Morgunblaðið - 28.01.2011, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. J A N Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 23. tölublað 99. árgangur
ESTER Í MH
STENDUR Í
STÓRRÆÐUM
VIGGÓ EKKI
SÁTTUR VIÐ
ALLT Á HM
SPILAR VERK
MEISTARANNA Á
HNAPPANIKKU
ÓSKILJANLEGT ÍÞRÓTTIR JÓN ÞORSTEINN MEÐ DISK 36HESTASTELPA 10
Hafberg Þórisson hefur ræktað salat í garð-
yrkjustöðinni Lambhaga við Úlfarsá í nær 20 ár
og ferskt salat frá honum má fá í verslunum um
allt land. Hann stofnaði stöðina 1979 og ræktaði
eingöngu pottaplöntur í 12 ár, en hafði tröllatrú
á salatinu og sér ekki eftir því. Hann ræktar fjór-
ar tegundir og í fyrra var framleiðslan alls um
140 tonn en til stendur að tvöfalda fram-
leiðslugetuna innan skamms.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Salatið alltaf ferskt og tilbúið á diskinn
Milli áranna 2009 og 2010 fækk-
aði þeim feðrum sem tóku fæðing-
arorlof um 5,4% en mæðrum fækk-
aði um 1,9%. Fækkaði feðrunum um
340 milli ára en mæðrunum um 120.
Þetta kemur fram í tölum frá fæð-
ingarorlofssjóði. Árið 2009 var met-
ár í þessum efnum en þá þáðu alls
14.472 foreldrar greiðslur úr sjóðn-
um, þar af fengu um 1.700 svo-
nefndan fæðingarstyrk. Hafði þá
foreldrum í fæðingarorlofi fjölgað
allt frá árinu 2001 er jafn réttur
foreldra til orlofstöku var bundinn í
lög.
Svo virðist líka sem feður taki al-
mennt styttra fæðingarorlof en áð-
ur, taki þeir orlof á annað borð. Í
tölum fæðingarorlofssjóðs kemur
fram að heildarfjöldi greiðslna, sem
gefur til kynna fjölda tekinna mán-
aða í fæðingarorlof, dregst saman
um 8% hjá feðrum. »4
Morgunblaðið/Ómar
Færri foreldrar taka
sér fæðingarorlof
Sparisjóður
Keflavíkur upp-
fyllti ekki lögbund-
in skilyrði um eig-
infjárhlutfall við
árslok 2008. Þrátt
fyrir að þetta hafi
komið fram í endurskoðuðum árs-
reikningi brást Fjármálaeftirlitið
ekki við þessari alvarlegu stöðu með
því að veita formlegan frest til að-
gerða fyrr en í maí árið 2009. Sam-
tals veitti FME sjóðnum frest í þrett-
án skipti til þess að vinna að
styrkingu eiginfjárhlutfallsins eða
allt til þess að hann fór í þrot í apríl í
fyrra. FME hafði gert úttekt á stöðu
Sparisjóðs Keflavíkur í september
2008 og gert alvarlegar athugasemd-
ir við rekstur sjóðsins. »16
Uppfyllti ekki kröfur
um eiginfjárhlut í ár
Rúnar Pálmason
Baldur Arnarson
„Við höfum gagnrýnt að svo mikið
fé skuli sótt í hagræðingu á grunn-
þjónustu. Núverandi meirihluti í
borginni er búinn að hækka allar
gjaldskrár og alla skatta og nú á að
skera mikið niður í þjónustunni.
Niðurskurðarkrafan á grunnskólana
og tónlistarskólana á næsta skólaári
nemur einum milljarði króna,“ segir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um
fyrirhugaðan niðurskurð í mennta-
málum í borginni. „Það er verið að
fela tölurnar en hagræðing í skólum
byrjar eðli máls samkvæmt á haust-
in í skólakerfinu. Á þessu ári lítur
þetta ekki út fyrir að vera mikið en
þegar horft er til næsta skólaárs
kemur í ljós að upphæðin nemur
samtals milljarði, þar af 300 millj-
ónir í tónlistarskóla.“
Tölurnar faldar
Þorbjörg Helga gagnrýnir for-
gangsröðun meirihlutans og segir
að á sama tíma og útlit sé fyrir að
grunnskólarnir muni „ekki geta
boðið upp á lögbundið nám“ séu
framlög til þjónustu Ráðhússins og
rekstrarsviða borgarinnar óskert.
