Morgunblaðið - 25.03.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Karl Eskil Pálsson
Meginumfjöllunarefni aðalfundar Samtaka
ferðaþjónustunnar, sem haldinn var á Akureyri
í gær, var vetrarferðamennska og áherslur SAF
til framtíðar. Katrín Júlíusdóttir, ráðherra
ferðamála, greindi á fundinum frá umfangs-
miklu átaki sem hleypt yrði af stokkunum á
næstunni og hefði það að markmiði að fjölga
ferðamönnum á Íslandi yfir vetrarmánuðina.
„Það hefur verið vinnuhópur starfandi, sem
kynnir væntanlega á næstu vikum umfang
átaksins. Hversu miklir fjármunir verða lagðir í
þetta liggur ekki fyrir, en það verður myndarleg
upphæð. Ríkisstjórnin hefur þegar ákveðið að
leggja þessu átaki lið og ég bind vonir við að
flestir sem hagsmuna eiga að gæta í þessum efn-
um komi að borðinu.“
Katrín segir að hver króna sem lögð er í
markaðsátak skili sér til baka, skapi meðal ann-
ars ný störf og vinni því bug á atvinnuleysi. Nú
þegar sé víða um land allt hótel- og gistirými vel
nýtt þrjá mánuði ársins, júní, júlí og ágúst. Mikl-
ir fjármunir hafi verið lagðir í uppbyggingu
ferðaþjónustu, sem þurfi að nýta sem best allt
árið.
„Til að fá fleiri ferðamenn til landsins liggja
ónýtt tækifæri í vetrarferðamennsku. Í kjölfar
öskufalls frá eldgosinu í Eyjafjallajökli fækkaði
erlendum ferðamönnum, með tilheyrandi afleið-
ingum. Til að bregðast við því var sett á lagg-
irnar markaðsátakið Inspired by Iceland, sem
heppnaðist mjög vel. Í þessu nýja markaðsátaki
verður vinnulagið svipað og vonandi gengur það
eins vel, enda eru möguleikarnir miklir í vetr-
arferðamennsku,“ segir Katrín Júlíusdóttir.
Reynt að fjölga ferða-
mönnum yfir veturinn
„Myndarleg upphæð“ verður lögð í átakið
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Við erum virkilega ánægð og
það er rosalega flott að ná 11.500
undirskriftum á svona stuttum
tíma, því þetta voru bara fimm
dagar,“ segir Agnar Már Jóns-
son, talsmaður samstarfshóps
íbúa Reykjavíkur sem skorar á
borgarstjórn að láta af fyrirætl-
unum um sameiningu grunn- og
leikskóla.
Í gær fjölmenntu foreldrar og
aðrir svo að Ráðhúsi Reykjavíkur
þar sem Jóni Gnarr borgarstjóra
var afhentur listi með 11.500
undirskriftum. Við sama tækifæri
var friðarkertum fleytt á Tjörn-
inni í táknrænni athöfn að sögn
Agnars, til að undirstrika mik-
ilvægi þess að skapa frið um
skólamálin.
„Það fór ekkert á milli mála að
borgarstjórinn var snortinn af
þessu mikla afli og hugmynda-
fræðinni á bak við það,“ segir
Agnar. Jákvæð hlið málsins sé sú
að tillögurnar hafi vakið marga í
hverfum borgarinnar til lífsins
sem láti sig nú málið varða af
öllu hjarta.
„Það er lykilatriðið og nú
þurfa allir að sameinast um að
virkja þetta til að efla skólastarf
í Reykjavík. Nú hefur meirihlut-
inn tækifæri til að sýna það hug-
rekki sem þarf til að falla frá
þessum fyrirætlunum. Við erum
sannfærð um að það er hægt að
efla skólastarfið með því að for-
gangsraða í hagræðingu innan
borgarkerfisins.“
Hlusta á vilja fólksins
„Mér heyrist á öllum sem
ég tala við að fólk geri sér
grein fyrir því að við
verðum að spara,“
sagði Jón Gnarr borg-
arstjóri þegar hann
tók við undirskrift-
unum. „En fólk vill að það sé
sparað meira með því að það sé
haft meira samráð, meiri sam-
vinna, og það hlusta ég og við á.“
Frestur til að skila inn umsögn-
um um tillögur menntaráðs renn-
ur út í dag og verður unnið heild-
stætt úr þeim á næstu dögum.
Tækifæri til að sýna hugrekki
Hátt í 12 þúsund undirskriftir með áskorun um að hætta við fyrirhugaðar
sameiningar grunn- og leikskóla Borgarstjóri „snortinn“ af afli foreldranna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samtakamáttur Fjölmenni skundaði að Ráðhúsinu þrátt fyrir rigningarsudda í gær, til að afhenda undirskriftirnar og áskorun til borgarstjórnar um að falla
frá sameiningaráformum. Þess er krafist að sýnt verði fram á að breytingarnar hafi í för með sér vel rökstuddan sparnað og óskað eftir nánara samráði.
Fjölmörg félagasamtök, foreldra- og íbúaráð hafa sent frá sér ályktanir og
umsagnir um sameiningartillögurnar. Þar á meðal er foreldrafélag leikskól-
ans Holtaborgar, sem samkvæmt tillögunum á að sameinast Sunnuborg.
