Morgunblaðið - 28.01.2011, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2011
Hugsjórinn hennar Heiðu
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„Ég er í stórkostlegum gír,“ segir Heiða óða-
mála og eldhress er blaðamaður slær á hana.
„Ég er að búa mig undir það að stíga upp
frá bókum, ég er að klára masterinn í heim-
speki um þessar mundir. Ég hef ekkert kom-
ist í það að opna pakkana mína (afmælið var
á þriðjudaginn) og hér eru fínir skartgripir,
gott rauðvín og fleira skemmtilegt.“
Afmælinu verður svo fagnað með glæsi-
brag miklum á Bakkus í kvöld, um leið og
leik Íslands og Króatíu er lokið. Hellvar, sveit
Heiðu og Elvars manns hennar, spilar en á
undan ætlar Elana, stúlka sem Heiða kynnt-
ist í New York, að spila. Hellvar mun m.a.
leika lög af væntanlegri plötu, Stop That
Noise, sem kemur út von bráðar á vegum
Kimi records.
„Við ætlum að hefja þetta snemma, við
nennum engu djammi langt fram eftir nóttu,“
heldur Heiða áfram
„Við spilum eitthvað af fyrri plötunni okkar
líka og ef ég verð í einhverju ofurmyljandi
stuði getur vel verið að Heiða trúbadúr troði
upp líka.“
Heiða byrjaði að semja lög sextán ára og
hóf sinn tónlistarferil sem trúbadúr áður en
Dr. Gunni réð hana sem söngkonu í Unun.
„Ég á ógrynni af efni sem Heiða trúbadúr,
bæði niðurskrifað og af kassettum,“ segir
hún. „Ég lærði síðan óskaplega mikið af því
að fara í þennan Ununarpakka. Ég var að
spila með mjög kláru fólki og lærdómurinn
allur þrýstist hratt og vel inn í mig. Þetta var
ótrúlega lærdómsríkt. Svo þegar ég gerði
sólóplötuna mína árið 2000 fannst mér eins
og ég hefði verið í fimm eða sex ára námi. Ég
hafði lært að semja betri lög, leika mér með
formið og bara þróa mig áfram. T.d. á þessari
nýjustu plötu finnst mér eins og það hafi tek-
ist einkar vel að blanda lifandi hljómi við staf-
rænan, mér finnst eins og það hafi náðst að
fanga það besta úr hvorutveggja.“
Merkingarþrungið
Blaðamaður spyr titrandi röddu hvernig
það sé nú að vera orðinn fertugur, enda stytt-
ist í slíkt hjá honum sjálfum. „Þetta er merk-
ingarþrunginn aldur,“ segir Heiða hugsi.
„Það virðist vera í lagi að verða 30 eða 50 en
þessi aldur þykir fremur óspennandi. Kvöldið
áður var ég bæði glöð og spennt en líka hálf-
kvíðin. Myndi ég vakna daginn eftir orðin
miðaldra í hugsun? Svo vaknaði ég og við fór-
um upp í útvarp að spila, í grímubúningapartí
og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta var auð-
vitað gersamlega eins og önnur afmæli. Aldur
er auðvitað afstæður. Ég held að ef þú nærð
að halda þokkalegri heilsu, ert í þokkalegu
formi og hefur ennþá drifkraft til að gera
eitthvað, framkvæma eitthvað, skapa eitthvað
þá skipti aldurinn engu máli.“
Ragnheiður Eiríksdóttir, Heiða, fagnar fer-
tugsafmæli á Bakkus með tónleikum í kvöld
Ljósmynd/Markus Moises
Gella Heiða í ham á síðustu Airwaves-hátíð.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Verið er að leggja lokahönd á
handrit að kvikmyndinni Svartur á
leik og eiga tökur á henni að hefj-
ast í byrjun mars. Leikstjóri og
handritshöfundur myndarinnar er
Óskar Þór Axelsson en hann á
m.a. að baki stuttmyndina Misty
Mountain auk þess að hafa séð um
kvikmyndatöku í Eddu-verðlauna-
stuttmyndinni Karamellumyndin.
Svartur á leik er byggð á sam-
nefndri skáldsögu Stefáns Mána
frá árinu 2004. Zik Zak kvikmynd-
ir og Filmus festu kaup á kvik-
myndaréttinum að skáldsögunni í
apríl 2005 og má því segja að
kvikmyndin hafi verið lengi á leið-
inni. Blaðamaður ræddi við Stefán
Mána í vikunni um gang mála.
Ris undirheimanna
„Bókin er stór og flókin og ger-
ist á mörgum ólíkum tímaskeiðum
og þannig, myndin verður einfald-
ari eins og gefur að skilja. Annan
þráðinn er þetta upphaf og saga
íslenskra undirheima, frá því þeir
byrjuðu að mótast, verða til og
fram til dagsins í dag, það nátt-
úrlega sér ekkert fyrir endann á
þessu. Þetta er um uppganginn í
undirheimunum sem ég tengi við
raunverulega atburði, nokkur
bankarán, stór fíkniefnasmyglmál
og við þekktar persónur undir rós,
þetta er nú ekki lykilbók,“ segir
Stefán Máni. Það megi segja að
bókin fjalli um ris en ekki svo
mikið fall íslenskra undirheima
annars vegar og hins vegar Stef-
án, sveitastrák sem komi til borg-
arinnar og flækist í undirheimana,
hvernig honum reiði af persónu-
lega. Sveitastrákinn Stefán leikur
Þorvaldur Davíð Kristjánsson en í
öðrum helstu hlutverkum verða
Jóhannes Haukur Jóhannesson og
María Birta Bjarnadóttir. Stefán
segir óhemjumörg hlutverk í kvik-
myndinni en fyrrnefndir leikarar
fari með aðalhlutverkin.
