Morgunblaðið - 15.12.2010, Page 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
NÝR
HANDFRJÁLS-
BÚNAÐUR!
ÞESSIR
NÖRDAR!
FINNST ÞÉR ÉG
NOKKUÐ VERA OF
STJÓRNSÖM?
ÞÚ ÞARFT
EKKI AÐ SVARA MÉR
NÚNA, HUGSAÐU
BARA MÁLIÐ
HVAÐ
ER ÞAÐ SEM ER
HARÐ-
BANNAÐ!?
EF ÞÚ FÆRÐ LÁNAÐA VAX-
LITI HJÁ EINHVERJUM, HVAÐ
ER ÞAÐ EINA SEM ÞÚ MÁTT
ALLS EKKI GERA VIÐ ÞÁ!?
ÉG SKAL GEFA ÞÉR
VÍSBENDINGU...
EKKI SKILJA ÞÁ EFTIR
ÚTI Í SÓLINNI!!!
ÉG KEYPTI ALLT ÞAÐ SEM
OKKUR VANTAÐI Í
GARÐINN
HVERS
KONAR FRÆ
KEYPTIRÐU
FRÆ?
ÉG VISSI AÐ
ÉG HEFÐI GLEYMT
EINHVERJU
ÉG KANNAST VIÐ
HANN, ÞETTA ER
WOLVERINE
HVAÐ ER HANN AÐ GERA HÉR?
BEST AÐ ÉG ELTI HANN...
...OG
KOMIST AÐ ÞVÍ
ÉG ER FARINN Í
„CHAI TE” TÍMA
TIL AÐ LÆRA AÐ
VERJA MIG
„CHAI TE”?
ÁTTU
EKKI VIÐ
„TAI CHI”?
NEI
HÉRNA
STENDUR
„CHAI TE”
SVONA NÚ, LÁTTU VAÐA
OG SJÁÐU HVORT ÞÚ
GETUR NÁÐ AÐ KOMA
MÉR Í GÓLFIÐ
Gefum gleði
Í byrjun desember af-
henti ÖBÍ hvatning-
arverðlaun. Þessi at-
höfn í Salnum var
bæði hátíðleg og
ánægjuleg. Ungu kon-
urnar sem fengu verð-
launin ljómuðu og all-
ir komust í
hátíðarskap.
Okkur, sem höfum
unnið áratugum sam-
an að málefnum fatl-
aðra, finnst á stund-
um muna ef til vill
hálfu hænufeti fram á
við. Þá lendir blaut
tuska fordóma og fáfræði framan í
manni. En allt breytist, guði sé lof.
Á heimleiðinni ók ég yfir Tjarnar-
brúna og sjá, á fleygiferð yfir ísinn
ýtti einhver öðrum í hjólastól.
Ánægjan geislaði af báðum. Allir
þurfa útiveru og hreyfingu, öll
þekkjum við einhvern sem kemst
ekki hjálparlaust út.
Gefum gleði og nærveru á aðvent-
unni. Gleðin er ætíð til góðs og aldrei
of mikið af henni.
Erna Arngrímsdóttir.
Icesave
Komandi kynslóðir hafa fáa mál-
svara. Er það fagnaðarefni að hafa
samið um að framtíðarkynslóðir
borgi þær skuldir sem
núverandi kynslóð hef-
ur stofnað til?
Hugsandi borgari.
Tek undir
með Össuri
Ég hefði áhuga á að tjá
mig um nýgerða Ice-
save-samninga. Þó ég
sé ekki stuðnings-
maður Samfylkingar
vil ég samt taka undir
með Össuri Skarphéð-
inssyni að skyn-
samlegast væri að
þjóðin samþykkti
samninginn ef til þjóðaratkvæða-
greiðslu kæmi, og þá gef ég mér að
þingið myndi samþykkja samning-
inn. Ráðherra talaði í Morgun-
blaðinu um fljúgandi gæsir sem ætti
að grípa. Ekki veit ég hvort utanrík-
isráðherra er mikið fyrir gæsir, en
betri er einn fugl í hendi en tveir í
skógi. Þar á ég við að við vitum hvar
við stöndum ef við samþykkjum
þennan samning í tölum, greiðslu-
skilmálum og slíku. Hins vegar gæti
niðurstaða EFTA-dómstólsins verið
okkur óhagstæðari en þeir samn-
ingar sem nú hafa náðst um Icesave.
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Ást er…
… vandræðaleg
fyrstu kynni.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, postulín.
Lesið úr nýjum bókum kl. 12.15, út-
skurður/postulín/Grandabíó kl. 13. Hug-
vekja kl. 11, sr. Örn Bárður, jólakaffihlað-
borð kl. 14.30.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Heilsugæsla kl. 10.
