Morgunblaðið - 05.04.2011, Side 16

Morgunblaðið - 05.04.2011, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kaupmátturlauna hefurfallið á und- anförnum árum svo sem vænta mátti. Bankakreppan hafði sitt að segja að sjálfsögðu. En öfgar vinstristjórnar í skatt- heimtu, seintekin vaxtalækkun, ógagnsæ „einkavæðing“ tveggja hinna föllnu banka og hik bank- anna við að koma til móts við þarfir þjóðarinnar og ekki síst fjandskapur ríkisvalds í garð at- vinnulífs og andúð á fjárfest- ingum hefur þó gert enn meiri skaða. Þess vegna er viðsnún- ingurinn miklu hægari en ella og atvinnuleysið meira en þyrfti. Skattahækkanir er lausn núver- andi ríkisstjórnar á sérhverjum vanda. Nefndir, starfshópar og rýnimenn eru jafnan skipaðir til verka þegar eitthvert álitaefni kemur upp sem nær athygli fólks og fjölmiðla. Þaðan koma þó sjaldnast nokkur úrræði eða skapandi tillögur sem gefa fólki og fyrirtækjum nýja kosti. Helst að bent sé á að enn megi hækka þennan skattinn eða hinn. Í þessu andrúmslofti fara kjaraviðræður fram. Vissulega er sviðsetningin og leikræn upp- færslan sjálfri sér lík. Samnings- aðilarnir reyna að fela fyrir þeim sem fylgjast með um hve lítið er að semja. Þess vegna er tölt upp í stjórnarráð í fyrsta þætti og í öðrum þætti upp í Ráðherra- bústað og „gerðar kröfur“ á rík- isvaldið. Útspil ríkisstjórnar- innar var eitthvert hið smá- gerðasta sem sést hefur við slíkar uppsetningar. „Lofað var“ að þær smávægilegu launa- hækkanir sem menn tala um myndu líka ganga til bótaþega. Datt einhverjum öðrum en norrænni vel- ferðarstjórn í hug að annað kæmi til greina? Lofað var að persónuafsláttur yrði verð- tryggður. Það loforð hefur legið fyrir lengi. Þá var fram- kvæmdum lofað og voru það þær sömu sem forystumenn ríkis- stjórnarinnar hafa lofað reglu- bundið á síðustu tveimur árum. Þeim loforðum hafa jafnan fylgt tölur um störfin sem skapast myndu í kjölfarið. Ef eitthvað hefði verið að marka þau loforð öll væri atvinnuleysið fyrir löngu horfið. Og það er mergurinn málsins. Forystumenn atvinnu- lífsins, ekki síst forseti ASÍ, hafa margoft bent á að ríkisstjórnin hafi alls ekki staðið við yfirlýs- ingar sínar sem gefnar voru síð- ast þegar eins stóð á í kjara- viðræðum og núna. Hefði ekki verið nær að fara yfir þau brigð öll og krefjast efnda áður en lát- ið er eins og einhver veigur sé í því endurtekna efni sem nú var spilað út til að slá ryki í augu launþega? Og auðvitað er það svo að við gerð kjarasamninga er mjög erfitt að eiga skipti við rík- isstjórn sem hefur það beinlínis á stefnu sinni að grafa undan ís- lenskum sjávarútvegi, stöðug- leika innan hans og þó einkum möguleikum hans til framtíðar. Lágmarkskrafan hlýtur að vera sú að ríkisstjórnin geri hreint fyrir sínum dyrum varðandi sjávarútveginn áður en lengra er haldið. Ríkisstjórnin þvælist fyrir þróun kjarasamninga} Launamál á leiksviði Skoðanakönnunsem birt var í gær sýnir að fólk hefur ekki tekið skýra afstöðu til þess hvernig greiða ætti Icesave III samningana yrðu þeir samþykktir í kosningunum á laugardag. Spurt var að því hvernig fólk teldi best að ríkissjóður aflaði þeirra rúmlega 26 milljarða króna sem fjármálaráðuneytið telur að þyrfti að greiða á þessu ári yrðu samningarnir sam- þykktir. Könnunin sýnir að 55% svara þessu ekki, 21% vill taka lán fyrir kostnaðinum, 16% vilja skera niður og 9% vilja hækka skatta. En þó að niðurstaðan sé afar óljós um afstöðu fólks til þess hvernig ætti að fjármagna samn- ingana yrðu þeir samþykktir, má segja að hún sýni um leið að þeg- ar fólk stendur frammi fyrir þessum raunveruleika þykir því enginn kostur góður. Könnunin gaf þannig óljósar niðurstöður en varpar um leið ljósi á þá staðreynd að þeir peningar sem færu í að greiða löglausar kröfur Breta og Hollend- inga yrðu ekki not- aðir í annað. Og til að setja þessi út- gjöld í samhengi má hafa í huga að útgjöldin í ár yrðu jafnmikil og allur stofnkostn- aður