Morgunblaðið - 28.01.2011, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2011
✝ Steinunn Jóns-dóttir fæddist á
Suðureyri við Tálkna-
fjörð 25. desember
1916. Hún andaðist á
Hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópavgi
19. janúar 2011.
Foreldrar hennar
voru Jón Johnsen, f.
26. janúar 1866, d. 30.
júní 1943, útvegsbóndi
á Suðureyri og Gróa
Indiðadóttir frá
Naustabrekku á
Rauðasandi, f. 13.
ágúst 1879, d. 11. október 1962. Systk-
ini Steinunnar voru Jóna Þórdís, f.
1900, d. 1973, Guðrún, f. 1902, d. 1987,
Þórarinn, f. 1904, d. 1973, Margrét, f.
1905, d. 2003, Marta, f. 1907, d. 1992,
Þorleifur, f. 1908, d. 1977, Kristinn, f.
1909, d. 1909, Þórður Jens, f. 1911, d.
1990, Kristín Lára, f. 1912, d. 1912,
Samúel, f. 1914, d. 1969, Einar, f. 1920,
d. 1999, Steinunn Finnbogadóttir, f.
1916, d. 1997. (Fósturdóttir).
Steinunn giftist 30. apríl 1941 Jó-
hanni L. Einarssyni, f. 24.10. 1904, d.
14.6. 1997. Þau eiguðust fimm börn en
það fyrsta fæddist andvana. Þau eru:
1) Svanhildur f. 24. júní 1945, börn
hennar eru: Hrafnhildur Hilm-
arsdóttir f. 1965, sambýlismaður
Hjörtur Hjartarson, dætur þeirra eru
Harpa Dögg og Sunna Ýr. Jóhann
Hilmarsson, f. 1971, eiginkona María
Halldórsdóttir, börn þeirra eru Amíra
Sól og Annel Máni.
Börn Maríu: Aníta og
Anton. Hjördís Hilm-
arsdóttir, f. 1976, sam-
býlismaður Ólafur Páll
Magnússon, sonur
þeirra er Daði Freyr.
2) Bryndís, f. 17. sept-
ember 1947, maki Þor-
geir Þorvaldsson. Börn
þeirra eru: Auður, f.
1975, sambýlismaður
Unnar Friðrik Pálsson,
synir þeirra eru Aron
og Arnar Páll. Ómar,
fæddur 1980. 3) Jón, f.
26. janúar 1952. 4) Jónína, f. 2 . nóv-
ember 1957. Maki Guðmundur Haf-
þór Valtýsson og er sonur þeirra
Fannar Þór, f. 1982, en tvær dætur
þeirra Dagmar Dögg og Dagný dóu
ungar.
Steinunn og Jóhann hófu sinn bú-
skap á Suðureyri við Tálknafjörð hjá
foreldrum Steinunnar en síðar
byggðu þau sér hús á Tálknafirði sem
nefnt var Sólheimar, þau bjuggu þar
þangað til flutt var í Kópavoginn
1967. Á Hlíðarveginum í Kópavogi
áttu þau sitt heimili þar til þau áttu
þess kost að njóta einstaklega góðrar
umönnunar starfsfólks á Hjúkr-
unarheimilinu Sunnuhlíð til dauða-
dags og vilja ættingjar þakka fyrir
það af alhug.
Útför Steinunnar fer fram í Kópa-
vogskirkju í dag, 28. janúar 2011, og
hefst athöfnin kl. 13.
Elsku mamma, nú er komið að
kveðjustundinni.
Við settumst niður systkinin til að
rifja upp minningar frá samverustund-
um okkar, sem eru margar. Það sem
fyrst kemur í hugann er umhyggja,
hjartahlýja og glaðværð.
Þú varst alltaf til staðar, það var svo
gott að koma í yndislegu kjötsúpuna
þína og pönnsurnar, að við tölum nú
ekki um bestu fiskibollur í heimi.
Notaleg minning þar sem þú sast
við prjónaskap, en það var mikið fram-
leitt af sokkum og vettlingum og nutu
allir í fjölskyldunni góðs af því.
Þið pabbi höfðuð yndi af því að
ferðast um landið okkar. Farnar voru
margar ferðir með Kirkjufélagi Digra-
nessóknar og á meðan pabbi starfaði
sem kirkjuvörður í Kópavogskirkju
unnuð þið saman að ýmsum störfum
fyrir kirkjuna.
