Morgunblaðið - 09.03.2011, Side 56
„Við verðum
svolítið „uni-
que“ en ég
held að það
verði ekkert til að hafa
áhyggjur af.“
Unnið hörðum
höndum
Hreimur segir leitast
við að hafa atriðið sem
líflegast í Evróvisjón-
keppninni, að búa til hreyf-
ingu án þess að flytjendur
hreyfi sig of mikið sjálfir.
„Mikið af þessari vinnu er í
höndum Þórunnar og
þeirra sem sjá um þessa
listrænu hlið á atriðinu.
Hún er með mjög
ákveðna skoðun og við
erum allir með í þessu,
erum að vinna þetta vel
saman. Þórunn er búin
að leggja ótrúlega mikla
vinnu í þetta,“ segir
Hreimur. Skipuleggjendur
keppninnar úti þurfi að vita
með löngum fyrirvara hvernig
atriðið verði og að ýmsu þurfi að
huga. „Við ætlum að gera mynd-
band og þetta myndband verður
ekkert slor,“ svarar Hreimur,
spurður að því hvort myndband sé
væntanlegt við lagið. Tökur á því
fara fram í dag. „Þegar myndband-
inu verður sleppt, ásamt laginu, sér
fólk svolítið fílinginn sem verður á
okkur þarna úti.“
Íslenski Evróvisjón-hópurinn
heldur út til Düsseldorf í Þýska-
landi 1. maí og flytur lagið í fyrri
forkeppninni 10. maí. Aðalkeppnin
verður svo haldin 14. maí.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Evróvisjónkeppnin nálgast óðfluga
og eflaust margir orðnir spenntir
að sjá hvernig fulltrúum Íslendinga
vegnar í keppninni, vinum Sigur-
jóns heitins Brink sem samdi sig-
urlagið, „Aftur heim“ en textann
samdi ekkja Sigurjóns, Þórunn
Erna Clausen. Vinirnir eru þeir
Gunnar Ólason, Vignir Snær Vig-
fússon, Pálmi Sigurhjartarson,
Matthías Matthíasson, Hreimur
Örn Heimisson og Benedikt Bryn-
leifsson. Endanleg útsetning lags-
ins er tilbúin og lagið væntanlegt
með enskum texta sem Þórunn
samdi með Sigurjóni.
Hreimur segir lítinn mun á
lokaútgáfu lagsins á íslensku frá
þeirri sem þegar hefur verið
gefin út og leikin í útvarpi en
örlítil breyting verði á lag-
inu í ensku útgáfunni,
áherslubreytingar. Hvað
undirbúning fyrir Evró-
visjónkeppnina varðar
segir Hreimur unnið
hörðum höndum að
hönnun búninga á
sexmenningana sem
flytja lagið. „Við
upplifum okkur sem
liðsheild þannig að
það má segja að við
verðum svolítið sýni-
legir sem liðsheild
úti. Við ætlum okkur
að vera mjög snyrti-
legir og ekkert í ósvip-
uðum anda og við vorum
í á lokakvöldinu hér
heima,“ segir Hreimur.
Klæðaburðurinn verði svipaður
þeim sem Sigurjón kunni að meta,
dálítið „retro“ en þó snyrtilegur.
Snyrtimennskan í fyrirrúmi
Ensk útgáfa
„Aftur heim“
væntanleg sem
og myndband
Morgunblaðið/Eggert
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Íslensku tónlistarverðlaunin voru
afhent í 17. skipti í gær í Þjóðleik-
húsinu. Athygli vakti þetta árið að
enginn einn sópaði að sér verðlaun-
um eins og það er kallað, heldur
skiptust þau jafnt á milli fjöl-
margra. Heiðursverðlaunahafi
þessa árs er Þórir Baldursson eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum
og nokkrir samferðamenn hans og
vinir hylltu hann með tónlistar-
flutningi. Aðrir sem fluttu tónlist
voru Bjartmar og Bergrisarnir,
Kammerkór Suðurlands, Kalli,
Samúel J. Samúelsson Big Band,
Sunna Gunnlaugsdóttir og Jónas
Sigurðsson. Kynnar voru þau
Freyr Eyjólfsson og Erla S. Ragn-
arsdóttir og fóru þau á kostum.
Umslag ársins var valið Pólý-
fónía með Apparat Organ Quartet
en hönnuður þess er Sig-
urður Eggertsson eða
Siggi Eggertsson.
Tónlistarflytjendur
ársins voru þeir
Ágúst Ólafsson og
Gerrit Schuil sem
fluttu þrjá síðustu
ljóðaflokka Schu-
berts með viku
millibili á Listahá-
tíð 2010. Rödd árs-
ins var svo valinn
Kristinn Sigmundsson,
sem stendur nú á hátindi
ferils síns.
Bjartasta vonin
er þá talinn Ari
Bragi Kárason
trompetleikari, ein-
hver efnilegasti tromp-
etleikari sem fram hefur komið um
árabil. Textahöfundur ársins var
valinn Bjartmar Guðlaugsson, fyrir
textana á plötunni Skrýtin veröld
þar sem Bjartmar stingur
skemmtilega á ýmsum kýlum með
kröftugum en ávallt skemmtilegum
textum.
