Morgunblaðið - 23.02.2011, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011
Elsku afi minn. Hugsunin um
að þú sért farinn er mér svo fjar-
læg því fyrir mér varstu alltaf
eins, svo vel fóru árin með þig. Þú
varst týpískt skólabókardæmi um
afa, alltaf með hatt eða sixpens-
ara, staf, sólgleraugu, vindil og
séntilmaður fram í fingurgóma.
Þó að tæp 70 ár skildu okkur að
var vinskapurinn ómetanlegur og
alltaf gafstu þér tíma til þess að
fara með mér að veiða, í bíltúra og
skoðunarferðir svo fátt eitt sé
nefnt. Þú varst hafsjór af fróðleik
og fræddir mig um allt milli him-
ins og jarðar, allt frá örnefnum
minnstu hóla til stjarnanna á
himninum. Minnið svo ótrúlegt og
frásagnarhæfileikinn svo mikill að
þú gast lýst öllu í smáatriðum, allt
frá því þú varst ungur strákur og
fram á síðasta dag. Er ég óx úr
grasi hélstu áfram að sýna mér
sama áhugann, spurðir frétta og
Frímann Jónsson
✝ Frímann Jóns-son, fv. for-
stjóri, fæddist á
Eyrarbakka 21.
júní 1913. Hann
lést í Sóltúni í
Reykjavík 19. jan-
úar 2011.
Útför Frímanns
fór fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykja-
vík í kyrrþey 4.
febrúar 2011.
lést þig málin varða.
Þegar Snævar Þór
fæddist varstu svo
stoltur og hamingju-
samur með litla kút-
inn minn, litla grall-
arann eins og þú
kallaðir hann alltaf.
Síðastliðinn desem-
ber þegar ég lauk
flugnáminu ljómaðir
þú af ánægju og
stolti yfir því að vera
búinn að fá flugmann aftur í fjöl-
skylduna, því Siggi bróðir þinn var
með flugmannsskírteini númer
eitt á Íslandi. Í tilefni útskriftar-
innar skrifaðir þú fallegt kort til
mín sem ég mun ávallt varðveita
og sagðir mér hversu hreykinn þú
værir af mér.
„Ert þetta þú nafni minn?“ eða
„Er þetta kafteinninn?“ sagðirðu
alltaf við mig þegar ég kom í heim-
sókn til þín og tókst í hendur mín-
ar með hlýju og fallegu höndunum
þínum.
Elsku afi minn, þegar litið er yf-
ir farinn veg eru minningarnar um
þig óteljandi og munu þær án efa
ylja mér um ókomin ár. En efst í
huga mér á þessari stundu er
minning um merkan mann, góðan
vin en fyrst og fremst dásamlegan
afa og langafa.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þinn nafni,
Frímann Örn.
✝ Hákon Björns-son rafvirkja-
meistari fæddist í
Neskaupstað 16.
október 1919. Hann
lést á Dvalarheim-
ilinu Höfða 15.
febrúar 2011. Há-
kon var sonur
hjónanna Björns
Emils Bjarnasonar
bakara og Guð-
bjargar Bjarna-
dóttur húsmóður. Af 11 systk-
inum Hákonar eru 2 eftirlifandi,
þau Margrét Björnsdóttir og
Hilmar Björnsson.
Hákon giftist Sigríði Sig-
ursteinsdóttur, f. 16. júlí 1923, d.
2. júní 2009, hinn 1. nóvember
1942. Börn þeirra eru: 1) Sig-
ursteinn Haraldur, f. 1.ágúst
1947, kona hans er Sesselja Há-
konardóttir, f. 1. desember
1947. Börn þeirra eru a) Hákon,
f. 12. október 1965, maki Berg-
lind Magnúsdóttir, f. 1968, börn:
Jakob, f. 1995, Melkorka, f.
2001, Inga Lind, f.
2007. b) Júlía Stein-
unn, f. 23. júní
1970, maki Stephan
Hubert, f. 1974,
börn: Luis Arnar, f.
2006, Sara Lind, f.
2009. c) Sigurður
Þór, f. 1. október
1971, maki Margrét
Ákadóttir, f. 1973,
börn: Arnór, f.
1999, Ingi Þór, f.
2004, Sunna Rún, f. 2008. d)
Guðrún Bergmann, f. 4. apríl
1978. 2) Guðbjörg, f. 12. janúar
1951, maður hennar er Ásgeir
H. Magnússon, f. 13. október
1953, börn þeirra eru a) Hákon,
f. 2. júlí 1974. b) Elva, f. 5. febr-
úar 1977, maki Ísleifur Að-
alsteinsson, f. 1980, börn: Júlía
Steinunn, f. 2008, Brynjar
Smári, f. 2008. c) Sigríður, f. 13.
maí 1982.
Útför Hákonar fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 23. febrúar
2011, og hefst athöfnin kl. 14.