Margar góðar stundir áttum við í
Sunnuhlíð þann tíma sem þú dvaldir
þar og hafðir þú sérstaklega gaman af
söng og harmónikuleik.
Við systkinin erum þakklát fyrir að
hafa átt saman mörg góð ár. Guð
geymi þig elsku mamma.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Kær kveðja,
Svana, Bryndís,
Jón (Nonni) og Jónína.
Elsku amma Steinunn er látin 94
ára að aldri. Við systkinin eigum
margar minningar um ömmu og allar
eru þær hlýjar og góðar. Amma Stein-
unn var þessi týpíska amma sem gerði
góðar pönnukökur, einstakar fiskiboll-
ur og svo gátum við alltaf treyst því að
kjötsúpan biði okkar á Hlíðarveginum
þegar við komum að norðan eftir langt
ferðalag.
Þegar við vorum krakkar var árviss
viðburður að hitta ömmu, afa og
Nonna í sumarbústöðum sem við tók-
um á leigu víðs vegar um landið. Þar
eyddum við saman einni viku og fórum
dagsferðir þar sem við skoðuðum okk-
ur um. Oftar en ekki var kíkt í gam-
aldags sveitahlaðborð eða við fundum
fallega laut þar sem við gæddum okk-
ur á heimasmurðu nesti. Þar sem við
bjuggum í öðrum landshluta en amma
og afi þá voru þessar bústaðaferðir
okkur dýrmætar samverustundir og
minnumst við þess að amma sat
löngum stundum við rúmstokkinn hjá
okkur eftir viðburðaríkan dag, raulaði
eitthvert lag og strauk litlar tásur þar
til við sofnuðum.
Síðustu níu ár ævi sinnar dvaldi
amma á hjúkrunarheimilinu Sunnu-
hlíð í Kópavogi og naut þar aðhlynn-
ingar fyrsta flokks starfsfólks. Síðustu
dagar hennar þar voru fallegir og frið-
sælir þar sem börn, barnabörn og
barnabarnabörn voru henni við hlið.
Við kveðjum ömmu með söknuði.
Minning hennar lifir.
Auður og Ómar.
Hugurinn leitar til Tálknafjarðar, út
á Suðureyri, ysta bæinn við sunnan-
verðan fjörðinn. Þar var á fyrri hluta
tuttugustu aldar lítið þorp þegar þar
var rekin hvalstöð. Síðan var þar hefð-
bundinn sveitabúskapur jafnframt því
að bræðurnir á bænum sóttu sjóinn,
drógu björg í bú, gerðu að fiskinum til
eigin nota eða lögðu hann inn í frysti-
húsið í Tunguþorpinu innar í firðinum.
Unna, eins og Steinunn Jónsdóttir,
móðursystir okkar, var jafnan kölluð,
ólst upp á Suðureyri yngst í stórum
systkinahópi, barna Jóns Johnsen,
bónda og Gróu Indriðadóttur hús-
freyju. Með láti hennar eru þau öll fall-
in frá. Fjölskylduna einkenndi alla tíð
einstök hjartahlýja, umhyggjusemi og
glaðværð. Því kynntumst við vel þegar
við komum vestur sem börn. Síðari ár-
in hafa reglulega verið haldin ættar-
mót á Suðureyri þar sem mætt hafa
um og yfir 300 manns hvert sinn. Mak-
ar okkar, Kristján og Anna, börnin
okkar og barnabörn hafa þar kynnst
viðmótinu sem einkennir þetta ágæta
fólk.
Unna og Jói, Jóhann Einarsson
maðurinn hennar, hófu búskap í hús-
inu á Suðureyri en fluttu fljótlega í
Tunguþorpið þar sem þau ólu upp
börnin sín þrjú, Svanhildi, Bryndísi og
Jón. Jói rak lengi verslun í Tungu-
þorpinu. Síðari hluta ævinnar bjuggu
þau Unna og Jói sér fallegt heimili í
Kópavogi en hann féll frá fyrir nokkr-
um árum.
Það var einlægnin og hjartahlýjan
sem einkenndi Unnu. Það var svo
notalegt að vera í hennar félagsskap
og einstök upplifun að fylgjast með
þegar systurnar hittust tvær eða fleiri
saman. Elskulegheitin voru næstum
yfirþyrmandi. Það var mikill systra-
svipur með Margréti móður okkar og
Unnu og þær voru svo líkar í hátt að
okkur fannst stundum að mamma
væri komin þegar við hittum Unnu.
