Morgunblaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Vilja seinka klukkunni
2. Lýst eftir stúlku
3. Skar undan kærasta dótturinnar
4. Richard Holbrooke látinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Pétur Gautur opnar vinnustofu
sína, sem er á horni Snorrabrautar og
Njálsgötu, á laugardaginn og mun
hafa hana opna á hverjum degi fram
að jólum frá klukkan 16-19. Djass
verður spilaður á opnuninni.
Pétur Gautur
Pétur Gautur opnar
á laugardaginn
Hljómsveitin
Valdimar og tón-
listarmaðurinn
Kalli, eða Karl
Henry, ætla að
fagna próflokum
og jólafríi náms-
manna með tón-
leikum í Frumleik-
húsinu í Keflavík
annað kvöld kl. 20.30. Valdimar gaf
nýverið út sína fyrstu plötu, Undra-
land, og Kalli er einnig með nýja
plötu, Last Train Home.
Valdimar og Kalli
í Frumleikhúsinu
Kvikmyndaklúbburinn Arnar-
hreiðrið sýnir í kvöld kl. 20 áströlsku
kvikmyndina Ghosts of
the Civil Dead frá
árinu 1988 í Bíó Para-
dís. Leikstjóri mynd-
arinnar er John Hill-
coat og samdi hann
einnig handritið
ásamt tónlistar-
manninum Nick
Cave. Myndin
verður sýnd
einu sinni.
Ghosts of the Civil
Dead í Bíó Paradís
Á fimmtudag Norðanátt, 13-20 m/s austanlands, en mun hægari vestantil. Éljagangur
norðaustanlands, en bjart veður fyrir sunnan og vestan. Frost 1 til 8 stig.
Á föstudag Norðanhvassviðri og snjókoma, en úrkomulítið syðra. Dregur úr vindi
austanlands síðdegis en hvessir vestantil. Áfram kalt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í norðvestan 10-20 með éljum og hvassast austanlands.
Léttir til S - og vestanlands. Milt veður en snöggkólnar, víðast hvar frost seinnipartinn.
VEÐUR
Dóra Stefánsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, hef-
ur ákveðið að leggja skóna á
hilluna 25 ára gömul vegna
þrálátra hnémeiðsla sem
henni hefur ekki tekist að
ráða bót á þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir. Hún segist
hafa átt margar andvöku-
nætur áður en ákvörðunin
var tekin. Síðasta félag
hennar, sænska úrvalsdeild-
arfélagið Malmö, vill fá
hana til starfa áfram. »1
Dóra leggur skóna
á hilluna 25 ára
Hrafnhildur Lúthersdóttir er einn
þriggja íslenskra keppenda á heims-
meistaramótinu í sundi í 25 metra
laug sem hófst í Dubai snemma í
morgun. Hún á mesta möguleika á að
komast í undanúrslit þar sem hún á
sextánda besta árangur allra kepp-
enda í 100 m bringusundi. „Vissulega
væri það draumur að
komast í undan-
úrslit,“ segir
Hrafnhildur m.a.
í viðtali við
Morgunblaðið.
