Morgunblaðið - 09.03.2011, Síða 16
FRÉTTASKÝRING
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Allt útlit er fyrir metfjölda erlendra
ferðamanna í sumar. Fleiri erlend
flugfélög hafa boðað komu sína hing-
að en áður og samkeppni gæti aukist
á áfangastöðum eins og New York,
París, Berlín og Frankfurt. Ferða-
árið fer líka vel af stað en tölur voru
birtar í gær um fjölda farþega til og
frá landinu í febrúar. Sam-
kvæmt þeim varð fjölgun
farþega um 12,6% mið-
að við sama mánuð í
fyrra. Fjölgaði
flugfarþegum frá
öllum markaðs-
svæðum.
Isavia býr
sig undir
aukna umferð
farþega um
Leifsstöð í
sumar með því
að ráða til sín
fleira starfs-
fólk, um 90
sumarstarfs-
menn, og gera
breytingar á aðstöðu
innan flugstöðvarinn-
ar. Munu þær fram-
kvæmdir kosta 40-50
milljónir króna, að
sögn Hjördísar Guð-
mundsdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Isavia. Á há-
annatíma í sumar kunna að
verða afgreidd allt að 20 flug á
einum morgni og álíka mörg síð-
degis.
Þó að bjartsýni sé ríkjandi í ferða-
þjónustunni þá eru blikur á lofti
vegna hækkandi eldsneytisverðs í
heiminum, sem hefur áhrif á rekstur
flugfélaga sem og annarra ferða-
þjónustufyrirtækja. Hækkanir gætu
farið út í gjaldskrána, sem aftur
hefði áhrif á ferðaplön fólks.
Af samtölum við aðila í ferðaþjón-
ustu má ráða að bókanir fyrir sum-
arið líta ágætlega út en talið er of
snemmt að gefa út einhverjar fjölda-
tölur eða prósentuaukningu. Bent er
á að bókunartími í ferðaþjónustu hafi
styst og heildarmyndin skýrist ekki
fyrr
en nær dregur sumri. Bjartsýnustu
menn tala um allt að 25% aukningu
en hinir hófsamari tala frekar um 10-
15%. Þeir svartsýnustu telja gott ef
tekst að halda í sama fjölda erlendra
ferðamanna og á síðasta ári, en hing-
að komu nærri 500 þúsund farþegar,
þar af um 480 þúsund með flugi.
Mismikil ferðatíðni
Alls hafa 13 erlend flugfélög boðað
ferðir til og frá Íslandi í sumar, sem
er meira en nokkru sinni, og bætast
þá við Icelandair, Iceland Express
og Flugfélag Íslands. Fleiri félög
koma hingað í stökum ferðum á
öðrum árstímum, eins og
Atlantic Airways og
Malmö Aviation.
Strangt til tekið
mætti flokka Iceland
Express sem erlent
flugfélag, þar sem
félagið flýgur sam-
kvæmt flugréttindum
breska félagsins Astra-
eus, en það er
ekki gert í þessari
samantekt.
Erlendu félögin
13 eru Air Berlin,
Air Greenland,
Austrian Airlines,
Delta Airlines,
Deutsche Lufthansa,
Edelweiss Air, Finna-
ir, German Wings,
Hamburg Internatio-
nal, Niki Luftfahrt, SAS,
Travel Service og Tran-
savia.com, sem er dótturfélag
Air France-KLM. Ferðatíðni
félaganna er mjög mismun-
andi, allt frá fjórum ferðum yf-
ir sumarið til nokkrum sinnum í
viku. Einna mesta framboðið
verður til Þýskalands en ekki
endilega í beinu flugi til allra
borga, heldur í tengiflugi.
Samanlagt verða þessi félög og
þau innlendu með flug í sumar milli
Íslands og 56 áfangastaða í Evrópu,
Bandaríkjunum og Kanada. Til
nokkurra staða má fljúga með fleiri
en einu félagi og þannig eru Ice-
landair og Iceland Express með flug
á sömu 13 áfangastaðina. Þetta sést
nánar á meðfylgjandi korti.
Í samkeppni við flugrisa
Stærsta nýja félagið sem hingað
kemur er án efa Delta Airlines, sem
hefur flug milli Íslands og New York
í byrjun júní, fimm sinnum í viku. Er
félagið jafnframt í samstarfi við evr-
ópska flugrisann Air France-KLM
um sölu á Íslandsferðum, auk fleiri
félaga eins og Alitalia. Munu Íslend-
ingar geta valið á milli þriggja flug-
félaga á þeirri leið en að meðtöldum
Icelandair og Iceland Express verða
ríflega 700 flugsæti í boði daglega til
New York í sumar, svo dæmi sé tekið
um sætaframboðið.
Debbie Egerton, talsmaður Delta
í Evrópu, segir bókanir vera í sam-
ræmi við áætlanir félagsins og þær
fari vel af stað. Stefnt er á fyrsta
flugið til Íslands 2. júní nk. en eins og
kemur fram hér að ofan býður félag-
ið ódýrari miða héðan en íslensku fé-
lögin, eða allt að 28% ódýrari en Ice-
landair. Í fyrstu ætlaði Delta að
fljúga hingað alla daga vikunnar en
um áramót var dögunum fækkað í
fimm.
Icelandair flýgur til 31 áfanga-
staðar í sumar og eykur áætlunar-
flugið milli ára um 17%. Áfangastöð-
um hefur verið fjölgað og miðast
áætlanir félagsins við að flytja um
1,7 milljónir farþega á árinu. Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, segir bókanir fyrir sum-
arið líta ágætlega út og samkvæmt
áætlunum.