Strákurinn, sem undir þetta ritar,
man vel þegar hann kom á heimili
hennar á leið til sumardvalar á Suður-
eyri 1954, fyrsta ferðin einn að heiman,
þess vegna dálítið lítill í sér. Að koma
til Unnu var eins og að koma heim.
Stelpan man innileg faðmlög þar sem
Unna sýndi væntumþykju sína með
því að leggja lófana á vanga hennar og
strjúka blítt. Það var gjarnan þannig
sem Unna heilsaði sínu fólki. Það hlut-
verk Unnu í lífinu var að vera eigin-
kona, móðir og amma. Hún sýndi öll-
um vinarþel og lét gott af sér leiða.
Líklega hafa systurnar Jóna, Rúna,
Magga, Marta og Steina, svo og bræð-
urnir Dóri, Doddi, Leifi, Sammi og
Einar beðið með óþreyju eftir henni
hinu megin, jafnvel haft á orði hvað
hún væri eiginlega að slóra.
Fjölskyldur okkar senda Svanhildi,
Bryndísi, Jóni og fjölskyldum þeirra
innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Steinunnar Jónsdóttur.
Kristín og William.
Kveðjuorð til góðrar konu og
frænku.
Steinunn Jónsdóttir eða Unna eins
og hún var kölluð var afasystir mín í
móðurætt. Foreldrar hennar bjuggu á
Suðureyri í Tálknafirði og þar ólst hún
upp í stórum og glöðum systkinahópi
en hún var næstyngst þeirra. Þau áttu
góða og ástríka foreldra og voru líka
samheldin öll og það mátti læra margt
af þeim. Eftir að Unna flutti í Kópavog
kom ég oft til þeirra með mömmu og
pabba. Síðar kom ég þar líka ein og
hún tók alltaf svo vel á móti mér með
hlýju faðmlagi. Hún eldaði stundum
kjötsúpu og bauð mér að borða en það
er uppáhaldsmaturinn minn. Þá voru
líka svo góðar kökurnar sem hún bak-
aði, vanilluhringir, loftkökur og margt
fleira. Hún sýndi mér oft myndir að
vestan og af börnum og barnabörnum.
Síðustu árin dvaldi hún í Sunnuhlíð í
Kópavogi og þar kom ég líka til henn-
ar. Árið 2008 vorum við nokkrar
frænkur sem kölluðum saman allar
konurnar í fjölskyldunum frá Suður-
eyri, bæði eldri og yngri. Við hittumst í
notalegum sal í Sunnuhlíð þar sem
Unna gat verið með okkur. Það var
yndislegur dagur sem ég mun alltaf
muna og líka allar stundirnar sem ég
átti með Unnu frænku minni. Hún var
alltaf hress og ánægð þegar hún fékk
gesti, alltaf svo hlý og góð.
Elsku Unna mín, takk fyrir allt og
Guð geymi þig. Guð veri með fjöl-
skyldunni þinni, ég votta henni mína
dýpstu samúð.
Kær kveðja,
Guðrún Lára Pálsdóttir.
Elskuleg föðursystir mín, Steinunn
Jónsdóttir, hefir nú kvatt okkur að
sinni, sú síðasta af þeim systkinunum
frá Suðureyri í Tálknafirði. Suðureyri,
amma og afi, föðursystkinin öll og fjöl-
skyldurnar þeirra, þetta er svo sam-
ofið bernsku minni og æsku því þarna
fékk ég að búa ásamt foreldrum mín-
um og sjö systkinum til 14 ára aldurs.
Suðureyri var útvegsbændajörð,
reyndar um margar aldir, allt til ársins
1968. Hvort sem þar voru tveir eða
þrír í heimili í húsunum tveimur er þar
stóðu skipti ekki máli, í mínu minni var
þetta sem eitt heimili og allir hjálp-
uðust að bæði til sjós og lands, úti og
inni. Þar voru líka gömul og góð gildi í
hávegum höfð og hverjum og einum
gott veganesti út í lífið. Föðursystkini
mín fóru að heiman og eignuðust sín
eigin heimili. Hvar sem þau voru átt-
um við systkinin hjá þeim skjól og vísa
aðstoð ef á þurfti að halda. Fyrir það
viljum við þakka. Með hverjum og ein-
um sem kveður fer líka örlítið brot af
manns eigin lífi því það er ekki lengur
hægt að spjalla og spyrja. En minn-
ingarnar eigum við þó eftir og ég bið
Guð að blessa minningu þeirra allra.
