Morgunblaðið - 15.12.2010, Side 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
5 7 9 8 4
2 6
8
8 7
6 2 8
9 1 5 7
4 7 2
1 2 5 4
9
6 1 3 8
9 6 4
5 1
7 4 3 5
8 1
8 9 3
5 6
1 6 4
3
3 6 2
3 9 5 2 8
2 9 8
4 2 1 5
2
6 3 5 4
4 8
8 6 9
5 3 2 7 9 8 4 6 1
1 8 7 6 3 4 5 9 2
9 4 6 5 1 2 3 7 8
7 2 5 8 6 3 9 1 4
3 1 4 9 7 5 2 8 6
8 6 9 2 4 1 7 5 3
4 9 8 3 5 6 1 2 7
2 7 1 4 8 9 6 3 5
6 5 3 1 2 7 8 4 9
3 8 7 5 9 2 4 1 6
6 1 4 7 3 8 9 5 2
2 5 9 4 1 6 8 3 7
4 3 8 6 2 7 5 9 1
9 6 1 3 4 5 2 7 8
5 7 2 9 8 1 6 4 3
7 4 3 2 6 9 1 8 5
1 2 5 8 7 4 3 6 9
8 9 6 1 5 3 7 2 4
7 9 4 8 1 6 5 3 2
8 5 2 9 3 7 4 1 6
3 6 1 5 2 4 8 7 9
1 3 5 7 8 2 6 9 4
2 7 6 4 9 3 1 5 8
4 8 9 6 5 1 7 2 3
5 2 8 1 6 9 3 4 7
6 4 3 2 7 5 9 8 1
9 1 7 3 4 8 2 6 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 15. desember,
349. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Daníel tók til máls og
sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð
til eilífðar, því hans er viskan og mátt-
urinn.“ (Daníel 2, 20.)
Eitt sinn stóð svokallað Skúlahúsvið Vonarstræti. Nú stendur
það við Kirkjustræti. Þannig hræra
borgaryfirvöld í Reykjavík. Hús eru
flutt fram og til baka. Sum enda í
Árbæ, önnur færast um nokkra
metra, eitthvað er um að hús standi
á búkkum úti á Granda vegna þess
að þau máttu ekki vera áfram þar
sem þau voru, en ekki er ljóst hvert
þau eiga að fara.
x x x
Víkverji áttar sig ekki alveg á þvíhvers vegna þetta er gert.
Kannski er ástæðan ótti við upp-
vakninga – ef búið er að færa öll hús-
in í borginni myndu þeir ekki rata
þegar þeir rönkuðu við sér.
x x x
Stundum er því haldið fram aðþessar tilfærslur séu hluti af
minjavernd – verið sé að koma í veg
fyrir að hús verði rifin vegna þess að
eitthvað nýtt og stórkostlegt á að
rísa þar sem þau upprunalega voru
reist. Víkverji er hins vegar á því að
þessi tilfærsla á húsum sé í raun
sögufölsun. Öllu er hnikað örlítið til.
x x x
Hér bjó Skúli Thoroddsen,“ segirleiðsögumaðurinn þegar hann
gengur eftir Kirkjustrætinu og bæt-
ir svo við: „Reyndar ekki hér, hann
bjó þarna.“ Leiðsögumaðurinn
bendir í átt að Vonarstræti. „En
hann bjó í þessu húsi, sem einu sinni
var þarna.“
x x x
Lesandanum kann að virðastþetta óþarfa tuð í Víkverja,
húsið hafi ekki farið langt frá upp-
runanum. Víkverji er hins vegar
þeirrar hyggju að um leið og byrjað
sé að opna á breytingar af þessu tagi
sé ekki hægt að nema staðar, brátt
verði Alþíngi flutt, þá stjórnarráðið,
svo Hallgrímskirkja. Hugmyndin
um að flytja Tjörnina í Árbæ með
því að fylla hana af stífelsi verður
ugglaust brátt endurvakin. Á end-
anum verður landið flutt … og þá
vonandi eitthvað suður á bóginn.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skrölt, 4 hríð, 7
mjúkum, 8 stirðleiki, 9 hagn-
að, 11 ýlfra, 13 fall, 14 lang-
ar til, 15 maður, 17 mergð,
20 töf, 22 hænur, 23 Asíu-
land, 24 lofar, 25 aflaga.
