Morgunblaðið - 05.04.2011, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Kristján B. Heiðarsson hefur marga
þungarokksfjöruna sopið. Hann er í
dag trommuleikari Changer (sem
hann stofnsetti sem sólóverkefni ár-
ið 1999) en hefur einnig leikið á
trommur með sveitum á borð við
Dark Harvest, Stonehenge og Shiva.
Kristján hefur nú tekið hressilega
u-beygju en fyrir stuttu kom út
þriggja laga plata, From This Day
Forward, sem er kassagítarplata.
Til að byrja með verður hún bara fá-
anleg á rafrænu formi, í gegnum
gogoyoko.com og veldur hún reynd-
ar nokkrum usla þar, situr nú í
fjórða sæti þess lista sem nær yfir
vinsælustu plöturnar.
Stokkið á milli
„Þetta var búið að liggja á borðinu
hjá mér í tvö ár, tilbúið,“ segir Krist-
ján. „Ég ákvað loksins að skella
þessu inn á gogoyoko. Ég er nefni-
lega að vinna að heilli breiðskífu með
svona efni og vildi því koma þessu út
á undan.“
Kristján hlær við þegar hann er
spurður hvers vegna hann sé að
bregða sér út fyrir ljúfan djöful-
ganginn.
„Ég keypti mér Vs. með Pearl
Jam og Human með Death sama dag
hér í gamla daga. Ég hef alltaf
stokkið svona á milli. Ég er kannski
að semja epískt svartþungarokk
einn hálftímann en svo kassagítar-
ballöðu þann næsta. Það er ekkert
sem ræður þessu, ég veit sjaldnast
hvað kemur þegar ég sest niður að
semja.“
Hóað í hina og þessa
From This Day Forward var unn-
in með Ólafi Arnalds, sem hefur eins
og Kristján innsýn í harðar og mjúk-
ar víddir rokksins og Andra Ólafs-
syni, sem lék á bassa. Allur gítar,
raddir og trommur voru hins vegar í
höndum Kristjáns. En hópurinn sem
hann ætlar að vinna breiðskífuna
með er öllu breiðari.
„Ég hef svona verið að hóa í hina
og þessa og það kemur sjálfum mér
á óvart hversu fjölskrúðugur hópur
þetta er. Annars er ég allur að gírast
upp fyrir verkefnið, það er helvíti
gaman að komast loksins fram fyrir
trommusettið og sjá fólkið í saln-
um!“
Úr hávaða í höfga
Rokktrymbillinn Kristján B. Heið-
arsson gefur út kassagítarplötu
Ljósmynd/Wiebke Essert
Ljúfur Kristján B. Heiðarsson, þungarokkari með meiru, fann mjúka manninn í sér.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Tólf stelpur kepptu í
fyrirsætukeppninni
Elite Model Look í
Hafnarhúsinu á laugar-
daginn og bar Magda-
lena Sara Leifsdóttir sig-
ur úr býtum. Margrét
Finnbogadóttir var valin
andlit 66°N og fær hún að
launum 100.000 króna aug-
lýsingasamning í eitt ár.
Magdalena tekur þátt sem
fulltrúi Íslands í einhverri
stærstu fyrirsætukeppni í
heimi næsta vetur en
Elite-skrifstofan er ein
af þeim allra stærstu.
Þar keppir Magda-
lena við um 70
stelpur víðs veg-
ar að í heim-
inum. Keppnin verður haldin 11.11.
’11 en ekki er búið að ákveða hvar
hún fer fram, að sögn Tinnu Aðal-
björns, sem er yfir Elite á Íslandi
og skipuleggjandi íslensku keppn-
innar. Þátttaka í keppninni getur
gert mikið fyrir fyrirsætuferilinn
og hefur Önnu Jia, sigurvegaranum
hér heima frá því í fyrra, vegnað
vel.
Fylgst með Áhorfendur glaðir í bragði.
Spennan í hámarki Fulltrúi Elite Model Look frá París, Stephane Pesci-
moro, tilkynnir úrslitin.
Hress Kynnirinn Erpur á spjalli við áhorfanda.
Fjölskyldan Sigurvegarinn Magdalena Sara Leifsdóttir ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Tónlistaratriði Erpur Eyvindarson var
kynnir en hann rappaði líka tvö lög.
Ný andlit koma í ljós
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurvegarinn Magdalena
Sara Leifsdóttir.
Magdalena Sara Leifsdóttir
vann Elite-fyrirsætukeppnina