Morgunblaðið - 15.12.2010, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
–– Meira fyrir lesendur
:
Þann 4. janúar 2011
kemur út glæsilegt
sérblað um skóla og
námskeið semmun
fylgjaMorgunblaðinu
þann dag.
MEÐAL EFNIS:
Háskólanám.
Verklegt nám og
iðnnám.
Endurmenntun.
Símenntun.
Listanám. Sérhæft
nám.
Námsráðgjöf og góð
ráð við námið.
Tómstundanám-
skeið og almenn
námskeið.
Nám erlendis.
Lánamöguleikar til
náms.
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni
Skó
lar &
nám
ske
ið
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, miðvikudaginn
Skólar & námskeið
SÉ
RB
LA
Ð
Skól
ar &
nám
skei
ð
Lafleur útgáfan, sem Benedikt S.
Lafleur stýrir, hefur gefið út fjórar
nýjar og ólíkar bækur. Allt til að vera
hamingjusöm og fleiri sögur er smá-
sagnasafn eftir hinn kunna franska
rithöfund Eric-Emmanuel Schmitt
sem er Íslendingum kunnur af fyrri
verkum sem þýdd hafa verið. Sig-
urður Pálsson þýðir sögurnar sem
hafa notið mikilla vinsælda í heima-
landi höfundar.
Dæmisögur Tolstojs, sem Ingi-
björg Elsa Björnsdóttir þýðir, eru 92
örstuttar dæmisögur eftir rússneska
skáldjöfurinn. Þeim var upphaflega
ætlað sérstakt mótunarhlutverk í
lestrarkennslu fyrir börn og ung-
linga. Sögurnar koma nú í fyrsta sinn
út á íslensku.
Örlagateningur er ný skáldsaga
eftir Benedikt S. Lafleur. Hún bygg-
ist á sannsögulegum atburðum.
Söguhetjan lamast af hinum illvíga
taugasjúkdómi „Locked-in synd-
rome“ og fjallar sagan um örlög hans
og glímu hans og eiginkonunnar við
sjúkdóminn. Örlagateningur fjallar
einnig um þátttöku sögupersóna í
samfélaginu og vægi listarinnar; öðr-
um þræði er hún um glímu andans við
efnið.
Fjórða bók forlagsins er Dýrasög-
ur fyrir börn á öllum aldri, VI. bindi,
einnig eftir Benedikt. Þessar bækur,
Dýrasögurnar, eru sagðar geyma
skondinn og siðferðilegan boðskap
fyrir öll börn. Sögurnar eru alls 21
talsins og munu koma út í níu bókum.
Dæmisögur,
smásögur og
skáldsögur
Lév
Tolstoj
Benedikt S.
Lafleur
Kór Bústaðakirkju heldur í kvöld,
miðvikudag, jólatónleika undir
yfirskriftinni Jólaljós. Sérstakir
gestir kórsins verða Örn Árnason
leikari og söngvarinn Ívar Helga-
son sem nýverið gaf út geisladisk-
inn Jólaljós. Titillag disksins verður
flutt en það er eftir stjórnanda kórs
og hljómsveitar, Jónas Þóri. Þá
verður frumflutt verk eftir Jónas
sem byggist á 9. kafla Jesaja-bókar.
Einsöngvarar úr Kór Bústaða-
kirkju eru þau Edda Austmann,
Kristín Sædal, Guðrún Jóhanna
Jónsdóttir, Ólöf Ásbjörnsdóttir,
Svanur Valgeirsson, Svava Kristín
Ingólfsdóttir, Sæberg Sigurðsson
og Valdimar Hilmarsson.
Strengjasveit, blásarar og hryn-
sveit leika með kórnum.
Á efnisskrá eru þekkt jólalög.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.
„Jólaljós“ í
Bústöðum
Söngvarar Kór Bústaðakirkju.
