Morgunblaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta verða skemmtilegir og fjör-
miklir tónleikar. Fyrir hlé leggj-
um við áherslu á íslensk lög og
eftir hlé tökum við upp léttara
hjal,“ segir Friðrik S. Kristinsson,
stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur,
um árlega vortónleika kórsins sem
eru snemma á dagskránni þetta
árið.
Næstu daga boðar kórinn til
söngveislu í Langholtskirkju.
Fyrstu tónleikarnir eru í kvöld,
þriðjudag klukkan 20, og þá verða
þrennir tónleikar til; á morgun,
miðvikudag, og á fimmtudag,
hvorirtveggja klukkan 20, og á
laugardaginn kemur klukkan 16.
„Fyrir hlé syngjum við lög eftir
íslensk tónskáld, til að mynda
lagasyrpu eftir Árna Thorsteins-
son, og lög eftir Pál Ísólfsson, Sig-
valda Kaldalóns og Sigurð Þórðar-
son – þetta eru klassísk íslensk
karlakórslög,“ segir Friðrik S.
Kristinsson, stjórnandi kórsins.
„Einsöngvarar stíga þá fram úr
kórnum og syngja með,“ bætir
hann við.
„Eftir hlé kennir ýmissa grasa.
Þá syngjum við til að mynda lög
eftir Schubert og Emil Thorodd-
sen, írskt þjóðlag og annað frá
Mexíkó. Þetta verður býsna fjöl-
breytileg og lifandi efnisskrá.“
Robert Sund hefur útsett þjóð-
lögin og er sagt að galsinn ráði
þar ríkjum. „Nú má heyra hvað
við höfum verið að æfa seinni
hluta vetrar, eftir að jólatónleikum
lauk,“ segir Friðrik. „Við skiptum
vetrinum í tvo hluta. Á haustin
leggjum við áherslu á jólatónleika
í Hallgrímskirkju og síðan er
stefnan tekin á vortónleikana í
Langholtskirkju eftir áramót.“
Friðrik segir að kórinn sé alltaf
að æfa upp nýtt efni.
„Inn á milli eru perlur sem við
tökum upp aftur en að mestu leyti
er á tónleikunum efni sem við höf-
um ekki flutt áður.“
Eldri félagar syngja með
Í Karlakór Reykjavíkur eru nú
um 80 félagar. Friðrik segir að
undir lok tónleikanna sláist síðan
eldri kórfélagar í hópinn, 30 tals-
ins, og þá muni 110 karla kór
syngja fyrir gestina.
„Þetta verður mjög skemmtilegt
og prógrammið er metnaðarfullt,“
segir hann.
Friðrik segir góða endurnýjun
vera í Karlakórnum, margar góðar
raddir hafa bæst í hópinn á síð-
ustu árum.
„Í kórnum eru margir nýir fé-
lagar og það er góð blanda með
hinum sem hafa verið lengur. Það
er gott þegar tekst að æfa alla
saman og menn syngja sem ein
rödd.“
Eins og unnendur kórsins
þekkja leikur hinn kunni píanó-
leikari Anna Guðný Guðmunds-
dóttir á flygilinn með Karlakór
Reykjavíkur, en hún hefur verið
undirleikari kórsins í yfir tvo ára-
tugi. Frekari upplýsingar um kór-
inn og miðasölu má finna á vef
hans, kkor.is.
Morgunblaðið/Kristinn
Góð blanda „Í kórnum eru margir nýir félagar og það er góð blanda með hinum sem hafa verið lengur. Það er gott
þegar tekst að æfa alla saman og menn syngja sem ein rödd,“ segir stjórnandinn. Myndin var tekin á æfingu 2. apríl.
Fjölbreytileg efnisskrá
Karlakór Reykjavíkur syngur á fernum vortónleikum
Flytur sannkallaðar karlakórsperlur í bland við nýæfð lög
Á æfingu „Metnaðarfull efnisskrá,“
segir Friðrik S. Kristinsson.
Hollenski píanóleikarinn Martyn
van den Hoek leikur verk eftir
Franz Liszt á tónleikum í Kirkju-
hvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ í
dag, þriðjudag klukkan 17.
Van den Hoek er talinn með
fremstu Liszt-túlkendum samtím-
ans. Með tónleikunum er þess
minnst að í ár eru 200 ár liðin frá
fæðingu tónskáldsins. Þetta er síð-
asti viðburður vetrarins í röð tón-
leika sem Gerrit Schuil hefur skipu-
lagt og stjórnar í Kirkjuhvoli.