Nokkrir foreldrar barna í Holtaborg hafa nú þegar sótt um flutning fyrir
barn sitt af leikskólanum, þar sem þeir hafa áhyggjur af afleiðingum yf-
irvofandi sameiningar. Í umsögn foreldrafélagsins er lýst áhyggjum af því
að gríðarlegri faglegri uppsveiflu sem verið hafi í starfinu sé stefnt í bráða
hættu með fyrirætlununum. Foreldarnir segjast ekki hafa upplifað samráð
að neinu marki og telja tölur um ætlaðan sparnað í launakostnaði mjög
ótrúverðugan, m.a. vegna þess að stjórnendur í sameinuðum leikskóla
fái hærri laun en þeir höfðu áður. Foreldrarnir telja allt of mikið vera á
huldu, of mikið verk sé lagt á herðar nýs stjórnanda og sameiningin
því ekki talin líkleg til að takast vel.
Flytja börnin sín af leikskólum
FORELDRAR UPPLIFA EKKI SAMRÁÐ AÐ NEINU MARKI
Agnar Már
Jónsson
Óvenjumikið var greint af salmonellu í kjúk-
lingum í fyrra og það sem af er þessu ári, en
þeim er fargað samkvæmt sérstökum reglum
um sóttmenguð dýrahræ. Lætur nærri að um
330 þúsund salmonellusmitaðir kjúklingar hafi
verið urðaðir af þessum ástæðum á síðasta ári,
samkvæmt upplýsingum Umhverfisstofnunar.
Langflest tilfelli smits komu upp í búum á
Suður- og Vesturlandi og kjúklingar þaðan
urðaðir á viðurkenndum urðunarstöðum í Fífl-
holti á Mýrum og Strönd austan við Hellu í
Rangárvallasýslu. Einnig komu upp tilvik í
kjúklingabúi í grennd við Dalvík og voru kjúk-
lingar þaðan urðaðir í Glerárdal ofan Akur-
eyrar. Sá urðunarstaður hefur verið aflagður
og er smit kom upp í búinu við Dalvík í byrjun
þessa árs voru smitaðir kjúklingar brenndir í
sorpbrennslustöð á Húsavík.
Guðmundur B. Ingvarsson, sérfræðingur
hjá Umhverfisstofnun, segir að sérstök leyfi
þurfi til að urða sóttmenguð dýrahræ. Ákveðið
ferli fari í gang hverju sinni samkvæmt nýleg-
um verklagsreglum hjá Umhverfisstofnun,
Matvælastofnun og heilbrigðiseftirliti. Samráð
er haft við héraðsdýralækna áður en leyfi er
gefið út. Sama ætti við t.d. þegar kindur með
riðu væru urðaðar, en menguð dýrahræ væru
yfirleitt urðuð sér á urðunarstöðunum.
aij@mbl.is
Um 330 þúsund kjúk-
lingar urðaðir í fyrra
Smit Kjúklingar voru urðaðir í stórum stíl
hér á landi í fyrra vegna salmonellusmits.
„Á dauða mínum átti ég von frekar
en því að einhverjir kæmust að
þeirri niðurstöðu að ég hefði brotið
jafnréttislög,“ segir Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra í tölvu-
pósti sem hún sendi á póstlista Sam-
fylkingarinnar í gærkvöldi. Sem
kunnugt er komst kærunefnd jafn-
réttismála að þeirri niðurstöðu í vik-
unni að forsætisráðuneytið hefði
brotið jafnréttislög við ráðningu á
skrifstofustjóra skrifstofu stjórn-
sýslu- og samfélagsþróunar.
Í ljósi ferils síns í jafnréttisbarátt-
unni segist Jóhanna varla vita hvað-
an á sig standi veðrið. Niðurstaðan
sé henni og ráðuneyti hennar mikil
vonbrigði. „Nú lít ég á það sem verk-
efni mitt að nýta hana sem best,
jafnréttisbaráttunni og faglegum
vinnubrögðum í stjórnsýslunni til
framdráttar,“ segir Jóhanna í nið-
urlagi bréfs síns. „Í þeim efnum
efast ég ekki um að sóknarfæri eru
til staðar.“
einarorn@mbl.is
Segist
slegin yfir
niðurstöðu
Hátt í tvö þúsund manns hafa tekið
afstöðu til Icesave-laganna á banda-
rísku bloggsíðunni Planet Money.
Baldur Héðinsson, sem vinnur hjá
National Public Radio (NPR), skrif-
aði pistil á síðunni þar sem hann
spyr lesendur hvort hann eigi að
kjósa með eða á móti. Tæp 73%
svara spurningunni neitandi.
Baldur lauk nýlega doktorsgráðu í
stærðfræði frá Boston University.
Hann kveðst hafa ákveðið að vinna
hjá NPR til að læra þáttagerð í út-
varpi. NPR, sem er að hluta rekið
fyrir opinber fjárframlög, framleiðir
meðal annars hinn vinsæla útvarps-
þátt This American Life og er Plan-
et Money afsprengi hans.
Baldur segir að niðurstaða könn-
unarinnar kunni að hafa áhrif á af-
stöðu sína, en ekki ráða henni. „Hún
mun hafa einhver áhrif á hvernig ég
kýs og einnig athugasemdirnar, en
ég er ekki búinn að selja atkvæði
mitt,“ segir Baldur og hlær.
73% segja
nei á Plan-
et Money
Gerir Icesave-
könnun vestanhafs