Búðarhálsvirkjunar, tvö- faldur rekstrarkostnaður Há- skóla Íslands eða tveir þriðjuhlutar rekstrarkostnaðar Landspítalans. Og þetta er aðeins greiðslan sem liggur fyrir fyrsta árið og ekki yrði komist hjá segðu Ís- lendingar já á laugardag. Full- komin óvissa ríkir um fram- haldið en töluverðar líkur eru á að þar yrði um margfalt hærri fjárhæðir að ræða. Tugir eða hundruð milljarða eru óraunverulegar tölur, en þegar þær eru settar í samhengi sést vel hversu ofboðslegar fórn- ir ríkisstjórnin reynir að telja landsmenn á að færa vegna Ice- save-lögleysunnar. Fórnarkostnaðurinn vegna Icesave III yrði í senn gríðarlegur og raunverulegur } Miklar fórnir fyrir ekki neitt S tjórnmálamaðurinn lætur ekki að sér hæða. Fyrir hrun gengu lánshæfismatsfyrirtæki út frá því sem vísu að ríkisvaldið stæði á bak við skuldbindingar viðskiptabank- anna. Í krafti þess góða lánshæfismats sem bankarnir hlutu vegna þessarar meintu ríkis- ábyrgðar fengu þeir stjarnfræðilegar upp- hæðir að láni frá útlöndum. Stjórnmálamaðurinn horfði í gegnum fing- ur sér með þessa skuldasöfnun, því hún jók veltu í þjóðfélaginu og skilaði sér í ríkiskass- ann. Þannig gat stjórnmálamaðurinn sinnt sínu helsta áhugamáli, sem er að vera góður fyrir annarra manna peninga. Enn er stjórnmálamaðurinn við sama hey- garðshornið. Nú er það honum sérstakt áhugamál að almenningur taki á sig skuld- bindingar einkabanka í útlöndum. Með þeim gjörningi verður auðveldara fyrir ríkið að fá áfram lán, hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum ríkjum. Þannig get- ur stjórnmálamaðurinn áfram sinnt sínu helsta áhuga- máli, sem er að vera góður fyrir annarra manna peninga. Stjórnmálamaðurinn er lydda. Hann beygir sig og bugtar fyrir yfirgangi gamalla nýlenduvelda, sem tóku þá ákvörðun, að íslenska ríkinu forspurðu, að veita því „lán“ til að bjarga þeim einstaklingum sem reyndust svo fífl- djarfir að leggja peninga sína inn á hávaxtareikninga Landsbanka Íslands. Nú skipta endurheimtur í þrotabú Landsbankans, gengisþróun og aðrir áhættuþættir í sjálfu sér engu máli, þegar metið er hvort almenn- ingur eigi að gangast í ábyrgð fyrir slíkar skuldbindingar einkaaðila. Hér er um prin- sippmál að ræða. Erum við fullgild og stolt þjóð, sem lætur ekki baráttulaust undan of- beldi erlendra gerræðisafla, eða erum við máttlausar og þreklausar undirlægjur, sem láta vaða yfir sig á skítugum skónum vegna þess að það er „þægilegra“ að friða útlenda oflátunga? Að því slepptu er augljóst að með því að samþykkja samninginn er verið að taka mikla áhættu. Ef eitthvað er enda að marka heilaþvott stjórnmálamannsins, um að útgjöld ríkisins verði hverfandi, gengis- áhætta sé engin og endurheimtur verði að lík- indum 100%, af hverju er þá verið að veita ríkisábyrgð á kröfunni? Þá er öldungis óþarft að veita slíka ábyrgð. Mál eins og þetta gera gagn að því leyti að þau afhjúpa stjórnmálamanninn fyrir þjóðinni. Þau sýna svart á hvítu að hann hugsar bara um eigin botnhlera og lætur sig litlu varða þær hugsjónir sem mestu skipta; um að standa með sjálfum sér og þjóðinni, sem honum var treyst til þess að verja með kjafti og klóm. Kannast einhver við að hegðun stjórnmálamannsins núna eigi sér einhverja fyrirmynd? Hvenær áður hefur baráttan snúist um að taka erlend lán til skamms tíma, til að standa straum af erlendum lánum og verða ekki „tímabundnum lausafjárvanda“ að bráð? ivarpall@mbl.is Ívar Páll Jónsson Pistill Stjórnmálamaðurinn enn í stuði STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Rúnar Pálmason runarp@mbl.is M eð því að færa verk- efni efnahags- brotadeildar yfir til embættis sérstaks saksóknara, líkt og gert er ráð fyrir í nýju stjórnar- frumvarpi, er fyrsta skrefið stigið í átt að því að mynda nýja efnahags- brotastofnun sem mun fara með rannsókn á öllum fjármuna- og efna- hagsbrotum í landinu. Fyrirmyndin er norska stofnunin Ökokrim sem fer með rannsókn allra