„Það er ekki skorið niður í kerfinu
áður en það er gengið til verks í að
skera niður í grunnþjónustu borg-
arinnar.“
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að Samtök foreldra grunnskóla-
barna telji borgina hafa haft „sýnd-
arsamráð“ við foreldra. Oddný
Sturludóttir, formaður menntaráðs,
segir þetta af og frá í blaðinu í dag.
Ekki hefur náðst í Jón Gnarr,
borgarstjóra Reykjavíkur, vegna
málefna skólanna.
MSamfok óttast einelti »6
Framlög skert um milljarð
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn segja gengið á lögbundið nám í skólunum
Sviðum borgarinnar sé hins vegar hlíft Meirihlutinn hafnar gagnrýni
Áhyggjur
» Samtök foreldra grunn-
skólabarna óttast að einelti
muni færast í vöxt nái nið-
urskurðurinn fram að ganga.
» Formaður menntaráðs borg-
arinnar, Oddný Sturludóttir,
segir hins vegar að hagræð-
ingin eigi ekki að koma niður á
öryggi nemenda. Samráð verði
haft við borgarbúa.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Landskjörstjórn þótti tíminn til undirbúnings
kosninga til stjórnlagaþings of naumur, að því
er Snorri Tómasson, einn aðalmanna í kjör-
stjórn Kópavogs, kveðst hafa heimildir fyrir.
„Tíminn var of naumur, bæði hvað varðar
kynninguna fyrir stjórnlagaþingið og fram-
kvæmdina. Það var ekki nægur tími til undir-
búnings,“ segir Snorri um tímahrakið.
Kjörstjórn Kópavogs sendi fyrirspurnir
varðandi ýmis atriði í framkvæmd kosning-
anna og segir Snorri dómsmálaráðuneytið hafa
svarað þeim. Fyrirspurnirnar hafi því ekki
komið inn á borð landskjörstjórnar.
Aðeins hugað að færð á vegum
Þórhallur Vilhjálmsson, ritari landskjör-
stjórnar, staðfestir að landskjörstjórn hafi ekki
borist neinar fyrirspurnir, ef frá séu talin sam-
skipti við Vegagerðina vegna færðar á vegum.
Fjöldi spurninga vaknaði vegna fram-
kvæmdar kosninganna og staðfestir Hjalti
Zóphóníasson, fráfarandi skrifstofustjóri
dómsmálaráðuneytisins, að dag hvern hafi allt
að 100 tölvubréf borist þeirra vegna.
Þá upplýsir Hjalti að horft hafi verið til
kostnaðar við kjörklefa þegar sú ákvörðun var
tekin að notast við skilrúmin sem Hæstiréttur
gerir athugasemd við í ógildingu kosninganna.
MKjörklefarnir þóttu of dýrir »4
Allar fyrirspurnir til ráðuneytisins
Landskjörstjórn bárust engar athugasemdir frá kjörstjórnum vegna kosn-
inga til stjórnlagaþings Tíminn talinn of naumur og kjörklefar of dýrir
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
segir að við hönnun skilrúma hafi dóms-
málaráðuneytið „leitað fyrirmynda frá
Evrópuríkjum sem þekkt eru að traustum
lýðræðishefðum“.
„Þetta voru ekki fyrirmæli heldur
ábending að gefnu tilefni,“ segir Ögmund-
ur og minnir á að tafir og biðraðir á kjör-
stað hefðu getað fælt kjósendur frá.
Horft til Evrópuríkja
VILDU FORÐAST TAFIR