Morgunblaðið - 15.12.2010, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Maðurinn, sem talinn er hafa gert sprengjuárás-
ina í Stokkhólmi á laugardag, fékk þjálfun í
hryðjuverkum í Írak hjá hreyfingu sem tengist
hryðjuverkanetinu al-Qaeda, að sögn sænskra
fjölmiðla í gær.
Svenska Dagbladet sagði að á vefsíðum ísl-
amskra öfgasamtaka kæmi fram að Taymour
Abdelwahab, sem er talinn hafa framið verknað-
inn, hefði verið í þjálfunarbúðum hreyfingar sem
nefnist „Íslamska ríkið Írak“ og tengist al-Qaeda.
Að sögn sænskra fjölmiðla hefur rannsókn
Fékk þjálfun í hryðjuverkum í Írak
Öryggislögreglan í Svíþjóð hefur hafið umfangsmikla leit í samstarfi við yfirvöld
í mörgum öðrum löndum að vitorðsmönnum árásarmannsins í Stokkhólmi
málsins einnig leitt í ljós að
sprengjurnar sem maðurinn
var með innan á sér hafi verið
öflugri en talið var í fyrstu og
hefðu getað valdið miklu mann-
tjóni ef þær hefðu ekki sprung-
ið fyrr en hann áformaði. Árás-
armaðurinn var sá eini sem
beið bana þegar hann sprengdi
bíl sinn og síðan sjálfan sig ná-
lægt fjölfarinni göngugötu í
miðborg Stokkhólms.
Sænsk yfirvöld fjölguðu lögreglumönnum á göt-
um borgarinnar í gær til að ræða við fólk og afla
Lögreglumenn í
Stokkhólmi.
upplýsinga um árásina. Talið er að árásarmað-
urinn hafi verið einn að verki en notið aðstoðar
annarra við undirbúninginn og lögreglan hefur því
hafið umfangsmikla leit að hugsanlegum vit-
orðsmönnum.
Sérfræðingar FBI aðstoða Säpo
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur sent
sjö sprengjusérfræðinga til Svíþjóðar til að að-
stoða sænsku öryggislögregluna Säpo sem annast
rannsókn málsins. Säpo kvaðst hafa umfangsmik-
ið samstarf við yfirvöld á Norðurlöndum, í öðrum
Evrópuríkjum og Bandaríkjunum við leitina að
hugsanlegum vitorðsmönnum.
Um 200 öfgamenn
» Svíþjóðardemókratarnir,
sem eru lengst til hægri í
sænskum stjórnmálum, kröfð-
ust í gær umræðu á sænska
þinginu um íslamska öfga-
menn eftir sjálfsmorðsárásina
í Stokkhólmi.
» Hermt er að í skýrslu
öryggislögreglunnar Säpo
komi fram að hún viti um
200 íslamska öfgamenn í Sví-
þjóð.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, hélt enn einu sinni velli á
þingi landsins í gær og sýndi að það
er aldrei hægt að afskrifa hann þótt
öll spjót standi á honum.
Berlusconi sigraði með þriggja
atkvæða mun í neðri deild þingsins
þegar atkvæði voru greidd um til-
lögu stjórnarandstöðunnar um van-
traust á stjórnina. 314 þingmenn
greiddu atkvæði með tillögunni, 311
á móti henni og tveir sátu hjá. Áður
hafði öldungadeildin samþykkt með
miklum meirihluta tillögu um að
lýsa yfir trausti á stjórninni.
Vantrauststillagan í neðri deild-
inni var lögð fram eftir að gamall
bandamaður Berlusconis, Gian-
franco Fini, forseti neðri deildar-
innar, sneri baki við honum ásamt
um það bil 40 öðrum þingmönn-
um.
Berlusconi sagði eftir at-
kvæðagreiðsluna að hann væri
„rólegur eins og venjulega“
og færi á leiðtogafund
Evrópusambandsins í
Brussel í vikunni „í
miklu sterkari stöðu
en áður“. Nokkrir
fréttaskýrendur sögðu þó að þrátt
fyrir sigurinn í gær væri stjórn
Berlusconis enn mjög veik og hún
kynni að falla áður en fimm ára
kjörtímabili hennar lýkur árið 2013.
Átök á götum Rómar
„Þetta þýðir að stjórnin er ekki
lengur með traustan meirihluta,“
sagði Giacomo Marramao, prófess-
or í stjórnmálaheimspeki í Róm.
„Ef Berlusconi vill sitja áfram við
stjórnartaumana við þessar aðstæð-
ur er það mikið hættuspil vegna
þess að stjórn hans getur misst
meirihlutann hvenær sem er.“
Þúsundir manna tóku þátt í mót-
mælum gegn stjórn Berlusconis á
götum Rómar í gær og lögreglan
beitti táragasi og kylfum gegn mót-
mælendum sem kveiktu í bílum,
köstuðu glerflöskum og púðurkerl-
ingum. Ryskingar urðu einnig með
stuðningsmönnum og andstæðing-
um Berlusconis í neðri deild þings-
ins þegar þeir hnakkrifust um at-
kvæðagreiðsluna skömmu áður en
skýrt var frá úrslitum hennar.
