Morgunblaðið - 05.04.2011, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samninganefndir Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins
virðast komnar á sömu blaðsíðuna
varðandi launabreytingar í nýjum
þriggja ára kjarasamningi eftir
verulegar sviptingar sem urðu í
gær. Tilboð vinnuveitenda hjó á
hnútinn en þeir telja sig hafa teygt
sig svo langt að þeir geti ekki staðið
undir kostnaðarhækkunum nema
sköpuð verði góð skilyrði fyrir auk-
in umsvif í atvinnulífinu og atvinnu-
tryggingagjald verði lækkað. Sett-
ar hafa verið fram ákveðnar óskir
um aðkomu stjórnvalda.
Eftir þjark um helgina um launa-
lið væntanlegra samninga hitnaði
verulega í kolunum á sunnudags-
kvöldið vegna ágreinings um fyr-
irkomulag launahækkana. ASÍ
lagði þunga áherslu á að auk al-
mennra hækkana sem tryggðu hag
meðaltekjufólks yrðu lægstu laun
hækkuð sérstaklega með lág-
markstekjutryggingu. Markmiðið
er að lægstu laun fyrir dagvinnu
verði nálægt 200 þúsund krónum
undir lok samningstímans.
Erfitt fyrir ákveðnar greinar
Þetta hefur staðið verulega í
samninganefnd SA vegna þess að
slíkar hækkanir eru taldar afar erf-
iðar fyrir mörg fyrirtæki og
ákveðnar atvinnugreinar, svo sem
verslun, veitingar, samgöngur og
matvælaiðnað, og hafa mikil áhrif á
rekstur á landsbyggðinni.
„Það er erfitt að sjá hvernig
hægt er að samræma þetta mark-
miðum um verðbólgu. Eftir því sem
gengið er nær fyrirtækjum sem
starfa á heimamarkaði, þeim mun
meiri áhrif hlýtur það að hafa á
verðlag,“ segir Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri SA.
Viðræðurnar héngu á bláþræði í
gærmorgun og mikill titringur var
meðal samningamanna ASÍ.
SA komu með útspil eftir hádeg-
ið sem var rætt í samninganefndum
landssambanda ASÍ og á milli
samninganefnda ASÍ og SA fram á
kvöld. Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, segir að með tilboðinu hafi SA
komið verulega til móts við ASÍ.
Útspil SA var þó ekki endanlegt
tilboð enda háð þeim fyrirvara að
samtökin fengju betri trú á þeirri
þróun sem gert er ráð fyrir í yf-
irlýsingu ríkisstjórnarinnar, um
aukin umsvif í efnahagslífinu. Vil-
hjálmur nefnir þrjú atriði í því sam-
bandi: Almenn skilyrði efnahags-
lífsins svo sem skattamál og
gjaldeyrishöft þar sem lækkun at-
vinnutryggingagjalds er lykilatriði,
sjávarútvegsmálin, og stór fjárfest-
ingarverkefni í atvinnulífinu. Sú af-
staða er óbreytt að SA telur óhugs-
andi að ganga frá kjarasamningum
til langs tíma nema óvissunni í sjáv-
arútvegsmálum verði aflétt. Þá
leggur Vilhjálmur þunga áherslu á
að til þess að geta staðið undir þeim
launahækkunum sem rætt er um
þurfi fjárfestingar í atvinnulífinu.
Það komi hagkerfinu í gang, skapi
störf og tekjur og eftirspurn meðan
á þeim stendur og hjálpi atvinnulíf-
inu að byggja sig upp og búa til arð-
bær störf til langs tíma.
„Ég tel að tekist hafi að ýta þess-
um málum verulega áfram en það
er einnig ljóst að það þarf að fá nið-
urstöðu frá stjórnvöldum varðandi
ákveðin atriði,“ segir Gylfi.
Áfram setið við
SA og ASÍ hafa verið að vinna
sameiginlegar athugasemdir og
breytingartillögur við væntanlega
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og
hafa þær verið sendar stjórnar-
ráðinu jafnóðum. Þannig hefur
skilaboðum vegna hugmynda SA
um lausn deilunnar verið komið á
framfæri.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar
fara einn af öðrum til Ísafjarðar þar
sem ríkisstjórnin fundar eftir há-
degið. Ekki er því búist við svörum
í dag. Þó er reiknað með að for-
ystumenn ASÍ og SA fundi með
embættismönnum. Þá verður unnið
í skjalagerð og frágangi ýmissa
mála í smærri hópum.
Hvorki Vilhjálmur né Gylfi vildu
spá því hvenær von væri á að málin
skýrðust.
Morgunblaðið/RAX
Samningaviðræður Þungt var yfir Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ, og Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra SA, í Karphúsinu um tíma í gær.
Beðið svara ríkisstjórnar
Viðræður héngu á bláþræði í gær Útspil SA losaði um pattstöðuna í bili
Tilboðið er háð skilyrðum um lækkun gjalda og framkvæmd stórverkefna
Nýr samningur
er nánast fullbú-
inn til undirrit-
unar um kaup og
kjör smábáta-
sjómanna á bát-
um undir 15
brúttólestum á
félagssvæði
Framsýnar, frá
Ólafsfirði að
Tjörnesi. Um er
að ræða fyrsta heildstæða kjara-
samninginn sem gerður er fyrir
þennan hóp sjómanna hér á landi.
Samningur sem gerður var á árinu
2007 fyrir smábátasjómenn á land-
inu öllu var felldur. Viðræður hafa
gengið vel að sögn Aðalsteins Á.
