Morgunblaðið - 15.12.2010, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
BRUCE WILLIS, MORGAN
FREEMAN, JOHN MALKO-VICH
OG HELEN MIRREN ERU
STÓRKOSTLEG Í ÞESSARI ÓTRÚLEGA
SKEMMTILEGU GRÍN HASARMYND
HHHH
- HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
- NEW YORK POSTSÝND Í KRINGLAN
FRÁ TODD PHILIPS, LEIKSTJÓRA THE HANGOVER
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
HHHHH
- ANDRI CAPONE -- RÁS 2
SÝND Í KRINGLUNNI
„EXCELLENT.
A ZEITGEIST FILM.“
- RICHARD CORLISS, TIMES
„SHARP, TIMELY
AND VERY FUNNY.“
- KAREN DURBIN, ELLE
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI 7 SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
„THE BEST ROMANTIC
COMEDY OF THE YEAR!“
- GREG RUSSELL, MOVIE SHOW PLUS
„HIN FULLKOMNA
STEFNUMÓTAMYND.“
- BONNIE LAUFER, TRIBUTE CANADA
„SPRENGHLÆGILEG.“
- ALI GRAY, IVILLAGE.COM
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
DON CARLO
VerdiDon Carlo
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
endurflutt 15. des. (örfá laus sæti)
DON CARLO Ópera (endurflutt) kl. 6 L
THE LAST EXORCISM kl. 6 - 8 - 10:10 16
THE JONESES kl. 8 12
RED kl. 10:10 12
ÆVINTÝRI SAMMA - 3D ísl. tal kl. 6 3D L
/ KRINGLUNNI
LIFE AS WE KNOW IT kl. 8 - 10:10 L
HARRY POTTER kl. 6 - 9 10
ÆVINTÝRI SAMMA - 3D kl. 63D ísl. tal L
/ AKUREYRI
Í KVÖLD
KL.18:00
Dagbók Kidda klaufa - Róbbi rokkar
Eftir Jeff Kinney. Tindur gefur út.
bbbnn
Dagbækur Kidda klaufa eru marg-
faldar metsölubækur vestan hafs og
ekki að ófyrirsynju; þær eru
skemmtilega skrifaðar og mynd-
skreytingar bráðsmellnar. Kiddi
klaufi á í vandræðum með flest,
bróðir hans er tillitslaus fantur, litli
bróðir hans kjaftar frá öllu og
mamma hans er alltaf að grípa inn í
þegar Kiddi sér fram á betri tíð.
Þegar við bætast ýmsar neyðarlegar uppákomur í
skólanum og kennarar með kvalalosta er lífið táradal-
ur fyrir Kidda, en bráðfyndið fyrir okkur hin. Fyrir
10-14 ára.
Logandi víti
Eftir Helga Jónsson. Tindur gefur út.
bbnnn
Logandi víti er fimmtánda Gæsa-
húðarbókin. Hún segir frá heldur
hörmulegri uppákomu í friðsælum
bæ úti á landi, eða eins og rakið er
á kápu bókarinnar: „Þennan dag er
hvasst og byrjar að snjóa. Eftir há-
degi kviknar eldur. Síðan stendur
leikskólinn í ljósum logum. Inni eru
20 börn og 4 starfsmenn.“ Af þessu
má ráða að það sem framundan er
verður ekki fallegt, ekki síst í ljósi þess að fljótlega
kemur fram að ekki muni öll börnin lifa ósköpin af.
Gallinn er bara sá að einmitt þegar hiti færist í leik-
inn, í bókstaflegri merkingu, klárast bókin og við blas-
ir bið eftir framhaldi fram að páskum. Úff. Fyrir 12-16
ára.
