Morgunblaðið - 15.12.2010, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Sýnd kl. 6 (ísl. tal)
Sýnd kl. 6
Sýnd kl. 8 og 10
EINN BESTI
SPENNUTRYLLIR ÁRSINS...
SEM GEFUR FYRRI MYNDINNI EKKERT EFTIR!
HVERSU LANGTMYNDIR ÞÚ GANGA FYRIR ÞÁ SEM ÞÚ ELSKAR?
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND
HHH
Sýnd kl. 8 og 10:30
HHH
“Heldur manni í heljargreipum.
Ég sef með kveikt ljósin á næstunni...”
T.V. - Kvikmyndir.is
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
Sýnd kl. 7 og 10
KOMDU Í FERÐALAG OG UPPLIFÐU
ÆVINTÝRI NARNIA EINS OG
ÞÚ HEFURALDREI SÉÐ ÁÐUR.
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
5%
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
NARNIA 3 3D kl. 5.45 - 8 - 10.15
FASTER kl. 8 Síðasta sýning
PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 10
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 5.45
7
16
16
L
Nánar á Miði.is
NARNIA 3 3D kl. 4 - 5.30 - 8 - 10.30
NARNIA 3 3D LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
FASTER kl. 8 - 10.10
PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 8 - 10.10
THE NEXT THREE DAYS KL. 10.10
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 4 - 6
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 5.50 - 8
ARTHÚR 3 KL. 3.40
7
7
16
16
12
L
12
L
NARNIA 3 3D kl. 6 - 9
FASTER kl. 8 - 10.10
AGORA KL. 6 - 9
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6
UNSTOPPABLE KL. 10.10
EASY A KL. 6
YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8
7
16
14
L
L
L
L
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR
ÍSL. TALÍSL. TAL
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
Hann leitar
hefnda á þeim
sem sviku hann.
Frábær hasarmynd!
"MYND SEM HITTIR Í MARK!"
-H.H, MBL
HEIMSFRUMSÝNING Í 3-D
AF KVIKMYNDUM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hefur einhver séð hundhlaupa undan æðandi eld-hafi í kjölfar mikillar
sprengingar? Eða bíl springa í loft
upp við það eitt að fara eina eða
tvær veltur? Karatemann fljúga
fimm metra aftur á bak eftir vænt
spark frá keppinauti? Sennilega
ekki en þó mjög líklega í kvikmynd-
um og þá sérstaklega Hollywood-
hasarmyndum þar sem lögmál eðl-
isfræðinnar skipta oft á tíðum litlu
máli. Fyrsta dæmið, um hundinn
hlaupandi, er fengið úr kvikmynd
hamfarakvikmyndaleikstjórans Ro-
lands Emmerich, Independence
Day. Í myndinni tekst litlum hundi
að hlaupa undan eldhafi miklu og
sleppur lifandi, áhorfendum til gríð-
arlegs léttis. Dæmin eru mýmörg
um þessi eðlisfræðibrot kvikmynd-
anna og hér verður til gamans farið
yfir nokkur þeirra. Var fanga leitað
á nokkrum fróðlegum síðum verald-
arvefjarins.
1. Bílar springa. Bílar virðast
springa af minnsta tilefni í kvik-
myndum, oft við það eitt að keyra á
ljósastaur. Ef bílar væru í raunveru-
leikanum jafnviðkvæmir fyrir
sprengingum og í kvikmyndum
væru líklega tugir bíla að springa
hér á landi á ári hverju. En til þess
að eldsneytistankur springi í loft
upp þarf bæði súrefni og einhvers
konar neista eða kveikju, ekki satt?
Menn þurfa því ekki að flýja eftir að
hafa velt bílnum.
2. Hljóð sem ferðast á hraða ljóss-
ins. Í kvikmyndum kemur þruman
oft á sama tíma og eldingin en flestir
vita að þruman kemur mörgum sek-
úndum síðar, allt eftir fjarlægð
áheyrandans frá eldingunni og
þrumunni sem henni fylgir. En það
virkar greinilega ekki nógu vel í
kvikmyndum að hafa það þannig.
3. Geislavirkni er skærgræn og
sjáanleg og veldur því að maður lýs-
ir í myrkri verði maður fyrir henni.
Eee … nei.
4. Fólk flýgur tugi metra eftir
spörk eða haglabyssuskot. Þetta lít-
ur vel út í kvikmyndum en ef kraft-
urinn væri slíkur í haglabyssunni
myndi skotmaðurinn líka fljúga aft-
ur á bak. Þá hefur sú manneskja
ekki enn fundist á jörðu sem getur
sparkað fólki tugi metra. Og sú yrði
væntanlega að standa upp við vegg
eða annað fast við jörð til að fljúga
ekki sjálf aftur á bak í sparkinu.
5. Hljóð berst um geiminn. Nei,
því miður, það heyrir enginn í þér ef
þú æpir í geimnum, t.d. ef geimvera
er um það bil að fara að éta þig.
Geimurinn er tómarúm og hljóð
berst eingöngu um efni.
6. Leiftrandi byssukúlur. Þegar
byssukúlur eru sýndar koma glóandi
í „slow motion“ út úr byssuhlaupum
er það uppspuni. Byssukúlur eru
húðaðar kopar og úr blýi og eiga
ekki að snerta hlaupið þegar þær
fljúga út. Og þó svo koparinn og
stálið í hlaupinu myndu snertast ætti
ekki að koma neistaflug af snertingu
kopars og stáls.
7. Byssukúlur beygja fyrir horn. Í
hasarmyndinni Wanted geta menn
látið byssukúlurnar beygja. Ef til vill
er þetta eina myndin þar sem eðlis-
fræðilögmál eru brotin með þessum
hætti og þarf varla að útskýra frek-
ar af hverju þetta er ekki hægt.
8. Stokkið í gegnum rúðu án þess
að fá á sig skrámu. Rúðugler er bæði
sterkt og þykkt. Reyni menn að
stökkva í gegnum stóra og mikla
rúðu veldur það nær örugglega
miklu líkamstjóni.
Lögmál eðlisfræðinnar brotin
»Nei, því miður, þaðheyrir enginn í þér
ef þú æpir í geimnum,
t.d. ef geimvera er um
það bil að fara að éta
þig.
Beygjur Byssukúlur taka beygjur í kvikmyndinni Wanted. Angelina Jolie óárennileg í þeirri hasarmynd.
Kvikmyndin The Social Network
sópar að sér verðlaunum þessa dag-
ana. Samtök kvikmyndagagnrýn-
enda í New York, The New York
Film Critics Circle, völdu myndina
þá bestu á árinu sem er að líða nú í
vikunni og leikstjóra myndarinnar,
David Fincher, besta leikstjórann.
Þá voru kvikmyndagagnrýnendur í
San Fransisco, samtökin San Franc-
isco Film Critics Circle, á sama máli
og kusu myndina einnig þá bestu á
árinu í gær. Þá þótti handritið einnig
það besta í flokki þeirra sem skrifuð
eru eftir öðru verki. Fincher varð
einnig fyrir valinu sem besti leik-
stjórinn. Þetta mikla lof sem kvik-
myndin hefur fengið frá gagnrýn-
endum þykir auka líkurnar á því að
hún verði sigursæl á Óskarsverð-
laununum á næsta ári. Af öðrum
sem líklegar eru taldar til verðlauna
má m.a. nefna The Black Swan, The
Fighter, Inception, 127 Hours, The
Town, Toy Story 3, True Grit og
Winter’s Bone.
Lofuð Kvikmyndin The Social Net-
work hrífur gagnrýnendur.
Social Net-
work best