Morgunblaðið - 28.01.2011, Side 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2011
Ógild kosning,
ábyrgð og lausn
Með þessum skrifum
er ég ekki að gera lít-
ið úr niðurstöðum
Hæstaréttar.
Með tilvísun til
laga um alþingiskosn-
ingar í lögum um
stjórnlagaþing í stað
þess að setja þar inn
ákvæði um hvernig
umrædd kosning
skyldi fara fram var
Akkilesarhællinn á
frumvarpinu. Alþingi
ber auðvitað ábyrgð á
því, ekki bara þeir
sem lögðu fram frumvarpið og sam-
þykktu, heldur líka þeir sem raus-
uðu um óvandaðan undirbúning án
þess að benda á augljósa galla. Ég
lít svo á að allir alþingismenn séu í
vinnu hjá þjóðinni og þeim beri
skylda til að reyna að sníða van-
kanta af stjórnarfrumvörpum þótt
þeir séu þeim ekki fylgjandi. Kjör-
stjórn, sem kosin er af Alþingi, er
falið að framkvæma hið ómögulega,
að fara að lögum um alþingiskosn-
ingar við undirbúning kosninganna.
Aftur berast böndin að Alþingi þótt
einhverjir kjósi að sakfella kjör-
stjórnina.
Þar sem stjórnlaga-
þing er aðeins ráðgef-
andi þykir mér vega
þungt í þessu máli
málstaður þeirra, sem
buðu sig fram og
þeirra, sem kusu. Sér-
staklega vegna þess
að ekkert hefur komið
fram um að ágallar
við framkvæmd hafi
haft áhrif á úrslit
kosninganna. Það að
setja lög um að Al-
þingi skipi fulltrúa þá
sem kosnir voru í
þessari tæknilega
gölluðu kosningu til
setu á stjórnlagaþingi
er að mínu mati sanngjörn lausn
gagnvart þessum hópum, auk þess
að spara peninga.
Ég fyrir mitt leyti kem ekki auga
á að endurtekin kosning skili okkur
betra stjórnlagaþingi.
Hafi einhver gert sér grein fyrir
gallanum á stjórnlagaþings-
frumvarpinu án þess að benda á
hann er það skemmdarverk af
versta tagi.
Þórhallur Hróðmarsson.
Ást er…
… að gleðja elskuna þína
Velvakandi
Aflagrandi 40 | Kristín Jónsd. fjallar
um Völuspá ef þátttaka fæst. Skráning í
s. 891-8839 eða kristinj@mr.is. Einnig er
hægt að skrá sig á Aflagranda s. 411-
2702. Vinnustofa kl. 9, bingó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíðastofa kl. 9. Bingó kl.
13.30.
Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
stólajóga kl. 10.45.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Opið
hús í Gjábakka 29. jan. kl. 14. Minn-
ingabrot Hrafns A. Harðars. bæjarbókav.
Leikið á sög og harmonikku. Veitingar í
boði félagsins. Leshópur í Gullsmára 1.
febr. kl. 20. Stefán Friðbjarnarson segir
frá ævi Steins Steinarr og lesin áður ób-
irt frásögn um hann.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fær-
eyinga saga námskeið kl. 13. Dansleikur
sun. kl. 20. Klassík leikur.
Félagsheimilið Boðinn | Samverustund
með prestum Kópavogssóknar kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30 og kl. 13, málm- og silfursmíði kl.
9.30/13, jóga kl. 10.50, kóræfing kl. 17.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10,
leikfimi kl. 10.30. Gleðigjafarnir syngja
kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 9.15 og 12.10,
málun kl. 10, leðurs./félagsv. kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, m.a. bókband. Prjónakaffi kl. 10,
stafganga kl. 10.3. Spilasalur opinn. Kór-
æfing kl. 16.30 (ath. breyttur tími).
Þriðjud. 1. febr. postulínsnámskeið. Fim.
3. febr. leikhúsferð, skrán. á staðnum og
s. 5757720.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Á föstudögum er brids-aðstoð kl. 13.
Hraunbær 105 | Bingó kl. 13.30.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl.
11.30, brids kl. 12.30, biljardstofa og
pílukast alla virka daga kl. 9.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30
og 10.30. Opin vinnustofa kl. 9 án leið-
beinanda. Námskeið í myndlist kl. 13.
Þorrablót, hús opnað kl. 18, nem. frá
Dansskóla Jóns Péturs og Köru sýna,
Ingvar, Rúna og Valdi leika fyrir dansi.
Hæðargarður 31 | Í dag kl. 14.30 flytur
Trausti Ólafsson erindi um leikr. Nýárs-
nóttina e. Indriða Einarsson. Gestur kl.
10 á mán. er Steinunn Harðardóttir út-
varpsmaður. Tölvuleiðb. alla mán. kl.
13.15.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, opið hús,
spil vist/brids kl. 13.
Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður
kl. 9. Bingó kl. 14.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/
kortagerð kl. 9, enska kl. 11.30. Tölvu-
kennsla kl. 13.30. Sungið v/flygilinn kl.
14.30. Dansað í aðalsal.
Vesturgata 7 | Föstud. 4. feb. kl. 17.
Veislustjóri Níels Árni Lund. Sigurgeir v/
flygilinn þorrahlaðborð. Karlakórinn KKK
Trúðurinn Wally skemmtir. Fjöldasöngur,
happdrætti. Sighvatur Sveinsson leikur
fyrir dansi. Uppl. og skrán. í s. 535-
2740.
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG
VILDI AÐ ÉG
HEFÐI NOTIÐ
DAGSINS
ÉG VEIT AÐ KENNARARNIR
HAFA LAGT MIKLA VINNU Í
AÐ UNDIRBÚA NÁMSEFNIÐ
OKKAR OG KENNSLUNA
ALMENNT
ÉG VEIT LÍKA AÐ
HÚSVERÐIRNIR OG
FORELDRAFÉLAGIÐ HAFA LAGT
SITT AÐ MÖRKUM. ÉG VILDI AÐ
ÉG VÆRI ÁNÆGÐ MEÐ DAGINN
EN ÉG ER ÞAÐ
EKKI!
VIÐ
ERUM ALVEG
HÆTT AÐ TALA
SAMAN...
VIÐ
ERUM BÚIN AÐ
TALA UM ALLT ÞAÐ
SEM HÆGT ER AÐ
TALA UM
ÞAÐ
KEMUR
MÁLINU
EKKERT
VIÐ!!!
HVAÐ
KOSTA
ÞESSI
NÝJU
BLEKHYLKI
MIKIÐ?
RAFHLÖÐUR
MÉR FINNST
FRÁBÆRT AÐ ÞÚ SKULIR
VERA AÐ REYNA AÐ HJÁLPA
FÓLKI AÐ FÁ VINNU
ÞAÐ ÞÝÐIR
EKKERT AÐ
GEFAST UPP!
LÍFIÐ ER
FULLT AF
TÆKIFÆRUM!
ÞAÐ
EINA SEM VIÐ
ÞURFUM AÐ
GERA ER AÐ
TAKA STJÓRN Á
EIGIN LÍFI!
HVAÐ
VANNSTU
ANNARS VIÐ
ÁÐUR?
ÉG
VANN HJÁ
FYRIRTÆKI SEM
GEFUR ÚT SJÁLFS-
HJÁLPARBÆKUR
VIÐ
SJÁUMST
SÍÐAR
WOLVERINE
JÁ,
VONANDI
SJÁUMST VIÐ
AFTUR
HVAÐ ER
ÞETTA
ANNARS?
ÞETTA
ER LUKKU-
GRIPUR
ÞETTA
VAR PARTUR
AF ARMI
DR.OCTOPUS
FLESTIR
FERÐAMENN
LÁTA SÉR DUGA
LITLA FRELSIS-
STYTTU
HANN VERÐUR AÐ VERA
NÁKVÆMARI, ÞAÐ ER SVO MARGT
SEM KEMUR TIL GREINA
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Heilræðavísur Hallgríms Pét-urssonar hafa fylgt þjóðinni
um aldir og staðist vel tímans
tönn. Það kunna allir:
Víst ávallt þeim vana halt:
vinna, lesa, iðja,
umfram allt þó ætíð skalt
elska guð og biðja.
Flosi Ólafsson sneri út úr þess-
ari vísu með skemmtilegum hætti í
auglýsingu:
Víst ávallt þeim vana halt;
vera hress og drekka Malt.
Þegar hann var gagnrýndur
fyrir uppátækið leyfði hann vís-
unni að halda sér – með örlítilli
viðbót:
Víst ávallt þeim vana halt:
vinna, lesa, iðja,
umfram allt þó ætíð skalt
elska guð og biðja – um Malt.
„Fólk borgar fyrir heilun sem
fer fram úr fjarlægð.“ Þannig
hljóðaði frétt sem Einar Georg
Einarsson las og varð tilefni
eftirfarandi orða: „Það eru
Kærleikssamtökin sem bjóða upp
á fjarheilun á Facebook. Þetta
hljóta að teljast góð tíðindi því
það er læknaskortur í landinu.
Er heilsan bregst og kúgar oss og
kvelur
kærleikann á Feisbók margur velur
og einlæglega opnar hjartað þá
og alveg hiklaust segist treysta á
þig, sem í fjarlægð fjöllin bak við
dvelur.
Næst sjáum við fyrir okkur rík-
mannlegan heitan pott í grænu
rjóðri:
Allsnakin upp’ í keri
Alvilda skautið néri
og hrópaði hátt
upp í heiðloftið blátt
it’s a long way to Tippareri.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Hallgrími og heilræðavísum