Tónhöfundur ársins var valin
Ólöf Arnalds fyrir lög sín á plöt-
unni Innundir skinni. Lag ársins,
„Hamingjan er hér“, á svo Jónas
Sigurðsson en það er að finna á
annarri plötu hans, hinni firna-
sterku Allt er eitthvað. Tónverk
ársins á Anna Þorvaldsdóttir, Hrím
– fyrir hljómsveit. „Hrím er þétt
ofið og afar áhrifaríkt verk, tón-
málið sterkt, persónulegt og sann-
færandi,“ segir í umsögn dóm-
nefndar. Hljómplata ársins í
sígildri og samtímatónlist var valin
Hymnodia Sacra – íslenskt sálma-
safn frá 18. öld en flytjendur þar
eru Kammerkórinn Carmina og
Nordic Affect. Stjórnandi Árni
Heimir Ingólfsson. Djassplata árs-
ins er Horn eftir Jóel Pálsson en
flytjendur eru Jóel Pálsson, vonin
bjarta Ari Bragi Kárason, Eyþór
Gunnarsson, Davíð Þór Jónsson og
Einar Scheving.
Jónsi með bestu plötuna
Hljómplötu ársins átti svo Jónsi,
en fyrsta sólóplata hans, Go, kom
út í apríl í fyrra. Síðasta ár var
einkar gjöfult hjá Jóni Þóri Birgis-
syni, hann gaf út tvær plötur (tón-
leikaplata kom út í desember) og
ferðaðist víða um heim með hljóm-
sveit sinni. Í umsögn dómnefndar
segir: „Jónsi notar öll trikkin sem
hann hefur lært á Sigur Rósar-
ferlinum og bætir við glitrandi
perlum úr fjársjóðskistunni sinni.
Útkoman er slík gersemi að það er
leitun að annarri eins plötu.
Reynsla og öryggi fara saman við
ótrúlega næma söngtúlkun, stórfína
spilamennsku og fágaða vinnslu.“
Enginn einn sópaði …
Morgunblaðið/Ómar
Besti flytjandi Ágúst Ólafsson og Gerrit Schuill voru valdir tónlistarflytjendur ársins en þeir
fluttu þrjá síðustu ljóðaflokka Schuberts á Listahátíð. Ágúst tók þakklátur við verðlaununum.
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í gær Enginn „einn“ sigurvegari kvöldsins
Go með Jónsa valin hljómplata ársins og Kristinn Sigmundsson rödd ársins
Skannaðu hérna
til að sækja
48
B
arcode
Scanner
Sjáðu
fleiri myndir
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2011
Alþjóðlega stuttmyndahátíðin
Northern Wave var haldin síðast-
liðna helgi í Grundarfirði og var
veittur fjöldi verðlauna á henni,
m.a. fyrir bestu fiskisúpuna í sér-
stakri fiskisúpukeppni. Átta lið
reyndu með sér í súpugerðinni en
það var hlutskipti Hrefnu Rósu
Sætran landsliðskokks að velja í
efstu þrjú sæti. Hlutskarpastur
varð saumaklúbburinn Samheldni.
En hátíðin snerist ekki bara um
súpur heldur einnig kvikmynda-
gerð og voru vanir menn í dóm-
nefnd stuttmynda- og tónlistar-
myndbandakeppninnar, þau
Árni Ólafur Ásgeirsson, Kristín
Jóhannesdóttir og Romain Gavras.
Veitt voru verðlaun fyrir bestu al-
þjóðlegu stuttmyndina, bestu ís-
lensku stuttmyndina og besta ís-
lenska tónlistarmyndbandið.
Besta alþjóðlega stuttmyndin var
Mein Sascha eftir Markus Kaatsch.
Besta íslenska myndin var valin
stuttmyndin Clean eftir Ísold Ugga-
dóttur og besta íslenska tónlistar-
myndbandið við lagið „Young Boy“
eftir tónlistarmanninn Berndsen,
leikstýrt af Helga Jóhannssyni.
Skipuleggjandi hátíðarinnar var
sem fyrr Dögg Mósesdóttir.
Nr. 4 Dögg Mósesdóttir hélt fjórðu
Northern Waves-hátíðina um sl. helgi.
Súpur, stutt-
myndir og
myndbönd
Notkun
á
Íslandi,100
M
B
innan
dagsins. Greidd
eru mán.gjöld skv. verðskrá.
Þú getur hlustað á gömul
og ný Eurovision lög
með Bestu lögunum.
Prófaðu í símanum á 0 kr.
í dag á m.siminn.is
Bestu
Eurovisionlögin
Skannaðu hérna
til að sækja
32
B
arcode
Scanner
Bestu lögin
Eftirvænting Vinir Sjonna flytja lagið „Aftur heim“ í Söngvakeppni Sjónvarpsins, 12. febrúar síðastliðinn.
Skannaðu hérna
til að sækja
22
B
arcode
Scanner
Náðu í lagið