Iceland Express verður með flug á
22 áfangastaði í sumar. Kristín Þor-
steinsdóttir, upplýsingafulltrúi fé-
lagsins, segir bókanir ganga mjög
vel og betur en reiknað hefði verið
með, bæði meðal innlendra og er-
lendra farþega. Þannig hafi sala á
ferðum til Bandaríkjanna byrjað vel.
París
REY / KEF
Nuuk
Munchen
Helsinki
Osló
Búdapest
Prag
Berlín
Vínarborg
HannoverHamburgBremen
FriedrichshafenZürich
New York
Í samstarfi við Air France-KLM
og Al Italia
Stuttgart
Dusseldorf
Frankfurt
Dortmund
Köln
Flug erlendra flugfélaga til og frá Íslandi sumarið 2011
Travel Service
Miðjan apríl - byrjun
október
Tvö flug á viku
Edelweiss Air
Miðjan apríl - byrjun
október
Tvö flug á viku
Air Greenland
Lok mars - lok október
Tvisvar í viku
Austrian Airlines
Miðjan júní - lok ágúst
Einu sinni í viku
Delta Airlines
Byrjun júní - lok október
Fimm sinnum í viku
Finnair
Miðjan júlí - byrjun ágúst
Fjögur flug á þessu tímabili
Deutsche Lufthansa
Lok maí - miðjan
september
Tvisvar í viku
Transavia.com France
Lok mars - lok október
Tvisvar í viku
German Wings
Byrjun júní - miðjan
september
Tvær vélar á fimmtudögum
Ein vél á sunnudögum
Hamburg International
Miðjan maí - lok júní
Einu sinni á dag
Niki Luftfahrt
Miðjan júní - miðjan ágúst
Einu sinni í viku
SAS
Lok mars til loka október
Sex sinnum í viku
Air Berlin
Miðjan maí til miðjan
september
1-3 flug á þessu tímabili
- mismunandi eftir
áfangastað.
Icelandair
•Alicante
•Barcelona
•Berlín
•Billund
•Frankfurt
•Gautaborg
•Kaupmannahöfn
•London
•Osló
•París
•Stokkhólmur
•Boston
•NewYork
•Amsterdam
•Bergen
•Brussel
•Glasgow
•Hamburg
•Helsinki
•Madríd
•Manchester
•Milanó
•Munchen
•Stavanger
•Þrándheimur
•Minneapolis
•Orlando
•Washington
•Halifax
•Seattle*
•Toronto
Iceland Express
•Alicante
•Barcelona
•Berlín
•Billund
•Frankfurt
•Gautaborg
•Kaupmannahöfn
•London
•Osló
•París
•Stokkhólmur
•Boston
•NewYork
•Álaborg
•Basel
•Bologna
•Edinborg
•Chicago
•Friedrichshafen
•Kraká
•Varsjá
•Winnipeg
Flugfélag Íslands
•Færeyjar
•Kulusuk
•Narsarsuaq
•Nuuk
•Ilulissat
•Scoresbysund
Áfangastaðir innlendu flugfélaganna sumarið 2011
* Tengiflug frá Seattle til 10 staða með Alaska Airlines
Nokkur verðdæmi
Flug fyrir einn fram og til baka,
á ódýrasta fargjaldi samkvæmt
bókunarvef félaganna 8. mars
París 3. júní - 9.júní
Icelandair 47.510 kr.
Iceland Express (10.- 17. júní) 46.330
Transavia.com 42.085*
Osló 10. júní - 17. júní
Icelandair 39.510
Iceland Express 35.740
SAS 27.593*
New York 3. júní - 10. júní
Icelandair 76.610
Iceland Express 73.600
Delta Airlines 54.880
* Samkv. gengi Seðlabanka 8.mars
Metsumar en blikur á lofti
Búist við aukinni samkeppni í millilandaflugi til og frá Íslandi í sumar Sætaframboð aldrei meira
Aukið álag í Leifsstöð Möguleiki á flugi til 56 áfangastaða Hátt eldsneytisverð gæti haft áhrif
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2011
Þú getur fylgst með komum og
brottförum í símanum þínum.
Notaðu Netið í símanum
– því það er ódýrara en
þú heldur.
Ferðastu
mikið?
Skannaðu hérna
til að sækja
42
B
arcode
Scanner
Fylgstu
með fluginu!
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir of snemmt að fullyrða um hvernig ferða-
sumarið kemur út. Ágætlega líti út með bókanir þó að
skammt sé liðið á bókunartímann.
„Eldsneytishækkanir eru hins vegar gríðarlegt áhyggju-
efni fyrir greinina, ekki síst ef þær halda áfram. Þessi
mikla hækkun hefur mikil áhrif á ferðaþjónustuna. Öll
útgerð á vélknúnum ökutækjum er dýrari en áður og
rekstrarkostnaður hækkar,“ segir Erna og telur ljóst
að stjórnvöld verði að grípa inn með því að lækka
álögur á eldsneyti. Álögur hafi hækkað jafnt og þétt
samfara hækkun olíufélaganna og þróuninni á heims-
markaði.
Gríðarlegt áhyggjuefni
FERÐAÞJÓNUSTAN HORFIR Á ELDSNEYTISVERÐIÐ
Erna
Hauksdóttir