Morgunblaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Ítímans rás hefur komið útfjöldinn allur af bókum þarsem saga byggðar og mann-lífs á Siglufirði er sögð. Hver
höfundurinn hefur haft sinn hátt-
inn á; sumir hafa reifað söguna í
annálum og bækur um síldarárin
eru margar. Og
af nægu er af
taka því sú var
tíðina að Siglu-
fjörður var einn
af fjölmennari
bæjum landsins
og uppgangs-
staður þegar
síldveiðin var
mest og best. Af
sjálfu sér leiddi því að fólk víða af
landinu flykktist í þennan sérstæð-
ara gullgrafarabæ „þar sem óþrjót-
andi möguleikar virtust bíða í
rekstri og athafnasemi“, eins og
Örlygur Kristfinnsson segir í ein-
um af kafla bókarinnar Svipmyndir
úr síldarbæ.
Kaflarnir eru í bók Örlygs eru
tuttugu talsins. Í hverjum þeirra er
– alla jafna – sögð saga einstakra
manna sem settu svip sinn á bæjar-
lífið. Þótt fyrr eða síðir fenni í
flestra spor lifa frásagnir af ein-
staka mönnum og þær er vert að
skrá, rétt eins og í þessari bók er
gert. Höfundurinn líkir verki sínu
raunar við bútasaum, þar sem í
stutta kafla séu saman þræddar
margar sögur um sama manninn.
Sumir þeirra voru aðkomumenn og
bundu bagga sína ekki sömu hnút-
um og samferðamenn. Fyrir vikið
spunnust af þeim sögur sem enn
eru hafðir yfir á góðri stundu og
notaðar „meðan það er ekki meið-
andi og af illkvittni sagt,“ eins og
Örlygur kemst að orði í formála.
Saga Gústa guðsmanns á Siglu-
firði hefur áður verið sögð og sung-
in – og í sjálfu sér kemur fátt nýtt
fram í kaflanum um kappann. En
sakir þess hve sagan er hér smekk-
lega skrifuð hefur hún mikið gildi.
Þá er veigur í sögunum um vörubíl-
stjórann Magga á Ásnum og Nor-
gor eggjabónda, sem báðir voru
einsetumenn og kannski ekki allra.
Ævibrot þeirra skrifar Örlygur af
smekkvísi og skilningi. Sama má og
segja um frásögn hans af Vigfúsi
Friðjónssyni. Hann var síldar-
spekúlant og bjó í Reykjavík
lengstum – enda þótt heimahagana
á Siglufirði yfirgæfi hann aldrei í
raun.
Bókin Svipmyndir úr Siglufirði
er vönduð að allri gerð, prentuð á
vandaðan pappír, umbrot er
smekklegt. Myndirnar eru góðar
og annað en fátæklegur samtín-
ingur úr fjölskyldualbúmum eins
og oft vill verða. Kaflar eru sumir
óþarflega líkir hver öðrum í efni og
stíl – sem rýrir þó í engu heildar-
gildi bókarinnar.
Snotrar mannlífsmyndir
Svipmyndir úr síldarbæ
bbbbn
Efir Örlyg Kristfinnsson.
Uppheimar Akranesi 2010.
240 bls.
SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Golli
Örlygur Kristfinnsson Í hverjum kafla bókarinnar segir hann sögu ein-
stakra manna sem settu svip sinn á bæjarlífið á Siglufirði.
Stríðsrekstur eða náttúruham-farir í fjarlægum löndumsnerta Íslendinga sjaldnastsvo neinu nemi. Á sjón-
varpsskjá birtast myndir af atburð-
um: leikrit sem varir í fáeina daga.
En svo þrýtur áhorfendur örendið og
sviðsljós fjölmiðla beinast að nýrri
uppákomu. Eftir standa þó óleyst
vandamál í
hamfara-
landinu sem
sjaldnast er
mikið fjallað
um. Starfi
björgunarliða
eru sömuleið-
is sjaldnast
gerð þau skil sem verðugt er og hér
heima velta fáir fyrir sér að Íslend-
ingar geti lagt lið með þeim hætti sem
um munar. Sú var þó raunin í jarð-
skjálftunum á Haítí fyrr á þessu ári,
þar sem mikill fjöldi fólks fórst, bygg-
ingar hrundu sem og innviðir alls
samfélagsins.