Elsku afi. Þegar ég hugsa til
þín leitar hugurinn í garðinn á
heimili ykkar ömmu í Króki. Það
var fátt skemmtilegra en að vera
með þér í garðinum. Þar vann ég,
nafni eins og þú kallaðir mig allt-
af, með þér frá morgni til kvölds
að reyta arfa, slá blettinn og dytta
að blómunum. Amma sá um að við
fengjum heitan mat í hádeginu og
nýbakað með kaffinu. Allt var
unnið eftir kúnstarinnar reglum
og þú lagðir mikla áherslu á að
vanda vinnubrögðin. Þú varst allt-
af að dytta eitthvað að á heimilinu
og þegar þú tókst þér pásu lagðir
þú kapal eða leystir krossgátu.
Þú hugsaðir alltaf vel um
ömmu og hjónaband ykkar virtist
fullkomið, þótt ömmu hafi stund-
um fundist þú vera þver.
Að mörgu leyti má segja að þú
hafir haft áhrif á það hvernig líf
mitt mótaðist. Áhugi minn á garð-
rækt kviknaði fljótt og varð til
þess að ég fór í Garðyrkjuskólann.
Þú varst fyrirmynd í mínu lífi. Ég
kveð þig með söknuði, en ég veit
að amma bíður þín og þið verðið
saman á ný. Takk fyrir að vera
mér svo góður afi.
Hákon Ásgeirsson.
Elsku afi, það koma svo margar
góðar minningar upp í hugann
þegar ég hugsa um öll árin sem
við fengum að eiga saman. Minn-
ingar um góðar og glaðar stundir
á Krókatúninu með þér og ömmu,
þar sem við vorum alltaf velkomin
og eyddum mörgum stundum
saman.
Eftir að ég varð eldri minnist
ég þess hversu gaman var að
spjalla við þig um allt milli himins
og jarðar. Þú hafðir ákveðnar
skoðanir en oft var ekki langt í
glottið þegar þú varst búinn að
æsa okkur hin upp í umræðunum
og hafðir gaman af. Þú varst ein-
staklega ljúfur og góður maður og
hafðir mikinn áhuga á öllu sem við
tókum okkur fyrir hendur. Það
var alltaf þægilegt andrúmsloft
hjá ykkur ömmu og mér leið alltaf
vel í kringum ykkur.
Mig langar líka að minnast
ömmu Siggu í dag. Þið voruð svo
ótrúlega samrýnd og yndisleg
hjón. Þið töluðuð svo vel um hvort
annað og hlóguð og gerðuð góðlátt
grín hvort að öðru. Þú talaðir ætíð
vel um hana ömmu og saknaðir
hennar mikið. Ég sakna líka hlát-
ursins hennar, góða skapsins og
gæsku hennar. Þið eruð mín fyr-
irmynd í svo mörgu.
Elsku afi, elsku amma, þið gáf-
uð mér svo margt sem ég er svo
þakklát fyrir. Takk fyrir þann hlý-
hug og áhuga sem þið sýnduð
börnunum mínum, þeim Luis
Arnari og Söru Lind. Ég á eftir að
sakna þess að spjalla við ykkur,
rifja upp gamla tíma með ykkur
og ekki síst þess að hlæja með
ykkur.
Elsku afi og amma, ég mun
ætíð sakna ykkar en ég veit að
amma tekur vel á móti þér og það
er góð tilhugsun að þið séuð sam-
an á ný.
Júlía St. Sigursteinsdóttir.
Hákon valdi að gerast félagi í
Lionsklúbbi Akraness árið 1959
og tók að sér ýmis hlutverk, bæði í
stjórn og nefndum. Þegar heilsa
hans gaf sig og hann dró sig í hlé
var hann gerður að ævifélaga hinn
30. apríl 1991.
Samviskusemi hans og lipurð í
öllum samskiptum var einstök og
til eftirbreytni, svo segja mér allir
þeir sem ég hef spurt. Hann var
líka hæglátur, þessir góðu mann-
kostir eru ekki öllum gefnir.
Ég átti ekki með honum öll árin
í Lions og átti ekki með honum
stundir hversdagsins. Í þau skipti
sem ég og hann sem elsti félagi
klúbbsins áttum tal saman, þar
sem hann dvaldi á dvalarheimilinu
Höfða hér á Akranesi ásamt konu
sinni Sigríði Sigursteinsdóttur,
kom hann mér fyrir sem hægur
og ljúfur, háður eiginkonu sem
sópaði að. Það sagði hann mér í
hennar áheyrn og hún samþykkti
– og brosti. Þegar ég kynntist
þeim öldruðum var samband
þeirra hlýtt og rósemd í andrúms-
loftinu í híbýlum þeirra. Svo lést
hún í hittiðfyrra og Hákon var
vængbrotinn á báðum. Hann
sagði mér að hann hefði ætlað að
fara á undan, fyrir löngu, búinn að
vera lasinn svo lengi. Þetta var
vont, sagði hann en sagðist ætla til
hennar fljótlega.