Vinur, sonur, bróðir
Eftir Þórð Helgason. Salka gefur út.
bbbnn
Bókin segir frá Óla, strák í 10. bekk
sem á heldur en ekki merkilegt
skólaár framundan. Hann eignast
bróður, verður vitni að hruni hag-
kerfisins haustið 2008, leysir dular-
fullt eineltismál og nær sér í kær-
ustu; eins og því er lýst í bókinni:
„Ég er ekki krakki lengur. Strák-
urinn Óli er á undanhaldi. Ég er að
verða fullorðinn, ég er að verða að
manni, karlmanni.“ Bókin fer stirðlega af stað en
smám saman herðir á framvindunni og þegar upp er
staðið er hún bráðvel heppnuð. Persónur eru reyndar
ekki mjög lifandi og samtöl ekki eðlileg, en það er
margt gott við þessa bók og hún er vel til þess fallin
að vekja krakka til umhugsunar um lífið og tilveruna.
Aldur 12-16 ára.
Ég er ekki norn
Eftir Kim M. Kimselius. Urður gefur út.
bbnnn
Í bókinni er sagt frá þeim Theo og
Ramónu sem hrökkva óforvarandis
aftur í aldir – hverfa frá Svíþjóð nú-
tímans til þess tíma þegar galdraof-
sóknir voru í algleymingi. Í bland
við söguþráðinn er ýmislegur fróð-
leikur um lækningajurtir og meðferð
á grunuðu galdrafólki þó sagnfræðin
sé vafasöm. Þau Theo og Ramóna
eru heldur óspennandi persónur,
mikið um endurtekningar og lítið um spennu. Ekki
vantar óttalegar uppákomur, en allt er málað svo
sterkum litum að það verður eiginlega kjánalegt og
dulrænn þáttur sögunnar afkáralegur. Aldur 12-16
ára.
Stelpurokk
Eftir Bryndísi Jónu Magnúsdóttur. Tindur gefur út.
bbbnn
Stelpurokk gerist í Keflavík á
spennandi tímum; rokkið er komið
til sögunnar og íslensk unglinga-
menning verður til. Söguhetjan
Sunna vill stofna fyrstu stelpu-
hljómsveit Íslandssögunnar og lætur
ekkert hindra sig við það. Inn í allt
saman blandast svo fyrstu ástar-
málin, tískubylting og uppákomur í
daglegu lífi. Efniviðurinn er því ær-
inn, en Bryndísi tekst ekki að vinna
úr honum nema miðlungi vel. Atburðarásin er þannig
fulltilviljanakennd, en inn á milli eru fyrirtaks sprettir.
Fín bók að mestu leyti. Aldur 12-16 ára.
Hliðgátt Ptólemeusar
Eftir Jonathan Stroud. Ugla gefur út.
bbbmn
Bartimæus-þríleikurinn vakti mikla
athygli ytra á sínum tíma, en heldur
þykir mér lítið hafa farið fyrir hon-
um hér á landi. Þetta eru fínar bæk-
ur, fyndnar, ævintýralegar og ótta-
legar í senn. Í sem stystu máli segja
þær frá heimi sem er áþekkur okkar
um margt, en þar skilur á milli að í
heimi bókanna eru galdramenn með
tögl og hagldir, ráða því sem þeir
vilja og líta heldur en ekki niður á
þá sem engan galdur geta framið. Bartimæus er ári
sem þjónar ungum galdramanni og lendir í ótrúlegum
ævintýrum með honum, nauðugur viljugur. Í Hliðgátt
Ptólemeusar er lokaorrustan háð með mögnuðum endi
sem er einkar áhrifamikill, átakanlegur og rökréttur.
Einkar vel af hendi leyst. Aldur 12-16 ára.
Neyðarlegar uppákomur,
nornir og rokkstelpur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Yfirlit yfir nýútkomnar
unglingabækur, íslenskar og þýddar
Unglingabækur
Kvikmyndagerðarmenn fráNýja-Sjálandi eyddu tíuvikum hér á landi viðfluguveiðar og afrakst-
urinn er þessi glæsilega 50 mínútna
langa kvikmynd um Ísland og þá
möguleika sem
fluguveiðimönn-
um standa hér til
boða. Á disknum
er boðið upp á ís-
lenska þýðingu
leiðsögumanns
kvikmyndagerð-
armannanna,
Kristjáns Bene-
diktssonar.