Lóðrétt | 1 borguðu, 2 kven-
dýr, 3 fá af sér, 4 fjöl, 5
skrökvar, 6 lítilfjörlegan, 10
hroki, 12 kraftur, 13 skar,
15 málmur, 16 skrifum, 18
tjónið, 19 ljúka, 20 ósoðinn,
21 kosning.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 munntóbak, 8 náleg, 9 álfar, 10 lin, 11 renni, 13 særir,
15 skens, 18 störf, 21 kæn, 22 fögru, 23 aflar, 24 handfangs.
Lóðrétt: 2 uglan, 3 nagli, 4 óláns, 5 arfur, 6 snær, 7 hrár, 12 nón,
14 ætt, 15 sófi, 16 eigra, 17 skuld, 18 snaga, 19 öflug, 20 forn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d6 2. d4 g6 3. Bc4 Rf6 4. De2 Rc6
5. Rf3 Bg4 6. c3 e5 7. Bb5 exd4 8. cxd4
Rd7 9. Be3 Bg7 10. Bxc6 bxc6 11. Rbd2
0-0 12. Hc1 c5 13. dxc5 Bxb2 14. Hc2
Bg7 15. 0-0 He8 16. Hd1 Rxc5 17. Bxc5
dxc5 18. Hxc5 Dd6 19. Hdc1 Bh6 20.
Hxc7 Had8 21. H1c2 Bxd2 22. Dxd2
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem haldið var í Las Palmas á Kan-
aríeyjum árið 1975. Friðrik Ólafsson
hafði svart gegn heimsmeistaranum
fyrrverandi, Mikhail Tal. 22. … Df4!
drottningin er að sjálfsögðu friðhelg
vegna mátsins upp í borði. 23. He7!
Hf8!! lykilleikurinn til að fléttan gangi
upp. Hvítur er nú varnarlaus. 24. Da5
Hd1+ 25. Re1 Dg5! og hvítur gafst upp
enda getur hann ekki forðað máti eða
liðstapi.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tilraunaaldurinn. S/N-S
Norður
♠ÁD5
♥ÁKD1093
♦109
♣104
Vestur Austur
♠32 ♠G108764
♥4 ♥G765
♦ÁKDG874 ♦63
♣876 ♣9
Suður
♠K9
♥82
♦52
♣ÁKDG532
Suður spilar 6G dobluð.
Hvernig er hægt að enda í sex
gröndum með tvo hunda í tígli á báðum
höndum?
Allt er hægt með góðri hjálp. Spilið
kom upp í keppni í Bandaríkjunum árið
1970. Í sæti vesturs sat þekktur spilari
vestanhafs, þótt ungur væri, Lou Blum
að nafni. Suður vakti á Standard-laufi
og Blum sagði tvö hjörtu á tígullitinn!
Norður doblaði í sektarskyni og suður
stökk í 3G. Blum vildi ekki styggja
bráðina og passaði, en norður var eng-
an veginn útmeldaður og hækkaði í 6G.
Nú taldi Blum óhætt að dobla og kom
svo út með fjórða hæsta tígulinn.
Þegar þetta gerðist var Blum enn á
tilraunaaldrinum (þrítugur), en síðar
meir þroskaðist hann í mjög agaðan og
traustan spilara. Hann féll frá langt um
aldur fram árið 1990 eftir erfið veik-
indi.
15. desember 1953
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri var tekið í notkun. „Ein
fullkomnasta bygging sinnar
tegundar hér á landi,“ sagði
Morgunblaðið. Þar voru í
upphafi rúm fyrir 120 sjúk-
linga. Fyrsti yfirlæknir var
Guðmundur Karl Pétursson.
15. desember 2000
Samkeppnisráð komst að
þeirri niðurstöðu að fyrirhug-
aður samruni Landsbankans
og Búnaðarbankans „myndi
leiða til of mikillar samþjöpp-
unar og markaðsráðandi
stöðu og raski samkeppni“. Í
kjölfarið var fallið frá þessum
áformum.
15. desember 2006
Fjölmenni var við vígslu
Reykjanesvirkjunar, 100
megavatta gufuaflsvirkjunar
skammt frá Reykjanesvita.
Orkuframleiðsla Hitaveitu
Suðurnesja þrefaldaðist. Ork-
an hafði verið seld til Norður-
áls næstu tuttugu ár.
