Morgunblaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Harry Potter, Hermione Granger, Ron
Weasley og Voldemort eru komin aftur í
magnaðasta ævintýri allra tíma
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI OG SELFOSSI
HHHH
- BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
- Time Out New York
„IT’S THE BEST FILM IN
THE SERIES.“
- ORLANDO SENTINEL
HHHH
„ÞETTA ER KLASSÍK
VORRA TÍMA.“
- Ó.H.T. – RÁS 2
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
Óhugnaleg spennumynd sem fór beint
á toppinn í USA og Bretlandi!
Komdu í ferðalag og upplifðu ævintýri
Narnia eins og þú hefur aldrei séð áður
„ÓGNVÆNLEGA
SKEMMTILEG.“
SARA MARIA VIZCARRONDO
BOXOFFICE MAGAZINE
HHHHH„SKÖRP OGÓGNVEKJANDI MYND.“
KIM NEWMAN EMPIRE
HHHH
EXORCISM
THELAST
BESTA SKEMMTUNIN
THE LAST EXORCISM kl. 6 - 8 - 10:10 16 DUE DATE kl. 8 - 10:10 10
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30 L KONUNGSRÍKI UGLANNA kl. 5:503D ísl. tal 7
HARRY POTTER kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10 10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30 VIP
/ ÁLFABAKKA
NARNIA - 3D kl. 5:303D - 83D - 10:303D L HARRY POTTER kl. 5 - 8 - 10:10 10
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30 L DUE DATE kl. 8 10
/ EGILSHÖLL
Eins og Íslendingar áttuFinnar jólasvein áður enCoca Cola-sveinninnkomst á kreik. Eins og
hjá okkur þá var hann ekki heldur
neinn herra Næs Gæ. Hann var
grimmur og úrillur, jafnvel verri en
okkar sveinar, líklegast líkari Grýlu
en sveinunum. Út frá þessari hug-
mynd um jólasveininn kemur
finnska jólamyndin Rare Exports.
Djúpt í jörðu, á yfir fimm hundruð
metra dýpi í Korvantura-fjöllunum í
Finnlandi er eitt best varðveitta
leyndarmál jólanna – jólasveinninn
sjálfur. Námaverkamenn eru að
grafa þar og koma niður á þetta
leyndarmál sem hefur þær afleið-
ingar fyrir nærumhverfið að allt í
einu fara börn að hverfa og þorpsbú-
ar safnast saman til að komast yfir
þau auðæfi sem jólasveinninn er. En
þá skerast jólaálfarnir í leikinn til
hjálpar meistara sínum. Úr verður
spennandi barátta. Ég var hálfóviss
hvort um væri að ræða hrollvekjandi
mynd eða fyndna, spennandi, barna-
lega, jólalega eða eitthvað annað.
Það er galli á henni að eftir að ég
kom út af henni þá var ég ekki enn
viss. Hún hefur eitthvað af þessu
öllu án þess að ganga alla leið í neina
átt. En sagan virkar. Hún er smá
hrollvekjandi, smá fyndin, smá
barnaleg og ætti að geta virkað fyrir
krakka frá tíu ára aldri og upp í sex-
tugt. Með svona súrt handrit sem er
á mörkum þjóðsagna og raunveru-
leika hefði verið mjög auðvelt að
gera óaðlaðandi mynd en Finnunum
tekst að halda áhuga manns mynd-
ina á enda.
Myndin hefur fengið veglegan
fjárhagsstuðning og hæfileikafólk
komið að henni. Kameran er klass-
ísk, vandað handbragð á kvikmynda-
tökunni. Leikurinn er afslappaður
og hógvær. Hún sver sig í ætt við
svo margt sem manni fellur við frá
Finnlandi, flestu er stillt í hóf; til-
finningum, kímni og fagurfræðilegu
dekri. En gefinn er gaumur að því
öllu.
Þetta er bráðfyndin mynd sem
nær að vera hrollvekjandi á köflum
og spennandi en er í grunninn
barnaævintýri. En einmitt vegna
þess hvað hún snertir marga strengi
í manni, nær hún ekki að heilla neina
ákveðna taug hjá manni þannig að
maður yfirgefi salinn undir ein-
hverjum sterkum hughrifum.
Súr og hrollvekjandi jólamynd
Bíó Paradís
Rare Exports bbbmn
Leikstjóri: Jalmari Helander. Aðalleik-
arar: Jorma Tommila, Onni Tommila og
Peeter Jakobi. Finnland, 2010. 84 mín.
BÖRKUR
GUNNARSSON
KVIKMYND
Jólasveinahrollur Finnska jólamyndin Rare Exports er óvenjuleg mynd.