The Source - Ísland er sú þriðja í
röð mynda um áfangastaði veiði-
manna og náttúru veiðisvæðanna;
fyrri myndir fjalla um áströlsku
eyna Tasmaníu og Suðurey Nýja-
Sjálands.
Kvikmyndin er römmuð inn af
ferðalagi Nýsjálendinganna með
ferju hingað til lands snemmsum-
ars, og svo þegar þeir sigla til baka
um haustið, þegar fjallvegir hér eru
orðnir ísi lagðir og sjóbirtingurinn
er að ganga í árnar. Myndinni er
síðan skipt í kafla; sá fyrsti er um
laxinn hér, þá er fjallað um urr-
iðann, bleikjuna og loks sjóbirting-
inn. Inn á milli er skotið viðtölum
við þátttakendur í ævintýrinu, um
veiðina sem þeir dásama og hæla í
hástert, þó veðrið sé af og til að
stríða þeim. Þeir benda réttilega á
að það sé þó hluti af veiðiskapnum.
Fyrst og fremst er þessi kvik-
mynd glæsilegt kvikmyndaljóð um
fluguveiði á Íslandi og þar er ís-
lensk náttúra í allri sinni dýrð í
aukahlutverki. Kvikmyndatakan er
þaulhugsuð, myndað er úr þyrlu, á
landi og undir yfirborðinu. Mikið er
stuðst við hæg myndskeið, kvik-
myndavélin er færð fram og aftur á
markvissan hátt og gælt við fallegar
náttúrumyndir; hvort sem það er
hreistur á fiski, ský sem siglir yfir
himin, laxar sem fylgst er með und-
ir yfirborðinu eða stjörnubjartur
hausthiminn.
Íslenskir framleiðendur veiði-
myndefnis mættu taka nálgun
nýsjálensku kolleganna sér til fyrir-
myndar; það þarf vissulega að
skemmta sér við kvikmyndagerðina,
en aldrei má gleyma aðalatriðinu –
að gera vandað efni og að gera ýtr-
ustu kröfur til tækninnar og leik-
stjórnarinnar, eins og hér er svo
sannarlega boðið upp á.
Áhorfendur fá sjaldnast að vita
hvar fiskarnir taka flugur veiði-
mannanna, enda varðar erlenda
áhorfendur lítið um það, en oft vak-
ar sú spurning eflaust í huga ís-
lenskra glápara. Í lok myndarinnar
kemur þó fram að þeir hafi kvik-
myndað í Minnivallalæk, Tungulæk,
Selá, Jöklu og Breiðdalsá.
The Source - Ísland er veisla fyrir
augað sem ætti að stytta veiðimönn-
um biðina eftir sumri nú í skamm-
deginu.
Glæsileg sýn
á fluguveiði
The Source - Ísland
bbbbn
Fluguveiðimynd. Leikstjóri og framleið-
andi: Nick Reygaert.
Gin-Clear Media, 2010.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
MYNDDISKUR
Tveimur málverkum eftir Sigtrygg
Berg Sigmarsson var stolið af
skemmtistaðnum Bakkus/Venue
um liðna helgi. Sigtryggur segir frá
því á fésbókarsíðu sinni.
„Ef einhver veit hvar myndirnar
gætu verið eða bara sá sem rændi
þeim – endilega komið þeim til skila
á Bakkus,“ skrifar Sigtryggur.
Honum sé sama hver rændi verk-
unum og af hvaða ástæðu hann
gerði það, hann vilji bara fá mynd-
irnar aftur. Sigtryggur vonar jafn-
framt að ekki sé búið að eyðileggja
verkin, þau séu honum kær.
Tveimur verkum
Sigtryggs stolið
Stolið Verkin tvö eftir Sigtrygg.