Morgunblaðið - 15.12.2010, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Matarsendingar
til útlanda
Láttu okkur sjá um alla fyrirhöfnina
– útvega vottorð, pakka
og senda.
www.noatun.is
STUTTAR FRÉTTIR
● Skuldabréfavísitala Gam Manage-
ment, GAMMA: GBI, lækkaði lítillega í
gær, í 16,3 milljarða króna viðskiptum.
Verðtryggð skuldabréf hækkuðu í verði
um 0,1% og nam velta með þau 1,2
milljörðum króna. Mun meiri velta var
með óverðtryggð skuldabréf, eða 12,5
milljarðar króna. Óverðtryggða vísitalan
lækkaði um 0,2% í gær.
Lítil breyting á markaði
● Alls voru greidd-
ar 405 milljónir
króna í sektir
vegna brota Haga,
Kjarnafæðis, Kjöt-
bankans, Kjöt-
afurða-stöðvar KS,
Norðlenska,
Reykjagarðs og
Sláturfélags Suð-
urlands á samkeppnislögum.
Lagt er bann við því að verslanir
Haga gefi upp afslátt á kjötvörum
nema um raunverulega lækkun frá gild-
andi smásöluverði sé að ræða, en lög
banna verðsamráð milli framleiðanda
og smásala.
Brutu samkeppnislög
með verðmerkingum
FRÉTTASKÝRING
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Þegar danski fjárfestingabankinn
Capinordic Bank varð gjaldþrota í
febrúar á þessu ári tryggði danska
ríkið allar innistæður í danska hluta
starfseminnar að fullu. Capinordic
Bank var einnig með starfsemi í Sví-
þjóð, en þar ábyrgðist hinn danski
tryggingasjóður innistæðna aðeins
innistæður upp að 50.000 evrum.
Raunar ábyrgðist danski trygg-
ingasjóðurinn aðeins innistæður upp
að 50.000 evrum í Danmörku, en sér-
stök eining um fjármálastöðugleika
sem Danir komu á fót haustið 2008 sá
um það sem var umfram 50.000 evrur.
Sænskar innistæður nutu hins vegar
ekki sama forgangs og hinar dönsku.
Móðurfélag greiddi upp í topp
Capinordic Bank var í eigu fjárfest-
ingafélagsins Capinordic A/S, sem á
höfuðstöðvar sínar í Danmörku. Cap-
inordic hefur nú breytt um nafn og
heitir NewCap A/S, en félagið er
skráð á hlutabréfamarkað. NewCap
veitti ábyrgð til innistæðueigenda í
Svíþjóð vegna þeirra fjárhæða sem
danski innistæðutryggingasjóðurinn
tryggði ekki. Capinordic gaf engu að
síður út ákveðna hámarksábyrgð á
slíkri tryggingu. Þannig tryggir New-
Cap ekki innistæður umfram 50.000
evrur um meira en samanlagða upp-
hæð sem samsvarar 75 milljónum
danskra króna. Jafnframt kom fram í
tilkynningu frá danska fjármálaeft-
irlitinu, daginn sem Capinordic Bank
skilaði inn bankaleyfinu, að frá trygg-
ingu danska tryggingasjóðsins á evr-
unum 50.000 skyldu dragast skuld-
bindingar viðkomandi
innistæðueigenda hjá bankanum. Sá
sem átti þannig tíu evra innlán hjá
Capinordic, en skuldaði bankanum á
sama tíma fimm evrur, fékk aðeins
fimm evrur tryggðar.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá NewCap í gær var
ákveðið að tryggja innistæður
sænskra innlánaeigenda umfram
50.000 evrur, vegna þess að NewCap
hefur ennþá viðskiptahagsmuni í Sví-
þjóð þó svo að Capinordic Bank sé
kominn í þrot.
Innlánaeigendum mismun-
að af hálfu tryggingasjóðs
Danskir innstæðueigendur voru betur tryggðir en útlendingar
Danmörk Innistæður Capinordic Bank í Danmörku voru tryggðar upp í
topp af danska ríkinu, en hið sama verður ekki sagt um innistæður í Svíþjóð.
Morgunblaðið/Ómar
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+.0-1/
++2-34
20-41,
+3-,4
+/-54/
++.-2
+-,5++
+5/-2+
+4,-+4
++1-+,
+.0-3
++,-2.
20-/0,
+3-105
+/-.04
++.-4,
+-,54+
+5/-51
+4,-4.
20/-.+2
++1-1
+.+-,1
++,-/+
20-//,
+3-1/1
+/-.41
++.-./
+-,53+
+55-25
+41-0+
Um einn af hverjum tíu viðskipta-
vinum Avant, sem eiga endur-
greiðslukröfu á fyrirtækið vegna
ólöglegra gengislána, mun ekki fá
kröfur sínar að fullu greiddar sam-
kvæmt frumvarpi til nauðasamn-
inga hjá félaginu. Þar er gert ráð
fyrir því að þeir sem eigi kröfu allt
að einni milljón fái hana greidda,
en þeir sem eigi hærri kröfur fái
þær ekki greiddar að fullu.