stærri efna- hagsbrota þar í landi. Með sameiningunni á að gera rannsóknirnar skilvirkari og koma í veg fyrir tvíverknað og henni er vafalaust ætlað að koma í veg fyrir að atvik á borð við það sem varð árið 2008, þegar efnahagsbrotadeild rík- islögreglustjóra fékk húsleitarheim- ild í húsakynnum skattrannsóknar- stjóra, endurtaki sig. Frumvarpið hefur verið samþykkt í ríkisstjórn og sent þingflokkum Samfylkingar og Vinstri grænna. Það verður væntanlega lagt fyrir á Alþingi innan tíðar og er vonast til að það verði að lögum fyrir þingslit. Rannsakað á tveimur stöðum Sameining efnahagsbrotadeildar og sérstaks saksóknara er þó aðeins fyrsti áfanginn í að endurskipuleggja rannsókn og saksókn efnahagsbrota. Í innanríkisráðuneytinu er vonast til að innan þriggja ára verði til ný efna- hagsbrotastofnun sem annist rann- sókn og saksókn í alvarlegum og flóknum efnahagsbrotum. Starfsemi sem hin nýja stofnun myndi sinna er nú sinnt af nokkrum stofnunum, m.a. skattrannsóknar- stjóra, lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu, ríkissaksóknara og rann- sóknardeild tollstjóra. Innan ráðu- neytisins er einnig vilji til að rann- sóknir Fjármálaeftirlitsins og Sam- keppniseftirlitsins á málum, sem varða þyngri refsingu en sektum, verði færðar yfir til nýju stofnunar- innar. Innan stjórnkerfisins hefur verið bent á að innan þessara stofnana sé að finna mikla sérhæfða þekkingu en á hinn bóginn sé oft verið að rann- saka afmörkuð (meint) brot, sem eru í raun hluti af víðtækari brotastarf- semi. Engin stofnun hafi yfirsýn yfir alla brotastarfsemina og engin stofn- un hafi valdboð yfir annarri til að safna saman upplýsingum eða taka yfir rannsókn, líkt og kom svo ber- lega í ljós þegar efnahagsbrotadeild- in þurfti húsleitarúrskurð til að afla gagna hjá skatttrannsóknarstjóra. Þá eru þekkt dæmi um að verið sé að rannsaka sömu háttsemi á fleiri en einum stað og að sakborningar þurfi að mæta í yfirheyrslur hjá tveimur ólíkum stofnunum vegna sama málsins. Þá hefur ráðuneytið bent á að algengt sé að ein stofnun hefji rannsókn en þegar líður á rannsóknina komi í ljós að hún sé betur komin hjá annarri stofnun. Allt veldur þetta tvíverknaði sem tefur mál og truflar og veldur sak- borningum miklu óhagræði og hug- arangri. Þótt ekkert sé ákveðið í þessum efnum virðist blasa við að hin nýja efnahagsbrotastofnun muni rísa á grunni embættis sérstaks sak- sóknara en líftími embættisins er takmarkaður og á að vera lokið fyrir 1. janúar 2013. Starfsmenn sérstaks saksóknara er nú 72 en til saman- burðar má nefna að starfsmenn efnahagsbrotadeildar voru að jafn- aði 14-15 á árunum 2004-2008 og þar eru starfsmenn nú 17. Starfsmönnum efna- hagsbrotadeildar verð- ur boðið að flytjast yfir til sérstaks saksóknara eða þiggja annað starf innan lögreglunnar, skv. upplýsingum Morgun- blaðsins. Ný stofnun rannsaki öll efnahagsbrot Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfuðstöðvar Til stendur að mynda nýja efnahagsbrotastofnun. Allangt er síðan embætti ríkis- saksóknara lagði til að efna- hagsbrotadeild og embætti sér- staks saksóknara yrðu sameinuð. Ríkislögreglustjóri hefur einnig lýst sig fylgjandi sameiningunni. „Það er verið að vinna að sams konar verkefnum á þessum tveimur stöðum,“ seg- ir Sigríður Elsa Kjartansdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara. Hún bendir á að þegar lögum um sérstakan saksóknara var breytt um mitt ár 2010 hafi mörkin enn brenglast en með henni voru verkefni sérstaks saksóknara ekki lengur bundin við bankahrunið heldur víkkuð út og ná nú til rannsóknar á meintum brotum í starfsemi fjármálafyrirtækja. Embætti ríkissaksóknara vilji að mynduð verði öflug stofnun eða deild sem sinni efnahags- brotum og það komi vel til greina að leggja starfsemi annarra stofnana, að hluta eða í heild, undir hana. Mörkin brengluðust SAMS KONAR VERKEFNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.