Gospelkór Jóns Vídalíns held-
ur tónleika í hátíðarsal Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20.00. Kórinn er samstarfs-
verkefni Fjölbrautaskólans í
Garðabæ og Vídalínskirkju.
Hann var stofnaður árið 2006
og hefur verið starfrækur síð-
an og er eini gospelkórinn á
landinu fyrir utan Gospelkór
Reykjavíkur. Í honum er ein-
göngu ungt fólk á aldrinum 16 til 26 ára. Kórstjóri
og píanóleikari er Ingvar Alfreðsson. Aðgangs-
eyrir fer í að leysa þrælabörn úr ánauð á Indlandi.
Það er verkefni á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar
sem Vídalínskirkja hefur tekið mikinn þátt í.
Tónlist
Gospelkór Jóns
Vídalíns syngur
Hluti
Gospelkórsins.
Hljóðbók.is gefur nú út sjö
hljóðbækur. Bækurnar eru úr
ýmsum áttum, fjórar koma í
fyrsta skipti út á hljóðbók en
þrjár eru endurútgefnar.
Af mér er það helst að frétta
eftir Gunnar Gunnarsson. Höf-
undur les. Bárðar saga Snæ-
fellsáss í lestri Hjalta Rögn-
valdssonar. Konungsbók
Arnaldar Indriðasonar, í lestri
Arnars Jónssonar. Auður,
skáldsaga Vilborgar Davíðsdóttur. Höfundur les.
Í Kvosinni, minningar Flosa Ólafssonar. Tvær
gamlar konur eftir Velmu Wallis, Gyrðir Elíasson
þýddi en Ingrid Jónsdóttir les. Útkall - Pabbi,
hreyflarnir loga, eftir Óttar Sveinsson.
Bækur
Nýjar hljóðbækur
koma út fyrir jólin
Arnaldur
Indriðason
Félag áhugamanna um heim-
speki og Kaffi Haítí standa að
bókakynningu annað kvöld,
fimmtudagskvöld. Verður hún
á Kaffi Haítí, Geirsgötu 7, og
hefst klukkan 20.
Róbert H. Haraldsson
kynnir bók sína Ádrepur - um
sannleika, hlutleysi vísinda,
málfrelsi og gagnrýna hugsun.
Sigurjón Björnsson les upp úr
þýðingu sinni á verki Sig-
munds Freuds, Draumaráðningar. Kristín Sætr-
an kynnir bók sína Tími heimspekinnar í fram-
haldsskólum, Gunnar Hersveinn kynnir
Þjóðgildin og Róbert Jack les úr þýðingu sinni á
Af sifjafræði siðferðisins, eftir Nietzsche.
Heimspeki
Höfundar lesa úr
heimspekiritum
Sigurjón
Björnsson
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Píanóleikarinn Ástríður Alda Sigurð-
ardóttir hefur vakið verðskuldaða at-
hygli fyrir leik sinn og minnast marg-
ir þess er hún flutti 2. píanókonsert
Chopins með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands fyrir ári.
Ástríður Alda hefur nú gefið út sína
fyrstu sólóplötu og kallar hana Chop-
in; á henni eru allar ballöður tón-
skáldsins og Sónatan í b-moll með
hinum þekkta sorgarmarsi. Kemur
platan út í tilefni þess að 200 ár eru
liðin frá fæðingu tónskáldsins.
„Tónlist Chopins hefur lengi verið
mér hugleikin og ég hef unnið mörg
verk hans gegnum tíðina.„Eftir að
hafa flutt konsertinn með Sinfóníunni
fyrir ári myndaðist nokkurt tómarúm
og mig langaði þá að halda áfram að
spila Chopin. Ég hafði hugsað mér að
gefa út annað efni, en hann kallaði á
mig á afmælisárinu,“ segir Ástríður
Alda.
Kröfðust upptökurnar mikils und-
irbúnings?