Bandaríski leikarinn Nicholas
Cage missti stjórn á skapi sínu
fyrir utan næturklúbb einn í Búk-
arest í Rúmeníu um sl. helgi og
hellti sér yfir ónefndan karlmann
og tvær konur. Atvikið náðist á
myndband sem m.a. má sjá á
vefnum PopEater (popeater.com).
Cage er staddur í Rúmeníu við
tökur á framhaldi kvikmyndar-
innar Ghost Rider. Ekki heyrast
orðaskil á myndbandinu en ljóst
er að Cage er hamslaus af bræði.
Þó heyrist hann segja fólki að
snerta sig ekki og að ónefndur
maður eigi að sýna honum virð-
ingu.
Reuters
Æðiskast Cage við tökur á fram-
haldi Ghost Rider í Búkarest.
Cage óður
í Búkarest
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Electric Ethics og Extreme Chill verða með raf-
tónlistarviðburð í kvöld á Faktory. Fram koma raf-
tónlistarmenn og brautryðjendur í tilraunakenndri
tónlist á Íslandi. „Það eru fáir á Íslandi sem sinna
raftónlist og flestir þeirra bestu verða hér í kvöld,“
segir Ólafur Þórsson úr Electric Ethics. „Þetta er
óeigingjarnt starf sem þessir menn sinna,“ segir
hann.
Jóhann Eiríksson úr Reptilicus mun koma fram
undir eigin nafni, en þess má geta að Reptilicus er
að undirbúa nýja plötu. Aðalsteinn Jörundsson eða
AMFJ mun einnig spila en tónlist hans einkennist
af miklum þunga með hörðum takti. Óskar Thor-
arensen treður upp með syni sínum Pan Thor-
arensen undir formerkjum Stereo Hypnosis og
einnig sem Jafet Melge með fjöllistamanninum Óm-
ari Stefánssyni myndlistarmanni. Sérstakur gestur
kvöldsins er listamaðurinn Snorri Ásmundsson.
Finnbogi Pétursson hljóðlistamaður og sonur
hans Stefán Finnbogason úr hljómsveitinni Sykri
munu einnig troða upp. Aðspurður hvernig sé að
spila með syni sínum segir hann það ganga mjög
vel. „Við höfum unnið saman í átján ár,“ segir Finn-
bogi, „eða frá því að hann fæddist. Við höfum alið
hvor annan upp í tónlistinni.“
Listafeðgarnir
Finnbogi er myndlistarmaður sem hefur haft
mikinn áhuga á hljóði og var í hinni frægu pönk-
hljómsveit Bruna BB þegar hann var um tvítugt.
Hann vann með Jóni Skugga og Herði Bragasyni á
sínum tíma og líka Einari Erni áður en hann fór í
Purrk Pillnikk. Þeir fóru síðan að vinna aftur sam-
an fyrir fimm árum og hafa gefið út tvær plötur þar
sem Ghostigital er í aðalhlutverki. Svo hefur Finn-
bogi líka spilað með syni sínum. Aðspurður hvort
hann ráði ekki ferðinni sem faðirinn segir hann svo
ekki vera. „Nei, hann er miklu betri en ég. Ég á
bara miklu flottari græjur sem er tilkomið af því að
ég á miklu meiri pening en hann,“ segir Finnbogi.
Tónlist sonarins í Sykri er hægt að flokka sem
gleðipopp í gameboy-stíl, ekki ólíkt tónlistinni sem
Apparat spilar, en aðspurður segist Finnbogi ekki
geta lýst tónlist sinni. „Eða öllu heldur vil ég ekki
lýsa henni. Þetta er svona samsull af alls konar dót-
aríi og ég vil ekki vera að setja þetta í einhverja
girðingu,“ segir Finnbogi.
Raftónlistarveisla á Faktory
Margt myndlistarmanna verður með hljóðgjörninga Snorri Ásmundsson
selur syndugum aflátsbréf Feðgar troða upp með tónlist tveggja kynslóða
Morgunblaðið/Eggert
Feðgar Finnbogi Pétursson og sonur hans Stefán verða á raftónlistarviðburðinum á Faktorý.
Í gagnrýni um kvikmyndina The
Last Exorcism datt út orð í loka-
setningu sem gjörbreytti merk-
ingu hennar. Gagnrýnin endaði
svo: „Þó er engin ástæða til að
mæla með The Last Excorcism
fyrir þá sem hafa gaman að skop-
legum skrattamyndum …“ en í
setninguna vantaði orðið „ekki“.
Setningin átti því að vera á þessa
leið: „Þó er engin ástæða til að
mæla ekki með The Last Excorc-
ism fyrir þá …“ Eru lesendur
beðnir afsökunar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
Mælt með
The Last Exorcism