Liðsmenn Íslensku alþjóðabjörg-
unarsveitarinnar voru fyrstu hjálpar-
liðar á vettvang í Haítí og gegndu þar
mikilvægu hlutverki. Fljótt hefði
fennt í spor þess mikilvæga starfs
sem Íslendingar unnu þar hefði
Slysavarnafélagið Landsbjörg ekki
staðið svo myndarlega að málum að
gefa út bók um leiðangurinn til hins
fjarlæga lands. Sagan er rakin; allt
frá því að fyrsta kvaðning barst uns
leiðangursmenn komu heim nokkrum
vikum síðar eftir frækilega för.
„Eftir að hafa séð örbirgðina og
ástandið á Haítí hafði ég mjög lítið þol
til að hlusta á fólk hér heima kvarta
yfir því hvað það hefði það slæmt,“
segir Guðjón S. Guðjónsson, einn
leiðangursmanna, í viðtali í bókinni.
Stutt viðtöl eru birt við þá og hver
segir söguna frá ólíkum kögunarhól.
Hver kafli í bókinni er ein opna:
knappur en efnisríkur texti, auk þess
sem afmörkuð atriði eru dregin út og
skýrð frekar. Á hægri síðu hverrar
opnu er stór mynd og flestar þeirra
koma frá hinum frænku Íslendingum.
Má því segja að framsetning og stíll
bókarinnar sé í samræmi við nútíma-
legar hugmyndir um hvernig bók
skal vera og sett upp: engar mála-
lengingar og myndefnið nýtur sín.
Óhætt er því að gefa kverinu góða
einkunn. Þetta er holl lesning sem
undirstrikar að samhjálp og þéttriðið
öryggisnet er ein af frumforsendum
siðaðs samfélags.
Holl lesning frá Haítí
Hamfarir á Haítí
bbbnn
Eftir Kristínu Elfu Guðnadóttur.
Útgefandi: Slysavarnafélagið
Landsbjörg Reykjavík 2010. 116 bls.
SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
BÆKUR
Ljósmynd/Landsbjörg
Að störfum Íslenskir björgunar-
sveitamenn á Haítí. Það er áratugur síðan Sigur-ður Flosason og GunnarGunnarsson sendu frá sér„Sálma lífsins“ síðan
„Sálma jólanna“ árið eftir. Á fyrstu
skífunni lék Sigurður á fjórar helstu
saxófóntegundirnar, sleppti ten-
órnum á „Sálm-
um jólanna“ og
nú er barýton-
saxinn einnig á
burtu og styrkir
það skífuna.
Ekki það að
Sigurður sé
ekki fínn barýtonblásari, heldur
verður heilarsvipurinn sterkari, þar
sem sópraninn rímar beint við altó-
inn. Garbaresk heiðríkja er oft sterk
þegar blásið er í sópraninn, en þegar
sveiflan bankar á er altóinn þaninn,
enda nýtur óvenju persónulegur stíll
hans sín best í altóleiknum.
Lögin eru 13 á skífunni og þessi
tónlist verður ekki svo auðveldlega
flokkuð. Hún spannar nokkuð hefð-
bundið sálmaspil til dynjandi sveiflu
eins og í frábærri túlkun þeirra fé-
laga á 16. aldar vísnalaginu „Nú
þökkum guði glaðir“. Það hefst á
voldugum göngubassa orgelsins, síð-
an markar Sigurður laglínuna og
spinnur leikandi létt á altóinn með
þessum fína tóni sem hann hefur
komið sér upp þegar allt bíbopp er
fjarri – blanda meistara svingtímans
og kúldjassins.