– Þetta verður s.s. mikill glæ-
patryllir?
„Já, já, þetta er kraftmikið
handrit, hratt og spennandi. Það
sem ég gerði mikið, þegar ég valdi
nokkra þekkta glæpi úr samtím-
anum og nokkra óupplýsta a.m.k.
á þeim tíma, tvö bankarán, var að
glæða þetta lífi. Ég framdi þessa
glæpi í verkinu, bætti inn per-
sónum og lét þetta gerast og
myndin er þannig, svona bíómynd-
arútgáfa af raunverulegum at-
burðum, uppdiktaðar persónur
fremja þessa glæpi.“
Afmeyjaði íslenskar
bókmenntir
– Þetta verður ofbeldisfull
mynd, ekki satt?
„Jú, bókin var rosaleg, það er
ofbeldi, kynlíf og dóp í fimmta gír
þannig að myndin verður þannig,
held ég. Það var sagt um bókina á
sínum tíma að hún hefði afmeyjað
íslenskar bókmenntir og það getur
verið að myndin verði eitthvað
svipuð. Ég held hún verði svolítið
öðruvísi en íslenskar kvikmyndir
hingað til, þó að ýmislegt hafi ver-
ið gert svo sem. Hún er harð-
soðin.“
– Nú eru sex frá því kvik-
myndarétturinn var keyptur, þetta
hefur tekið langan tíma eins og oft
vill verða með kvikmyndir?
„Já, þetta er mjög furðulegur
bransi, mikil afföll og erfitt að
koma hlutunum alla leið, einhvern
veginn,“ svarar Stefán Máni.
„Þetta hefur flotið áfram af áhuga
og ástríðu,“ bætir hann við. „Þetta
verður bara vonandi góð bíómynd,
mér líst þannig á það, handritið er
mjög gott.“
Stefán segist ætla að vera við-
staddur tökur á myndinni enda
spennandi fyrir hann að sjá skáld-
sögu sína verða að kvikmynd.
Stefán segir stefnt að því að frum-
sýna myndina á jólum 2011 en
hvort það næst mun koma í ljós.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kynlíf, dóp og ofbeldi
Tökur á kvikmyndinni Svartur á leik hefjast í mars Byggð á skáldsögu
Stefáns Mána Stefán býst við því að myndin verði „harðsoðin“
Þau Rúnar Sigurbjörnsson og El-
ín Jónína skipa saman dúettinn
HEIMA og munu þau leika eigin
tónlist á Bar 11 í kvöld. Þau hjónin
hleyptu heimdraganum árið 2005
og fluttu með börn og búa til Kína,
nánar tiltekið til Xiamen. Þar stofn-
settu þau veitingastaðinn Heima,
settu upp gallerí, gistiheimili og
hvaðeina. Þau ferðuðust síðan vítt
og breitt um landið og léku á hljóm-
leikum. Þau Rúnar og Elín hafa
lengi unnið að tónlist saman, í
meira en fimmtán ár og platan The
Long Road Home liggur eftir dúett-
inn. Rúnar lék þá á gítar með síð-
rokkssveitinni Náttfara auk þess að
gefa út sólóplötuna Solitude árið
2005.
Dúettinn Heima
spilar á Bar 11
Myndlistarmaðurinn og gagnrýn-
andinn Jón B.K. Ransu ræðir um
það í pistli á Smugunni að halda
ætti listalausan dag og virkja al-
menning til þátttöku. Dagsetning
er ekki komin en dagurinn fæli í sér
að sneitt yrði hjá allri list, ekki
mætti einu sinni til horfa til hann-
aðra bygginga. Fimmtán reglur eru
útlistaðar, t.d. hljómar sú tíunda
svona: „Ef myndlistaverk birtist í
sjónvarpi, t.d. í fréttum eða Kast-
ljósi, jafnvel sem sviðsmynd eða
bakgrunnur, skulum við loka aug-
unum eða líta undan. Svo sann-
arlega athyglisvert ef af stað verð-
ur farið.
Almenningur
verði listalaus í
einn dag
Morgunblaðið/Eggert
Í gagnrýni Björns Þórs Vilhjálmssonar um bókina
Svartur á leik, sem birt var í Morgunblaðinu 3. des-
ember 2004, segir m.a.: „Það er kraftur í bókinni,
einhver frumstæð frásagnarlöngun sem passar vel
við umfjöllunarefnið og gerir bókina afskaplega les-
væna. Og áhrifamikla. Kannski þarf einmitt dálítið
skrímslislega skáldsögu til að gera þessu umfjöll-
unarefni skil. Stóra, ólögulega, dálítið kaótíska, en
líka kraftmikla og miskunnarlausa skáldsögu. En
það er einmitt þesskonar skrímsli sem Stefán Máni
réttir lesendum. Taki þeir sem þora.“
UM SKÁLDSÖGUNA
„Taki þeir sem þora“
Spennandi Svartur á
loksins leik, tæpum sex
árum eftir að kvik-
myndarétturinn var
keyptur. Stefán Máni
við taflborðið árið 2004.