Baldurssonar, formanns Fram-
sýnar, sem gekk til samninga við
smábátafélagið Klett á Norðurlandi.
„Við teljum mjög brýnt að búa til
kjarasamning, sem verður vonandi
samþykktur, sem tekur til þessa
hóps sjómanna en fram að þessu
hefur ekki verið til sérstakur kjara-
samningur á Íslandi fyrir þennan
hóp. Ávinningurinn er margvíslegur.
Menn koma sér m.a. saman um
launakjör á bátum með mismunandi
veiðarfæri og miðað við mismunandi
fjölda manna um borð.“
Væntanlegur samningur kveður
m.a. á um kauptryggingu fyrir sjó-
mennina en hækkun hennar tekur
síðan mið af því sem um semst fyrir
sjómenn á landsvísu. Þá eru fjöl-
mörg atriði í samkomulaginu svo
sem um uppsagnarfrest, veikinda-
og slysatryggingar o.fl.
Nú er verið að hreinskrifa samn-
ingsdrögin að sögn Aðalsteins, sem á
von á að hann verði undirritaður síð-
ar í þessari viku. omfr@mbl.is
Samið fyrir
smábáta-
sjómenn
Fyrsti kjarasamn-
ingur þessa hóps
Aðalsteinn Á.
Baldursson
Þjóðkirkjan vinnur nú að gerð nýrr-
ar sálmabókar og verður tilrauna-
hefti með 150 nýjum sálmum gefið
út í haust.
Undirbúningur að útgáfu nýrrar
sálmabókar kirkjunnar hefur staðið
með hléum allt frá árinu 1972 þegar
síðast kom út ný sálmabók. Hópur
organista, guðfræðinga og íslensku-
fræðinga hefur komið að sálmabók-
arvinnunni, samkvæmt frétt á vef
Þjóðkirkjunnar, kirkjan.is.Verkefni
nefndarinnar eru m.a. að safna sam-
an óútgefnu sálmaefni, fara yfir
sálmabókina sem nú er notuð og
kalla eftir nýjum sálmum. Aðhald í
fjármálum hefur hægt á vinnunni og
þykir ljóst að enn líði nokkur ár áður
en nýja sálmabókin kemur út.
Tilraunaheftið 150 sálmar verður
gefið út næsta haust með ódýru sniði
og í takmörkuðu upplagi. Reiknað er
með að heftið verði notað samhliða
gömlu sálmabókinni. Þannig megi
sjá hvernig nýju sálmunum verður
tekið í kirkjum landsins.Fyrst og
fremst á að prófa ný lög og nýja
texta. Í sumum tilvikum er um
gamla sálma að ræða. Sérstaklega
er horft til þess að auka úrval sálma
eftir konur. Hluti nýju sálmanna
kemur úr æskulýðsstarfinu, t.d. létt-
ari lofgjörðarsálmar og stuttir
biblíusálmar. Einnig munu nýir ís-
lenskir sálmar birtast í heftinu.
Sumir þeirra eru runnir úr verkefn-
inu Sálmafoss, þar sem ljóðskáld og
tónsmiðir hafa unnið að sálmagerð.
Allt er þetta liður í undirbúningi
að gerð nýrrar sálmabókar. Auk
þess að afla nýrra sálma er nótna-
setning, hljómasetning og undirbún-
ingur kóralbókar hluti af undirbún-
ingnum. gudni@mbl.is
Þjóðkirkjan ætlar að gera
tilraunir með 150 nýja sálma
Hefti með nýjum sálmum er væntanlegt í útgáfu í haust
Morgunblaðið/Golli
Kirkjan Nýir sálmar verða prófaðir.
„Það er gott að þeim miðar áfram
með samningana en þeir mega
ekki vera of uppteknir af því sem
er hjá öðrum,“ sagði Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra í
gærkvöldi, staddur á Ísafirði en
ríkisstjórnin fundar þar í dag.
Hann sagði að þær tillögur samn-
ingsaðila sem sendar voru í fyrra-
dag hefðu verið til skoðunar í gær.
„Við förum yfir þetta en erum ekki
komin þangað að
það strandi á ein-
hverju frá okkur,“
sagði fjármála-
ráðherra og lagði
áherslu á að yfir-
lýsingin væri
ríkisstjórnarinnar.
„Ég vona að það
vinnist vel úr
þessu í vikunni,“ bætti hann við.
Strandar ekki hjá okkur
FARIÐ YFIR TILLÖGUR SAMNINGSAÐILA Í STJÓRNARRÁÐINU
Steingrímur J.
Sigfússon
Skannaðu kóðann
til að lesa fréttir á
mbl.is um kjara-
viðræðurnar.
Hafðu samband. Við hjálpum þér að velja rétta kortið.
MASTERCARD
HJÁ KREDITKORTI
FÁÐU ÞÉR
30 ÁRA REYNSLA AF KORTAÚTGÁFU
kreditkort.is | Ármúla 28
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók tvo karlmenn á þrítugs-
aldri í austurborginni á sunnudag,
eftir að hafa stöðvað ökutæki
þeirra. Í fórum þeirra fundust
fíkniefni og einnig nokkuð af pen-
ingum sem grunur leikur á að séu
tilkomnir vegna fíkniefnasölu.
Annar mannanna var í annarlegu
ástandi og jafnframt eftirlýstur
fyrir aðrar sakir.
Þá fann lögreglan fíkniefni við
húsleit í íbúð í Breiðholti sl. föstu-
dag, bæði amfetamín og marijú-
ana. Á sama stað var lagt hald á
þýfi. Þrír voru handteknir í kjöl-
farið.
Með peninga og
fíkniefni á sér