Bústaðakirkja | Jólasamvera kl. 13.30 í
dag. Í safnaðarheimili á eftir verður jóla-
dagskrá í söng og tali með pökkum,
súkkulaði og veitingum. Veislustjóri Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir.
Dalbraut 18-20 | Handav. kl. 9, leikfimi kl.
10, ferð í Bónus kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, vefn-
aður kl. 9, leikfimi kl. 11. Jólasokkasýning.
Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Jóla-
ljósaferð 16. des. kl. 16.15 frá Nettó í
Mjódd. Uppl. í s. 898-2468.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl, kl.
10. Söngvaka kl. 14, umsjón Helgi Seljan
og Sigurður Jónsson. Söngfélag FEB, æf-
ing kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30
og 10.30, glerlist 9.30/13, félagsvist kl. 13,
viðtalstími kl. 15, bobb kl. 16.30, línudans
kl. 18, samkvæmisd. kl. 19.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8.15 og 12.10, kvenna-
leikfimi í Sjálandi kl. 9.15/10, kl. 11 í Ás-
garði, bútasaumur og brids kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl.
9, leikfimi kl. 10.30, sungið og dansað.
Spilasalur opinn. Helgistund kl. 14 í sam-
starfi við Fella- og Hólakirkju, börn frá leik-
skólanum Hraunborg koma, Litróf o.fl. Á
morgun heimsækir Gerðubergskórinn
Maríuhús, lagt af stað kl. 13.30.
Grensáskirkja | Samvera kl. 12.10, jóla-
hugvekja og jólamatur. Skráning í síma
528-4410.
Hraunsel | Pútt kl. 10, línudans kl. 11,
boltaleikfimi kl. 12, glerbræðsla/
handavinna/tréskurður kl. 13, bingó kl.
13.30, vatnsleikfimi kl. 14.40, kóræfing 5.
jan. kl. 16, nýir kórfélagar velkomnir. Bók-
menntaklúbbur fellur niður í des., byrjar 2.
miðvikudag í janúar.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og
9.30. Vinnustofa kl. 9. Samverustund kl.
10.30, lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi,
fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50.
Stefánsganga kl. 9. Listasmiðjan kl. 9.
Gáfumannakaffi kl. 15. Sigla himinfley;
Hæðargarðsbíó kl. 16. Fimmtudag kl.
13.30 jólaball Leikskólans Jörfa og Hæð-
argarðs. Skemmtiatriði, jólasveinninn
kemur í heimsókn.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópavogs-
skóla kl. 14.40.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, lista-
smiðja kl. 13, sjúkraleikfimi kl. 14.30, Eir-
borgum v/Fróðengi.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkrun-
arfræðingur kl. 10.30, glermálun kl. 13,
Kristín Steinsd. les úr bók sinni Ljósa kl.
15.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9, hjúkr-
unarfræðingur kl. 10, félagsvist kl. 14.
Vesturgata 7 | Sund kl. 10, spænska kl.
13, myndmennt kl. 11.30, verslunarferð í
Bónus kl. 13. Tréskurður kl. 14 30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Tréskurður,
bókband, handavinna, morgunstund,
verslunarferð kl. 12.20, upplestur, dans,
Vitatorgsbandið.
Demonar og fóbíur nefnist ljóða-safn Sveins Auðunssonar sem
komið er út, en á bókarkápu er hon-
um lýst sem einum „af þessum ís-
lensku alþýðumönnum sem eru
þeirri sérgáfu gæddir að nær því
allt í umhverfinu verður þeim að
yrkisefni“. Fremst í bókinni er „Hið
óorta kvæði“:
Það aldrei skalt birta sem anda
þíns kirkja
á inni að geyma þó hæst sé og mest,
því best eru skáld þau sem
aldregi yrkja;
hið óorta kvæði er dýrast og best.
Hinum bragelsku alþýðumönnum
er þannig lýst, að kveðskapurinn sé
skráður niður á ólíklegustu stöðum
eins og í göngutúrum, fjallgöngum
og í smákompur og á snepla. „Þess-
ir menn eru fleiri en marga grunar
og mikið af því sem þeir yrkja
hverfur með þeim og jafnvel fyrr.“
Annar bragur í bókinni nefnist
„Höfgi“:
Lægir storm á hugans hafi,
hníga öldur, lægir vind.
Innlönd böðuð aftantrafi,
andinn sest á hæsta tind.
Við blasir sjón til allra átta
útsýn fegri en lýsa má.
Veröld senn mun syfjuð hátta,
sofna vært og hvíldir fá.
Höfgur svefn á sígur brána,
seitlar húm í vitund inn.
Fellur djúpt í draumagjána
dagsþreytt önd á koddann sinn.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af hinu óorta kvæði