Friðjón Örn Friðjónsson, formað-
ur bráðabirgðastjórnar Avant, seg-
ir að í nauðasamningsdrögunum sé
verið að teygja sig töluvert langt til
að rétta hlut þeirra sem greitt
höfðu of mikið til félagsins, en hafa
beri einnig í huga að ef félagið færi
í gjaldþrotameðferð er alls óvíst að
þessir kröfuhafar fengju nokkuð í
sinn hlut. Í nauðasamningunum er
einnig gert ráð fyrir því að Lands-
bankinn, sem er langstærsti kröfu-
hafi Avant og með veð í stærstum
hluta eigna fyrirtækisins, taki
rekstur þess yfir. bjarni@mbl.is
Ekki fá allir kröfuhafar
sitt frá Avant
Þegar fjallað var um gjaldþrot Cap-
inordic Bank í dönskum fjölmiðlum
fyrr á þessu ári var bankinn víða
kallaður „velhaverbank,“ eða banki
þeirra sem eiga mikið. Capinordic
Bank lenti í vandræðum snemma á
þessu ári og í janúar var veittur
frestur til 3. febrúar til að koma eig-
infjárhlutfalli bankans í samt lag.
Sá frestur var síðan framlengdur til
10. febrúar, en þann dag skilaði
Capinordic Bank inn bankaleyfi
sínu til danska fjármálaeftirlitsins.
Það var hins vegar hinn 4. febrúar
sama ár sem móðurfélagið, Cap-
inordic A/S, hafði lýst yfir fullri
tryggingu á innistæðum í sænska
hluta bankans, og sú yfirlýsing
heldur enn í dag. Fram kom á Politi-
ken fyrr á árinu að kostnaður
danska ríkisins vegna falls bankans
næmi yfir 700 milljónum dollara.
Banki hinna auðugu
CAPINORDIC BANK
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Málum slitastjórnar Glitnis gegn
Pálma Haraldssyni, Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni, Þorsteini Jónssyni,
Ingibjörgu Pálmadóttur, Jóni Sig-
urðssyni, Hannesi Smárasyni, Lár-
usi Welding og PwC á Íslandi var í
gær vísað frá dómi af dómstóli í
New York. Segir í úrskurði dómara
að dómstóllinn hafi ekki lögsögu í
málinu vegna þess að bæði stefn-
andi og stefndu séu íslensk.
Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar, segir að dóm-
arinn hafi sett tvö skilyrði fyrir því
að málinu yrði vísað frá. „Í fyrsta
lagi þurfa stefndu að lýsa því yfir
fyrir dómi að þau muni ekki mót-
mæla lögsögu íslensks dómstóls í
málinu. Í öðru lagi þurfa þau að
lýsa því yfir að þau muni ekki mót-
mæla því að dómur, sem fellur á Ís-
landi, sé aðfararhæfur í New York.“
Ákveðin vonbrigði
Steinunn segir að niðurstaða
dómsins sé ákveðin vonbrigði. „Það
er hins vegar eðli dómsmála að
stundum vinnur maður og stundum
ekki. Næst á dagskrá hjá okkur
verður að leggjast yfir málið að
nýju og ákveða næstu skref. Við bú-
um nú yfir meiri upplýsingum en
áður og ýmsir möguleikar eru okk-
ur opnir.“ Steinunn segir að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um það
hvort úrskurði dómsins verði áfrýj-
að, en tvö dómstig eru fyrir ofan
dómstólinn, sem tók á málinu í gær.
Í úrskurðinum var ekkert fjallað
um hver ætti að bera málskostnað,
en aðilar hafa nú þegar varið um-
talsverðum fjárhæðum í málið. Tal-
að hefur verið um að kostnaður ein-
stakra aðila sé kominn í tugi
milljóna króna. Steinunn sagðist í
samtali við Morgunblaðið ekki vera
viss um hverjar hefðir væru í
Bandaríkjunum varðandi máls-
kostnað, en fundað yrði með lög-
fræðingum um þann þátt málsins.
Óhætt er segja að með úr-
skurðinum hafi dómarinn,
Charles E. Ramos, fallist á
rök stefndu í málinu, en þeir
hafa frá fyrsta degi haldið
því fram að New York
væri ekki rétti stað-
urinn til að taka á
málinu, þar sem að-
ilar væru íslenskir.
Máli Glitnis gegn Jóni Ás-
geiri vísað frá dómi í gær
Stefndu lýsi því yfir að íslenskur dómur í málinu sé aðfararhæfur í New York
Morgunblaðið/Ómar
Stefnt Hannes Smárason og Jón Ásgeir Jóhannesson voru í hópi stefndu.
Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar Glitnis,
segir að málinu sé ekki lokið
af hálfu slitastjórnarinnar, en
eftir eigi að ákveða næstu
skref.
Málið í New York snerist um
útgáfu Glitnis á skuldabréfum
í New York-ríki að fjárhæð einn
milljarður dala og krafðist
slitastjórnin bóta sem námu
meira en tveimur milljörðum
dala.
Bréfin sem um ræðir voru
seld í september 2007 til fjár-
festa sem slitastjórnin heldur
fram að hafi verið blekktir
hvað varðaði slæma fjár-
hagslega stöðu bankans.
Þá hélt slitastjórnin því
fram að þetta fé hefði svo
verið notað af eigendum
bankans og aðilum þeim
tengdum til að bjarga eig-
in fyrirtækjum.
Málinu hvergi
nærri lokið
SKULDABRÉFAÚTGÁFA
Steinunn
Guðbjartsdóttir