„Ó já! Ég er ekki að spila neitt af
þessu í fyrsta skipti. Fyrstu ball-
öðuna spilaði ég á einleikaraprófinu í
gamla daga, sónatan og tvær ball-
öður í viðbót bættust við í náminu
mínu í Bandaríkjunum, þegar ég var
að læra þar. Þetta verður ekki hrist
fram úr erminni á einum degi.“
Chopin er eitthvert alþekktasta
tónskáld sem samið hefur fyrir pí-
anó. Ástríður Alda segir ekki erfitt
að finna sína rödd í verkunum.
„Mér finnst ég þekkja orðið tón-
mál Chopin en mikilvægast er að
leyfa tónlistinni að flæða í gegnum
sig,“ segir hún.
„Tónlistin hans spannar allan til-
finningaskalann og líka margar ynd-
islegar laglínur,“ segir hún.
Yndislegar laglínur
og miklar tilfinningar
Morgunblaðið/Ernir
Ástríður Alda „Verður ekki hrist fram úr erminni á einum degi,“ segir hún.
Ástríður Alda leik-
ur verk Chopins á
nýjum hljómdiski
Mér hefur alltaf fund-
ist að fólk ætti ekki
að vanmeta mátt hins
óvænta. 30
»
Eins og margir sem unna ís-lenskum skáldskap vitahefur Baldur Óskarssonmargsýnt á sínum langa og
merkilega ferli að hann getur verið af-
ar magnað skáld þegar honum tekst
best upp og nú hefur hann sent frá sér
nýja bók, stóra og þykka af ljóðabók
að vera og með fjölbreytilegum yrk-
isefnum, þótt rödd Baldurs og stíl
megi kenna hvar sem borið er niður á
blaðsíðunum tvö hundruð.
Margt er greinilega ort á ferðalögum og stundum finnst
lesanda sem hann sé kominn á staðinn með Baldri; mörg
ljóðanna kvikna af minningum og sum af öðrum ljóðum og
öðrum skáldum; Baldur er eiginlega klassískur tuttugustu
aldar módernisti af evrópska skólanum, af ætt Pound og
Eliot og Lorca svo einhverjir séu nefndir, enda til þeirra
vitnað eða til kallað víða í bókinni, og raunar er þar að
finna fáein þýdd ljóð eftir Lorca og Pound og fleiri.
Ég verð reyndar að játa að mér hefur löngum fundist
ljóð Baldurs eiga það til að vera dálítið torskilin eða lokuð,
eins og mig kannski vanti forsendur eða þekkingu til að
sjá til hvers hann er að vísa; það á kannski ekki síst við um
stystu ljóðin – eitt heitir „Landsýn“ og er bara svona:
„Þjónarnir segja að skjöldurinn fari vel.“ En þetta er samt
enginn ókostur við bókina, hún er svo fjölbreytt og sumt á
auðvitað ekki að skiljast; „A poem should not mean, but
be“ sagði annað skáld og sína hugsun í þá veru orðar Bald-
ur svo í þessari bók:
„Til eru ljóð sem bera serk og blæju –
þau sýna augun“
Til eru ljóð aldrei skilin, skynjuð þó
drukkin þó
og skipsflök sem hafa lengi legið á víkum
og halda
háan út á rúmsjó
í draumi
Og sá sem hér skrifar telur að þetta megi kallast all-
góður skáldskapur. Bók Baldurs, stundum myrk, stund-
um lærð og hlaðin vísunum, en iðulega ort af listfengi, er
eitthvað fyrir ljóðaunnendur að lesa, hugsa, skynja og
melta.
Að lesa, hugsa, skynja og melta
Langtfrá öðrum grjótum
bbbbn
Eftir Baldur Óskarsson.
Ormstunga, 2010. 203 bls.
EINAR
KÁRASON
LJÓÐABÓK
Morgunblaðið/Eggert
Baldur „Magnað skáld þegar honum tekst best upp.“