Meðal verka á efnisskrá tón-
leikanna má nefna Dante-sónötuna,
því næst píanógerð Liszts á eigin
söngvum við þrjár sonnettur Petr-
arca, svo og píanóverk sem hann
samdi yfir söngva eftir Chopin. Af
öðrum verkum kvöldsins má nefna
hina frægu Transcendental etýðu
nr. 11 og Ungverska rapsódíu nr. 2.
Martyn van den Hoek nam píanó-
leik við Tónlistarháskólann í Rotter-
dam en stundaði síðan framhalds-
nám í Moskvu, Búdapest og New
York. Árið 1986 vann hann fyrstu
verðlaun í alþjóðlegu píanókeppn-
inni sem kennd er við Franz Liszt.
Kunnur túlkandi
verka Liszts leikur
Píaníóleikarinn Martyn van den Ho-
ek er meðal kunustu Liszt-túlkenda.
Skannaðu kóðann
til að horfa á kór-
inn flytja „Soon Ah
Will Be Done“ 13.
mars 2010.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
551 1200 / leikhusid.is
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fim 7/4 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 19:00 Sun 15/5 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 19:00 Lau 30/4 kl. 22:00 Fim 19/5 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 22:00 aukasýn Fim 5/5 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 19:00
Sun 10/4 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 19:00 Lau 28/5 kl. 19:00
Sun 17/4 kl. 20:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00
Fös 29/4 kl. 19:00 Fös 13/5 kl. 19:00
Fös 29/4 kl. 22:00 aukasýn Fös 13/5 kl. 22:00 aukasýn
Tveggja tíma hláturskast...með hléi
Strýhærði Pétur (Litla sviðið)
Mið 6/4 kl. 20:00 aukasýn Lau 9/4 kl. 20:00 6.k Fim 28/4 kl. 20:00 8.k
Fim 7/4 kl. 20:00 aukasýn Sun 10/4 kl. 20:00 aukasýn Fös 29/4 kl. 20:00 9.k
Fös 8/4 kl. 20:00 5.k Sun 17/4 kl. 20:00 7.k Lau 30/4 kl. 20:00 10.k
Krassandi ruslópera. Áhorfendur standa á sýningunni. Ekki við hæfi ungra barna.
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Fös 8/4 kl. 20:00 forsýn Fös 6/5 kl. 20:00 6.k Mið 25/5 kl. 20:00 16.k
Lau 9/4 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 20:00 7.k Lau 28/5 kl. 20:00 aukasýn
Sun 10/4 kl. 20:00 forsýn Sun 8/5 kl. 20:00 8.k Sun 29/5 kl. 20:00 17.k
Þri 26/4 kl. 20:00 forsýn Fös 13/5 kl. 20:00 9.k Þri 31/5 kl. 20:00 18.k
Mið 27/4 kl. 20:00 frumsýn Sun 15/5 kl. 20:00 10.k Mið 1/6 kl. 20:00 19.k
Fim 28/4 kl. 20:00 2.k Þri 17/5 kl. 20:00 11.k Fim 2/6 kl. 20:00 20.k
Fös 29/4 kl. 20:00 aukasýn Mið 18/5 kl. 20:00 12.k Fös 3/6 kl. 20:00 21.k
Lau 30/4 kl. 20:00 3.k Fim 19/5 kl. 20:00 aukasýn Lau 4/6 kl. 20:00 22.k
Þri 3/5 kl. 20:00 4.k Fös 20/5 kl. 20:00 13.k Sun 5/6 kl. 20:00
Mið 4/5 kl. 20:00 5.k Sun 22/5 kl. 20:00 14.k
Fim 5/5 kl. 20:00 aukasýn Þri 24/5 kl. 20:00 15.k
Samvinnuverkefni Borgarleikhússins og Vesturports
Afinn (Stóra sviðið)
Fös 8/4 kl. 19:00 Lau 16/4 kl. 20:00 Fim 28/4 kl. 20:00
Óumflýjanlegt framhald Pabbans
Nýdönsk í nánd (Stóra sviðið)
Fim 14/4 kl. 20:00 Fös 15/4 kl. 19:00 Fös 15/4 kl. 22:00
Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr
Eldfærin (Stóra sviðið)
Lau 9/4 kl. 13:00 3.k Lau 16/4 kl. 13:00 Lau 30/4 kl. 13:00
Lau 9/4 kl. 14:30 4.k Lau 16/4 kl. 14:30 5.k Lau 30/4 kl. 14:30
Sun 10/4 kl. 13:00 Sun 17/4 kl. 13:00 Sun 1/5 kl. 13:00
Sun 10/4 kl. 14:30 Sun 17/4 kl. 14:30 Sun 1/5 kl. 14:30
Sögustund með öllum töfrum leikhússins
Strýhærði Pétur – „Dásamleg upplifun“– S.A. TMM
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur