Morgunblaðið - 28.01.2011, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2011
✝ Guðmundur Sig-urjónsson, fædd-
ist 10. desember
1928. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
Eir 18. janúar 2011.
Foreldrar Guð-
mundar voru hjónin
Sigurjón Árni Ólafs-
son alþingismaður, f.
29.10.1884, d. 15.4.
1954, og Guðlaug
Gísladóttir hús-
móðir, f. 26.9. 1892,
d. 5.11. 1951 og
eignuðust þau 13
börn. Eftirlifandi systkini Guð-
mundar eru: Baldur Sig-
urjónsson, Sigríður Sigurjóns-
dóttir og Jóhanna
Sigurjónsdóttir.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
berg Oddsson, f. 20.2. 1966, þau
eiga tvö börn, Önnu Katrínu, f.
25.10. 1993, og Odd, f. 27.10.
1998. Bróðursonur Guðmundar,
Atli Már Atlason, bjó hjá fjöl-
skyldunni í nokkur ár. Fyrir
hjónaband Guðmundar og Eygló-
ar átti hún tvær dætur, Jarþrúði
og Gróu.
Guðmundur ólst upp í Vest-
urbæ Reykjavíkur hjá foreldrum
sínum og systkinum. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Reykjaskóla
í Hrútafirði. Guðmundur starfaði
frá átján ára aldri við sjó-
mennsku hjá Eimskipafélagi Ís-
lands. Eftir að hann kom í land
árið 1967 starfaði hann sem
verkstjóri hjá Eimskip til 65 ára
aldurs. Guðmundur ferðaðist
mikið um Ísland með fjölskyldu
sinni og vinum og hafði mikið
dálæti á náttúru landsins. Eftir
hann liggja óteljandi myndir frá
þeim ferðalögum.
Útför Guðmundar verður gerð
frá Bústaðakirkju í dag, 28. jan-
úar 2011, og hefst athöfnin kl.
15.
mundar er Eygló Ol-
sen, f. 14.1. 1932 en
þau giftust 4.7. 1964.
Þau áttu saman tvær
dætur, Valgerði
Önnu, f. 23.4. 1964,
og Mörtu Elísabetu,
f. 13.4. 1967. Maki
Valgerðar er Stein-
þór Óskarsson, f.
2.4. 1952, og eiga
þau tvö börn Guð-
mund, f. 27.5. 1985,
og Unni Ósk, f. 10.9.
1990. Sambýliskona
Guðmundar er Guð-
rún Anna Lúðvíksdóttir, f. 8.6.
1989, og eiga þau tvo syni, Aron
Leó, f. 27.5. 2009, og Alex Leví, f.
20.9. 2010. Unnusti Unnar Óskar
er Bjarki Már Elísson, f. 16.5.
1990. Maki Mörtu er Þórður Vil-
Í dag kveðjum við þig, kæri pabbi
okkar. Það er mjög sárt og erfitt. Þú
kenndir okkur ýmislegt sem við er-
um þakklátar fyrir en viljum þó sér-
staklega þakka þér fyrir að kenna
okkur að njóta landsins okkar, úti-
veru og ferðalaga. Þú varst mikill
áhugamaður um íslenska náttúru og
öll sumur ferðuðumst við um landið
okkar. Það var alltaf mikið tilhlökk-
unarefni að komast í „ferðalagið“
sem við fórum í á hverju ári. Fyrst í
stað fórum við eftir þjóðveginum og
margar ferðir voru farnar að Hæð-
argarðsvatni við Kirkjubæjarklaust-
ur. Þar tjölduðum við niður við vatn-
ið og veiddum silung, en þú hafðir
mjög gaman af stangveiði og smit-
aðir okkur af þeim áhuga. Við vorum
ekki gamlar þegar við eignuðumst
okkar fyrstu veiðistangir. Við mun-
um líka vel eftir okkur í Hallorms-
staðarskógi og Vaglaskógi, þar sem
tálgaðir voru stafir og þú kenndir
okkur að beita hnífnum rétt, svo ekki
væri hætta á að við meiddum okkur.
Svo var það Akureyri, en þangað fór-
um við mjög oft, ef ekki á hverju ári.
Það var alltaf uppáhaldsstaðurinn
okkar og er enn í dag. Seinna eign-
aðist þú jeppa og þá lá leiðin upp á
hálendi landsins. Herðubreiðarlind-
ir, Drekagil, Askja, Gæsavatnaleið,
Nýi-Dalur, Syðra-Fjallabak, Eldgjá
og svo margir, margir aðrir, allt sam-
an staðir sem minna okkur á þig þeg-
ar við heyrum þá nefnda. Við komum
þar og oftar en einu sinni á suma
staðina. Margar gönguferðir voru
farnar í ferðunum og þá þýddi ekkert
að kvarta. Upp á topp var ferðinni
heitið, maður klárar það sem maður
byrjar á, gefst ekki upp á miðri leið.
Gott veganesti inn í framtíðina þar.
Þú barst virðingu fyrir landinu og
því sem það hafði upp á að bjóða og
kenndir okkur að ganga vel um við-
kvæma náttúruna. Þú varst skipu-
lagður og vandvirkur, hver hlutur
átti sinn stað. Þú kenndir okkur líka
að ganga vel um eigur okkar og
kannski ekki síst að meta það sem
maður á.
Elsku pabbi, þakka þér fyrir sam-
fylgdina, þú munt alltaf eiga stað í
hjörtum okkar. Hvíldu í friði.
Valgerður og Marta.
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast tengdaföður míns, Guð-
mundar Sigurjónssonar. Strax við
fyrstu kynni tókst með okkur góður
vinskapur sem varði alla tíð. Við átt-
um margar góðar samverustundir
þar sem við ræddum um fótbolta,
sjómennsku, ferðalög, stjórnmál og
ýmislegt fleira. Guðmundur var ljúf-
menni og góður vinur, alltaf tilbúinn
að hjálpa ef á þurfti að halda.
Takk fyrir samfylgdina, kæri
tengdapabbi.
Kveðja,
Steinþór.
Mig langar í fáum orðum að minn-
ast tengdaföður míns Guðmundar
Sigurjónssonar. Ég hitti hann fyrst
fyrir um 23 árum þegar ég kynntist
Mörtu Elísabetu dóttur hans. Ég
man að mér fannst Guðmundur mjög
rólyndur maður og þægilegur að um-
gangast. Þegar hann hafði skoðanir á
hlutunum var hann hins vegar ekk-
ert að liggja á þeim og sagði sem
honum fannst. Í því sambandi er mér
einna minnisstæðast þegar hann var
að aðstoða mig við málningarvinnu í
íbúð sem við Marta vorum nýbúin að
kaupa. Íbúðin var að sjálfsögðu mál-
uð og litirnir vandlega valdir. Eitt
herbergið höfðum við í grænum lit
og þegar Guðmundur rúllaði vegginn
sagði hann ákveðið við mig; „and-
skoti er þetta ljótur litur“. Engu að
síður hélt hann áfram og hjálpaði
smekklausum tengdasyninum að
mála.
Ég komst fljótt að því hversu mjög
Guðmundur hafði gaman af því að
ferðast um landið, en sögum af ferða-
lögum og minjagripum úr þeim
kynntist ég fljótt. Þegar ég kom
fyrst upp á háaloft í Hólmgarðinum,
stuttu eftir að ég kynntist Mörtu,
varð ég í orðsins fyllstu merkingu
steinhissa. Þar blasti við mér þvílíkt
steinasafn að annað eins hef ég ekki
séð í heimahúsi. Þótt mér þætti
þetta skrítið þá lærði ég með tím-
anum, þegar ég kynntist Guðmundi
betur, að skilja þetta og meta. Við
Marta fórum í margar útilegurnar
með Guðmundi og Eygló og þar á
meðal var mín fyrsta ferð um Vest-
firðina. Guðmundur virtist þar
þekkja sig alls staðar vel enda átti
hann sjálfur ættir að rekja á Rauða-
sand. Í þeim túr sá ég hann nota
golfkylfu í fyrsta og líklega eina
skiptið svo ég viti til.
Ógleymanleg eru myndakvöldin í
Hólmgarðinum þar sem hundruðum
slides-mynda var kastað á tjald og
sögustaðir, fjöll og dalir tilgreind.