Jóhann, maðurinn hennar Unnu
frænku, var líka frændi því hann var
móðurbróðir minn og við systkinin
kölluðum hann frænda. Ég man aðeins
eftir heimili þeirra á Suðureyri, svo
byggðu þau Sólheima inni í þorpinu og
frændi útbjó fallegan garð við húsið
þeirra. Seinna fluttum við svo líka inn í
þorpið og var þá mikill samgangur
milli heimilanna. Nokkru eftir að þau
settust að í Kópavogi lá leið mín þang-
að líka og var ég þá svo lánsöm að búa
með minni fjölskyldu í nágrenni við
þau. Þá var gott að leita til þeirra,
börnin okkar Páls voru stundum hjá
þeim og Unna kom líka heim til okkar
og gætti þeirra fyrir okkur. Hún hafði
einstakt lag á að taka þannig á móti
fólki að hverjum og einum hlaut að
finnast hann sérstakur gestur og tím-
inn leið fljótt þar við spjall og sögur,
oft um ferðir okkar vestur að Suður-
eyri og veru okkar þar á sumrin. Þá
var líka gaman að hringja í hana þaðan
úr bílasíma eða farsíma eftir að það
varð hægt en þá vildi hún aldrei tala
mjög lengi því það væri nú svo dýrt. Í
Sunnuhlíð kom ég líka til hennar, við
gátum endalaust rifjað upp allt að
vestan um fólkið okkar þar og um
helstu viðburði í fjölskyldunum. Nú
síðast í nóvember sagði hún við mig við
slíkt tækifæri, „mikið ertu nú búin að
segja mér margt fallegt“.
Á Suðureyri höldum við fjölskyld-
urnar þaðan ættarmót á fimm ára
fresti. Ég held að það sé mikilvægt til
að halda við þessum sterku tengslum,
skila áfram til þeirra yngri arfinum
þaðan og efla samkennd.Við systurn-
ar, Þórarinsdætur, og fjölskyldur okk-
ar systkinanna minnumst elsku Unnu
með virðingu og þökk og biðjum Guð
að geyma hana. Elskulegu frænd-
systkin, Svana, Bryndís, Jón, Jónína
og fjölskyldur, innilegar samúðar-
kveðjur til ykkar allra frá okkur.
Kristín Lára Þórarinsdóttir.
Steinunn Jónsdóttir
✝
Okkar ástkæra systir, mágkona og frænka,
GUÐRÚN JOHNSON,
Morristown,
New Jersey,
er látin.
Minningarathöfn í Reykjavík verður auglýst síðar.
Thor Ólafur Johnson, Nikki Johnson,
Pétur P. Johnson, Sigurborg Sigurbjarnadóttir,
Christian, Tor Nicholas og Margrét Halla.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
SIGURLAUG JÓHANNSDÓTTIR,
Safamýri 42,
Reykjavík,
sem andaðist mánudaginn 17. janúar, verður jarð-
sungin frá Seljakirkju í dag, föstudaginn 28. janúar,
og hefst athöfnin kl. 13.00.
Jóhann Hjartarson, Jónína Ingvadóttir,
Hjörtur Ingvi Jóhannsson,
Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
HELGU ÞORSTEINSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 3. hæðar
á sjúkradeild Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir
umönnun síðustu ára.
Arthur Stefánsson,
Áslaug Arthursdóttir, Oddgeir Þór Árnason,
Nanna Arthursdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Þorsteinn Arthursson, Guðrún Petra Guðnadóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og
útför systur okkar,
MARÍU SVEINSDÓTTUR
frá Tjörn
á Skaga.
Systkinin frá Tjörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
bróðir og tengdasonur,
BJÖRN BJÖRNSSON,
Holtagerði 13,
Kópavogi,
sem lést laugardaginn 22. janúar, verður jarðsung-
inn frá Digraneskirkju miðvikudaginn 2. febrúar
kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu Landspítalans,
s. 543 1159, eða Krabbameinsfélag Íslands.
Anna G. Egilsdóttir,
Elísabet Björnsdóttir,
Eva Björnsdóttir,
Jóhanna María Björnsdóttir, Hlynur Jónsson,
Jóhanna María Björnsdóttir,
Jón Björn Vilhjálmsson, Margrét Elimarsdóttir,
Ásta Björnsdóttir,
Ólafur Björnsson, Rósa Ingvarsdóttir,
Elísabet Gunnlaugsdóttir, Egill Guðmundsson.