»3
Væri vissulega draumur
að komast í undanúrslit
„Húsið mitt er orðið fullbókað næsta
sumar og ég hef fengið fyrirspurnir
heiman frá Íslandi um hvort það sé
óhætt að koma og tjalda í garðinum
hjá mér,“ sagði Rúrik Gíslason, lands-
liðsmaður í knattspyrnu og leik-
maður danska liðsins OB frá Óðins-
véum, við Morgunblaðið en gífurlegur
áhugi er fyrir úrslitakeppni 21-árs
landsliðanna næsta sumar. »4
Húsið fullbókað og
tjaldað í garðinum
ÍÞRÓTTIR
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Talið er að um 35.000-40.000 lifandi
jólatré seljist á Íslandi á ári og þar
af er fjórðungur til þriðjungur inn-
lend framleiðsla. Seljendur eru á
því að kaupendur séu fyrr á ferð-
inni í ár en áður og segja að mikill
kippur hafi verið í sölunni um ný-
liðna helgi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofunni voru flutt
inn um 199.000 kg af jólatrjám án
rótar 2008 og um 247.000 kg í
fyrra. Ef reiknað er með að trén
séu 8 kg að meðaltali gera þetta um
25.000 tré 2008 og um 31.000 tré í
fyrra. Að sögn Ragnhildar Frey-
steinsdóttur hjá Skógræktarfélagi
Íslands fóru að minnsta kosti um
9.000 íslensk tré á markað 2008 og
um 11.000 tré í fyrra. Hún segir að
innlend framleiðsla vegi ekki
þyngra í heildinni en raun ber vitni
vegna þess að tiltölulega nýlega
hafi tré markvisst verið ræktuð
sem jólatré og þau séu því ekki enn
almennilega komin á markað. Í
öðru lagi hafi innfluttu trén verið
ódýrari.
Normannsþinur vinsælastur
Of mikið framboð var í fyrra og
því halda seljendur að sér höndum í
ár. Danski normannsþinurinn er
vinsælasta tegundin en íslenska
rauðgrenið stendur alltaf fyrir sínu
og stafafuran hefur sótt mikið á.
Leifur Gunnarsson, verslunarstjóri
hjá Byko í Breidd, segir að blá-
greninu hafi líka verið vel tekið,
en sums staðar séu sumar
stærðir af normannsþini upp-
seldar.
Steinunn Reynisdóttir, deild-
arstjóri í Garðheimum, segir
að svolítil söluaukning hafi
verið í fyrra og byrjunin
núna lofi góðu. „Það var
mikið að gera um síðustu
helgi og verður örugglega
enn meira um þá næstu,“ segir hún
og bætir við að normannsþinurinn
sé alltaf vinsæll og þeir sem kynn-
ist stafafuru vilji helst ekkert ann-
að.
Fegrun heimilisins
„Hún gengur alveg glimrandi
vel,“ segir Kristinn Einarsson,
framkvæmdastjóri Blómavals, um
jólatréssöluna. Hann segir að fólk
sé frekar fyrr á ferðinni en áður,
hugsanlega vegna góðs tíðarfars, og
svo virðist sem hlutir, sem snúi að
fegrun heimilisins, eigi upp á pall-
borðið hjá fólki í kjölfar kreppu.
Lifandi jólatré sé nokkuð sem fólk
spari ekki við sig og hugsanlega
geri það kaupin snemma til að eiga
ekki á hættu að missa af lestinni.
Mikill kippur í jólatréssölu
Um 35 til 40
þúsund lifandi tré
seljast á hverju ári
Morgunblaðið/Golli
Jólatré Steinunn Reynisdóttir, deildarstjóri í Garðheimum, er ánægð með söluna í ár. Normannsþinur hefur selst
mest mörg undanfarin ár og ekki virðist ætla að verða á því breyting enda hefðirnar ríkar þegar jólin eiga í hlut.
Anton Magnússon, deildar-
stjóri í Garðheimum, segir að
sala á gervijólatrjám sé nú
talsvert meiri en undan-
farin þrjú ár. Úrvalið sé
meira en áður, trén séu fal-
legri og svo vilji fólk
greinilega eiga varatré
auk þess sem stöðugt
fleiri vilji eiga gervitré.
Kristinn Einarsson,
framkvæmdastjóri
Blómavals, segir hins vegar að
jólatrjáamarkaðurinn sé íhalds-
samur í eðli sínu og flestir haldi í
ákveðnar hefðir í kringum kaupin.
Salan í lifandi trjám sé mest á höf-
uðborgarsvæðinu en gervitré selj-
ist betur á landsbyggðinni, einkum
til sveita þar sem erfiðara er að ná
í jólatré, auk þess sem eldra fólk
kaupi frekar gervitré. Hins vegar
skynji hann frekar hreyfingu frá
gervitrjám yfir í lifandi tré.
Ríkar hefðir ráða för
GERVITRÉ