Kvaddur ertu með hlýhug og
þakklæti. Lionsbróðir sem ljúfur
og auðmjúkur sinntir af festu en
hávaðalaust öllu því sem þér var
falið eða tókst að þér.
Guð blessi þig og þína.
F.h. Lionsklúbbs Akraness,
Ófeigur Gestsson.
Hákon
Björnsson
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURJÓN ÞÓRHALLSSON,
Gónhóli 9,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 14. febrúar.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
föstudaginn 25. febrúar kl. 14.00.
Helga Þórunn Ingólfsdóttir,
Þórhallur Sigurjónsson,
Anna Þórunn Sigurjónsdóttir,Friðrik Ingi Rúnarsson,
Guðmundur Sigurjónsson,
Atli Þór Sigurjónsson, Inga Bryndís Stefánsdóttir,
Karen Elísabet, Sigurjón Gauti,
Arnfríður, Guðný Rán, Ægir Bachmann
og Matthías Leví.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SNORRA ÁRNASONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði.
Guðrún Snorradóttir,
Þuríður Árný Snorradóttir, Steinar Gunnbjörnsson,
Erla Hrönn Snorradóttir, Jóhann Steinsson,
Árni Ómar Snorrason, Sigurlaug Ingvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN JÓNSSON
bóndi,
Borgarhóli,
Blönduhlíð,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans
við Hringbraut sunnudaginn 13. febrúar, verður jarðsunginn
frá Miklabæjarkirkju laugardaginn 26. febrúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeir sem vilja
minnast hans láti Minningarsjóð krabbameinsdeildar
Landspítalans njóta þess.
Soffía Jakobsdóttir,
Rósa María Stefánsdóttir, Halldór Jónsson,
Jón Stefánsson,
Kristín Sólveig Stefánsdóttir, Sæþór Steingrímsson,
Gestur Freyr Stefánsson, Hjördís Anna Helgadóttir,
Sigríður Stefanía Stefánsdóttir, Jónas Heiðdal Helgason,
Jakob Sævar Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN SIGURÐSSON
hornleikari,
sem lést fimmtudaginn 17. febrúar, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 25. febrúar kl. 13.00.
Guðrún Ó. Jónsdóttir, Gunnar Tómasson,
Sigrún Jónsdóttir,
Ragnheiður Gunnarsdóttir,
Sverrir G. Tómasson, Christine Tómasson,
Guðrún G. T. Rubin, Joshua Rubin,
Rannveig Thoroddsen,
Solveig Thoroddsen,
Jón Thoroddsen, Fjóla Dísa Skúladóttir,
Guðmundur Thoroddsen, Arna Óttarsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÖF P. JÓHANNSDÓTTIR
frá Hellissandi,
Gautlandi 19,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum fimmtudaginn
17. febrúar.
Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju föstudaginn 25. febrúar
kl. 13.00.
Útförin fer fram í Ingjaldshólskirkju laugardaginn 26. febrúar
kl. 12.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorgerður Elín Halldórsdóttir,
Jóhann Þór Halldórsson, Þórlaug Arnsteinsdóttir,
Hafdís Halldórsdóttir, Páll Pálsson,
Ragnheiður G. Halldórsdóttir, Vilhjálmur Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HÁLFDÁN HANNESSON,
Árskógum 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 24. febrúar kl. 13.00.
Inga María Hannesson,
Helgi Hálfdánarson,
Gunnar Hálfdánarson, Erla Dóris Halldórsdóttir,
Sigrið Hálfdánardóttir, Guðjón Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN ÁGÚST FLYGENRING
verkfræðingur,
Reykjavíkurvegi 39 (Tungu),
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 25. febrúar kl. 13.00.
Margrét D. Bjarnadóttir,
Birna G. Flygenring, Albert Baldursson,
Garðar Flygenring,
Erna Flygenring, Pétur Þór Gunnarsson,
Bjarni Sigurðsson, Helga B. Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
SIGRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR
sjúkraliði
frá Raftholti í Holtum,
síðast til heimilis á dvalarheimilinu
Lundi, Hellu,
áður á Laugarnesvegi 64,
Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 10. febrúar, verður
jarðsungin frá Marteinstungukirkju í Holtum laugardaginn
26. febrúar kl. 14.00.
Systkini hinnar látnu
og fjölskyldur þeirra.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
HALLUR JÓNASSON
bifreiðarstjóri,
Lindarbrekku,
Varmahlíð,
Skagafirði,
lést á heimili sínu sunnudaginn 20. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Aðalbjörg Anna Jónsdóttir,
Steinunn Helga Hallsdóttir, Gunnar Randver Ágústsson,
Jónas J. Hallsson, Inga Hanna Dagbjartsdóttir,
Hafdís Hallsdóttir, Bjarni Ingvarsson,
Jónína Hallsdóttir, Einar Einarsson
og afabörn.