Tvö fyrstu verk skífunnar eru
hunang í flutningi þeirra félaga:
Passíusálmalagið „Ég byrja frelsun
mína“ og lag Jóns Leifs við „Vertu
guð faðir, faðir minn“ sem þeir gefa
eilítinn arabískan blæ, en arabísk
tónlist hefur haft mikil áhrif bæði á
evrópska og afríska tónlist sé grannt
skoðað. „Nú hverfur sól í haf“ eftir
Þorkel Sigurbjörsson“ býr yfir sömu
töfrum í flutningi þeirra, en þeir
rjúfa seiðinn og auka tilbreytnina
með hefðbundnari sálmaflutningi á
„Ver hjá mér herra“ eftir William
Henry Monk, en þennan sálm,
„Abide with me“, má líka heyra á
skífu Theloniusar Monks „Monks
mood“. Hinn sterki púls sem ein-
kennir hryn barokksins og djassins
nýtur sín vel í hinni fögru laglínu
Lullys „Sigurhátíð sæl og blíð“.
Þarna eru líka sálmar eftir Björgvin
Guðmundsson og Jakob Hall-
grímsson og lögin sem allir þekkja:
„Nú legg ég augun aftur“ og „Guð
gaf mér eyra“ sem reynist aría eftir
Rousseau en ekki íslenskt þjóðlag.
Þeir félagar hafa oft verið frjálsari í
spunanum, en þeir trylla dálítið í
sálmi Þorkels Sigurbjörnssonar
„Faðir vor þín eilífa elska vakir“.
Samstarf þeirra Sigurðar og
Gunnars, djasssaxófónleikarans sem
einnig er slyngur í klassíkinni og
kirkjuorgelleikarans sem er fínn
svingpíanisti, hefur þroskast á þess-
um áratug sem liðinn er frá „Sálm-
um lífsins“ og ber nýja skífan því
sannarlega vitni.
Sálmasveifla í áratug
Geisladiskur
Sálmar lífsinsbbbbn
Sigurður Flosason sópran- og altsaxó-
fónn og Gunnar Gunnarsson Klais orgel
Hallgrímskirkju.
Dimma DM 46. 2010.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Morgunblaðið/Ásdís
Sigurður og Gunnar „Hefðbundið sálmaspil til dynjandi sveiflu.“
Gjafakort
Borgarleikhússins
Töfrandi stundir í jólapakkann
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fólkið í kjallaranum – síðasta sýning á morgun
Ofviðrið (Stóra sviðið)
Þri 28/12 kl. 20:00 fors Mið 12/1 kl. 20:00 5.k Þri 25/1 kl. 20:00
Mið 29/12 kl. 20:00 frums Fim 13/1 kl. 20:00 6.k Mið 26/1 kl. 20:00
Sun 2/1 kl. 20:00 2.k Þri 18/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 8.k
Lau 8/1 kl. 20:00 3.k Mið 19/1 kl. 20:00 Sun 6/2 kl. 20:00 9.k
Sun 9/1 kl. 20:00 4.k Fös 21/1 kl. 20:00 7.k Fim 10/2 kl. 20:00 10.k
Ástir, átök og leiftrandi húmor
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Fim 16/12 kl. 20:00 lokas
"Fantagóð sýning" - EB, Fbl
Fjölskyldan (Stóra svið)
Lau 18/12 kl. 19:00 9.k Fös 7/1 kl. 19:00 Sun 23/1 kl. 19:00
Fim 30/12 kl. 19:00 Lau 15/1 kl. 19:00
"Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is
Jesús litli (Litla svið)
Fim 16/12 kl. 20:00 Mið 29/12 kl. 19:00 aukas Fim 30/12 kl. 21:00
Lau 18/12 kl. 19:00 Mið 29/12 kl. 21:00 aukas
Lau 18/12 kl. 21:00 Fim 30/12 kl. 19:00
Gríman 2010: Leiksýning ársins
Jesús litli - leikferð (Hof - Hamraborg)
Lau 15/1 kl. 16:00 Sun 16/1 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 21:00
Lau 15/1 kl. 20:00 Þri 18/1 kl. 21:00 Fim 20/1 kl. 19:00
Sun 16/1 kl. 16:00 Mið 19/1 kl. 19:00 Fim 20/1 kl. 21:00
Sýnt í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í samstarfi við LA
Faust (Stóra svið)
Fim 6/1 kl. 20:00 Sun 16/1 kl. 20:00
Fös 14/1 kl. 22:00 Fim 20/1 kl. 20:00
Aukasýningar vegna fjölda áskorana
Hátíðartilboð
Gjafakort Þjóðleikhússins
Miðasala Hverfisgötu I 551 1200 I leikhusid.is