Silvio Berlusconi hélt
enn velli á þinginu
Sigraði naumlega í atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu
Stjórnin veik og getur misst meirihlutann hvenær sem er
Heimild: NASA
TUNGLMYRKVI OG VETRARSÓLSTÖÐUR
Tunglmyrkvi verður á þriðjudaginn kemur, 21. desember, og þá verða einnig
vetrarsólstöður. Tunglmyrkvinn mun sjást best í Norður-Ameríku, á Íslandi,
í Norður-Noregi, Síberíu og víðar á norðurslóðum, auk Kyrrahafsins
Almyrkvi
sést
Tunglmyrkvi
sést þegar
tunglið sest
Myrkvi sést
þegar tunglið
kemur upp
Tunglmyrkvi
sést ekki
Tungl
Jörð
Braut tunglsins
Jarðmöndullinn
TUNGLMYRKVI verður þegar tunglið gengur inn í skugga
jarðar á sama tíma og jörðin er stödd á milli sólar
og tungls
VETRARSÓLSTÖÐUR verða 21. desember
þegar sólin er í hvirfilpunkti á hádegi
á 23,5 breiddargráðu suður, á steingeitarbaugi
Hálfskuggi
Alskuggi
Sól Sólarljós
Miðbaugur
Krabbabaugur
Steingeitarbaugur
KLUKKAN
Deildar-
myrkvi
06:33
Deildar-
myrkvi
10:01
Almyrkvi
07:41
Almyrkvi
08:53
Myrkvi
nær hámarki
08:17
HEFST LÝKUR
Kínverskt ríkisfyrirtæki hefur gert
samning við norska olíufyrirtækið
Statoil um að bora eftir olíu í
Norðursjó þrátt fyrir reiði stjórn-
valda í Kína yfir því að kínverski
andófsmaðurinn Liu Xiaobo var
sæmdur friðarverðlaunum Nóbels.
Samkvæmt samningnum á kín-
verska olíufyrirtækið China Oilfield
Services að starfrækja olíuborpall í
Norðursjó í allt að fimm ár. Bor-
unin á að hefjast næsta sumar.
Stjórnvöld í Kína brugðust mjög
hart við því að Liu Xiaobo fékk
friðarverðlaunin, stöðvuðu viðræður
um nýjan viðskiptasamning við
Noreg og sögðu að val nób-
elsverðlaunanefndarinnar myndi
hafa alvarlegar afleiðingar fyrir
samskipti landanna.
Langtímaáhrif deilunnar eru þó
óljós og hún varð ekki til þess að
Kínverjar fúlsuðu við arðbærum
samningi um olíuvinnslu í Norður-
sjó.
Statoil sagði að samningurinn
auðveldaði fyrirtækinu að end-
urnýja olíuborpallana og tryggja
stöðuga olíuframleiðslu í Norð-
ursjó.
Statoil samdi við
Kínverja um borun
Nóbelsdeilan hindraði ekki samstarfið
Silvio Berlusconi komst fyrst til
valda árið 1994 en fyrsta ríkis-
stjórn hans entist aðeins í
nokkra mánuði. Honum tókst þó
að sameina ítalska hægrimenn
sem sigruðu aftur í kosn-
ingum árið 2001. Ber-
lusconi hélt þá völd-
unum í fimm ár, lengur
samfleytt en nokkur
annar forsætisráðherra á Ítalíu
eftir síðari heimsstyrjöldina.
Berlusconi og flokksbræður
hans sigruðu einnig í þingkosn-
ingum árið 2008. Síðan þá hefur
forsætisráðherranum margoft ver-
ið spáð falli vegna ýmissa
hneykslismála, axarskafta og
ásakana um spillingu, jafnvel um
tengsl við mafíuna.
Hefur oft verið spáð falli
FÓR FYRIR LANGLÍFUSTU STJÓRN ÍTALÍU EFTIR STRÍÐ
Reuters
Götuóeirðir Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglumanna nálægt þinghúsinu í Róm í gær.
Svíar áfrýjuðu í gær niðurstöðu dómara héraðsdómstóls
í Bretlandi um að leysa bæri Julian Assange, aðalrit-
stjóra uppljóstrunarvefjarins WikiLeaks, úr haldi gegn
tryggingu þar til fjallað hefur verið um beiðni sænskra
yfirvalda um að hann verði framseldur til Svíþjóðar
vegna ásakana um kynferðisbrot.
Dómarinn samþykkti að Assange yrði látinn laus
gegn tryggingu, sem nemur 240.000 pundum ( 43 millj-
ónum króna). Dómarinn setti þó það skilyrði að Assange
yrði undir eftirliti og afhenti lögreglunni vegabréf sitt.
Niðurstaða efra dómstigs gæti legið fyrir í dag.
Svíar áfrýjuðu þegar sleppa átti Assange
Julian Assange