15. desember 2006
Verk eftir Matisse og Renoir
voru meðal 52 verka á sýn-
ingu sem opnuð var í Lista-
safni Íslands. Verkin voru
tryggð fyrir tvo milljarða
króna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Anna Axelsdóttir fagnar í dag 55 ára afmæli sínu
og ætlar að gera sér dálítinn dagamun af því til-
efni. „Ég ætla að byrja á því að fara á snyrtistofu
og svo á eftir ætla ég í leikfimi og á kaffihús. Svo
um kvöldið ætla ég út að borða á gamla góða
Hornið,“ segir hún.
Aðspurð segir hún fertugs- og fimmtugs-
afmælin hafa verið þau eftirminnilegustu en hún
hélt veglega upp á báða áfangana. Þegar hún varð
fertug hélt hún veislu í sal og bauð fjölskyldu, vin-
um og vinnufélögum. „Ég fékk gamla danskenn-
arann minn til að stjórna dansi þannig að þetta var
mjög skemmtilegur dagur.“
Að sögn Önnu eiga mjög margir í fjölskyldu hennar afmæli í nóv-
ember og desember og er hún því ekki komin á fullt í jólaundirbún-
ingnum eins og margir aðrir. „Síðasta afmælið er 19. desember hjá
bróðurdóttur minni og þegar það er búið fer jólaundirbúningurinn í
fullan gang.“ Anna er sjúkraliði að mennt og starfaði lengi vel hjá
Landspítalanum. Nú vinnur hún þrjá daga í viku á frístundaheimili í
Grandaskóla og lætur vel af. „Það er mjög gaman, það er svo
skemmtilegt að vinna með börnum.“ ylfa@mbl.is
Anna Axelsdóttir sjúkraliði 55 ára
Jólaundirbúningurinn bíður
Flóðogfjara
15. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.14 3,0 7.29 1,6 13.42 3,0 20.00 1,4 11.17 15.30
Ísafjörður 3.21 1,6 9.24 0,9 15.39 1,7 22.02 0,8 12.02 14.55
Siglufjörður 5.37 1,0 11.51 0,5 18.00 1,0 11.47 14.36
Djúpivogur 4.29 0,9 10.36 1,6 16.50 0,8 23.21 1,7 10.55 14.51
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hugulsemi vinar gefur til kynna að
hann kunni að meta þig. Notaðu daginn fyrir
þig, gerðu hluti sem færa þér innri frið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú kemst ekki hjá því að hagræða í lífi
þínu á næstunni. Einhver sér möguleika á að
fjárfesta í þér, sem er ekki galin ákvörðun.
Allir skipta máli, mundu það.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Framsýni þín verður til þess að aðr-
ir leita liðsinnis hjá þér. En hvað með verk-
efnið sem þú varst búin/n að lofa þér? Settu
sjálfa/n þig ofar á forgangslistann.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að finna hinn gullna með-
alveg og þá mun allt ganga upp. Núna eða al-
veg á næstunni muntu stíga á nýtt land-
svæði. Hafðu vara á gagnvart ókunnugum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Lánið leikur við þig þegar fjárfestingar
eru annars vegar en þú skalt samt fara var-
lega. Haltu þínu striki því trúin flytur fjöll.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú virðist vera lag til að fylgja eftir
sannfæringu þinni. Ekki láta brot ástvinar
gott heita, bentu á mistökin á þinn fyndna og
krúttlega máta.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þetta er góður dagur til að koma hug-
myndum þínum á framfæri. Staldraðu við og
íhugaðu hvað það er sem þú sækist eftir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert svalur í öllum aðstæðum
– það er hæfileiki mun reyna á. Hafðu allt
þitt á hreinu, það borgar sig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það skiptir öllu máli að halda ró
sinni þegar á móti blæs. Leitaðu ævintýrin
uppi. Passaðu þig á einhverjum sem reynir
að slá ryki í augun á þér með vanmætti sín-
um.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Bandalag sem þú hélst að þú gæt-
ir ekki verið án, reynist vera úr sér gengið.
Vertu sátt/ur við sjálfa/n þig, gakktu óhikað
fram á veginn.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Góður vinur leitar ásjár hjá þér og
þú verður að gefa þér tíma til þess að sinna
honum, hann á það inni hjá þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fjármálin og staða þín í vinnunni hef-
ur ekki verið upp á marga fiska upp á síð-
kastið. Í þér leynist listamaður, hvenær ætlar
þú að viðurkenna það?
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is