Myndirnar náðu yfir mörg ár og því
oft gaman að skoða. Reyndar hafði
þó einstaka mynd af landslagi og
fjalli eðlilega meiri merkingu fyrir
Guðmund en aðra, þar sem hann tók
myndirnar í flestum tilfellum sjálf-
ur.
Eins og margir vita var systkina-
hópur Guðmundar og afkomendur
þeirra mjög stór. Ég held að þeim
hópi hafi ég kynnst fyrst á fjölmennu
ættarmóti sem haldið var í Loga-
landi fyrir um 20 árum. Sá hópur
hefur væntanlega stækkað mikið
síðan.
Okkur tengdapabba kom alltaf vel
saman og þegar ég lít til baka man
ég ekki eftir því að okkur hafi nokk-
urn tíma orðið sundurorða, en eins
og áður segir var hann rólyndur þótt
skoðanir hans væru skýrar. Það hef-
ur því oft verið erfitt síðustu ár að
fylgjast með því hversu mikið Park-
insonsveikin hafði áhrif á hann og
dró úr honum. Þrátt fyrir það er
óhætt að segja að lengi vel hafi hug-
urinn ávallt verið langt á undan þótt
skrokkurinn hafi ekki hlýtt.
Megi Guðmundur hvíla í friði og
minning um góðan mann lifa áfram.
Þórður Vilberg Oddsson.
Guðmundur
Sigurjónsson
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Labrador Retriever svartir
Erum orðnir 6 mánaða og húsvanir.
Ættbókarfærðir HRFÍ. Sprautaðir.
Örmerktir. Nótt á kr. 190 þús. og
Mökkur og Nóri á kr. 160 þús.
Uppl. í síma 695 9597 og 482 4010.
MAX er týndur
Bröndóttur norskur skógarköttur hvarf
að heiman þann 19. des. sl. úr Smá-
íbúðahverfinu í Reykjavík.
Vinsaml. látið vita í síma 696 8380 ef
þið vitið hvar hann er.
Ferðalög
Gisting
Þú átt skilið að komast í hvíld!
Í Minniborgum bjóðum við upp á
ódýra gistingu í notalegum frístunda-
húsum. Þú færð 3 nætur á verði 2.
Fyrirtækjahópar, óvissuhópar,
ættarmót. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Hestar
Fullþurrkað gæðarúlluhey til sölu
eða í skiptum fyrir smíðavinnu, bíl,
vinnutæki eða annað. Verð pr. rúllu
7000 kr. heimkomið á höfuðborgar-
svæðinu. Uppl. í síma 892 4811.
Tómstundir
Plastmódel í miklu úrvali
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Til sölu
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar í
úrvali. Auk gullhringa eigum við m.a.
titanium og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar-
þjónusta.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Nýr Freemans-listi
Nýi vor- og sumarlisti Freemans er
kominn. Sjaldan verið glæsilegri.
Pantið listann í síma 565-3900 eða á
www.freemans.is
Hagstæður verslunarmáti.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofan ehf. Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Ýmislegt
Flísgallar, Bómullargallar,
Velúrgallar. Stærðir S-XXL
Meyjarnar, Austurveri
sími 553 3305
Bílar
Nýr Subaru Legacy 2,0 Sport B4
Sjálfskiptur. 17” álfelgur. Xenon ljós.
6 diska CD. Tölvustýrð miðstöð. Ofl.
Langt undir listaverði aðeins
4.990.þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344
Opið 12-18 virka daga
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar,
gler og gluggaskipti.
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Byssur
SJÓFUGLASKOT ISLANDIA
34 gr, 36 gr og 42 gr sjófuglaskotin
komin. Topp gæði - botn verð. Send-
um um allt land. Sportvörugerðin,
sími 660-8383. www.sportveidi.is
SKODA OCTAVIA
Árgerð 2000, ekinn 149 þ.
km,BENSÍN, 5 gírar. Verð 520.000.
Rnr.240080.
Planið bílasala
www.planid.is
517-0000
TOYOTA PRIUS HYBRID.
Árgerð 2006, ekinn 133 þ.km, Bensín,
sjálfskiptur. Verð 1.990.000. Rnr
240050
Planið bílasala
www.planid.is
517-0000