Hún segist ekki finna annað en að Íslendingar séu velkomnir í Nor-
egi. „Það eina sem Norðmenn setja fyrir sig er ef fólk talar ekki not-
hæfa norsku. Málið þarf ekki að vera fullkomið og hjá þeim sem
leggja sig fram er norskan fljót að koma. Norðmennirnir vilja helst
ekki að fólk tali ensku á vinnustöðunum,“ segir Arna.
18 stiga frost - hlýtt í kirkjunni
NORÐMENN VILJA AÐ ÍSLENDINGARNIR TALI NORSKU
Arna
Grétarsdóttir
Nýlega var haldið uppboð í Góða
hirðinum. Alls söfnuðust 301.000
krónur sem renna óskiptar til
Bjarkaráss, sem veitir fötluðu fólki
dagþjónustu, hæfingu og vinnu.
Uppboðshaldari var KK sem gaf
vinnu sína. Alls hafa safnast
687.000 krónur til Bjarkaráss.
Bjarkarás styrktur